Vísir - 24.09.1976, Side 24
500 kindur drópust í Svartó í Húnavatnssýslu
VfSIR
Föstudagur 24. september 1976
Ungir
bílaþjófor
ó ferð
Þrir piltar undir 16
ára aldri gerðust heldur
stórtækir i bilaþjófnað-
inum i nótt sem leið.
Stálu þeir þá þrem bíl-
um viðs vegar um bæ-
inn, og skemmdu þá
meira og minna auk
þess sem þeir skemmdu
aðra bila sem þeir óku
utan i á þessu ferðalagi
sinu.
Fyrsta bilnum munu piltarnir
hafa stolið i Kópavogi i gær-
kvöldi. Óku þeir honum niður i bæ
en ökuferð þeirra endaði við
Smáragötu, þar sem þeir óku á
annan bil og ljósastaur.
Þaöan hlupu þeir á brott og
héldu vestur i bæ, þar sem þeir
náðu sér i annaö farartæki. Héldu
þeir á þvi i ökuferð um bæinn eða
þar til þeir fundu þriðja bilinn,
sem þeim leist mun betur á,
Var hann snarlega tekinn
traustataki, en ökuferðinni lauk
inn i Sogamýri, þar sem þeir óku
á annan bil og hlupu siðan á brott.
Lögreglan hafði hendur i hári
tveggja piltanna, og kom i ljós að
þeir höfðu einnig verið teknir um
siöustu helgi fyrir að stela bil.
Voru þeir þá fluttir á upptöku-
heimilið i Kópavogi, en fengu að
fara þaðan i gærkvöldi, og tóku þá
strax upp þráðinn þar sem frá var
horfið þegar lögreglan hafði
hendur i hári þeirra fyrir nokkr-
um dögum. —klp—
Nafnbirting
hugsanleg í dag
,, Engar upplýsingar verða
gefnar í ávisanamálinu fyrr en á
blaðamannafundinum i dag”,
sagði Hrafn Bragason, sem fer
meö rannsókn þess, viö Visi i
morgun.
Hrafn sagðist ekki vilja segja
neitt um þaö hvort nöfnin yrðu
birt i dag. Hann kvaðst ekki
heldur vilja neitt tjá sig um hvort
nöfn bæöi framseljenda og út-
gefenda yrðu birt.
Blaðamannafundur Hrafns
Bragasonar umboösdómara hefst
klukkan þrjú 1 dag. —EKG
ÞtGAR STÍFLAN BRAST ÞíYTTI ÁIN Á
UNDAN SÉR HUNDRUÐUM DAUÐRA KINDA
„Við sáum fyrstu dauöu kind-
ina i ánni niður viö bæinn
Hvamm, sem er einum scx kiló-
metrum neðar en þar sem féð
fór i ána,” sagöi Unnar Agnars-
son meinatæknir á sjúkrahúsinu
á Blönduósi, sem var meðal
þeirra sem koinu að Svartá eftir
að uin 500 fjár hafði drukknað
þar i gærmorgun.
„Það var óhugnanleg aðkoma
þarna,” bætti Unnar við. „Dautt
fé niöur meö árbökkunum og á
eyrunum iánni, og menn aö bisa
við að draga hræin á land. Þeg-
ar við vorum aö fara var talan
komin upp i 426 kindur, en trú-
lega á hún eftir að hækka þvi
eftir er að kanna ána fyrir neð-
an Hvamm.”
Það var snemma i gærmorg-
un sem féð rann i ána. Hafi það
verið i nátthaga um nóttina, og
var beðið eftir þvi að reka það
inn i Stafnsrétt, þar sem réttað
var i gær.
Girðingin sem féð var geyrnt i
lét sig á einum stað, og komust
nokkrar kindur þar út. Við það
myndaðist mikill troðningur og
æddi féð á girðinguna, sem lét
undan á stórum kafla. Tók féð á
rás upp i brekkur, en talið er að
á milli 6000 og 7000 fjár hafi
sloppið þarna út úr nátthagan-
um.
Bændur og smalamenn kom-
ust i veg fyrir féð og ráku það til
baka. Eftir þvi sem talið er
munu þeir hafa rekið þaö hratt
og með miklum hávaða og misst
stjórn á þvi.
Féð fór út i ána og i hólma
sem er i henni miðri. Vestan við
hólmann rennur áin i þröngum
og djúpum stokk og bakkarnir
háir hinum megin.
Troðningurinn var það mikill,
að fénu sem komst fyrst út I
hólmann var þrýst áfram og út i
stokkinn, þar sem það tróöst
undir. Svo mikið gekk á, aö áin
stiflaðist um stund, og þegar
hún loks brast þeytti hún á
undan sér fleiri tugum dauðra
kinda.
Nokkrir bændur munu þarna
hafa misst á_milli 30 og 40 fjár,
og sumir jafnvel enn meir. Er
tjón þeirra metið á fjórar til
fimm milljónir, en auk þess er
mikill hluti af fénu svo illa
marið > eftir troðninginn i nátt-
haganum og ánni, að kjötið af
þvi mun verða i lágum verð-
flokki þegar komið verður með
það til slátrunar.
—KLP/RIT. Blönduósi.
Bjargróða-
sjóður
hjólpar
bœndunum
Dauöar kindur fundust fyrir neðan bæinn Hvamm, sem er einum
sex kilómetrum neðar en slysstaöurinn. Ljósmyndir Unnar Agnars-
son, Blönduósi.
,,Ef bændur óska eft-
ir þvi við Bjargráða-
sjóð, á hann samkvæmt
lögum að veita þeim
fyrirgreiðslu,'* sagði
Magnús Guðjónsson,
framkvæmdastjóri
Bjargráðasjóðs, er Vis-
ir spurði hann i morgun
hvort sjóðurinn hlypi
undir bagga með bænd-
um sem misstu fé i
Svartá i gær.
