Vísir - 21.03.1977, Side 1
Enginn réð
við Viðar!
Það gekk ýmislegt á i iþrótta-
húsi Kennaraháskólans i gærdag,
en þá lauk meistaramótinu i júdó
þar með keppni i opnum flokki
karla og kvenna. Það sem helst
þótti setja mörk á þennan siðasta
hluta mótsins var siök dómgæsla,
nokkuð sem er fremur óvenjulegt
I þeirri iþrótt en sýnir aö júdó-
dómarar okkar gera mistök eins
og aðrir.
„Ég veit að það var sanngjarnt
að dæma viti á mig fyrir að rifast
við dómarann, en ég gat ekki orða
bundist. Andstæðingur minn flúði
útaf þrivegis, og ég mótmælti
með þvi að yfirgefa salinn.”
Þetta sagði Gunnar Guðmunds-
son UMFK, en honum ofbauð svo
dómgæslan að hann hætti keppni.
Það gerðu þó ekki aörir, þótt
greinilegt væri að þeir væru svo
æstir að þeir vissu varla sitt rjúk-
andi ráð. Þannig var t.d. Sigur-
veig Pétursdóttir eftir að hún
hafði tapað fyrir önnu L. Frið-
riksdóttur. Þá var önnu dæmdur
umdeildur sigur og Sigurveig
hljóp titrandi af illsku um allt
húsið!
Anna sigraði I kvennaflokkn-
um, en þær urðu jafnar i 2.-3.
sæti Þóra Þórsdóttir og Sigur-
veig. Allar eru þær úr Armanni.
Viðar Guðjohnsen Armanni
varð sigurvegari I karlaflokki.
Hann keppti við félaga sinn Gisla
Þorsteinsson til úrslita og var það
söguleg viðureign. Þeir kappar
sem greinilega þekkja hvor ann-
an mjög vel náðu ekki afgerandi
brögðum framan af en Gisla voru
dæmd 7refsistig fyriraðstiga út
af vellinum. Var það umdeildur
dómur svo að ekki sé meira sagt,
og voru margir undrandi. Var
greinilegt að þetta hafði slæm
áhrif á Gisla, sem þurfti hvorki
meira eða minna en „ippon” til
að sigra eftir þetta. En Viðar náði
góðu bragði sem gaf honum sigur,
svo að hann þurfti ekki að veita
verðlaununum viðtöku aðeins
fyrir umdeilda dóminn.
Nokkrir af fremstu júdómönn-
um okkar voru ekki með aö þessu
sinni eins og Svavar Carlson og
Halldór Guðbjörnsson. Þeir eru
að hugsa til næstu helgi, en þá fer
islenska landsliðið til keppni I
NM-I Noregi.
Ásgeir útaf á
móti Anderlecht
„Við náðu aðeins jafntefli á
heimavelli gegn Tongref og
höldum okkur þvi enn i þriðja
sætinu 12. deild” sagöi Marteinn
Geirsson er við náðum I hann I
Belgiu I gærkvöldi.
„Viö Stefán vorum báðir með
og gekk ágætlega. Okkur tókst
ekki að skora en þeir skoruðu
heldur ekki hjá okkur.
Standard Liege tapaöi fyrir
Anderlecht á útivelli 1:0. Asgeir
var með en fór útaf I sföari hálf-
leik eftir að hafa meiöst eitt-
hvað i höfði.
Guðgeir Leifsson var aftur á
móti ekki meö Charleroi I leikn-
um gegn Lokeren, en þar
sigraöi Charleroi 1:0.
Þaö veröur fri hjá okkur öll-
um um næstu helgi vegna leiks
Belgiu og Hollands i undan-
keppni heimsmeistarkeppninn-
ar. Það snýst ailt um þann leik
hér þessa dagana og mikill
spenningur meðal fólks, enda
þetta mikilægur leikur”...
Titillinn til KR
íR-stúlkurnar I körfuknatt-
í tóku enn einn bikarinn I sina
'slu er þær sigruðu 1S með 54
;um gegn 44 I Hagaskóla i
r. KR-ingar voru oftast yfir
þegar 9 minútur voru eftir
■ staöan 36:31 fyrir KR.
!-ingar eru þar meö Islands-
istarar I kvennaflokki 1977.
Srkifjendurnir, IR-ingar, léku
Þór norður á Akureyri á
gardag og unnu yfirburöa-
sigur 57:38. Þar átti Guörún
Bachman stórleik og hélt uppá
24 ára afmæliö með 24 góðum
stigum.
Einnig átti Anna Edwards-
dóttir góðan leik og skoraði 10
glæsileg stig, en þessar tvær
bera höfuð og heröar yfir „sam-
konur” sinar i liðinu.
Þá áttu þær Guðrún ólafs-
dóttir og Friöný Jóhannsdóttir
einnig góðan leik.
Með fullt líð
Norðurlandameistaramótið i
Júdó fer fram I Noregi um
næstu helgi. lslendingar verða
þar meðal keppenda i öllum
þyngdarflokkum og hafa eftir-
taldir menn veriö valdir I is-
lenska liöiö:
Jóhann Haraldsson UMFN
Sigurður Pálsson, JFR
Halldór Guðbjörnsson, JFR
Kári Jakobsson, JFR
Viöar Guöjohnsen, Ármanni
Gisli Þorsteinsson, Armanni
Svavar Carlsen JFR.
Allir þessir kappar urðu ts-
landsmeistarar I sinum
þyngdarflokkum á nýafstöðu ts-
landsmóti, nema Jóhannes, sem
varð annar i næst- léttasta
flokknum.
