Vísir - 22.07.1976, Blaðsíða 1
hús þar sem hann dvelur i góöu
yfirlæti.
„Þetta var ógurlega sárt, en i
dag á ég gullpening og nú liður
mér strax miklu betur”, sagöi
kappinn þegar fréttamenn ræddu
viö hann á sjukrahúsinu. Læknir-
inn sem skoöaði hann eftir keppn-
ina sagði: „Hann hlýtur að hafa
liðið miklar kvalir, og hvernig
honum tókst að koma niður úr
hringjunum og lenda án þess að
reka upp sársaukaóp er mér
óskiljanlegt — þvílikur maður”.
Einn af öðrum hafa félagar
Fugimoto heimsótt hann á
sjukrahúsið til að votta honum
virðingu sina — og til að sjá gull-
peninginn sem hann hampar. Og
ánægjan skin úr andliti hins
harða japana.
gk—.
Sá sein sá um að innsigla sigur
japana yfir sovétmönnum i
fimlcikakcppni karla heitir Shun
Fugimoto og er harður karl. Hann
átti stórglæsilega æfingu i liringj-
unum i lok keppnmnar, og fékk
9.75 i einkunn.
En það vissi enginn, nema e.t.v.
hann sjálfur, að þegar hann
framkvæmdi þessa erfiðu æfingu
var hnébein hans brotið. Ekki var
hægt að merkjá það á honum að
hann liði neinar kvalir þegar
hann gekk að hringjunum, eða á
meðan hann framkvæmdi æfingu
sina.
En strax að henni lokinni og
hann var búinn að stökkva niður
og ljúka æfingu sinni gaf hann
sársaukanum lausan tauminn og
lagðist á gólfið. Hann var strax
borinn i burtu og fluttur á sjúkra-
Japaninn
keppti
fótbrotinn
metið féll í gœr
— þó bœtti Þórunn Alfreðsdóttir eigið met í 100 m
flugsundi — Vilborg og Sigurður keppo í dag
,,Ég held að það sé varla hægt
að búast við meiru af krökkunum.
Þeir cru þegar búnir að setja
tslandsmetlfimm greinum af sex
— og eiga góða möguleika á að
setja þrjú met til viðbótar i þeim
greinum sem eftir eru, sagði
Torfi Tómasson, formaður Sund-
sambands islands, þegar við
höfðum samband við hann i
Montreal i morgun.
„Þórunn Alfreðsdóttir var eini
islendingurinn sem keppti i gær —
og hún lét sitt ekki eftir liggja —
setti islandsmet i 100 m flugsund-
inu og synti á 1:09.63 minútum.
Eldra metið, átti Þórunn sjálf og
var það 1:09.80 mlnútur.
Keppendur i 100 m flugsundinu
voru 41 — og varð Þórunn i 37.
sæti.
Það hafa orðið gifurlegar fram-
farir i sundinu, sérstaklega hjá
bandarikjamönnum og austur-
þjóðverjum sem hafa algjörlega
einokað þessar greinar. Það var
fyrst í gær að þessar þjóöir unnu
ekki öll gullverðlaunin,-en þá
skipuðu sovésku stúlkurnar þrjú
fyrstu sætin i 200 m baksundinu.
Þau Vilborg Sverrisdóttir og
Sigurður Ólafsson eiga að keppa i
dag, Vilborg i 200 m skriðsundi
sem er hennar bésta grein og
Sigurður i 400 m skriðsundi — og
auðvitað vonumst við eftir tveim
Islandsmetum til viðbótar.
Sfðasta sundgreinin er svo á
morgun, en þá keppir Sigurður i
100 m skriðsundi.
Torfi sagði að keppnin á
Ólympiuleikunum hefði verið
virkilega skemmtileg til þessa og
þó að mörg lönd hefðu hætt við að
vera með, hefði ekki verið hægt
að merkja það á keppninni til
þessa. En það yrði kannski meira
áberandi þegar frjálsiþrótta-
keppnin hæfist.
