Vísir - 24.09.1976, Síða 2

Vísir - 24.09.1976, Síða 2
Föstudagur 24. september 1976 My ndirðu kaupa smyglað litsiónvarp ef þér byðist? Óli Einarsson, slökkviliösmaöur: — Nei, þaö myndi ég ekki gera. Mér finnst sjónvarpsdagskráin ekki það góö að mér nægi ekki svarthvitt til aö horfa á hana. Ragnar Benediktsson, simvirki: — Nei. En hins vegar fyndist mér það alveg upplagt fyrir lögreglu- mennina að auglýsa að þeir vildu kaupa slikt. Þannig gætu þeir komið upp um smyglarana. Guörún Scobie, frá Noröur- Karólínu, Bandarikjunum.— Nei, ég bý erlendis og á þar litsjón- varpstæki. Krisun vuneimsaouir, er i SKOia: — Já, þaö myndi ég gera, það er svo miklu flottara að sjá mynd- irnar i litum. ■ Anna Hallgrfmsdóttir, vinnur I búö: — Já, alveg örugglega. Þaö er bæði skemmtilegra og flottara aö sjá i litsjónvarpstækjum. Eitt eftirsóttasta dómarastarf á islandi. Vinmenning islendinga hefur aldrei veriö talin á háu plani, og drykkjumáti þeirra jafnan vak- iö mikla undrun meöal út- lendinga. Vaninn hefur verið að drekka vinið beint úr flöskunni, eða þá að blanda það með einhverjum gosdrykk — jafnvel þótt um hafi veriðað ræða 3ja stjörnu koniak eða margra ára gamalt viski, sem aðrir smjatta á vel og lengi áöur en þeir hafa timt aö láta það renna niður. Nú er vin að verða slikur munaður á veitingahúsum, að menn eru almennt farnir að „styrkja islenskan iðnaö” og drekka brennivin eða ákaviti I vatni. Hefur sú „blanda” veriö i efsta sæti vinsældarlistanna á börunum I stað tvöfalds asna eða genevers og kók eða romm og kók, sem lengi voru taldir „þjóðardrykkir islendinga”. En þótt vinmenningin sé ekki hátt skrifuð, hafa framreiðslu- menn okkar gert sitt til aö laga hana. Þar hafa þeir sem al- mennt eru kallaöir barþjónar — af sumura ikveikjumenna eða brennivinsuppáhellarar — gert sitt til að bæta úr. Hafa þeir m.a. staðiö fyrir keppni sin á milli, þar sem veitt hafa verið verðlaun fyrir best blönduðu drykkina. Ein slik keppni fór fram i Atthagasal Hótel Sögu s.l. miövikudag, og var þar keppt um best blönduöu coktailana — bæði þurra og sæta. sóttasta dómarastarf á tslandi. Komust i það færri en vildu... Dómararnir voru kallaðir inn i lokuö herbergi, þar sem þeir fengu að smakka á þeim drykkjum sem keppendurnir „hristu”. Gáfu dómararnir svo hverjum drykk stig, og var sið- an útkoman lögð saman. I salnum var engu minni spenningur en á hörku iþrótta- keppni, enda mjótt á mununum þegar stigin höfðu verið talin. Þurftu að kalla út aukadómara Orslitin urðu annars þau i þessari tólftu cocktailkeppni Barþjónaklúbbs Islands, að Við- ar Ottesen, Naustinu, varð sigurvegari i keppninni um sæt- an cocktaile. Hlaut hann 32 stig fyrir drykk sem hann nefndi „Black Jack”. Annar varö Garðar Sigurðsson, Hótel Borg með „Sweet Blondy”, sem fékk 30 stig og þriðji Jón Þór Ólafs- son, Röðli meö „Tao”. Fjórði varð svo Ólafur Laufdal, Óðal, með drykkinn „Lonli Blú”. Björn Olsen, Klúbbnum vann fyrstu verðlaunin I keppninni um þurran cocktail með „Kina” sem hlaut 38 stig. Annar Þarna voru mættir til keppni tólf barþjónar viðsvegar að af landinu, og auk þess sérstakt úrval af áhorfendum. Or þeim hóp voru dómararnir valdir, og er það trúlega einhvert eftir- — Blessaöur góöi faröu varlega meö þetta. Danlel Stefánssyni er sýnilega ekkert um þaö gefiö aö Viöar Ottesen, sé meö hin heföbundnu fyrstu verðlaun keppninnar I höndunum. Hann hefur sjálfur unniö þau oftast allra íslenskra barþjóna. Ljósm Loftur Þaö eru margir góöir og glæsilegir gripirnir sem veittir eru fyrir aö blanda bestu drykkina. varð örn Ólafsson, Sigtúni meö „Sigtún Special” sem hlaut 36 stig. Um þriðja sætið var hörð keppni og þurfti aö kalla út aukalið til að smakka, þvi þar urðu þrir menn jafnir. Konráð V. Halldórsson, Hótel Vest- mannaeyjum, Viðar Ottesen, Naustinu og Ólafur Laufdal, Óðal, allir með 30 stig. Hlaut Ólafur að lokum 3ja sætið fyrir sinn drykk, sem hann nefndi „Emmanuelle”. Fékk hann að launum vegleg- an bikar eins og allir veröiauna- hafnarnir, en verölaunín voru gefin af hinum ýmsu umboðs- aðilum vinframleiðenda hér á landi. Glæsilegust af öllum voru fyrstu verölaunin. Þar sóðuðu þeir Viðar og Björn að sér bikurum og sverðum, en auk þess fengu þeir farseðla og þátt- tökurétt i alþjóöa cocktail- keppni barþjóna, sem háð verð- ur á Italiu i næsta mánuöi. „BLACK JACK" Hér kemur cocktailinn sem hlaut fyrstu verölaun i keppninni um „sæta cocktaila”. Höfundur: Viöar Ottesen barþjónn I Nausti. Nafnið á drykknum: „Black Jack”. Innihald: 1/3 Wiskey 1/3 Kahlúa. 