Vísir - 22.03.1977, Page 6
Þriöjudagur 22. mars 1977 visra
Spáin gildir fyrir miOvikudaginn
23. mars.
Hrúturinn
21. mars—20. aprfl:
Þú verður fyrir jnikilli hvatningu
og sterkur persónuleiki þinn
dregur fólk að þér. Notaðu þetta
til að koma þér áfram og fá á-
hugamálum þinum framgengt
Nautift
21. apríl—21. tnai:
Eitthvað berst þér til eyrna um
starfsfélaga þinn sem kemur þér
mjög á óvart. Aðrir hafa lengi vit-
að þetta, en þU hefur neitaö horf-
ast i augu við það.
m
Tvíburarnir
22. mai—21. júni:
Allt bendir til að þU farir i feröa-
lag i dag. ÞU eignast nýja kunn-
ingja og einn þeirra höfðar mjög
til þin.
Krabbinn
21. júni—23. júli:
Samkvæmi sem þU tekur þátt i
byrjar vel, en aö öllum likindum
kemur babb i bátinn þegar fer að
liöa á. Vertu þvi við öllu bUin(n).
I.jónift
24. júlí—23. ágúst:
Hvers konar þátttaka i félagslifi
er mjög æskileg. Reyndu að
breyta til, gera eitthvað annað en
venjulega. Það er óhollt andlegri
heill manns aö hjakka alltaf i
sama farinu.
B
Meyjan
21. ágúst—23. sept.:
Aætlanir þinar gætu orðið að engu
vegna einhverra ófyrirsjáanlegra
atvika. Hafðu þetta i huga og
vertu þvi viðbUin(n) að eitthvað
breytist á siðustu stundu.
Vogin
24. sept.—23. ukt'.:
Gerðu eitthvað til að leysa fjöl-
skylduvandamálin áður en þau
fara öll i einn hnUt. Astandið tek-
ur engum breytingum til hins
betra nema þU talir af hreinskilni
og leiðréttir allan misskilning.
Drekinn
21. okt.—22. nóv.:
ÞU hefur sterk áhrif á unga
manneskju. Gættu þin á þvi að
\ þau séu til góðs. Meiri þolinmæði
og skilningur af þinni hálfu mundi
gera mikið gagn.
Bof'maburinn
23. nóv.—2l. des.:
Jlvildu þig og taktu lifinu meö ró.
Það ætti ekki að vera svo erfitt að
neita nokkrum heimboöum.
Kraftar þinir eru þrotnir og þU
verður að endurnýja þá.
&
Steingeitin
22. des.—20. jaii.:
Þér er að ósekju kennt um erfiö-
leika sem upp koma I fjölstyyld-
unni. Það er kominn timi til að þU
setjir stólinn fyrir dyrnar og
krefjist þess aö aörir meölimir
fjölskyldunnar axli sinar byrðar.
Vatnsberinn
21. jan.— 1». febr.:
Einhver hefur fengiö hina fárán-
legustu hugdettu og er nú aö
reyna að sannfæra þig um gæöi
, hennar. Þú veist af fyrri reynslu
, aö það borgar sig aö beita skyn-
(seminni.
Fiskarnir
1.20. febr.—20. mars:‘
' Allar likur eru á að þú farir i langt
, erðalag, annaöhvort til að sinna
jviðskiptum eða þér til skemmt-
mnar. Þú ert mjög ánægð(ur) meö