Vísir - 22.07.1976, Blaðsíða 3

Vísir - 22.07.1976, Blaðsíða 3
) Rúmenska stúlkan er ústöðvandi! — Hún hlaut einkunnina 10 í tveim greinum fimleikanna í gœr - og er óumdeilanlega drottning Olympíuleikanna Hin 14 ára gamla fimleika- stúlka frá Rúmeniu, Nadia Comaneci, er „drottning” Óiympiuieikanna I Montreal, á þvi leikur enginn vafi. Þegar átt- þraut kvenna lauk þar i gærkveldi „átti” sú litla hina 18 þúsund áhorfendur, sem fengu aö sjá hana gera tvær fulikomnar æfingar sem gáfu henni 10 i einkunn. Þar meö hefur hún 5 sinnum fengiö þá umsögn dómara aö æfingar hennar hafi veriö full- komnar — en fyrir þessa ieika hafði slikt aldrei gerst áöur i sögu ólympiuleikanna. t gærkveldi kepptu fimleika- stúlkurnar i frjálsum æfingum, en áður hafði keppninni I skyldu- æfingum lokið. Sú sem hlýtur hæstu samanlagða tölu úr öllum þessum æfingum, sigrar I átt- þraut. Fyrsta æfingin i gærkveldi var á hesti, sem er lélegasta grein Nadiu Comaneci. En hún byrjaði mjög vel. — Það var siðan i annarri greininni, æfingu á svifrá sem áhorfendur gerðu sér grein fyrir þvi að mikill viðburður var að eiga sér stað. Sú litla sýndi ótrúlega hæfni og æfingar hennar voru dæmdar fullkomnar af dómurum keppninnar. — Áhorf- endur voru fyrst sem felmtri slegnir, en siðan voru fagnaðar- lætin þannig að þakið ætlaði bók- staflega af húsinu. Sigurvegarinn frá Munchen, Ludmila Turishcheva fékk góða einkunn á svifránni i sinni fyrstu grein, fékk 9.80 og Olga Korbut virtist vera með mjög góða æfingu á jafnvægisslánni. Áhorf- endur biðu spenntir eftir einkunn hennar, og þegar upp kom 9.50 trylltist allt i mótmæla öskrum. Olga virtist mjög miður sin, og þjálfari hennar, Larissa Latynina, mótmælti kröftuglega við dómarana — án árangurs að sjálfsögðu. 1 þriðju æfingu sinni átti Nadia að gera æfingar á jafnvægis- slánni, en áður kom önnur stór „sprengja”, Nelli Kim gerði frá- bærar æfingar á hesti og fékk 10 i einkunn, i fyrsta skipti sem sovésk stúlka fær þá einkunn. Og Nadiu virtist brugðið. Myndu taugar hinnar ungu stúlku þola álagið? Næst kom Ludmila á jafnvægisslánni og fékk einkunn- ina 9.85, og nú var komið aö Nadiu. Hún gekk öruggum skrefum að jafnvægisslánni og ekki var hægt að merkja taugaóstyrk á hinni 14 ára stúlku. Hún sigldi i gegn um æfingu sina af fullkomnu öryggi, og Ludmila sá að hún hafði hitt fyrir ofjarl sinn. Siðan kom úr- skurður dómara: Aftur einkunnin 10. Nadia gat slakað á i siðustu æfingunni, sem var gólfæfing, en hún heillaði áhorfendur einnig þar þegar hún þeyttist um gólfiö, og lagið sem hún „dansaði” eftir var, Yes, sir, that’s my baby. Nadia hlaut 79.275 stig, Nelli Kim 78.675 og Ludmila Turishcheva 78.625 stig. Olga Korbut hafnaði i 5. sæti og lét i Ijós vonbrigði sin með þvi að yfirgefa keppnisstaðinn áöur en keppni lauk. Hún var óblið á svip- inn og gaut grimmdaraugum til áhorfenda sem höfðu stutt Nadiu svo dyggilega. — En svona er lifiö hjá fþróttafólkinu. Korbut, sem spilaði á tilfinningar fólksins i Munchen, þoldi greinilega ekki velgengni Nadiu litlu sem er aö- eins 1.53 m á hæð og vegur um 40 kiló. — gk-. Undankeppnin i 100 metra flug- sundi kvenna fór fram i gær, en keppt veröur tii úrsiita i sundinu seint i kvöid. f undanrásunum náöi Korneiia Ender bestum tima. Hún