Vísir - 24.09.1976, Page 5
VISIR Föstudagur 24. september 1976
Guðmundur Péturssön
KAPPRÆÐA
FORDS OG
CARTERS
Keppinautarnir, Ger- hesta sina i sjónvarpi i
ald Ford og Jimmy nótt og er talið að um
Carter, leiddu saman 100 milljón manna i
Bandarikjunum hafi
fylgst með orða-
skylmingum þeirra.
Naumast höfðu þeir
fyrr stigið úr ræðu-
stólnum, en talsmenn
beggja tóku að fagna
unnum sigri sins ræðu-
manns.
Ford fékk
betri einkunn
Skoðanakönnun, sem gerð var
strax að lokinni kappræðunni,
benti til þess, aö Ford forseti
hefði þótt koma betur fyrir. —
En það er margra hald, að kjós-
endur muni hrifast meir af fasi
frambjóðandanna og fram-
komu, en af málefnum, sem
hvor um sig berst fyrir.
Það var Public Broadcasting
Service, sem kannaöi skoðanir
nær 600 fullorðinna sjónvarps-
áhorfenda, og voru 39% þeirrar
skoðunar, að Ford hefði yfir-
höndina i einvíginu, þegar hér
erkomiðsögu. 31% meintu hins-
vegar að Carter stæði betur að
vigi. 30% töldu jafnt á komið
með þeim.
Bilun i út-
sendingunni
Um 10 minútum fyrir lok út-
sendingarinnar datt hljóðið út
og stóð sú bilun i 27 minútur, en
á meðan var sýnt aftur það sem
á undan var komið. Var Carter
Mótmœla
Sovétmenn hafa mótmælt harð-
lega við japönsk yfirvöld, að
Mig-25 herþotan skuli tekin sund-
ur og hernaðarsérfræðingar
Japans og Bandarikjanna fái að
snuðra i henni.
Simitri Polyansky, sendiherra
Sovét f Tokyo, sést hér koma frá
utanrikisráðuneytinu, eftir að
hafa borið upp mótmælin, og er
að vonum þungur á svip.
HAFRÉTTAR-
FYRIR GÝG?
Ekki alveg til einskis
Enginn er samt svo blindur, að hann teldi ráöstefnuna til einskis
haldna. Um margt hefur náðst slík eining, að heita má, að það hafi
hlotið alþjóðlega viðurkenningu og skilning I reyndinni, þótt ekki sé
það skjalfest og undirritað. Og annað hefur þokast nógu langt i átt
tilsamkomulags til þess aö geta orðiðleiöarljós, ef einhver rlki gera
með sér samninga. Þar mætti nefna reglur, sem haföar skuli I heiöri
um frjálsar ferðir skipa um siglingaleiðir hafanna, eða verndunar-
sjónarmið varðandi hinar og þessar fisktegundir.
Hefur þegar markað stefnu
Eitt af þýðingarmeiri atriöunum, sem náðst hefur meirihluta
fylgi um og við Islendingar mundum setja efst á listann, er fastá-
kvörðun tólf mllna landhelgi og 200 mllna auölindalögsögu, sem
hvert strandrlki hefur eitt umráð yfir og eftirlit meö. — Vandamál
þvl náskylt er hinsvegar enn óleyst. Spurningin um hvaða rétt ná-
grannarikisllkra strandrikja,land, sem ekkiliggur að sjó, og hvaöa
skyldur það hefur til þess hafsvæðis, sem fellur innan lögsögu
strandrlkisins.
Meðal annarra veigamikilla atriða, sem drög aö alþjóðareglum
hafa veriðgerð um, eru hafrannsóknir, mengunareftirlit og leiðir til
að leysa ágreiningsmál. Endanlegur frágangur þessara mála blöur
samt næsta árs.
Sáttmálinn aðalatriðið
Ef hafréttarráðstefnan rennur út I sandinn, er ekki vonlaust, aö
þessi árangur gæti samt komið þjóðum heims til góöa. En það er
fremur veik von og óljós, þvi að menn líta á öll mál og alla mála-
flokka ráðstefnunnar sem eina heild, er felld skuli inn I einn alls-
herjarsáttmála. Hvaða smámál, eöa stórmál, sem samkomulag
strandaði á, getur leitt til þess aö sá sáttmáli liti aldrei dagsins ljós.
Þannig séð mundi allt starfið unnið fyrir gýg.
Hafsbotnsmálið
Þesskonar mál óttast menn að hafsbotnsmáliö ætli að verða. Þar
stendur hnifurinn þannig I kúnni, að mönnum sýnist tvennt um.
