Vísir - 24.09.1976, Síða 3

Vísir - 24.09.1976, Síða 3
3 VISIR Föstudagur 24. september 1976 Rœtt um nýtt síldarverð: „Hœgt að hœkka verðið" —segir fulltrúi seljenda í verðlagsróði „Við viljum meina að það sé rúm fyrir ofurlitla hækkun”, sagði Ingólfur Ingólfsson annar fuiltrúi seljenda i verðlagsráði sjávarútvegsins er ákveður sildarverð. Fundir hafa verið haldnir að undanförnu i verðlagsráðinu til þess að ákveða nýtt sildarverö. Það sem nú er i gildi rennur út á morgun og einmitt þann dag byrja sildveiðar i nót. Ingólfur Ingólfsson sagði að nú væri búið að semja um sölu á öllu þvi magni sem talið væri að yrði veitt i ár. Eins og fram hefur komið voru seld um 50 þús. tonn til Finnlands og Sviþjóöar og 60 þús. tonn til Sovétrikjanna. Ingólfur sagði að nú lægi þvl öll vitneskja fyrir aðeins væri barist um hvernig ætti að skipta kök- unni. „Staðreyndin er sú”, sagði hann, ,,að viðhöfum verið að leita eftir breytingum til hækkunar”. —EKG. Magnús efstur á Suðurlandi Magnús H. Magnússon, fyrrum bæjarstj. i Vestmannaeyjum, verður efstimaður á lista Alþýðu- flokksins i suðurlandskjördæmi viö næstu Alþingiskosningar. Þetta var ákveðið á fundi kjör- dæmisráðs Alþýðuflokksins i suðurlandskjördæmi, sem hald- inn var i Vestmannaeyjum um siðustu helgi. Stjórn kjördæmisráösins velur siðan aðra menn á listann, en i samráði við Magnús H. Magnússon. Þessa mynd tók Loftur Asgeirsson, ljósmyndari VIsis úr lofti af Breiðholtshverfunum i blfðviðrinu I gær. NÆSTA LÓÐAÚTHLUTUN FER FRAM í SELJAHVERFI OG BREIÐHOLTI III „Það er oröin hefð hjá borg- inni að úthiuta lóöum i janúar,” sagöi Þórður Þorbjarnarson, borgarverkfræöingur i samtali við Vísi. „Næsta úthlutun fer væntan- lega fram á svæöinu fyrir sunn- an fjölbýlishúsin, sem veriö er að reisa vestast I Seljahverfinu og er gert ráð fyrir frekar þéttri og lágri byggö þar, raöhúsum og einbýlishúsum. Endanleg ákvöröun um fjölda húsa eöa ibúða hefur ekki verið tekin, en það fer eftir fjármagn- inu, sem veitt verður til bygg- ingarsvæðisins.” Þórður gat þess einnig að eftir væri að úthluta lóöum fyrir um það bil 30 einbýlishús I slakkan- um sunnan Elliöaánna, sem yrðu þá f Breiðholti III. Lóðum þar verður væntanlega úthlutað I janúar. Aðspurður um fjölda lóðaum- sækjenda sagði Þórður að ekki væri hægt að segja til um þá ennþá, þar sem ekki hefði enn verið auglýst eftir umsóknum, auk þess væri ekki alltaf að marka þessar umsóknir, þar sem margir sendu inn umsókn- ir, til þess að fá nöfnin sin á blaö upp á siðari tima. — RJ VIUA FA STORAN TOGARA Hafrannsóknarstofnunin hefur áhuga á að fá ieigöan stóran tog- ara til þess að nota við rannsóknir á djúpslóð. Beiðni um þetta er nú til athugunar hjá sjávarútvegs- ráðuneytinu. Þetta kom fram i samtali sem Visir átti við Jón Jónsson for- stjóra Hafrannsóknarstofnun- arinnar. Eins og kunnugt er hafði Haf- rannsóknarstofnunin eignast tog- arann Baldur og var hugmyndin að nota hann til rannsóknar- starfa. Hann var hins vegar tek- inn strax til Landhelgisgæslunnar áður en Hafrannsóknarstofnunin hafði nokkuð af honum að segja. Togarinn Runólfur var leigður til Hafrannsóknarstofnunarinnar i sumar. Einkum var hann notað- ur til kolmunnaleitar og veiða. Leigutima hans er nú útrunninn svo að segja má að ef aö leigu yrði myndi það skip koma i staöinn fyrir Baldur og Runólf. Meiri rækjuleit Jón Jónsson sagði að hjá Hafrannsóknarstofnun væri nú áhugi á að leita að rækju út af austfjörðum. Er hugmyndin að leita að rækju út af Austfjörðum siðari vetur á Arna Friðrikssyni. Nú eru tvö skip á vgum Haf- rannsóinnarstofnunar aö leita að rækju. Höfrungur og Langanes. — EKG Lögreglan vlðsvegar um land hefur tekiö talstöðvar og annan tæknibúnað I gagnið til að auka öryggi al- mennings. Það nýjasta á þessu sviði eru sjálfvirkir simsvarar sem hafa veriö settir upp á minni lög- reglustöövum vlðsvegar um land. SÍMSVARINN SVARAR FYRIR LÖGREGLUNA „Þetta er slmsvari lögregl- unnar, ef þér þurfið að hafa samband við lögregiuna eða ná I sjúkrabil, þá gjörið svo vel að hringja I....” Þetta er algengt svar ef hringt er i númer lögreglunnar á mörgum stöðum út á landi. Þaö er enginn lögregluþjónn, sem kemur i simann, heldur svarar simsvarinn, og hann gefur þér upp heimanúmer þess lögreglu- þjóns sem er á vakt, svo og önn- ur númer, þar sem hægt er að ná i hann. „Þessi simsvarar hafa verið settir upp á mörgum minni lög- reglustöðvunum út á landi” sagði Hjalti Zophoniasson full- trúi i dómsmálaráöuneytinu, er við spurðum hann, hvort þetta væri orðiö algengt. „1 þeim byggðalögum, þar sem eru einn eða tveir lögreglu- þjónar, er ekki hægt aö ætlast til aö þeir standi vaktir til skiptis allan sólarhringinn allt árið. Heimamenn vita alltaf hvar á að ná í þessa menn, ef eitthvað kemur upp, og þeir eru ekki á lögreglustöðinni. Aftur á móti vita ókunnugir það ekki og þvi geta ýmiss vandræði skapast af þeim sökum. En meö tilkomu simsvarans voru þau vandræði úr sögunni, auk þess sem hann veitti betri þjónustu og aukið öryggi fyrir alla aðila,” sagði Hjalti. „Ég þori ekki að fullyrða hvað simsvarar eru komnir upp á mörgum stööum, en það er nokkuö viða. Lögregluþjónar eru á fjörutiu stöðum á landinu flestir i Reykjavik eða tvö hundruö og fimmtiu talsins, en fæstir eru þeir á minnstu stöðunum út á landi, en þar er yfirleitt einn lögregluþjónn. Á stærri stöðunum eru sim- svararnir ekki notaðir nema þegar eitthvað sérstakt ber að höndum, en á hinum minni er aftur meira um að þeir séu i gangi einhvern hluta sólar- hringsins”. —klp —

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.