Torfi sagði ennfremur, að
öryggisráðstafanirnar væru með
ólikindum — og væri varla hægt
að snúa sér við fyrir öryggis-
vörðum og hermönnum. _bb
Bayi fer ekki
til Svíþjóðar
Heimsmethafinn i 1500 metra
hlaupi karla, tansaniumaðurinn
Filbert Bayi fær ekki að taka
þátt i miklu frjálsiþróttamóti
sem á aö fara fram I Sviþjóð 1
uæsta mánuði. Ástæðan er sú að
á mótinu verða nokkrir þátttak-
endur frá N-Sjálandi, svo sjá
má aö mótmæli gegn n-sjálend-
ingum eiga ekki einungis við um
Ólympiuleikana.
Tansaniumenn voru ein fyrsta
þjóðin sem dró sig til baka frá
Moutreal i mótmælaskyni við að
N-Sjáland fær að vera með þar.
Ástæðan er sú að n-sjálenskt
rugby lið fór i keppnisferð til S-
Afriku fyrir stuttu. Einvigi Fil-
bert Bayi og n-sjálendingsins
Walker i Montreal var beðið
með mikilli eftirvæntingu, en aö
sjálfsögðu verður ekkert úr þvi.
gk
Ættum að komast
#
i
8-manna úrslit!
Þórunn Alfreðsdóttir hefur nú lokið keppni á Ólympfuleikunum. Hún keppti i 100 og 200 metra flugsundi
og setti tslandsmet i báðum greinunum þótt ekki nægði það til að verða framarlega i hinni hörðu sund-
keppni.
Ljósmynd Einar.
Fimmta íslands-
— sagði Gísli Þorsteinsson sem keppir í léttþungavigtinni ó þriðjudaginn
Ekki hafa komið fullkomlegar
upplýsingar um skiptingu verð-
launanna á Ólympiuleikunum i
Montreal eftir keppnina I gær,
en þannig var staðan þegar
keppnisdagurinn var hálfnaður.
G s B
Bandarikin 8 7 3
A-Þýskaland 6 4 4
Sovétrikin 4 2 3
V-Þýskaland 1 1 1
Búlgaria 1 1 0
Rúmenia 1 1 0
Japan 1 0 2
Pólland 0 2 0
Ungverjaland 0 1 0
Belgia 0 1 0
Bretland 0 1 0
Kanada 0 0 2
Danmörk 0 0 1
Ástralía 0 0 1
Austurriki 0 0 1
íran 0 0 1
ttalia 0 0 1
Holland 0 0 1
„Við höfum æft tvisvar á dag
við aðstæður eins og þær gerast
bestar,” sagöi Gisli Þorsteins-
son, annar tveggja íslensku
júdómannanna sem eru fulltrú-
ar islands á Ólympiuleikunum i
Montreal I viðtali við Visi
morgun.
En GIsli sem keppir i létt-
þun avigt verður fyrsti fs-
lendingurinn sem keppir I judó á
Ólympiuleikum.
„Það rikir töluverð bjartsýni i
herbúðum okkar — og við telj-
um allgóða möguleika á að
komast langt i keppninni, þvi aö
við vorum mjög heppnir þegar
dregið var I fyrradag.
Ég mæti bandarikjmanni, en
V____
Viðar spánverja og erum við
þegar búnir að afla pkkur
ýmissa upplýsinga um þessa
menn. Bandaríkjamaöurinn er
léttasti keppandinn i léttþunga-
vigtinni 84 kíló og er aðeins 1.79
m á hæð. Ég er aftur 1.83 og 93
kíló — og á þessi munur á okkur
að vera mér I hag. Hann er hins-
vegar mjög sterkur og getur þvi
verið hættulegur, sérstaklega
þar sem hann er örvhentur.”
Gisli sagði að Viöar ætti lika
talsverða möguleika á að vinna
sinn andstæðing. Spánverjinn
sem Viðar ætti að keppa við
væri 30 ára og búinn að taka þátt
I mörgum mótum, en aldrei náð
langt. Hann væri hinsvegar
margreyndur keppnismaður
sem hefði reynsluna með sér.
„Ef mér tekst að sigra banda-
rikjamanninn, þá mæti ég
annaðhvort glímumanni frá
Porto Rico eða Sviss. Eftir þeim
upplýsingum sem við höfum þá
eru þeir ekki mjög hættulegir —
og ef ég sigra einnig i annarri
umferð, þá er ég kominn i 8-
manna úrslit. Viðar á lika mikla
möguleika á að komast i 8-
manna úrslit, þvi að ef hann
sigrar spánverjann fær hann
frekar léttan andstæðing i
annarri umferð — eftir þeim
upplýsingum sem við höfum.