Vísir - 16.08.1976, Page 3
Lokaspretturinn
gaf þrjú mörk!
Skagamenn fóru með tvö stig úr leiknum við Breiðablik
— en blikarnir fóru illa með upplögð marktœkifœri
Þrátt fyrir að mótanefnd KSt
hafði ákveðið að fresta leik UBK
og Akraness sem átti að fara fram
á vellinum i Kópavogi á laugar-
dag, breytti nefndin þeirri
ákvörðun sinni vegna mikillar
pressu frá akurnesingum. Völlur-
inn var mjög blautur eftir hinar.
miklu rigningar, en á honum var
leikið samt sem áður.
Og akurnesingar gerðu góða
ferö til Kópavogs. Þeir sigruðu i
leiknum meö þremur mörkum
gegn engu, og voru öll mörkin
skoruð undir lok leiksins.
Leikurinn var lengst af mjög
jafn, og oft á tiðum allskemmti-
legur á að horfa. Bæði liðin sköp-
uðu sér mörg góð marktækifæri,
entækifæri Blikanna voru þó öllu
Enn sigrar Þór
í 2. deildinni!
Þórsarar gerðu góða ferð suð-
ur um helgina, og sigruðu Ar-
mann með þremur mörkum
gegn einu á Laugardalsvelli.
Þórsarar fylgja þvi Eyjamönn-
um fast eftir i baráttunni, en
sennilega eru þó Eyjamenn
búnir að tryggja sér sigur I 2.
deildinni.
Fyrri hálfleikur leiks Ar-
manns og Þórs var markaiaus,
en fljótlega f siðari hálfleik
skoraði Siguröur Árnason fyrsta
mark leiksins fyrir Armann.
Hann fékk boltann innfyrir
vörnina þar sem hann var
greinilega rangstæður en ekkert
var dæmt og hann skoraði ör-
ugglega. Markið virtist hafa
m jög slæm áhrif á Þórsliðið sem
datt hreinlega alveg niður. Ar-
menningar sóttu nú meira, en
tókst ekki aö skapa sér afger-
andi tækifæri, utan þess að Jón
Ilermannsson átti stangarskot
af stuttu færi.
En svo fengu Þórsarar auka-
spyrnu við vitateig Armanns, og
Sigurður Lárusson skoraði beint
úr henni og jafnaði leikinn þar
með. Við markið hresstust
Þórsarar mjög, og áttu leikinn
það sem eftir var. Þeir bættu
lika við tveimur mörkum, fyrst
skoraði Einar Sveinbjörnsson
með dálitið furðulegu skoti utan
af kantinum sem datt niður i
fjærhorn marksins, en siðan
innsiglaði Jón Lárusson sigur
Þórs þegar hann fékk stungu-
sendinu innfyrir vörn Armanns
og skoraði. —
—
Bjarni Bjarnason og Pétur Pétursson I baráttu um boltann I leik
Breiðabliks og Akraness. Báðir komu við sögu þegar fyrsta mark leiks-
ins var skorað, Bjarni gerði mistök i vörninni, og Pétur nýtti þau til
fullnustu og skoraði. Ljósmynd Einar.
betri þótt ekki tækist að nýta þau.
Það besta kom á 5. minútu leiks-
ins þegar Olafur Friðriksson var
einn fyrir opnu marki meö bolt-
ann — Hörður markvörður lá i
markinu — en skot Ólafs fór yfir.
Þarna var erfiðara að skora ekki
heldur en að skora!
En þegar um 20 minútur voru
eftir af leiknum urðu Bjarna
Bjarnasyni á mikil mistök I vörn-
inni, og þau færðu skagamönnum
forystu I leiknum.
Bjarna mistókst að hreinsa frá
markinu, ogPétur Pétursson sem
komst einn innfyrir skoraði af
öryggi.
