Vísir - 22.03.1977, Qupperneq 3
Þriðjudagur 22. mars 1977
3
vism
Valur Valsson aðstoðarbankastjóri:
„Gœluverkefni
njóta forgangs'
— og nefnir ylrœktarverið og
þörungavinnsluna sem dœmi
„Þar sem gæluverkefnin eru
yfirleitt aö nokkru eða öllu leyti
á vegum opinberra aðila þá
njóta þau viss forgangs i láns-
fjármögnun, annað tveggja á
innlendum lánamarkaði eða
með eriendum lántökum. Hvaða
möguleika á lánsfé hafa þá aðr-
ir sem vilja nýta ný iðnaðar-
tækifæri?”
Þannig kemst Valur Valsson,
aöstoðarbankastjóri Iðnaðar-
bankans, að oröi i grein sem
hann skrifar i tímaritiö Stefni,
blað Sambands ungra sjálf-
stæðismanna, og hann nefnir
„Fjármögnun iðnaðar og gælu-
verkefni”,
Valur segir að menn virðist
hafa þá skoðun að iðnþróun eigi
aðallega aö byggjast á stofnun
nýrra fyrirtækja og að sú for-
senda sé gefin aö rikiö eigi alltaf
meirihluta. — „Ahuginn beinist
að gæluverkefnum” segir
Valur ennfremur.
Valur varar við þessari iðn-
aðarstefnu. — Hann segir: —
„Ljóminn af gæluverkefnunum
veldur þvi að annar iðnaður i
landinu stendur i skugganum og
vill á tiðum gleymast. Eðlilegt
er taliö að nýjar Utflutnings-
greinar eða fyrirtæki njdti sér-
stakra friðinda en á sama tima
Valur Valsson: „Ljóminn af
gæluverkefnunum veldur þvi að
annar iðnaður stendur i
skugganum og vill tiðum
gleymast”.
á sá útflutningsiönaöur, sem
þegar hefur náö að festa rætur,
að búa viö verri kjör”.
Þörungavinnsla og
ylræktarver.
Valur tekur þörungavinnsl-
una og ylræktarveriö sem dæmi
um gæluverkefni, Arðsemi
þessara fyrirtækja hafi verið
reiknuð út frá öðrum forsendum
en við annan atvinnurekstur.
Ekki sé ráð fyrir þvi gert að
gæluverkefnið greiði gatna-
geröargjöld, aöflutningsgjöld
eða sama verð og aðrir fyrir
vatn og rafmagn. Þá sé ekki
heldur tekið með i dæmið kostn-
aður vegna hafnargeröar, vega-
lagningar og rafmagnslina.
Valur gagnrýnir sölu ríkis-
sjóös á verðtryggöum rikis-
skuldabréfum fyrir hundruð
milljóna króna ár hvert. Hins
vegar sé málum þannig komið
fyrir að litt freistandi sé fyrir
almenning að leggja áhættu-
fjármagn I fyrirtæki — „Vilji
— Þörungavinnslan er dæmi um gæluverkefni, segir Valur. Arð-
semi fyrirtækja af þvi taginu er reiknuð út frá öðrum forsendum.
Ljósmynd Visis Rafn Jónsson
menn auka áhuga almennings á
þátttöku I fjármögnun fyrir-
tækja þarf einungis að nema
brott þær hindranir sem lög-
gjafinn hefur komið upp undan-
farin ár og áratugi” segir Valur
Valsson.
—EKG
Unnur Lilja EHasdóttir,
fegurðardrottning I Vest-
mannaeyjum. Ljósmynd Visis
Guðmundur Sigfússon
Sú
fallegasta
valin í
Vest-
mannaeyjum
Unnur Lilja Eliasdóttir var
kosin ungfrú Vestmannaeyjar
á Sunnukvöldi i Vestmanna-
eyjum siðastliðið föstudags-
kvöld, eftir að hafa borið
sigurorð af fjórum stúlkum.
A Sunnukvöldinu var spilað
bingó um ferðavinninga.
Ýmislegt var til skemmtunar,
þar á meðal komu fram Halli
og Laddi. Einnig var tiskusýn-
ing og ferðakynning.
— EKG/GS Vestmannaeyjum
Samtrygging í óliðnaðinum?
BEinU SÉR GEGN HEIMSÓKN
HEILBRIGÐISFULLTRÚANS
„Það liggja fyrir upplýsingar
um að sú ákvörðun verksmiðj-
unnar að taka ekki á móti mér
var tekin að höfðu samráði við
Aiusuisse, sem ætla má að hafi
beitt sér gegn þvi” sagði Eyjólf-
ur Sæmundsson, efnaverk-
fræðingur hjá Heilbrigöiseftir-
liti rikisins, i samtaii við Visi.
