Vísir - 23.06.1976, Qupperneq 11
VISIB Miövikudagur
23. júni 1976
Ódýrar plötur
í Vörumarkaði
Þessa dagana stendur yfir
mikil plötusala inni i Vöru-
markaði og er auglýst aö hér sé
um allt að 70% afföll að ræða.
Er hér verið að selja upp
birgðir Hljóma hf. og á að
seljast upp og verður ekki gefið
út aftur. Hér er sem sagt kjörið
tækifæri fyrir þá sem eru að
safna islenskum plötum að gera
sæmileg kaup en breiðskifurnar
eru seldar á 1.200 krónur og tvö-
faldar plötur á 2.000 krónur.
Auk þess er verið aö selja
plötur sem Fálkinn hf, hefur
gefið út og kennir þar margra
grasa. T.d. er enn hægt að fá 12.
milurnar hans Hauks Mortens á
hundrað kall, báðar gömlu Trú-
brotsplöturnar litlu á sama
verði og svo mætti um tið telja.
Eitthvað af Rió plötunum er lika
þarna til sölu svo og ræður Ólafs
Thors og þjóðsögur lesnar af
Ævari Kvaran.
Umsjón: Halldór Ingi Andrésson
Gylfí tílbúinn ó plosli
Geimsteinn hið nýja fyrirtæki
Rúnars Júliussonar hefur ný-
verið gefið út tvær breiöskifur
„Rock N Roll öll min bestu ár”
með BrimklÖ og „Hvað dreymdi
sveininn? Draumur nr. 999”
með Rúnari Júliussyni, en
þe ssar plötur er fjallað nánar
hér á síðunni.
En næsta plata sem Geim-
steinn mun gefa út er önnur
breiðskifa Gylfa Ægissonar sem
er að þessu sinni tileinkuð föður
hans Ægi Jónssyni. Þessi breið-
ski'fa Gylfa er þó ekki væntanleg
á markaðinn fyrr en eftir einn
tU tvo mánuði. Ástæðan fyrir
þvi, er sú að Rúnar taldi að lik-
lega væri markaður aö fyllast
þessa dagana, enda mUtið gefiö
útaf plötum meðislenska texta.
Gylfi Ægisson hefur vitanlega
sjálfur samið aUa texta á plöt-
unni og öll lögin utan eitt, sem
er instrumental lag eftir föður
hans. Þeir sem aðstoða Gylfa á
þessari plötu eru Rúnar Július-
son, Magnús Kjartansson,
Hrólfur Gunnarsson og Guð-
mundur Steingrimsson leika á
hljóðfærin en bakraddir syngja
Rúnar, Magnús Kjartansson,
Magnús Sigmundsson og Maria
Baldursdóttir. Platan var tekin
upp hér heima.
Kraftinn vantaði
Söngurog
textor
sterkasta
hliðin
Rióið þarf ekki að kynna.
„Verst af öllu..” er sjöunda
plata þeirra og er i gamla „Rió
ritualinu”. Nafnið „Verst af
öllu..” er nafnið á einu lagi plöt-
unnar en ekki stimpill þó fullvist
megi teija að hún sé ekki besta
Rió platan. „Verst af öllu...” er
einungis gamanplata, þó með
kaldhæðni i sumum textum.
A þessari plötu eru 12 lög, þar
af þrjú eftir Evert Taube, eitt
eftir Arlo Guthrie (Honolulu
Baby) eitt eftir Kris Kristoffer-
son og eitt eftir Shel Silverstein.
Hér er þvi um kántri-sánd að ,
ræða eins á svo mörgum
islenskum plötum um þessar
mundir. Allt spil er einfalt og
þægilegt. Söngur þeirra félaga
og textarnir han Jónasar eru
sterkast hliðin á plotunni.
Söngurinn er jafnvel liflegri en *
vanalega hjá þeim félögum og
er það reglulega skemmtilegt.
Fyrsta lagið er lika gott dans-
lag,,,Ég vil elska”. „Verst af
öliu...” er tileinkað öllum pipar-
sveinum i Reykjavik, Taube
lag, en þau falla lang best að Rió
ritualinu. „Eina nótt” heitir
„Help me make it through the
night” á islensku. Helgi Péturs-
son syngur þetta og nær Berta
Jensen-tónum stundum. Annars
er útgáfa þessi hvorki verri né
betri en aðrar útgáfur af
laginu, þannig að tilvist þess á
plötunni er út I hött. „Siggi
Jóns” lagið ballaður um strák
sem stelpa yfirgefur og stráksi
fremur misheppnað sjálfsmorð.