synti á nýju ólympiu- meti: 1.01.03. Andrea Poliac A- Þýskalandi synti á 1.01.39. Aörar sem taka þátt í úrsiitasundinu i kvöld eru Wendy Quirk Kanada, Wendy Boglioli USA, Camilla Wright USA, Rosmarie Gabrieii A-Þýskaiandi, Lelei Fonoimoana USA og Tamara Shelofastova Sovétrikjunum. —gk. Montreal í dag Dagskrá Ólympiuleikanna i Montreal i dag, 22. júli: SUND: ki. 13.30 — 100 metra bringusund kvenna, 400 metra skriösund karla, 200 metra skriösund kvenna, 4x100 metra fjórsund karla (allt undanrásir). Kl. 23.00 — 100 metra bringu- sund kvenna (undanúrslit), 400 metra skriðsund karia (úrslit), 100 metra flugsund kvenna (úrslit), 200 metra skriösund kvenna (úrslit), 4x100 metra fjórsund karia (úrslit). DÝFINGAR: ki. 23.00 — Karlar af þriggja metra palli (úrslit). SUNDKNATTLEIKUR: kl. 13.30 — þrir leikir. KÖRFUKNATTLEIKUR: kl. 13.00 — Búlgaria—Sovét (konur), kl. 15.00 — Tékkóslóvakia—Puerto Rico (karlar), Japan — Tékkóslóvakia (konur), kl. 20.00 — ttalía—Júgóslavia (karl- ar) kl. 23.00 — USA—Kanada (konur). HNEFALEIKAR: kl. 17.00 og 23.00 — önnur umferö I Iéttari flokkum. KNATTSPVRNA: kl. 19.00 Spánn — A-Þýskaland, ki. 01.00 tran — Pólland. HANDKNATTLEIKUR: kl. 21.30 — Sovét — Rúmenia (konur), A-Þýskaiand—Japan (konur), Ungverjaland — Kanada (kon- ur), kl. 23.00 — Júgóslavia — Sovét, V-Þýskaland — Kanada, Danmörk — Japan. kl. 00.30 — Ungverjaland — USA, Pólland — Tékkóslóvakia, R'úmenia — Túnis. FIMLEIKAR: ki. 23.30 — Einstaklingskeppni kvenna (úrslit). LYFTINGAR: kl. 18.30 og 23.00 — Millivigt. Auk þess veröur keppt I skylmingum, hjólreiöum, hnefaleik- um, róöri, sundknattleik, landhokky, skotfimi, hestamennsku, Gömul drottning og ný. Tii vinstri er hin fræga sovéska fimieikakona Ludmila Turischeva sem var sigurvegari á Ólympiuleikunum I Munch- en, en sú til vinstri er Nadia Comaneci sem á hug og hjörtu allra sem hafa séö hana i Montreal, en þar hefur hún fimm sinnum hlotiö einkunnina 10 fyrir æfingar sinar. Sovéski fimleika maöurinn Nikolai Andrianov sigraöi I tylftarþraut í fimleikakeppninni I Montreal og skaut þar aftur fyrir sig sigur- vegaranum frá I Munchen, japananum Kato. Hér sést Nikolai i hringjunum. Harka að fœrast í fótboltann Þaö var heilmikill flautukon- sert hjá italska dómaranum Michelotti sem dæmdi leik Mexi- kó og israels i knattspyrnu I gær- kvöldi. Hann var flautandi i tima og ótima, og þrivegis sendi hann leikmenn af veili, tvo israels- menn og einn mexikana. Mexiko náöi forustu á 20 minútu meö marki Victors Rangel, og minútu fyrir hálfleik bætti hann ööru marki viö. En þegar 9 minútur voru liðnar af siðari hálfleik hzfði tsrael jafnað. Fyrstskoraði YaronOz og siðan jafnaði Itzhak Shum úr vitaspyrnu. Þá færðist mikil harka i leikinn og þrir leikmenn voru sendir i bað, en fleiri urðu mörkin ekki. Frakkar unnu auðveldan sigur gegn Guatemala þegar þeir sigruðu með 4 mörkum gegn einU, og eru frakkar nú öruggir um að komast i 8 liða úrslitin. Það ættu n-kóreumenn einnig að vera, þvi að i gærkvöldi unnu lút ú heimsmetunum Loks kom aö þvi! Einveidi bandariskra og a-þýskra sund- fólksins var loks rofiö i gærkvöldi. Þrjár sovéskar sundkonur geröu sér litið fyrir og hirtu öll verö- launin i 200 metra bringusundi, voru á undan þremur a-þýskum sundkonum og tveim breskum. Sigurvegari i sundinu varö 16 ára gömul stúlka, Marina Kos- hevaia sem hafðisett ólympfumet i undanúrslitunum. Þá syn'ti hún á 2.35.14 minútum, en i sjálfu úr- slitasundinu synti hún á nýju heimsmeti, 2.33.35 minútum. Gamla heimsmetið átti Karla Linke.