Á siðasta sumri sótti Eyjólfur
mengunarráöstefnu i Noregi. 1
framhaldi af henni hugðist hann
skoða tvær álverksmiðjur, aðra
i Þýskalandi og hina I Hollandi.
Alverksmiöjan sem-Eyjólfur
heimsótti i Þýskalandi hefur
fullkominn hreinsibúnað og lok-
uð ker. Var hún tekin i notkun
um áramótin ’73-’74 og er þvi til-
tölulega nýleg.
„Otblástur flúors frá þessari
verksmiðju mun vera innan viö
0,8 kg af hverju tonni af áli sem
framleitt er” sagði Eyjólfur.
„Til samanburðar má geta þess
aö álverið i Straumsvik blæs frá
sér 12-16 kilóum af flúor á hvert
tonn af áli.”
Hollenska verksmiöjan var
með opin ker, en hefur lokiö
yfirbyggingu þeirra. Ætlaöi
Eyjólfur að kynna sér aöferöir
þær sem notaðar voru við þá
breytingu og hver mengun frá
verksmiöjunni væri nú. En á
siðustu stundu komu skilaboð
þess efnis aö forsvarsmenn
verksmiðjunnar treystu sér
ekki til að taka á móti honum,
en eins og áður sagði telur
Eyjólfur að Alusuisse hafi haft
þar hönd i bagga. — SJ
Dagur Norðurlanda
ó morgun:
Aldarfjórðungsafmœlis
Norðurlandaróðs
minnst með verki
verðlaunahofa og
fleiru
Dagur Norðurlanda er á
morgun miðvikudaginn 23.
mars n.k. og I þvi tilefni gang-
ast Norræna félagið og Is-
landsdeiid Norðurlandaráös
fyrir hátiðarsamkomu i Nor-
ræna húsinu. Hefst hún ki.
20.30.
Dagskrá kvöldsins hefst
með þvi, að formaöur Nor-
ræna félagsins, Hjálmar
Ólafsson, flytur ávarp. Næst
flyturTrygve Bratteli, fv. for-
sætisráöherra Noregs ræöu,
enhonum er sérstaklega boðið
til Islands i tilefni 25 ára af-
mælis Norðurlandaráðs. Þá
leikur Guðný Guðmundsdótt-
ir, konsertmeistari, sónötu
eftir Grieg.
Eftir hlé mun formaður ís-
landsdeildar Noröurlanda-
ráðs, Jón Skaftason, alþingis-
maður, flytja ávarp, en þvi
næst veröur frumflutt tónverk
eftir Atla Heimi Sveinsson,
sem hann hefur gert viö ljóö
eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson.
Verkið veröur fiutt af söng-
flokknum Hljómeyki og
hljómsveit. Sem kunnugt er
hlutu þeir Atli Heimir og Ólaf-
ur Jóhann tónlistar- og bók-
menntaverðlaun Norður-
landaráös áriö 1976.
Uppsagnir hjúkrunarfrœðinganna koma líklegast til framkvœmda:
„Starfsemi sjúkrahúsanna
lamast að miklum hluta'
segir framkvœmdastjóri Borgarspítalans
„Það stefnir allt til þess að
sjúkrahúsin veröi að draga
saman seglin og loka einhverj-
um deildum” sagði Haukur
Benediktsson, framkvæmda-
stjóri Borgarspitalans, isamtali
við Visi.
Meiri hluti hjúkrunar-
fræðinga Borgarspitalans og
Landakots hafa sagt upp störf-
um og koma uppsagnirnar til
framkvæmda 1. april n.k.
„Það hefur ekkert þokast i
neina átt i viðræöum við
hjúkrunarfræðingana” sagði
Haukur. „Við höfum verið á við-
ræðufundum með þeim en um
samningafundi er ekki að ræða
þar sem það eru einstaklingar
en ekki félagasamtök sem segja
upp. En ég sé ekki fram á það
ennþá að þetta leysist.
Hér hætta því liklegast 2/3
hjúkrunarfræöinganna og lam-
ast þá að miklum hluta starf-
semin hjá okkur. Viö erum nú
að leggja það niður fyrir okkur
hvernig þeim starfskrafti sem
verður fyrir hendi verði best
skipaö. Það er alveg ljóst aö
Landsspitalinn veröur fyrst og
fremst að taka við neyöarþjón-
ustunni, en þar hafa engar upp-
sagnir komið fram.”
-SJ