Uppbygging i söng er mikið til
sú sama og i laginu „Strákur að
vestan”. Lag Agústs „Einn á
báti” er nú varla það sem mátt
hefði búast við af honum. „Allir
eru að gera það” er sungiö af
Jónasi Friðrik en hann hefur
Taube-lag, hopp-Rió taktur, eitt
af skemmtilegri lögunum og
textinn mjög efnisgóður.
„Bimbó” er áframhald á gamni
vel og skemmtilega flutt, og svo
kannast kannski einhver við
lagiö lika. „Týndi maðurinn” er
vonlaus reggae tilraun, meira
aö segja reynt að syngja jafn
bjagað og Bob Marley, þaö
gerfi-goð. Já og textinn er alveg
út i loftið, galtómur! „Stebbi og
Lina” er þriðja Taube-lagið og
gott lika, og textarnir við
Taube-lögin er lika meira i Rió
stilnum. Dæmisaga eins og hin
tvö, og siðasta erindið alveg
ágætt. Arlo Guthrie lagið kemur
svo siðast með hnyttnum
texta og heiti „Kvennaskóla-
pia” og flutningur Riósins léttur
og liflegur sem margir gætu
lært af hér. Þessi plata Riósins
er vel heppnuö ca. 75% sem
þýðir að hér plata vel yfir
meðallagi og eflaust eftir aö
létta lund landans i sumar. Og
er það ekki bara nokkuö afrek?
plötur frá
Gimsteini
Fyrsta sólóhljómplata
Rúnars Júliussonar tónlistar-
mannsfrá Keflavik er komin út
á vegum nýstofnaðs hljómplötu-
fyrirtækis hans, Geimsteins.
Platan ber heitiö „Hvað
dreymdi sveinninn? Draumur
nr. 999,” en undirtitill hennar er
„Málmtréð i skóginum.”
Á plötunni eru 13lög þar af tvö
eftir Rúnar sjálfan. Textar eru
allir á islensku, eftir Rúnar,
Þorstein Eggertsson og Jónas
Friðrik. Einnig er á plötunni „Ö
Jesú bróðir besti” eftir Pál
Jónsson en þá hljóðritun gerði
afi Rúnars Stefán Bergmann,
þegar Rúnar var 5 ára gamall.
Hann tileinkar afa sinum plöt-
una.
Brimkló
Geimsteinn sendir einnig frá
sér þessa dagana ellefu laga
hljómplötu með hljómsveitinni
Brimkló. Er sú plata einskonar
sýnishom af ferli hljómsveitar-
innar, sem hætti störfum fyrir
einu ári og tóku allir þeir menn
— að Pétri Péturssyni pianó-
leikara undanskildum — sem
störfuðu i hljómsveitinni á
starfstima hennar þátt i hljóð-
ritunni.
Hljómplata Brimklóar ber
heitið „Rock ’n’ Roll — öll min
bestu ár”. Lögin eru úr ýmsum
áttum, flest eftir bandariska
söngvara og lagasmiði en tvö
eru eftir gitarleikara hljóm-
sveitarinnar, Arnar Sigur-
björnsson. Textar eru allir á Is-
lensku flestir eftir keflvikinginn
Þorstein Eggertsson en aðrir
eftir „Stegg Högnason”. Platan
er tileinkuð Ingvari Haukssyni,
ökuþór.
hér stilfært textann yfir á
islensku og en útkoman er
ekkertbetri enDr. Hooks. Lagið
„Öli Jó” er nokkuð vel gert en
hér er um að ræða lagið „Only
You” sem Ringo Starr geröi
frægt um árið. Textinn á eftir að
skemmta mörgum þó Óli Jó sé
nú kannski ekki eins mikið i
sviðsljósinu nú og fyrir hálfu
ári. „Ungfrúin dansar” er
Plötuumslag og hluti Riós, Jón-
as, llelgi og Agúst.
Tvœr nýjar
MEXICO MISSIR ÞÓRÐ, HVAÐ ÞÁ?
Mexicó hefur nú misst gitar-
leikara sinn Þórð Arnason, sem
er á leiðinni til Bretlands að
fara að taka upp aðra breiðskifu
Stuðmanna. Liklegt þykir að
Þórður snúi ekki til baka i
Mexicó.
