Vísir - 03.01.1977, Blaðsíða 4
mmm
Óska viðskiptavinum
mínum og öðrum
landsmönnum
gleðilegs nýs árs,
þakka liðið
mmm
Óli blaðasali
Bestu óskir
um gott og heillaríkt
komandi ár,
með þökk fyrir það liðna.
Rammabœr,
Innrömmun Heiðarbœ 8
V______________________________J
Blaðburðar-
fólk óskast
Bankastrœti
Bjarkargata
Hringbraut
Lœkjargata
Suðurgata
Vonarstrœti
VÍSIR
VÍSIR
Umsjón:
Guðmundur Pétursson
ÓEIRÐIR KÍNA
óeirðir þær, sem frést
hefur um í ýmsum dreif-
býlishéruðum Kina# munu
hafa brotist út í október í
haust og ólgað siðan, eftir
því sem Reuter-fréttastof-
an hefur eftir kínverskum
embættismanni.
Eftir sömu heimild hefur
fréttastofan það, að loks hafi nú
linnt hernaðarátökum, sem átt
hafi sér stað i bænum Paoting, en
hann er um 180 km suður af Pek-
ing. Fullkominni ró hefur samt
ekki verið komið þar á enn.
Þessi embættismaður hefur
sagt fleiri vestrænum frétta-
mönnum i Peking, að i sumum
héruðum hafi rikt ófriður i fjölda
ára og sé enn. En hvergi hafi
blossað upp ný átök eftir, að
ekkja Mao Tse tung og þrir aðrir
leiðtogar róttækra með henni
voru hneppt i varðhald fyrir sam-
særi um valdarán.
1 útvarpsfréttum frá Kina sið-
ustu vikur hefur verið greint frá
átökum i þriðjungi af 29 héruðum
Kina. Þar á meðal borgara-
styrjöld i Szechwan. En ekki var
skýrt frá þvi, hvenær þessi átök
hafi átt sér stað.
Fréttaskýrendur telja ástæð-
una fyrir þvi, að nú er loks sagt
frá þessum átökum, vera tengda
þvi, að skorin hefur verið upp
herör gegn róttæklingum i land-
inu. — Li Hsien-nien, aðstoðarfor-
sætisráðherra, sagði nýverið er-
lendum gestum, að róttækir hefðu
byrjað að leggja á ráðin um sam-
særið strax á árinu 1974, og að þaö
mundi taka langan tima að upp-
ræta áhrif þeirra.
Kuldinn
Það var viðar en hér á tslandi, sem veöur skipti snögglega til þess
kaldara seinni hluta desembermánaðar eftir mjög mildan vetur. t
Frankíurt tók ’ann skyndiiega að kyngja niöur snjd, og I dýra-
garðinum urðu starfsmenn aö bregða við fljótt og bjarga sumum
dýrunum inn i upphituð hús, eins og t.d. þessum flamingóum.
Ritskoðun í Líbanon
Fjölmiðlum i Líbanon,
sem allt fram á siðasta
mánuð hafa átt mestu
frjálsræði að fagna af
fjölmiðlum i arabalönd-
unum, er frá og með
deginum i dag gert að
sæta opinberri ritskoð-
un.
Nýjar reglur tóku gildi í dag,
sem gera ráð fyrir ritskoðunalls
efnis fyrir birtingu, og tekur það
einnig til leikhúsa. Brot á þessum
nýju reglum varða háum fjár-
Nómaslys í
Tékkóslóvakíu
Björgunarsveitir hafa gefisl
upp við leit að 45 námamönnum
eftir þriggja daga björgunartil-
raunir við Stric-kolanámurnar i
Ostrava í Tékkóslóvakiu. Menn-
irnir lokuðust inni þegar gas-
sprenging varð i námunum.
Fréttir af námaslysinu eru
óljósar enn, þvi að tekið var fyr-
ir allan fréttaflutning af þvi, og
ekki annað látið uppi, en gas-
sprenging hefði átt sér stað á
föstudaginn, og nú skýrtfrá þvi,
að björgunartilraunum hafi
verið hætt.
sektum og allt að þriggja ára
fangelsi. Þessar nýju reglur voru
settar með tilskipun, en á að-
fangadag veitti þingið stjórn
Sarkis forseta umboð til þess að
stjórna með tilskipunum.
Erlendir fréttamenn eiga, eftir
því sem frést hefur frá Beirút, að
beygja sig undir þessa ritskoðun,
áður en þeir senda fréttir sinar úr
landi. En i gærkvöldi höfðu er-
lendu fréttastofurnar ekki fengið
neinar tilkynningar um, hvert
fréttamenn þeirra ættu að snúa
sér til ritskoðunar.
Hermenn friðargæslusveita
lokuðu ritstjórnarskrifstofum sex
dagblaða i Libanon i siðasta mán-
uði.
Snjóskrlða
í Austurríki
Vestur-þýskur ferðamaöur
fórst i snjóskriðu i Vororl fjöll-
um i Austurrfkii gær. Er þetta
annað dauðsfallið af snjó-
skriðum i Austurriki i vetur.
ísraeli sigldi
um Súex-skurð
israelska friöarpostul-
anurri/ Abie Nathan, var
leyft að sigla skipi sínu um
Súezskurð í gær, og þykir
sú leyfisveiting bera vitni
ásetningi egypta um að
leitast við að koma á f riði í
austurlöndum nær.
Egyptar hafa hingað til ekki
leyft israelum siglingar um
skurðinn, né skipum sem voru
með vörur á leið til Israels. —
Tvivegis áður hefur „friðarskipi”
Nathans, sem skrásett er i Pan-
ama, verið neitað um leyfi til að
fara i gegnum skipaskurðinn.
Mikill viðbúnaður var i gær,
þegar skipið sigldi um skurðinn,
til þess að tryggja öryggi þess.
Egypskur tundurspillir sigldi á
undan þvi, og fallbyssubátur
samsiða. öryggisverðir leyfðu
ekki blaðaljósmyndurum aö nálg-
ast skipið til þess að taka mynd af
þvi á siglingu eftir skurðinum.