,,Að hluta til yrði um óaftur-
kræft lán að ræða,” sagði hann,
,,en einnig yrðu veitt vaxtalaus
lán til fimm ára”.
Maguús sagði að búast mætti
við að bændur hefðu samband
við sjóðinn og raunar hefði einu
sinni verið haft samband við
hann i morgun.
Hann taldi aö tjón bænda
næmi á milli þriggja og fimm
milljóna króna. Taka yrði inn i
myndina að ef mikið hefði verið
um lömb i hópnum þyrfti að
draga sláturkostnaö frá þegar
tjón væri reiknað. En á móti
kæmi að það fé sem lifað hefði
af volkið væri hugsanlega marið
og kjöt þess skemmt. Það gæti
lækkaö afurðaverðið.
Magnús sagði að Bjargráða-
Vörubilar voru fengnir til að aka niður með ánni, þar sem bændur
hjálpuöust að við að lesta þá með dauðum kindum sem lágu eins og
hráviði við árbakkana og á eyrunum i ánni.
sjóður væri nú illa staddur. náttúruhamfara og það væri svo
Sjóðurinn hefði þegar greitt 100 til allt ráðstöfunarfé hans.
milljónir vegna búfjártjóna og —EKG
SJONVARPSDEILAN:
Ovíst um lausn
bor-
Þegar Visir fór I prentun um
hádegisbilið stóð enn fundur,
sem hófst klukkan 11 i morgun í
Starfsmannafélagi sjónvarps,
þar sem taka átti afstööu til
beiöni menntamálaráðherra
um, að útsendingar yrðu hafnar
aö nyju f kvöld. Slðdegis I gær
héltráðherra enn einn fund með
fulltrúum sjónvarpsins og
starfsmanna þar sem kynnt
voru ýmis skilyröi starfsmanna
varðandi skipan nefndar, sem
fjalla ætti um málefni þeirra og
stööu sjónvarpsins í launakerfi
ríkisins.
A þessum fundi sjónvarps-
manna mun væntanlega ráðast
hvort sjónvarpsútsendingar
hefjast að nýju f kvöld eftir
vikuhlé vegna setuverkfalls
starfsmanna.
monna
Verkfall það, sem staðið hafði I
eina viku hjá starfsmönnum viö
minni borana hjá jarðborunum
rikisins, leystist á fundi I gær-
kveldi.
Að sögn Þorgils Jónassoriár,
fulltrúa hjá Orkustofnun, voru
gerðir svipaðir samningar við
starfsmenn minni boranna og
veriðhafa i gildi við stærstu bora,
sem i notkun eruhjá jarðborunum
ríkisins. Ekki sagði hann þó, að
launin hjá þeim, sem verið hefði i
verkfalli, hefðu hækkað til jafns
við laun þeirra, sem vinna við
stóru borana, en hækkunin væri
þó nokkuð í þá áttina.
Munu þvi væntanlega i dag
hefjast að nýju viða um land
boranir vegna hitaveitufram-
kvæmda, sem legið hafa niðri
undanfarna daga.
Einn þeirra staða, sem verk-
fallið hefur haft áhrif á er Siglu-
fjörður, en þar var borunum hætt
vegna verkfallsins á fimmtudag-
inn var.
Að sögn Ragnars Jónssonar,
leyst
fréttaritara Visis á Siglufirði.hef-
ur verið einmunabliða þar nyrðra
undanfarið, sólskin og hiti á
hverjum degi, eins og best hefur
gerst um hásumar, og þvi verið
sérlega góðar aöstæður til þess aö
vinna við borunina, en framund-
an er haustið með frosti og kulda.
Sagði hann i morgun, að heldur
hefði orðið lélegur árangur af
jarðborunum i Siglufirði i sumar.
Búið væri aö ganga frá fyrri bor-
holunni, sem væri 1672 metrar á
dýpt, en hún gæfi af sér 1,8
sekúndulitra af heitu vatni.
Kostnaður við hana væri um 25
milljónir króna.
Siðari holan, sem unnið var viö
fram aö þvi er verkfallið skall á,
var orðin 380 metrar aö dýpt og úr
henni komu 1,6 sekúndulitrar.
Nú, þegar boranir geta hafist aö
nýju eftir verkfalliö vænta menn
þess nyrðra, að fljótlega náist
betri árangur i sambandi við þá
holu, þannig að betri grundvöllur
skapist fyrir hitaveitu á Siglu-
firði.
Saga stœkkar
en Esja ekki
Orðrómur um að Flugleiöir
hyggist fara að stækka Hótel
Esju um helming, hefur ekki
við rök aö styðjast. Hins vegar
á að bæta tuttugu og fimm
gistiherbergjum við Hótel
Sögu.
„Það er rétt að það er aðeins
búið að byggja helminginn af
Hótel Esju,” sagði Erling
Aspelund við Visi i morgun.
„Einhvern tima i framtiðinni
verður hinn helmingurinn
reistur. En það er alls ekki á
næstu grösum.”
Flugleiðir eru nú að flytja
starfsemi sina úr bændahöll-
inni og Hótel Saga ætlar að
yfirtaka það pláss sem þar
losnar.
„Við byrjum á breytingun-
um núna fyrsta október og
vonumst til að vera búnir i
mai á næsta ári,” sagði Kon-
ráð Guðmundsson, hótelstjóri.
Þetta er ein hæð sem við fáum
— og út úr henni fáum við tutt-
ugu og fimm tveggja manna
herbergi.”
—<vr