Annars er allt nokkuð óvisst
um framtið hljómsveitarinnr,
en þeir voru að þvi komnir að
fara út i plötugerð. Hugðust þeir
nota boð um að leika i Banda-
rikjunun. fyrir hönd Islands
sem þeim bauðst, og taka upp
breiöskifu þar. En boðið var
tekið til baka og einhverri þjóð-
legri þriggjamanna hljómsveit
boðið.
Rúnar og hljómsveit?
Eftir að hafa lesið poppdálka
blaðanna um helgina ákvað ég
af forvitni að kanna hve mikið
væri til i þvi að Rúnar Júliusson
væri að stofna hljómsveit. Rún-
ar sagði að þetta væri nú
kannski meira hugmynd heldur
en veruleiki en hann væri alla
vega að kanna undirstðurnar
fyrir góðri hljómsveit, en eins
og er þó nokkuð um góða krafta
á lausu, ekki sist frá Keflavik.
En um þaðhvort úr þessu raun-
verulega yröi væri ekki hægt að
segja á þessu stigi málsins. Ef
úr þessu yröi væri betri mögu-
leiki á að koma efni plötunnar,
sem Rúnar gaf út á eigin merki,
á framfæri.
HLJOÐRITI I STANO
UM HELGINA
Diabolus in Musica sem eru
meðal þeirra sem fram koma á
kreppuplötunni margumtöluðu
munu vigja hin nýju tæki Hljóð-
rita sem nú er unnið I fullum
gangi við að setja upp. Liklega
verður þvi lokið nú um næstu
helgi. Annar sem byrjar um likt
leyti mun vera Megas.
BG & Ingibjörg hyggjast taka
saman aftur i sumar og flytja
landsmönnum tónlist sina og þá
sér i lagi það efni sem er á plötu
þeirra „Sólskinsdagar” sem
kom út fyrr á þessu ári en sú
plata hefur aö sögn forráða-
manna selst i um 3000 eintaka
það sem af er. „Mannakorn”
hefur vist einnig gengið sæmi-
lega.
Paradísarplatan
um miðjan júlí
Paradisarbreiðskifan sem
þeir félagar kynntu i Háskólabió
á popphljóm leiku m Lista-
hátiðarinnar, er ekki væntanleg
fyrren eftir fyrstu vikuna i júli.
Plata þessi inniheldur eintómt
frumsamið efni, mest eftir
Björgvin Gislason, gitarleikara,
en lika eru á henni lög eftir
Pétur Hjaltested, Asgeir
Óskarsson, Nikuiás Róbertsson
og Gunnar Hermannsson.
I dag (miðvikudag) stendur
til að velja nafn á plötuna en
hulstrið er rétt að komast yfir
frumvinnustigið. Hulstrið er að
mestu hannað af Þorsteini
Eggertssyni og Björgvini Páls-
syn, ljósmyndara. A forhlið
verður teikning eftir Þorstein en
Björgvin hefur tekið litmynd til
aö prýða bakhliö hulstursins.
Paradis mun vera útgefandi
plötunnar, en kostnaður er nú
þegar kominn upp I eina og
hálfa milljón og taldi Pétur
Kristjánsson söngvari og for-
svarsmaður þeirra að
kostnaöurinn færi alia vega i
tvær og hálfa milljón.
í Dínamitið
Fyrsti útikonsert sumarsins
hér i Reykjavik var haldinn á
Lækjartorgi á sunnudaginn var,
er Dinamit lék þar I klukku-
stund. Svo virðist sem þessum
uppkomum hljómsveita sé vei
tekið, sem er mjög ánægjulegt,
en maður sagði mér að það hef ði
allavega verið tvo þúsund
manns staddir þarna upp úr
þrjú á þessum bliðviðrisdegi.
Dinamit sýndi það greinilega
að samæfingu vantar i hljóm-
sveitina og óöryggi virtist lika
rikja á sviðinu. Þó held ég aö ríú
sé i Dinamit valinn maður i
hverju horni en einhvern veginn
vantaði allan kraftinn og eini
maðurinn sem sýndi eitthvað i
spili var Ragnar Sigurðsson git
arleikari, að öðrum ólöstuöum
Annars ætti þetta að geta lagasl
hjá þeim og þeir ættu að vera
orðnir góðir um miðjan júli.