Stuttu siðar skoraði Karl
Þórðarson annað mark skaga-
manna, og Teitur Þórðarson
skoraði þriðja markið þegar
leiknum var u.þ.b. að ljúka.
gk--
[ STAÐAN )
v 1111 ""y
Staðan i 1. deild islandsmótsins
i knattspyrnu er nú þessi:
UBK : lA 0:3
Kram : Þróttur 6:0
Fram 14 9 3 2 26:15 21
Valur 13 8 4 1 37:13 20
Akranes 13 6 4 3 19:16 16
UBK 13 6 2 5 16:17 14
Vikingur 12 6 1 5 16:16 13
ÍBK 13 5 1 7 18:20 11
FH 12 1 4 7 7:20 6
Þróttur 13 1 2 10 7:31 4
Markhæstu menn:
Ingi Björn Albertss. Val 11
Hermann Gunnarss. Val 10
Guöm. Þorbjörnss. Val 10
Kristinn Jörundss. Fram 9
Teitur Þórðarson ÍA 7
Jóhann Torfason KR 6
Ilinrik Þórhallss. UBK 6
Næstu lcikir i 1. deild eru i
kvöld. Þá leika FH og Valur I
Kaplakrika og ÍBK og Vikingur á
vellinum i Keflavik. Báðir leik-
irnir hefjast kl. 19.
Quarrie
sigraði
léttilego
Don Quarrie frá Jamaica sigr-
aði léttilega i 100 og 200 m sprett-
hlaupunum á breska meistara-
mótinu i frjálsum iþróttum sem
fram fór i Crystal Palace um
helgina. Quarrie hljóp lOOm á
10.42 sekúndum og 200 m á 20.35
sekúndum.
Rod Dixon frá Nýja-Sjálandi
sigraði i 1500 m hlaupinu á 3:41.43
minútum eftir hörku keppni við
bretann Dave Moorcroft sem
hljóp á 3:41.63 min.
John Walker keppti i 800 m
hlaupinu og varð annar hljóp á
1:47.75 min. Steve Ovet frá Bret-
landi sigraði i hlaupinu hljóp á
1:47.43 min.
David Jenkins sigraöi i 400 m
hlaupinu —hljóp á 45.86 sek. Ge-
off Capes i kúluvarpinu — kastaði
20.92 m. Brian Tully USA i
stangarstökki — stökk 5.33 m.
John Powell USA i kringlukasti —
kastaði 65.52 m — og i 10.000 m
hlaupi sigraði Gerd Tebroke frá
Hollandi — hljóp á 28:30.95 minút-
um.
Tveir islendingar ætluðu að
keppa á mótinu — Sigfús Jónsson
og Magnús Jónasson en ekki höf-
um viö haft neinar spurnir af
árangri þeirra. — BB
Allir i eina röð! — Þessi skemmtilega mynd sýnir leikmenn Þróttar og Fram þar sem þeir hafa raðað sér upp við mark Þróttar. Fremstur er
Asgeir Eliasson, en siðan koma þeir hver af öðrum, Sverrir Brynjólfsson, Kristinn Jörundsson, Rúnar Sverrisson og Þórður Theódórsson.
Ljósmynd Einar.
„V œng jahurða vörnin"
dugði Þrótti ekki!
— Framarar sigruðu þú með 6 mörkum gegn engu og hefðu útt að geta skorað
mun fleiri mörk og eru komnir í efsta sœtið í 1. deild
Fram hefur nú tekið forustuna i
tslandsmótinu i knattspyrnu, er
meðeinustigimeira en Valur. En
( STAÐAN )
Staðan I 2. deild tslandsmótsins
i knattsyrnu er nú þessi:
IBV :Selfoss
Reynir:Haukar
KA:tBt
Armann:Þór
ÍBV
Þór
Ármann 13 6
Völsungur 13 5
KA 14 5
ÍBt 12 3
Haukar 13 4
Selfoss 13 2
Reynir 13 2
11:0
1:2
5:2
1:3
12 10 2 0 45:9 22
13 4 1 32:12 20
Markhæstu leikmenn eru þessir:
örn öskarsson IBV 17
JónLarusson Þór 13
Gunnar Blöndal KA 13
hvort sú forusta stendur lengur en
til kvöldsins skal ósagt látið, Val-
ur á að leika við FH i Kaplakrika i
kvöld.
Framararnir náöu skemmti-
legum leik á köflum, sérstaklega i
fyrri hálfleiknum, og þá léku
framlinumenn Fram sér aö þrótt-
litlum Þrótturum i bókstaflegri
merkinu.
Fyrsta markiðkom á 8. minútu.
Ásgeir Eliasson gaf þá laglega
sendingu inn i eyöu til Kristins
Jörundssonar og hann snéri sér
við og skoraöi með föstu skoti.
Þróttarar reyndu aðeins að bita
frá sér eftir markið og áttu þá tvö
góð marktækifæri. Halldór Ara-
son góðan skalla sem Arni varði
vel, og siðan Jóhann Hreiðarsson
hörkuskot rétt yfir.