Það var sett i Austurriki á s.l. ári og var eina heimsmetið sem stóöst átökin á a-þýska meistaramótinu á dögunum. — Marina Iurchenia frá Sovétr. var önnur á 2.36.08 og þriðja sovéska stúlkan synti á 2.36.22 mlnútum en það var Liubov Rusanova. Siðan komu þrjár a-þýskar i röð, þar á meðal Karla Linke, íyrrum heimsmethafinn sem lét sér nægja að synda á 2.36.97 minútum,eðalangt frá metisinu. En i 100 metra baksundinu réð enginn við a-þýsku stúlkurnar. Þær röðuðu sér i tvö efstu sætin, á undan þremur kanadiskum stúlk- um. Ólympiumeistari varð Ulrike Richter á 1.01.83 minútum sem er nýtt ólympiumet, en heimsmet hennar sem er 1.01.51 minúta stóðst átökin að þessu sinni. Annars varð röð stúlknanna i úr- slitasundinu þessi: 1. Ulrika Richter A-Þýskal. 1.01.83 2. Birgit Treiber A-Þýskal. 1.03.41 3. Nancy GarapickKanada 1.03.71 4. Wendy Hogg Kanada 1.03.93 5. CerylGibs-on Kanada 1.05.15 6. Nadejda Stavko Sovét. 1.05.19 7. AntjeStilleA-Þýskal. 1.05.30 8. Diane Edelijn Hollandi 1.05.53 Bandariska sveitin sem sigraöi i 4x200 metra skriðsundi I nótt, setti tvivegis heimsmet i þvi sundi i gær. Fyrst synti sveitin á nýju heimsmeti i undanrásum þegar hún fékk timann 7.30.33. Það met stóð þó ekki lengi, þvi að iúrslitasundinusem sveitin hafði Ástralía vann í framlengingu! - en allt stefnir að úrslitaleik milli USA og Sovét í körfuboltanum Ástralir sigruðu Mexikó i framlengdum æsispennandi leik i körfuboltanum i gær, með 120 stigum gegn 117. Þetta var annað tap Mexikó og kemur i veg fyrir að þeir vinni til verðlauna i körfuknatt- leikskeppninni. Stjarna ástral- iumanna i gær var Edward Palubinskas sem skoraði hvorki meira eða minna en 48 stig, þar af þýðingarmiklar körfur i framlengingunni. Astralia hafði yfirleitt frum- kvæðið i fyrrihálfleik, og staðan að honum loknum var 58:57. Fljótlega i siðari hálfleik náði Mexikó forystunni og stuttu fyr- ir leikslok höfðu þeir 11 stiga forskot. En stórleikur Palub- inskas sem nú er stigahæstur allra i keppninni tryggði Astra liu jafnteflið og framlengingu. Palubinskas átti stórleik bæði i vörn og sókn. Hann var besti maður liðsins i vörninni og hitti bæði af stuttu og löngu færi i sókninni þegar hann reyndi það. Stigahæsti leikmaður i liði Mexikó i gærkvöldi var Artoru Guerrero með 40 stig. Síðan léku bandarikjamenn gegn júgóslövum, en bæði þessi lið voru ósigruð þegar hér var komið sögu. Júgóslavarnir tóku fljótlega forystuna i leikn- um og leiddu I hálfleik með 55:51. En i siðari hálfleik náðu bandarikjamenn að útfæra vel hraðaupphlaup sin, og eftir það var ekki um neina keppni að ræða. Lokatölur 112:93. Stiga- hæstir voru Adrian Dantley og Scott May með 26 stig hvor, en hjá júgóslövum Drazen og Mirza með 20 stig hvor. ttalir unnu tékka með 79 stig- um gegn 69, og Japan van Kúbu með 97:56, og i siðasta leiknum i gærkvöldi sigruðu sovétmenn Kanada meðl05stigum gegn 85. Þar með fóru vonir kanada- manna um verðlaun i körfubolt- anum.en liðið hefur komið mjög á óvart. Sovétmenn og banda- rikjamenn hafa nú örugga for- ystu i riðlakeppninni, en staðan er þannig: A tiðill: Sovét 330 321:239 6 Kanada 3 2 1 273:263 5 Kúba 3 2 1 287:229 5 Mexico 3 1 2 302:330 4 Astralia 3 1 2 286:321 4 Japan 3 0 3 222:309 3 B riðill: USA 3 3 0 313:273 6 Júgóslavia 3 2 1 276:256 5 Italía 3 2 1 167:175 5 PuertoR. 