Vísir - 22.07.1976, Blaðsíða 4

Vísir - 22.07.1976, Blaðsíða 4
■* - • Stefán Halldórsson Vikingi, reynir markskot hjá blikunum I leiknum i gærkvöldi. Aö þessu sinni mis- tókst Stefáni að skora en i siðari hálfleik fann hann leiðina i mark blikanna þótt ekki dygði það liði hans til sigurs i leiknum. Ljósmynd Einar... Nú sýndu blikornir víkingunum klœrnar — þeir sýndu oft stórgóðan leik og unnu Víking 3:1 ó Kópavogsvellinum í gœrkvöldi ,,Ég sagði það strax að loknum fyrri leik okkar við Viking sem við töpuðum fyrir með 1:0 á Laugardalsvellinum, að við myndum gera betur á okkar heimavelli,” sagði Þorsteinn Friðþjófsson, þjálfari Breiðabliks i Kópavogi, eftir að iið hans hafði sigrað Viking 3:1 i tslandsmótinu I knattspyrnu i 1. deild á Kópa- vogsveliinum i gærkvöldi. ,,Það var mikill baráttuhugur i strákunum og þeir áttu fyllilega skilið að sigra i leiknum”. Það voru orð að sönnu hjá Þor- steini, þvi að blikarnir léku einn sinn besta leik i sumar i gær- kvöldi og voru vel að.sigrinum i leiknum komnir. Breiðabliksliðið lék mjög vel i fyrri hálfleik og skoraði þá tvö mörk. Um miðjan hálfleikinn fékk Gisli Sigurðsson boltann inni i vitateigi Vikings, lék á tvo varnarmenn, þann siðari á sér- lega skemmtilegan hátt — vippaði boltanum yfir hann með hælnum — og skaut siðan þrumu- skoti á mark Vikings sem Diðrik Ólafsson átti enga möguleika á að verja. Tiu mínútum siðar bættu blikarnir öðru marki við, Vignir Baldursson skaut þá föstu skoti á mark Vikings, boltinn snerti að- eins varnarmann — og sigldi i markið án þess að Diðrik kæmi nokkrum vörnum við. Vikingarnir sem voru óvenju daufir i fyrri hálfleik byrjuðu vel i þeim siðari — og eftir tiu minútna leik hafði þeim tekist að koma boltanum i mark blikanna. Einár Þórhallsson gerði þá einu mistök sin i leiknum, lét Óskar Tómasson „stela” boltanum frá sér. Óskar sendi siðan fyrir markið þar sem Stefán Halldórsson var einn og óvaldaður og skallaði örugglega i markið. Flestir bjuggust við að vikings- liðið myndi láta kné fylgja kviði, en blikarnir voru ekki á þvi að gefast upp — og þegar fimm minútur voru til leiksloka bætti Selfyssingar voru heppnir Selfyssingar unnu mjög mik- ilvægan sigur i 2. dcild i gær- kvöidi þegar þeir sigruðu Reyni á Arskógsströnd mcð tveimur mörkum gegn cngu. Fyrir leik- inn voru liðin jöfn á botni deiid- arinnar meö 4 stig, en nú hefur Selfoss þokað sér þaöan — hvort sem þaö nægir til að halda sæt- inu i deildinni eða ekki. Sigur Selfoss I gær var mjög ósanngjarn, þvi að Rcynir sótti mun meira allan leikinn og hefði átt að skora nokkur mörk strax i fyrri hálfleik. En cina mark hálfleiksins skoraði Sumarliði Guöbjartsson fyrir Selfoss, rétt fyrirlok hálfleiksins. Siðan juku Selfyssingarnir uiuninn i 2:0 I siöari hálfleik þégar þeir skor- uðu úr vitaspyrnu, og svo sáu þeir sjálfir um að skora fyrir Reyni i eigiö mark stuttu siðar! t Hafnarfirði léku Haukar og Þór.og sigraði Þór meö tveimur mörkum gegn einu. Var sá sigur veröskuldaður og má nú telja öruggt að þórsarar séu búnir að tryggja sér 2. sætið i deildinni og þar með rétt til að leika viö neðsta iiöið f 1. deiid um 1. deildarsæti aö ári. gk-. hinn marksækni Hinrik Þórhalls- son við þriðja markinu — eftir að stóri bróðir hafði skallað boltann til hans eftir hornspyrnu. Samvinna hjá leikmÖnnum Breiðabliks var mjög góð i þess- um leik og eiga þeir allir lof skil- ið, en þó má nefna leikmenn eins og Einar