Á 30. minútu var Sigur-
bergi Sigsteinssyni haldiö gróf-
lega inn i vitateig Þróttar, og
Guömundur Haraldsson dæmdi
umsvifalaust vitaspyrnu. Pétur
Ormslev tók vitaspyrnuna og
Slœm aðstaða á
Laugardalsvelli
Aðstaða fyrir áhorfendur,
varamenn, og blaðamenn var
vægast sagt hörmuleg á Laug-
ardalsvellinum i gær. Starfs-
menn vallarins hafa fært völlinn
til, þannig aö hann er nú eins
langt frá áhorfendastæðinu eins
og hægt er. Sennilega eru um 50
metrar frá áhorfendastæðunum
og inn að vellinum, og það voru
áhorfendur aö vonum ekki
ánægðir með. Komu þeir þvi
nær allir inn á svæðið og rööuðu
sér meðfram veilinum allan
hringinn. Var þetta mjög baga-
legt, t.d^var ekki hægt að fylgj-
ast með leiknum úr blaða-
mannastúkunni af þessum sök-
um, né heldur úr varamanna-
stúkunni. Og vallar starfsmenn
gerðu litið til að koma fólki frá,
enda erfitt starf.
Þaö er að sjáifsögöu mjög gott
aö vallarstarfsmenn geti fært
völlinn dálitið til, það kemur i
veg fyrir að völlurinn troðist
niður við mörkin og á fleiri stöð-
um. En er ávinningurinn ekki
litill þegar áhorfendur veröa að
vera inni á græna svæðinu, og
troöa þar allt niður? A.m.k. var
ljótt að sjá græna svæðið þar
sem þeirhöfðu staöið á leiknum
I gær. — gk.
skoraði úr henni af öryggi.
Enn jókst sóknarþungi Fram,
og sóknarmennirnir ,,óðu” bein-
linis i tækifærum. En þeim gekk
illa að nýta þau, þar til á 41. min-
útu aö Kristinn Jörundsson skor-
aði. Asgeir Eliasson „splundr-
aði” þá vörn Þróttar og lagði sið-
an boltann út á Kristinn sem
skoraði með föstu skoti i bláhorn-
ið.
Siðari hálfleikurinn var ekki
jafn-vel leikinn og hinn fyrri, en
uppskera Fram varð samt sem
áður þrjú mörk eins og I fyrri
hálfleiknum.
Sigurbergur Sigsteinsson skor-
aði það fyrsta á 17. minútu. Hann
fékk sendingu utan af kanti frá
Pétri Ormslev, og skallaði bolt-
ann i stöng og inn.
Sjö minútum siðar skoraði As-
geir Eliasson 5. markið. Agúst
Guðmundsson braust upp vinstri
kantinn og gaf fyrir markið, á As-
geir sem kom þar aö og nikkaði
boltanum i netið.
Lokaorðið átti svo Eggert
Steingrimsson einni mlnútu fyrir
leikslok. Eftir þvögu i vitateig
Þróttar barst boltinn til hans, og
hann afgreiddi hann með þrumu-
skoti i bláhornið.
Þessi stórsigur framara kem-
ur sér öruggleg vel fyrir liðið, og
þjappar þvi saman fyrir loka-
átökin i deildinni.
Það var margt gott i fram-
liðinu i þessum leik, en þó virtist
manni i fyrra hálfleiknum að
vörnin væri ekki nógu sannfær-
andi og sennilega hefði hún fengið
á sig mark hefði mótherjinn verið
sterkari.
ÍR-ingar lentu
í basli með HK!
Atta leikir voru leiknir um
helgina i islandsmótinu i hand-
knattleik utanhúss sem stendur
yfir þessa dagana.
Voru margir leikjanna mjög
fjörugir og jafnir, og úrslit ekki
ráðin fyrr en á siöustu minútu.