1/3 Countreau (appelsinulíkjör) Smá skvetta af sitrónusafa. „KINA" Hér kemur cocktailinn sem hlaut fyrstu verðlaun I keppninni um „þurra cocktaila”. Höfundur: Björn Olsen barþjónn í Klúbbnum viö Lækjarteig. Nafnið á drykknum: „Kina”. Innihald: 3/4 Gin. 1/4 Kampari. Skreyting: Rauður laukur. —HVÍTAR ÞJÓÐIR AFRÍKU YFIRGEFNAR—i David Livingstone týndist inni I miöri Afriku á seinni hluta nitjándu aidar, en þá var Afrika litt kannaö land og gekk undir nafninu álfan dimma, sjálfsagt sumpart vegna litarháttar fólksins. Þegar ekki haföi frést af trúboðanum og mannvininum inokkurn tima fóru englending- ar og síöan fleiri hvitar þjóöir aö óttast um hann, uns geröur var út leiöangur til aö leita hans, aö visu meö nokkrum ágóöa og auglýsingablæ. Bandariski blaöamaöurinn Stanley gekk fram á trúboöann inni i miöju landi, rétti honum höndina og sagði: Livingstone, býst ég viö. Þetta uröu siðan fræg ávarpsorð af þvi ekki voru fleiri hvitir menn I grenndinni en þeir tveir. Aö sjálfsögöu var Livingstone hvorki týndur eöa villtur. Þaö vantaöi bara bæöi sima og póst- samgöngur. Nú eru heilar þjóöir hvitra manna aö glatast I Afriku, sem er ekki lengur dimm og þarf ekki lengur neinnar könnunar viö. Þar sem áöur var leitaö eins manns, og vestrænn heimur stóö eiginlega á öndinni út af þvi hvort hann fyndist eða ekki, lætur enginn sig lengur skipta hvaö veröur um heilar hvitar þjóöir, sem hafa tekiö sér bólfestu I Rodeslu og Suöur-Afriku. Sé hendi lyft til varnar þessum þjóöum hrópa mannréttindapostular ýmiskon- ar, aö þaö sé fasismi. Velflestir af þessum þjóöum eru fæddir I landinu og veröa vart kallaöir til ábyrgðar fyrir aö eiga þar heima, eöa fyrir aö hafa tekiö löndin. Og nú sfðast telja banda- rikjamenn aö máliö sé komiö I óefni, eins og þeir hafi aflaö sér sérstakra réttinda til afskipta meö þvi aö taka þau lönd, sem nú eru Bandariki Noröur-Ame- riku meö valdi af þjóöum indiána á sinum tima. Kannski er kominn timi fyrir þjóöir Sioux-indfána, Svartfætlinga og Cheyenne að halda til Washing- ton og óska brottfarar hvitra manna úr Noröur-Ameriku. Um siöustu aidamót voru bretar hataöir um allan heim fyrir þátt þeirra I Búastriöinu svonefnda, þegar bændur af hol- lenskum uppruna, sú þjóö sem nú byggir Suöur-Afriku, böröust fyrir sjálfsforræöi sinu og sigr- uðu. Nú eru þessir sömu búar hataöir fyrir aö vilja halda landi sinu. Aö visu hefur ágirnd þeirra leitt þá út I slíka sam- söfnun af ódýrum vinnukrafti I iandinu, aö þeir lifa oröiö I næsta óviðráöanlegu sambýli, og þeir hafa gerst sekir um aö vilja halda i þetta ódýra vinnu- afl, löngu eftir aö timinn var út- runninn. Þegar þetta er ritaö hefur ekki heyrst hvaöa tillögur Kiss- inger hefur veriö aö móta á fundum sinum meö hvitum og svörtum I Afriku undanfariö. Hinn vestræni heirnur hefur sýnt sig I þvi, aö þora ekki aö styöja hvitar þjóöir Afriku af ótta viö aö vera kallaöir fasist- ar. Gáfaöir og gegnir forustu- menn nýfrjáisra afrikuþjóöa telja sem eölilegt er, aö kúgun og aröráni hvitra i Afriku sé lok- iö. Aftur á móti eru kröfur þeirra til yfirráöa yfir hvitum þjóöum I álfunni annars eölis og veröa varla uppfylltar án blóös- úthellinga. Nú er á þaö aö lita, aö um þvert og endilangt kort af Afriku liggja landamæri gerö meö reglustikum. Þaö er þvi ekki óhugsandi aö beita megi reglustikunni enn einu sinni til ákvörðunar á skiptingu Rodesfu og þrengri landamærum S-Afrlku, þannig aö hvitar og svartar þjóöir skipti þessum iöndum á milli sin og búi þannig I sambýli en ekki I sam- krulli, þar sem hvitir ráöa. En nýir ráöamenn þjóöa Afriku munu ekki una þvi. Fyrir utan frelsi eru þeir einnig á eftir þeim eignum og mannvirkjum, sem hvltir hafa reist sér, og viö þá iöju hafa þeir góöan stuöning vestrænna þjóöa, sem i staðinn fyrir slikan stuöning ættu sjálf- ar aö rifja upp hverju þær hafa stolið af minnimáttar á umliön- um öldum. Svarthöföi

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.