Sumirvilja.að sett veröi á laggirnar alheims hafsbotnsráð, sem út-
hluti einstökum rikjum eða einkafyrirtækjum leyfi til vinnslu auð-
lind hafsbotnsins. Aðrir vilja, að sett verði upp úthlutunarkerfi, sem
tryggi rikjum eða fyrirtækjum aðgang að ákveönum hafsvæöum,
þar sem þau geti freistað gæfunnar.
að tala, þegar hljóðið fór af, og
hélt hann áfram um hrlð, án
þess að gera sér grein fyrir
biluninni, eða þar til tæknimenn
gerðu honum viðvart.
Stóðu ræðukapparnir þegj-
andi og biðu, meðan viögerðar-
menn kipptu hlutunum i lag.
Fengu þeir siðan tækifæri til að
segja. sin lokaorð, eins og gert
hafði verið ráð fyrir.
Meðan þeir biðu eftir við-
gerðarmönnunum virtist Carter
ánægður að sjá, en Ford stóð
harður á svip með hendur á
mjöðmum, óþolinmóður eftir
framhaldi bardagans.
Carter
„Bandarlkjamenn hafa verið
sniðgengnir, stundum hefur
verið villt um fyrir þeim, stund-
um logið. — Við þörfnumst
stjórnar,sem er næm fyrir þörf-
um þjóðarinnar,” sagöi Jimmy
Carter. „Forysta okkar hefur
verið annars flokks. Við höfum
misst stjórnar á því, hvað land
okkar er eða hvað það hefur
verið.’
Ræða hans þótti bergmála
boðskapinn, sem hann flutti,
þegar hann tók útnefningu
flokksþings demókrata I júll. —
Hann lýsti yfir: „Stjórn okkar
er, þrátt fyrir Kambodiu, Víet-
nam, CIA og Watergate, besta
stjórn I heimi.”
Ford
Ford svaraði með beinni árás
á kosningaloforð Carters. —
„Forseti ætti aldrei að lofa
meira, en hann er maöur til aö
standa við. Forsetinn getur
aldrei orðið öllum allt.”
Hann kvað kosningabarátt-
una ganga út á það, „hvort þið
eigið að kjósa kosningaloforö
hans, eða frammistöðu mina I
Hvíta húsinu siðustu tvö ár.”
Stilltir i orðum
Kappræðan I gær var fyrsti
áfangi þriggja, og snerist að
þessu sinni um innanlandsmál-
efni og efnahagsmál. Utanrikis-
stefna og almenn málefni biöa
næsta mánaðar.
Mestan hluta kappræðunnar
voru frambjóðendurnir stilltir i
orðum, en þegar blaðamennirn-
ir þrír, sem beindu spurningum
til þeirra, leiddu taliö að heiðar-
leika stjórnmálamanna, hitnaði
i kolunum.
Atlaga Carters
Það var Carter, sem þótti
sveifla þar beittasta brandi
kvöldsins. Ford forseti hélt þvl
fram, að með sér heföi ráð-
vendnin tekið bólfestu að nýju I
Hvlta húsinu. — „Vandinn viö
stjórnina liggur hjá þinginu.
Siðgæöi þingmanna er vafa
undirorpið.”
Carter svaraöi um hæl: „Ég
held, að það sé einungis rétt-
mætt, aö hann (forsetinn) beri
ábyrgð á Nixon-stjórninni, sem
hann átti sæti i.”
Ef frá er talið, að forsetinn
hafði komist hjá öðru Water-
gatehneyksli, hélt Carter þvl
fram, að Ford hefði ekki komið
einu eða neinu máli til leiðar
fyrir land sitt.
TILRÆÐI í
EÞfÓPÍU
Mengistu Haile Mari-
am, majór og varafor-
manni herforingja-
stjórnar Eþiópiu, var
sýnt banatilræði i gær-
kvöldi, eftir þvi sem út-
varpið i Addis Ababa
segir.
., í fréttum þess i morg-
un segir, að majórinn,
sem er valdamesti mað-
ur Eþiópiu, hafi verið i
þann veginn að stiga inn
á heimili sitt i gær-
kvöldi, komandi frá
vinnu, þegar honum var
sýnt tilræðið.
Ber það upp á sama
tima og heyra mátti i
höfuðborginni harða
skotrimmu og spreng-
ingar. Stóð sú skothrið i
nær fimm minútur, og
þekkti fólkið þar geltið i
vélbyssu og hvelli úr
minni skotvopnum. En
frekari fréttir hafa ekki
borist af þessum atburð-
um