Vísir - 24.03.1977, Blaðsíða 1

Vísir - 24.03.1977, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 24. mars 1977 80. tbl. — 67. árg. Siódegisblad fyrir fjölskylduna iJ^ alla! HAFSKIP HYGGST KAUPA NORGLOBAL — Búið að gera samning við eigendur — Kaupverðið er rúmir þrfr milljarðar Skipafélagið Hafskip hf, hefur nú i athugun að kaupa bræðsluskipið Norglobal sem islend- ingum er að góðu kunn- ugt, þar sem það hefur verið hér við land tvær vertiðir. Hafskip er þegar búið að gera bráðabirgðasamning við núverandi eigendur Norglobal. Magnús Magnússon forstjóri Hafskips, sagði i samtali við Vísi i morgun að Hafskip hefði frest til 15 . mai til aö ákveða það endanlega hvort skipiö verði keypt og að athuga hvort islensk stjórnvöld vilji veita þau leyfi og lánafyrirgreiðslur sem til þurfa. Magnús sagði að þau leyfi sem hér um ræddi væri innflutningsleyfi og leyfi frá langlánanefnd til að taka erlend lán. Kostar þrjá milljarða Kaupverð skipsins sagði Magnús að væri um 16 og hálf milljón dollara eða sem svarar 3,1 milljarði islenskra króna. Norglobal er 26.100 lestir og væri ef það kæmi hingað til lands lang-stærsta skip i eigu islendinga. Það var upphaflega smiðað sem flutningaskip árið 1962, en árið 1970 var þvl breytt I fljótandi fiskimjölsverksmiðju. Magnús Magnússon sagði að ef farið væri út I þaö núna að breyta skipi af svipaöri stærð á sama hátt yrði kostnaöur sliks skips um 28 til 30 milljónir doll- ara, sem er um 5,7 til 5,3 millj- arðar Islenskra króna. Ef bræðsluskip af þessari stærð yrði smiðað núna myndi þaö kosta að sögn Magnúsar marg- falt þetta verð. Norglobal i góðu á- standi Um aðdraganda þess aö reynt væri að kaupa Norglobal hingað til lands sagði Magnús að þeir hefðu verið að leita að sliku Norgiobal hefur verið hér viðland undanfarnar loðnuvertiðir og var þá þessi mynd tekin. Skipið fékkst ekki leigtf ár. Ljósm. Vfsis BA bræðsluskipi. Þeir hefðu haft annaðskipihuga.sem hinsveg- ar var nýbúið að selja þegar til kom. Þá kom Norglobal inn I myndina 15. mars siðastliðinn. Magnús sagði að þeir hefðu enn ekki skoöað skipið, nema þegar þaövar hér við land. Hins vegar hefði skipið reynst afar vel og vélar þess hefðu til að mynda veriö endurbættar fyrir skömmu. Núna á næstunni hyggjast hafskipsmenn skoöa skipið betur. Aðallega notað hér við land Magnús Magnússon sagöi aö hugmyndin væri að nota Nor- global hér viö land I sex mánuði á ári hverju og yrði aðaláhersl- an lögð á að nota skipið hér. Minnti Magnús á að ný viöhorf hefðu skapast þar sem mikiö magn af kolmunna heföi fundist Ihafinu á milli Islands og Græn- lands. Þann tima sem skipiö verður ekki hér við land er möguleiki á að nota það til dæmis við Kan- ada og að láta þá Islensk skip fiska i það. Má minna á að is- lensk skip voru aö loðnuveiðum viö Nýfundaland fyrri partinn I fyrrasumar og lönduðu þá i Norglobal. — EKG í gær var Dagur Norðurlanda haldinn hátiðlegur i Norræna húsinu, og var Tryggve Bratteli, fyrrum forsætisráðherra Noregs, heiðursgestur sam- komunnar. Á myndinni hér að ofan sést forseti Is lands dr. Kristján Eldjárn, heilsa Bratteli-hjón- unum áður en samkoman hófst i gærkvöldi, en til vinstri stendur Hjálmar Ólafsson, formaður Nor- ræna félagsins. Á samkomunni i gær flutti Bratteli ræðu, eftir að Hjálmar ólafsson hafði sett samkomuna með ávarpi. Flutt voru nokkur tónverk og Jón Skaftason, formaður íslands- deildar Norðurlandaráðs, flutti ávarp. Salur Nor- ræna hússins var þéttsetinn. —ESJ. Ljósmynd Loftur íslensk kvikmynda- •••f ■oggiof í undir- búningi — sjó bls. 3 40 ÁRA HÖLL — sjó bls. 2 Eitt póska- egg á mann — sjá bls. 8 Ný íslensk frímerki — sjá bls. 17 Svava í sjónvarps- stólnum í dag — sjá bls. 19

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.