3 1 2 157:179 4 Tékkósl. 3 1 2 253:242 4 gk~. algjöra yfirburði i synti hún á 7.23.22 Svo rösklega var tekiö á i úrslitunum. Þeir sem syntu fyrir Bandarikin voru: Mike Bruner, Bruce Furniss, John Naber og Jim Montgomery. Röð næstu sveita var þessi: 2. Sovét. 7.27.97 3. Bretland 7.32.11 4. A-Þýskal. 7.38.92 5. Holland 7.42.56 6. Svlþjóð 7.42.84 7. Italia 7.43.39 8. V-Þýskal. var dæmt úr leik, en siðan var sú ákvörðun dregin til baka og sveitin fékk þvi 4. sætið á eftir þeirri bresku, enda timi sveitarinnar 7.32.27. Nú hefur verið keppt I 7 karla- greinum, og hafa bandarikja- menn unnið öll gullverðlaunin i þeim. Siðasta sundið sem fór fram i nótt var 100 metra flug- sund, og þar sigraði Matt Vogel á 54.35 sek. Þar kom loks að þvi' að heimsmet stóðst átökin, met Mark Spitz sem hann setti i Munchen 1972, 54.27 — er eina metið sem hann á eftir. Næstir i röðinni á eftir hinum krúnu- rakaða Vogel voru: 2. JoeBottom USA 54.50 3. Gary Hall USA 54.65 4. Roger Pyttel A-Þýsk. 55.00 5. Roland Mathes A-Þýsk.55.11 6. Clay Evans Kanada 55.81 7. Hideaki Hara Japan 56.34 8. NeilRogers Ástral. 56.57 Þjálfari bandarisku sundmann- annahefur lýst þvi yfir að Banda- Neitaði að fara heim! Einn egypti er enn meðal ann- arra iþróttamanna i Montreal, þótt egypska óiympiuliðið hafi farið heim i mótmælaskyni við þátttöku N-Sjálands i leikunum. Þetta er þó ekki keppandi, held ur dómari i hnefaleikum, S.N. Maghraby að nafni. Hann var mjögóánægður með þá ákvöröun aö kalla egypska líðið hcim, og sagðist ekki fara fet fyrr en að leikunum loknum! gk—. rikin muni vinna öll verðlaunin i karlagreinunum. — Keppt hefur verið i 8 kvennasundgreinum og þar hefur A-Þýskaland unnið öll gullverðlaunin nema ein sem fóru til Sovétrikjanna. gk—. þeir Kanada með þremur mörk- um gegn einu, eftir að hafa haft yfir 1:0 i hálfleik. En staðan i riðlakeppninni á eftir að skýrast nokkuð, en er þannig i dag: A riðill: Brazilia 2 1 1 0 2:1 3 A-Þýskaland 1 0 1 0 0:0 1 Spánn 1 0 0 1 1:2 0 B riöill: Frakkland 2 2 0 0 8:2 4 Israel 2 0 2 0 2:2 2 Guatemala 2 0 11 1:4 1 Mexiko 2 0 1 1 3:6 1 C riðill íran 1 1 0 0 1:0 2 Pólland 10 10 0:0 1 Kúba 2 0 1 1 0:1 1 D riðill: N-Kórea 1 1 0 0 3:1 2 Sovét 1 1 0 0 2:1 2 Kanada 2 0 0 2 2:5 0 gk—■ Glímumaður slasaður! Búlgarinn, Petar Kirov, sem sigraði i grisk-rómverskri glimu bæði i Mexikó og Munchen, meiddist i keppni við rúmenann Nicu Ginge i gær, og mun ekki taka þátt i keppni á leikunum meira. Kirov sem er 33 ára gamall hafði haft undirtökin i glimunni við rúmenann, en þegar glima þeirra var hálfnuð meiddisthann það alvarlega að talið er vist að hann keppi ekki framar i Montreal. gk. Hún er ekki beint árenníleg hún Iuliya Sememova sem er miðherji sovéska kvennaliösins i körfuboltakeppninni i Montreal. „Skessan” er hvorki meira eða minna en 2.10 metrar á hæð, og væri ekki gaman að lenda i klónum á henni. Sú kanadiska virkar ansi litil við hlið hennar, en er