Er sennilegt að keppnin i A riðl-
inum komi fyrst og fremst til
með að standa milli 1R og
Vlkings, en IB riðli — sem virð-
ist skipaður sterkari liðum —
milli Vals og FH. tR-ingar unnu
báða leiki sina um helgina, þeir
„tóku” Viking á laugardag
20:17, en lentu siðan i miklu
baslimeð lið HK I gær. Reyndar
voru tR-ingar komnir með góða
stöðui þeim leik, en höfðu næst-
um glatað öllu niður i tap undir
lokin. En úrslit leikjanna urðu
þessi:
A riðill:
Vikingur:IR 17:20
HK:Grótta 15:21
1R:HK 21:20
Haukar:Vikingur 18:19
B riðill:
FH :Þróttur 26:20
KR:Valur 15:19
Þróttur:KR 25:25
Ármann:FH 14:22
Mótinu verður framhaldiö i
kvöld kl. 18 viö Austurbæjar-
skólann. Þá leika fyrst KR og
Ármann, siðan HK og Haukar
og loks Valur og Þróttur.
gk-.
Björgvin er
í algjörum
sérflokki!
Björgvin Þorsteinsson, hinn
nýbakaði tslandsmeistari i golfi
varö yfirburðasigurvegari I
Jaðarsmotinu sem fór fram á
Akureyri um helgina. Það var
ekki nóg með aö hann yrði yfir-
buröa -sigurvegari i keppninni án
forgjafar, heldur sigraði hann
einnig I keppninni með forgjöf
þótt hann hafi raunar enga for-
gjöf, heldur aðeins 0!'.
Björgvin lék Jaðarsvöllinn
mjög vel um helgina, og það eru
engin tvimæli um stöðu hans I dag
sem besti kylfingur landsins.
Hann lék hringina fjóra á 37-33-36-
35 höggum eða samtals 141 höggi
eða þremur undir pari. Félagi
hans úr Golfklúbbi Akureyrar,
Gunnar Þórðarsson varð i öðru
sæti á 153 höggum, en siðan komu
Þeir Jóhann Benediktsson GS á
158, Ragnar Ólafsson GR og Sig-
urður Thorarensen GK á 159,
Hannes Eyvindsson GR á 160 og
Arni Jónsson GA á 162.
Mótið var opið stigamót, og gaf
alls 125 stig, og skiptust þau
þannig milli efstu manna að
Björgvin hlaut 23,75 stig, Gunnar
21,25 , Jóhann 18,75, Ragnar og
Sigurður 15 hvor, Hannes 11,25 og
Arni 8,75 stig.
t keppninni með forgjöf var röð
þriggja efstu manna eins, Björg-
vin á 141 nettó, Gunnar á 143 og
Jóhann Benediktsson á 148 högg-
um.
t kvennaflokki sigraði Sigur-
björg Guðnadóttir GV á 201 högg-
um, t öðru sæti kom Katrin
Frimannsdóttir GA á 206 högg-
um, en móðir hennar Karólina
Guðmundsdóttir varð að láta sér
lynda þriðja sætið meö 209.
Katrin sigraði i keppninni með
forgjöf. Hún var á 152 höggum
nettó, Agústa Dúa Jónsdóttir GR i
öðru sæti á 156 og Karólina á 161
höggi.
Alls voru keppendur i mótin
59 talsins. Voru þeir sammála um
að völlurinn á Akureyri hefði ald-
rei verið betri en nú, en veðurguð-
irnir voru ekki beint hliðhollir.
Það var Reykjavikurveð-
ur = rigning.
gk—.
Landsliðið til-
kynnt í kvöld!
Það virðist nú liggja nokkuð
ljóst fyrir hverjir skipa Islenska
landsliðið i golfi sem keppir i
Norðurlandamótinu i næsta
mánuði. Staðan eftir Jaðars-
mótið er mjög ljós, 6 kylfingar
hafa áberandi besta útkomu úr
stigamótum sumarsins, en
Stjórn Golfsambandsins á þó
eftir að lýsa yfir samþykki sinu.
Hún kemur saman i dag til að
þinga um valið á liðinu, og er
óliklegt að hún geri breytingar
á. Þeir 6 kylfingar sem hafa
flest stig (þrjú efstu mót hjá
hverjum ráða) eru:
Björgvin Þorsteinsson GA 98,70
Ragnar ólafsson GR 95,95
SigurðurThorarensen GK 95,20
ÞorbjörnKjærbo GS 66,65
GeirSvansson GR 65,20
SiguröurPétursson GR 60.30
Varnartilburðir Karls Jóhannssonar hins gamalkunna handknattleiks-
manns sem nú leikur með HK eru dálitið furðulegir þegar hann hyggst
varna Herði Hákonarsyni leiðina að markinu. En þessir tilburöir dugðu
skammt og Hörður sendi boltann I netið. Ljósmynd Einar.
Otrúlegur tími í
100 m sundi!
