Vísir - 16.02.1977, Blaðsíða 6
Miövikudagur 16. febrúar 1977 VISIB
Spáin gildir fyrir fimmtudaginn
17. feb.
Nautið
21. april-21. mai:
Þú gætir orðið nokkuð ruglaður
hvað snertir persónuleg vanda-
mál. Gefðu þér góðan tima og allt
mun skýrast. Hindraðu að
trúnaðarmál breiðist út.
Hrúturinn
21. mars-20.
april:
Ættingjar eða vinir buá ef til vill
yfir upplýsingum sem varða
miklu um framtíð þina. Notaðu
þvinganir ef með þarf til að fá
þær. Láttu fjármálin ekki valda
þér of miklum áhyggjum.
Tviburarnir
22. mai-21. júnl:
Þú getur gert hagkvæmt sam-
komulag við atkvæðamikla aðila i
dag. Vertu þér úti um hluti og
gögn sem gætu orðið til að bæta
þekkingu þina. Vertu ákveðinn að
koma þér áfram.
Krabbinn
21. júnI-23. júlí:
Reynslan kemur að góðum notum
núna. Reyndu að draga þekkingu
af orðnum hlutum og hagnýta þér
gömul viðskiptasambönd.
Ljónið
24. júli-23. ágúst:
Hæfileiki þinn til að gera þér
grein fyrir aðalatriðum hvers
máls kemur að góðum notum.
Meyjan
24. ágúst-23.
sept.:
Athugaðu öll atriði i sambandi við
fjárfestingar, samningar geta
haft mikil áhrif á íramtið þina.
Vertu ekki of einráður og taktu
meira tillit til skoðanna annarra.
Vogin
24. sept.-23. okt.
Varaðu þig á slægð og dylgjum
fyrri hluta dags, þú gætir orðið
fyrir miklum vonbrigðum
með kunningja þinn. Þú hefur til-
hneigingu til að kvarta yfir heils-
unni.
Drekinn
21. okt.-22. nóv.:
Morguninn er tilvalinn til að fá
sér hreyfingu og skoða næsta ná-
grenni. Taktu börnin með þér þá
skapast á milli ykkar nánari
tengsl. Haltu sambandi við þá
sem eru þér kærir.
BogmaðurifTn ^
23. nóv.-21ji;ígjijsísí
Þaö liggur einhver dulúð i loftinu,
sem boðar gott. Hafðu samband
við forledra þina og nánustu ætt-
ingja. Það gætu orðið deilur um
sameiginlega eign, sem væri
hægt að leysa af lipurð.
Steingeitin
22. des.-20. jan.:
Aðstæöurnar geta leitt þig á villi-
götur eða hula rikir yfir starfi
sem þú ert aö taka viö. Reyndu að
fá betri upplýsingar og taktu allar
ákvarðanir að vel athuguðu máli.
Vatnsberinn
21. ján.-19. febr.:
: Dagurinn er heppilegur til að
! gera innkaup. Þú hefur gott vit á
| gæðum og verðlagi og gætir þvi
I gert góö kaup. Miðlaðu öðrum af
| hugarjafnvægi þinu og styddu
; vini þina.
Fiskarnir
20. febr.-20.
Notaðu daginn til að setjast niður
og ræða áhugamál þin við vini
þina, nýr skilningur á málefninu
og nýjar upplýsingar gleðja þig.
Aðrir eru opnir bæði fyrir skoðun-
um þinum og tillögum.
I Jj I
Liklega fengið vondan
orm til morgunverðar.