Vísir - 16.02.1977, Blaðsíða 6

Vísir - 16.02.1977, Blaðsíða 6
Miövikudagur 16. febrúar 1977 VISIB Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 17. feb. Nautið 21. april-21. mai: Þú gætir orðið nokkuð ruglaður hvað snertir persónuleg vanda- mál. Gefðu þér góðan tima og allt mun skýrast. Hindraðu að trúnaðarmál breiðist út. Hrúturinn 21. mars-20. april: Ættingjar eða vinir buá ef til vill yfir upplýsingum sem varða miklu um framtíð þina. Notaðu þvinganir ef með þarf til að fá þær. Láttu fjármálin ekki valda þér of miklum áhyggjum. Tviburarnir 22. mai-21. júnl: Þú getur gert hagkvæmt sam- komulag við atkvæðamikla aðila i dag. Vertu þér úti um hluti og gögn sem gætu orðið til að bæta þekkingu þina. Vertu ákveðinn að koma þér áfram. Krabbinn 21. júnI-23. júlí: Reynslan kemur að góðum notum núna. Reyndu að draga þekkingu af orðnum hlutum og hagnýta þér gömul viðskiptasambönd. Ljónið 24. júli-23. ágúst: Hæfileiki þinn til að gera þér grein fyrir aðalatriðum hvers máls kemur að góðum notum. Meyjan 24. ágúst-23. sept.: Athugaðu öll atriði i sambandi við fjárfestingar, samningar geta haft mikil áhrif á íramtið þina. Vertu ekki of einráður og taktu meira tillit til skoðanna annarra. Vogin 24. sept.-23. okt. Varaðu þig á slægð og dylgjum fyrri hluta dags, þú gætir orðið fyrir miklum vonbrigðum með kunningja þinn. Þú hefur til- hneigingu til að kvarta yfir heils- unni. Drekinn 21. okt.-22. nóv.: Morguninn er tilvalinn til að fá sér hreyfingu og skoða næsta ná- grenni. Taktu börnin með þér þá skapast á milli ykkar nánari tengsl. Haltu sambandi við þá sem eru þér kærir. BogmaðurifTn ^ 23. nóv.-21ji;ígjijsísí Þaö liggur einhver dulúð i loftinu, sem boðar gott. Hafðu samband við forledra þina og nánustu ætt- ingja. Það gætu orðið deilur um sameiginlega eign, sem væri hægt að leysa af lipurð. Steingeitin 22. des.-20. jan.: Aðstæöurnar geta leitt þig á villi- götur eða hula rikir yfir starfi sem þú ert aö taka viö. Reyndu að fá betri upplýsingar og taktu allar ákvarðanir að vel athuguðu máli. Vatnsberinn 21. ján.-19. febr.: : Dagurinn er heppilegur til að ! gera innkaup. Þú hefur gott vit á | gæðum og verðlagi og gætir þvi I gert góö kaup. Miðlaðu öðrum af | hugarjafnvægi þinu og styddu ; vini þina. Fiskarnir 20. febr.-20. Notaðu daginn til að setjast niður og ræða áhugamál þin við vini þina, nýr skilningur á málefninu og nýjar upplýsingar gleðja þig. Aðrir eru opnir bæði fyrir skoðun- um þinum og tillögum. I Jj I Liklega fengið vondan orm til morgunverðar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.