Jonty Skinner frá S-Afriku bætti um helg-
ina heimsmet bandarikjamannsins Jim
Montgomery i 100 metra skriðsundi á móti i
Filadelfíu. Þegar Montgomery synti vega-
lengdina á 49.97 sek. á Óiympiuleikunum I
Montrealog varö þar meö fyrsti maöurinn til
aö synda undir 50 sek. héldu margir að það
met yrði langlift, en svo varð ekki. Jonty
Skinner gerði ser litiö fyrir og synti á 49.44
sek, og bætti þvi met Montgomery um meira
en hálfa sekúndu. Þetta er hreint ótrúlegur
timi á 100 m sundi, eða hvað finnst ykkur?.
gk.
„Alltaf erfitt að
leika í Dundee"
„Það er alltaf erfitt að leika i Dundee”,
sagöi JóhannesEðvaldsson þegar við spjöll-
uðum við hann að loknum leik Celtic og
Dundcc Utd i skosku deildarbikarkeppninni á
laugardaginn. „Völlurinn — Tannadice — er
mjög litillogþvi er erfitt að leika góða knatt-
spyrnu á honum. Þetta var mikill baráttu-
leikur sem lauk með sigri Celtic 1:0 — og
skoraöi Kenni Dalglish mark okkar”.
Að sögn skosku blaðanna voru það fjórir
Icikmenn sem báru af I liöi Celtic, Peter
Latchford I markinu, Jóhannes, Johnny Doyl
og Kenny Dalglish.
Helstu úrslit i skosku deildarbikarkeppn-
inni urðu þessi
Aberdeen — Kilmarnock 2:0
Ayr—St. Mirren 2:1
DundeeUtd—Celtic 0:1
Hearts — Dundee 2:0
Montrose — Hibernian 0:1
Motherwell — Patrick Thistle 1:1
Rangers — St.Johnstone 5:0
Fimm mörk KA
á 20 mínútum!
KA vann góðan sigur yfir isfirðingum á
Akureyri á laugardag. Mörk KA urðu alls
fimm I leiknum, en IBÍ svaraöi meö tveimur
mörkum, því fyrsta og siðasta i leiknum.
Strax á 12. minútu tóku isfiröingarnir for-
ustu með mjög góðu marki Haraldar Leifs-
sonar eftir Ijót varnarmistök KA manna. En
KA liðið brotnaði ekki við þetta heldur
tviefldist og skoraöi nú 5 mörk á 20 minútum
og gerði þar með út um leikinn.
Sigurbjörn Gunnarsson kom liðinu á
bragðið með góðu marki, siöan leku þeir lag-
lega saman hann og Gunnar Blöndal sem rak
á endahnútinn með góðu skoti, og KA var
komiö yfir 2:1.
Gunnar skoraöi siðan aftur með góðu skoti
3:1, og á næstu minútu var honum brugöið
innan vitateigs og vitaspyrna dæmd. Hann
skoraöi sjálfur úr henni. Þar með var hann
kominn með þrennu, en Hörður Hilmarsson
rak endahnútinn á þessi ósköp með þrumu-
skoti af 35 metra færi sem markvörður ÍBi
réð ekki við.
Siöari hálfleikurinn var ekki ójafn en hvor-
ugu liðinu tókst aö bæta við mörkum fyrr en
undir lok leiksins að Albert Guömundsson
(körfuknattleiksmaður úr ÍS) skoraði annaö
mark ÍBÍ með þrumuskalla. Úrslitin 5:2 fyrir
KA, góður sigur en e.t.v. of stór miöaö viö
gang leiksins. Dómari var Baldur Þórðars-
son og geröi hlutverki sinu góö skil. gk—.
Völsungur vann
auðveldlega!
islandsmótið i handknattleik kvenna utan-
húss (2. fl.) fór fram á Húsavik um helgina.
Átta lið mættu til keppninnar, og var leikið
i tveim riölum. Fóru leikar svo að Völsungur
sigraði i öðrum riðlinum en Fram i hinum. i
úrslitaleik þcssara liða sigraði Völsungur
nokkuð örugglega með 6 mörkum gegn
þrcmur.
Liö Völsungs var i nokkrum sérflokki i
mótinu og vann leiki sina án mikilla átaka.
Liðið lék mjög léttan og skemmtilegan hand-
bolta, gagnstætt þvi sem mörg hinna liðanna
sýndu. HR/gk—.