Vísir - 11.12.1976, Blaðsíða 19

Vísir - 11.12.1976, Blaðsíða 19
23 "Eins og lœkur í Flóanum" FACO - HLJÓMDEILD Nýjar plötur Jón i Hamraborg skrifar: Ný lokið er kjördæmisþingi framsóknarmanna i Reykjanes- kjördæmi. Var þingið haldið i Hlégarði. Aö sögn Timans var það vel sótt og fór friðsamlega fram. Hafði verið unnið aö þvi við undirbúning þingsins að semja um og ákveða kosningar til miðstjórnar og i aðrar trúnaðarstöður áður en þingiö kæmi saman, ennfremur hafði verið lögð áhersla á, að stjórn- málayfirlýsing, sem þinginu var ætlað að samþykkja, yrði afgreiddsem umræöuminnst, til að sýna sem mesta samstöðu á j)inginu. VAR lögð rik áhersla á, að störf þess yrðu kyrrlát og hljóð, að þau rynnu áfram likt og lækur i „Flóanum” sem rennur lygnt á sléttum hans. Er þingforseti hafði sett þing- ið og kynnt dagskrána, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár einn af fulltrúunum úr Kópavogi reynd urfélags-og baráttumaður, sér- staklega i sveitastjórnarmál- um. Lýsti hann þvi yfir að hann tæki ekki þátt í störfum þings- ins, þar sem honum væri kunn- ugt um undirbúning þess og samninga-makk og þegar væri búið aöákveða fyrir fram allter máli skipti i störfum þess. Var likt og snöggur hvirfilvindur færi um fulltrúana. Hvarf ræöu- maður að lokinni ræðu sinni á braut. Varð nú allt hljótt og kyrrt á þinginu og tóku full- trúarnir brátt gleði sina aftur. Gengu nú þingstörf um sinn eft- ir áætlun. Um nónbil kvaddi annar fulltrúi úr Kópavogi sér hljóðs utan dagskrár. Var það hinn gamal reyndi verkalýðs- foringi flokksins i Kópavogi. Er hann var á leið i ræðustól varð vart við smá-ókyrrð i saln- um. Var nú komin hafgola? Var einingin rofin? Brátt létti fundarmönnum. Erindi ræðu- manns var að láta vita að vegna anna gæti hann ekki tekið leng- ur þátt i störfum þingsins. Þakkaði hann fyrir sig að göml- um og góðum sveitarsið, lýsti yfir ánægju sinni með störf þingsins, stöðu Framsóknar- flokksins f þjóðmálum, og stööu hans i kjördæminu. Var góður rómur gerður að ræðu hans. Þingið hélt svo áfram í anda einingarog bræðralags. Var því lokið það timalega að allir þing- fulltrúar gætu komist heim tii sin á réttum tima til kvöldverð- ar. Þingið samþykkti meöal ann- ars aö gera landið varnarlaust i áföngum. Voru þaö lokaorð stjórnmála- yfirlýsingarinnar. A þinginu var ekki rætt um málaflokka eins og stóriöju raf orkumál, vega- og samgöngu- mál, landbúnaðarmál og sam- vinnumál. I þessum málaflokk- um og fleirum mun þingið hafa verið opiö i báða enda. Fjölbreytilegir lokkar m mínútum Braun krullujárnið er mikið þarfa- þing, enda hafa eigendur þess látið í Ijósi sérstaka ánægju yf ir gæðum þess og eiginleikum. Á efri myndinni sést þegar verið er að hleypa gufunni á lokkinn (tekur eina til tvær sekúndur) en síðan er beðið i 10-20 sekúndur með- an gufan og hitinn eru að fullvinna verkið. Svona einfalt er það. Þegar þú hefur náð dálítilli æfingu, geturðu breytt hárgreiðslu þinni að vild. Með hverju krullujárni fylgir leiðarvísir, sem sýnir þér ótal notkunarmögu- leika. Verð nú í desember kr. 6.950,00. gxqi Heildsala og smásala Skólavörðustig 1-3 og Bergstaöastræti 7 Braun Quick Curl BRflun Abba: Arrival Chicago: Chicago X (10) Salsoul Orchestra: Christmas Jollies Fjörugasta og sérstæðasta jólaplata um óraraöir kemur öllum f banastuð Jackson Brown ... The Pretender JoniMitchell Hejira Boston Boston FrankZappa Zoot Allures Seals And Crofts .. Sudan Village ' Rod Stewart A Shot Of Rhytm And Blues Whisbone Ash .... New England Allan Brothers.... Wipe The Window Dave Mason Certified Live Led Zeppelin The Song Remains The Same EitonJohn Blue Moves Sailor Third Step Sparks Big Beat Flash Cadillac .... Rock and Roll forever Ted Nugent Free for all k Grin Best Of !.'t Bunny Wailer Black Heart Man « BeeGees Four Seasons Of Love Children Of The World Nýjar íslenskar plötur: Jólastjörnur................ Björgvin Halldórsson, Rfó, Gleðileg jól................ Heima jólunum á Speglun......... Lúdó og Stefán... Agjör sveppur ... Geimsteinn...... Jólalög......... Mannlif......... Fyrst á röngunni. Gunnar Þóröarson, Halii og Laddi Vinsæla jólaplatan frá þvi I fyrra komin aftur Rúnar Július, Þórir Baldurs Eik Gfsli Rúnar Ýmsir Kristin Lilliendahl Jóhann G. Jóhannsson Haukar Nýjar litlar plötur: Daddy Cool.......... Somebody To Love.... Dont Make Me Wait ... Rubber Band Man..... Daylight ........... ILikeToDo It...... Sunshower........... Nice’nNasty ........ Rock’n Me........... The Best Disco In Town Dance little lady dance. Boney ’m Queen Barry White Spinners Vicki Sue Robinson K.C. And The Sunshine Band Dr. Buzzard Savanna Band Salsoui Orchestra Stewe Miller Richie Family Tina Charles ATH. Hin sívinsœlu gjafakort Faco komin aftur Sendum í póstkröfu samdœgurs eins og venjulega

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.