Þórhallsson, Harald Er- lendsson, ólaf Friðriksson, Þór Hreiðarsson og Hinrik Þórhalls- son. Vikingarnir voru óvenju daufir i þessum leik, sérstaklega i fyrri hálfleik. Róbert Agnarsson var einna skástur I liði Vikings i þessum leik, en auk hans áttu þeir Jóhannes Bárðarson og Óskar Tómasson góða spretti. Góður var dómarinn. Grétar Norðfjörð. —BB Hreinn afgreiddi KA-liðið! Hinn marksækni leikmaður Völsungs frá Húsavik, Hreinn Elliðason, var i miklum ham á Akureyri i gærkvöldi þegar V öisungur sigraði K A mjög óvænt, 4:1 i 2. deild islands- mótsins i knattspyrnu. Varnar- mönnum KA gekk illa að hemja Hrein sem skoraði þrjú mörk og átti einn stærstan þátt i sigri Völsungs i leiknum. KA-liðið byrjaði mjög vel og eftir 15 minútna leik skoraði Sigurbjörn Gunnarsson eftir fyrirgjöf sem markverði Völsungs mistókst að handsama. Eftir það náðu Völsungar svo betri tökum á leiknum, en þeim tókst ekki að jafna metin fyrr en i ( STAÐAN ) Staðan i 1. deild tslandsmótsins i knattspyrnu er nú þessi: Breiðablik: Vikingur 3:1 Valur 11 7 4 0 34:11 18 Fram 11 7 2 2 17:13 16 Akranes 10 5 3 2 14:12 13 Vfkingur 11 6 1 4 15:14 13 Breiðablik 10 4 2 4 12:13 10 KR 11 2 5 4 17:16 9 ÍBK 11 4 1 6 16:17 9 FH 10 1 4 5 6:17 6 Þróttur 11 0 2 9 7:25 2 N æsti leikur i 1. deild er á föstu- dagskvöld. Þá leika FH og Þrótt- ur á vellinum i Kaplakrika kl. 20. Staðan i 2. deild islandsmótsins I knattspyrnu eftir leikina I gær- kvöldi er þessi: KA — Völsungur 1:4 ReynirA—Selfoss 1:2 Haukar — Þór 1:2 ÍBV 10 8 2 0 32:9 18 Þór 11 6 4 1 22:11 16 Völsungur 11 4 3 4 16:14 12 Ármann 10 4 3 3 18:13 11 KA 11 4 3 4 20:18 11 isafjörður 10 3 3 4 13:14 9 Haukar 10 3 2 5 18:20 8 Selfoss 11 2 2 7 13:26 6 Reynir A 10 2 0 7 10:32 3 Næstu leikir verða á laugar- daginn, þá leika: Völsungur — Haukar, Ármann—KA, — Reynir — ÍBV og Selfoss — ÍBÍ. Bandarikjamenn hafa einokað karlasundkeppnina á Ólympiuleikunum IMontreal. Á myndinni eru þeir aö fagna þreföldum sigri I 200 m flug- sundi. Sá sköllótti — Mike Brunner — sigraði á nýju heimsmeti, en þeir SteveGregg til hægrisem varð annar og William R Forrester sem varð þriðji óska hvor öðrum tii hamingju. siðari hálfleik þrátt fyrir nokkur góð marktækifæri. Þá skoraði Hermann Jónsson með þvi að skjóta óvæntu skoti sem mark- vörður KA misreiknaði. Rétt áður hafði hurð tvivegis skollið nærri hælum við mark Völsungs, fyrst var bjargað á marklinu og siðan átti Gunnar Blöndal hörkuskot i þverslá. Þá var komið að Hreini Elliða- syni að sýna klærnar. Hann byrjaði á aö skora tvö mörk með tveggja minútna millibili eftir homsþyrnur — og stuttu siðar komsthann einn inn fyrir vörnina og sendi boltann framhjá út- hlaupandi markverði KA i stöng- ina og inn. Töluverður hiti var i KA-mönn- um eftir leikinn vegna þess að þeirvilja meina að Hreinn Elliða- son hefði átt að vera i leikbanni i þessum leik. Málsatvik eru þau, að i bikar- leik á Siglufirði fyrir stuttu var Hreini visað af leikvelli og sam- kvæmtþviátti hann aðfara i leik- bann. Siðan hafa tveir fundir verið haldnir hjá aganefnd en ekkert skeð i málinu. Dómari leiksins sem erúr Þór, segisthafa sent skýrsluna, en hún sennilega týnst á leiðinni. Nú biða KA-menn spenntir eftir þvi hvort skýrslan verði örugg- lega ekki komin fram fyrir 6. ágúst, en þá eiga þórsarar að leika við Völsung. HR/—BB ABU VEIÐIVÖRUR Sport fiir den Mann im Mann DÁM SJOSTANGA- VEIÐIVÖRUR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.