þó 1.85 metrar á hæö. Tékkar öruggir með gullið! Ekkert virðist geta komið i veg fyrir að tékkar hijóti gullverðlaun bæði i sveita og einstaklingskeppninni i nútima fimmtar- þraut, (hestamennsku, skyimingum, skot- fimi, sundiog 4000 m viðavangshlaupi). Þeg- ar ein keppnisgrein er eftir — 4000 m vlða- vangshlaup. Tékkneska sveitin sem er skipuð þrem mönnum hcfur hlotið 12.145 stig, en Ungverjar sem eru i öðru sæti eru með 11.831 stig. Efstur i einstaklingskeppninni er tékkinn Jan Baratu með 4.304 stig, Pavel Ledncv frá Sovétrikjunum er annar með 4.242 stig og þriðji er Daniele Masali frá ítaliu með 4.232 stig. Bob Nieman 28 ára gamall kafteinn I bandariska flughernum sigraði I sundkeppn- inni I gær — og setti nýtt heimsmet — synti vegalengdina sem er 300 m á 3:13.6 minútum. Við það færðist bandariska sveitin úr niunda sæti upp i fjórða sæti og á þvi mikla mögu- leika á að hljóta verðlaun i keppninni. —BB Gullverðlaun í afmœlisgjöf! Pólverjinn Zbigniew Kaczmarek hélt upp á 30 ára afmælið sitt i gær með þvi að sigra i lyftingakeppninni i léttvigt á Óly mpíuleikun- um. Hann byrjaöi þó illa I snöruninni — og eftir að hafa mistekist i fyrstu tilraun varð hann jafn þeim Korol frá Sovétrikjunum og Senet frá Frakklandi með 135 kiló eftir snör- unina. En i jafnhendingu lyfti hann samtals 172.5 kilóum, og kom þvi út með samanlagt 307.5 kiló sem er nýtt ólympiumet. Korol varö I öðru sæti með samtals 305 kiló, og frakkinn Senet þriöji með 300 kiló. I dag verður keppt i millivigt, og er búist þar við hörkukeppni milli Peter Wenzel frá A-Þýskalandi, Yordan Mitkov frá Búlgariu og sovétmannsins Vartan Militosyan, en þeir hafa allir náð mjög svipaðum árangri i ár. • Sovéskur sigur Sovétmaðurinn Nikolai Andrianov varð sigurvegari I fimleikum karla tylftarþraut' sem lauk í gær. Hann sigraði ólympiusigur- vegarann frá Munchen, Sawao Kato, örugg- lega. Nikolai hlaut 116.650 stig, Kato 115.650 stig. t þriðja sæti varð japaninn Mitsuo Tsukahara með 115.575 stig, og fjórði varö Alexandr Ditiatin frá sovétrikjunum með 115.525. — gk- • Bobby Charlton kemur ekkii „Þvi miður varð ekkert úr komu knatt- spyrnukappans Bobby Charltons hingað til lands að þessu sinni”, sagði Jón Aðalsteinn Jónsson, formaður Vikings, i viðtali viö Visi I gær. „Charlton var fús til að koma hingað og leika með okkur einn leik, en þar sem hann gat stoppað svo stuttt herna gátum við ekki komið þessum ieik inn á milii leikjanna i 1. deild — og urðum þvi að hafna þessu góða boði”. Jón sagði að Bill Heidock, sem þjálfar knattspyrnulið þeirra vikinga, og Bobby Charlton væru mjög góöir vinir — og væri það i gegnum hann sem Charlton hefði boöist til að koma hingað. —BB • • Oldungakeppni í golfinu! N.k. sunnudag fer fram á Nesvellinum öld- ungakeppni i golfi, og verða ieiknar 18 holur með forgjöf. Kcppnin hefst kl. 10 árdegis. Keppnin er opin öllum kylfingum 55 ára og eldri, en þeir sem eru 50—55 ára og hafa áður tekið þátt i „öldungakeppni” mega einnig taka þátt. Þeir sem hafna I 16 efstu sætunum munu halda áfram i keppninni, og leika holukeppni sem standa mun frameftir sumri. Þátttöku- tilkynningar er hægt að hringja i sfma 17930 rir laugardagskvöld. gk—. fy Igg

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.