Sá sem sigraði I léttasta flokki
á tslandsmótinu, Þórarinn
Olafsson UMFK, er ekki nema
15 ára gamall og má þvi ekki
keppa á Noröurlandamótinu.
Jóhannes létti sig þá þannig að
hann fer inn i hans flokk i
staðinn, en hann var rétt á
mörkunum i þann þyngdar-
flokk.
Sonja Hreiðarsdóttir Ægi, sem er aöeins 13 ára gömul setti hvert metiö á fætur öðru á sund-
meistaramóti islands innanhúss sem háð var um helgina.
Fróbœr árangur á
sundmeistaramótinu
Okkar besta sundfólk var held-
ur betur I formi á tslandsmótinu I
sundi innanhúss, sem háð var I
SundhöIIinni um helgina. Á mót-
inu voru sett hvorki meira né
minna en 12 ný tslandsmet — og
það voru 13 sinnum jöfnuð met og
8 unglingamet sáu þar dagsins
ljós. Hefur annað eins metaregn
ekki verið I sundi hér á landi siðan
1973 en þá var mikið af afreks-
fólki i sundinu hér.
Fyrsta metið i mótinu „fauk” á
föstudagskvöldið er Þórunn Al-
freðsdóttir Ægi setti met I 800
metra skriðsundi kvenna- synti á
9:51,2 min. t sama sundi setti
Unnur Brown Ægi nýtt telpnamet
— synti á 11:54,9 min.
Daginn eftir byrjaöi Þórunn á
þvl að setja nýtt met I 400 metra
fjórsundi. Synti þá vegalengd á
5:24,9 min. Þá setti Sigurður
Ólafsson Ægi nýtt met I 400 metra
skriðsundi — fékk tlmann 4:17,0
en I undanrásum um morguninn
synti hann á 4:16,0 mln, sem var
einnig undir gamla metinu.
Sonja Hreiðarsdóttir Ægi tók þá
við og setti nýtt met I 200 metra
bringusundi kvenna, kom ú mark
á 2:50,2 mln. Sonja er aöeins 13
ára gömul og er þetta þvi einnig
stúlkna- og telpnamet.
Bjami Björnsson Ægi var næst-
ur á dagskrá og setti nýtt Islands-
meti 200 m baksundi karla. Synti
hann á 2:23,2 min og tók þar Is-
landsmet Guömundar Glslasonar
frá árinu 1971. Hugi S. Harðarsin
Selfossi kom I mark á 2:30,9 mln
sem er nýtt unglingamet. Þar á
eftir fylgdu tvö ný Islandsmet I
boðsundunum — sveit Ægis synti
4x100 metra fjórsundi karla á
4:19,5 min og kvennasveit Ægis
synti sömu vegalengd á 5:00,7
mln.
I gær byrjaði Axel Alfreðsson
Ægi á þvl að setja met i 400 m
fjórsundi karla — synti á 4:55,6
min. Þar setti Hugi S. Harðarson
Selfossi einnig nýtt unglingamet
með þvi að synda á 5:29,6 min.
Þórunn Alfreðsdóttir Ægi setti
þar á eftir nýtt met I 400 m skrið-
sundi kvenna, synti á 4:46,4 min.
Sonja Hreiöarsdóttir Ægi setti
nýtt telpnamet I 100 m bringu-
sundi fékk hún tlmann 1:19,9 min
og ógnaði þar verulega tslands-
meti kvenna, sem Ellen Ingva-
dóttir á, en þaö er 1:19,6 mln. Þá
setti hún einnig telpnamet I 200
metra baksundi — synti á 2:40,5
mln.
Tvö Islandsmetvoru sett I boö-
sundunum tveim. I 4x100 skriö-
sundi kvenna synti sveit Ægis á
4:30,6 min og karlasveit Ægis
synti 4x200 m skriösund á 8:21,3
mln. Sigurður Ólafsson Ægi jafn-
aði siðan íslandsmet Finns Garö-
arssonar I 100 metra skriðsundi
sem staöiðhefur siðan 1972 en það
er 54, 9 sek.
I öðrum greinum voru ekki sett
met, en þar náðist aftur á móti
góður árangur og það mjög góður
I sumum þeirra. Þar urðu is-
landsmeistarar I sundi innanhúss
1977 þessi: 1500 m skriðsund
karla: Siguröur Ólafsson Ægi —
17:18,6 min. 100 m skriðsund
kvenna: Guðný Guðjónsdóttir,
Armanni : 1:05,5 min. 100 m
bringusund karla:: Hermann Al-
freðsson, Ægi — 1:11,6 min. 100 m
baksund karla: Bjarni Björnsson,
Ægi — 1:05,9 min.
I 200 m flugsundi karla varö
Axel Alfreðsson Ægi Islands-
meistari — synti á 2:24,4 min.
100 m flugsund kvenna: Þórunn
Alfreösdóttir Ægi — 1:10,4 min.
100 m baksund kvenna: Sonja
Hreiöarsdóttir Ægi — 1:16,3 min.
200 m bringusund: Hermann Al-
freösson, Ægi — 2:35,7 mln. 200 m
flugsund kvenna: Þórunn Al-
freðsdóttir Ægi — 2:32,2 mln og I
100 m flugsundi karla varð bróöir
hennar og Hermanns, Axel Al-
freösson Islandsmeistari en hann
synti á 1:05,1 min þessa vega-
lengd