Vísir - 31.03.1977, Blaðsíða 10

Vísir - 31.03.1977, Blaðsíða 10
10 VÍSIR t'lgefandi: Heykjaprrnt hf Framkvæmdastjóri: Davíö Guhmundsson Kitsljórar :Porsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Kitstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. F réltastjóri erlendra frétta: Guömundur Pétursson. Um- sjón mefl helgarblaói: Arni Pórarinsson. Blaóamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guöfinnsson, Ellas Snæland Jónsson, Finnbogi Hermannsson, GuDjón Arngrlmsson, Kjartan L Pálsson, óli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guövinsson. Iþróttlr: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson. Akureyrarritstjórn: Anders Hansen Ctlitsteiknun: Jón óskar Hafsteinsson og Magnús ólafsson. Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Asgeirsson. Sölustjóri: Páll Stefánsson. Auglýsingastjóri: t>orsteinn Fr. Sigurösson. Dreifingarstjóri: Siguröur K Pétursson. Auglysingar: Slöumúla 8. Slmar 11660. 86611. Askriftargjald kr. 1100 á mánuöi innanlands. Afgreiösla: Hverfisgata 44. Sfmi 86611. Verö I lausasölu kr. 60 eintakiö. Kilstjórn: Slöumúla 14. Sfmi 86611, 7 Ifnur. Prentun: Blaöaprent hf. Ljósir punktar Sagt hefur veriö/ að f jármálaráðuneytið sé fyrir stjórnmálamenn sisttil þess fallið að komast í álit hjá háttvirtum kjósendum, þó að ýmsir menn hafi þar vaxið af verkum sínum. Frá þvi að vinstri stjórnin hóf eyðslustefnuna til vegs i byrjun þessa áratugs hefur áreiðanlega verið hálfgert los á rikisfjármálunum. Fjármálaráðherrar vinstri stjórnarinnar og þeirrar stjórnar, sem nú situr, hafa því sætt talsverðri gagn- rýni. Matthías Á. Mathiesen byrjaði fyrst á siðasta ári að beita sérstökum aðhaldsaðgerðum í því skyni að koma í veg fyrir að rikisf jármálin færu enn einu sinni úr böndunum. Ljóst var, að með öllu var útilokað að halda áfram þeim gífurlega hallarekstri, sem var á rikissjóði árið 1975 og nam tæpum átta milljörðum króna. Þvi er ekki að neita að i fyrra höfðu menn uppi ákveðnar efasemdir, um að aðhaldsaðgerðir fjár- málaráðherrans myndu bera tilætlaðan árangur. Nú hefur hann á hinn bóginn lagt fyrir Alþingi skýrslu um afkomu ríkissjóðs á siðasta ári. Hér er að visu um bráðabirgðatölur að ræða, en þær sýna eigi að síður með ótvíræðum hætti betri stöðu ríkissjóðs en verið hefur. Skýrsla þessi er eiginlega fyrsti áþreifanlegi vottur þess, að f jármálaráðherrann hafi náð tökum á rikis- f jármálunum. Eftir nær samfelldan hallarekstur sið- an 1971 kemur i Ijós, að á siðasta ári hrukku tekjur fyrir gjöldum og jafnvel heldur betur. Þetta eru mikilsverð umskipti til hins betra. Auk þess er á það að líta, að heildarútgjöld ríkis- sjóðs í hlutfalli við þjóðarframleiðslu hafa lækkað úr rúmlega 31% niður i rúmlega 27%. Enginn vafi leikur á, að þetta er umtalsverð breyting, þó að viðmiðun af þessu tagi sé aldrei nákvæm fyrir þá sök, að þjóðar- framleiðslan er að sjálfsögðu ekki fastur mælipunkt- ur. Ef ríkisútgjöld hefðu á síðasta ári numið sama hlut- falli af þjóðarframleiðslu og árið 1975 hefðu ríkisum- svifin eðlilega orðið all miklu meiri en raun varð á. I raun og veru þýðir lækkun þessa hlutfalls því sem næst tiu milljarða króna niðurskurð opinberra um- svifa. Engum blöðum er því um að fletta, að þetta er mikilvægt spor í rétta átt. Enn vantar þó upp á að við náum umfangi ríkisút- gjalda í hlutfalli við þjóðarframleiðslu niður i skyn- samleg mörk. i því efni er að vísu erfitt að draga markalínuna. En eigi að síður er Ijóst, að pottur er víða brotinn i ríkisrekstrinum og því þörf ákveðinna aðhaldsaðgerða. Á síðustu árum hafa stjórnvöld verið um of upptek- in af ýmiskonar gæluverkefnum og minnisvarðapóli- tik. Frá tíð fyrri ríkisstjórnar er Þörungavinnslan eitt dæmi af mörgum um gæluverkefni, sem hefur reynst dýrt spaug fyrir skattgreiðendur. Kröfluævintýrið er á hinn bóginn lýsandi fyrir þá minnisvarðapólitík, sem þrifist hefur á sumum sviðum opinberrar sýslu í tið núverandi ríkisstjórnar. Fjármálaráðherra hefur nú fært sönnur á, að hann hefur náð ágætum árangri á síðasta ári. En betur má ef duga skal. Nú liggur fyrir að ganga milli bols og höfuðs á rikisumsvifahugarfarinu, sem um of hefur mótaö ákvarðanir og aðgerðir Alþingisog stjórnsýsl- unnar á siðustu árum. Mikilvægur þáttur i þeirri viðleitni er skipun þeirrar nefndar, sem fjármálaráðherra hefur nú falið að gera tillögur um takmörkun opinberra umsvifa í at- vinnulífinu. Allt eru þetta Ijósir punktar, sem vert er ' að veita athygli. fimmtudagur 31. mars 1977. vism Alþýðusambandið og ungir sjólf- stœðismenn snú- ast gegn bákninu Umræöa um rikisvald hér á landi umfang og eöli hefur verið nokkuö á döfinni nýlega. Ólík- ustu aöilar, svo sem Alþýöu- samband tslands og Samband ungra sjálfstæöismanna hafa komist aö þeirri sameiginlegu niöurstöðu aö endurskoöa þurfi og skera niöur þaö rikisbákn, sem hlaöist hefur upp meöal okkar. Meöal almennings virö- ist vera mikill áhugi fyrir slik- um hugmyndum, ekki sist um þessar mundir, þegar báknið sendi i sjónvarpsauglýsingu hótanir um óþægilegar aögerö- ir, sem Bjarni Guðnason, prófessir vakti athygli á nýlega. 1 dálkum þessum i siöustu viku var fjallaö um þessi efni ogm.a. tekið undir þá niöurstöðu, sem ungirsjálfstæöismenn hafa látiö frá sér fara, aö Sjálfstæöis- flokkurinn beri meiri ábyrgö á bákninu, en samræmist yfirlýs- ingum hans um frelsi einstakl- inga. VIÐBRÖGÐ KERFISINS Þjóöviljinn vék fyrir þetta nokkrum oröum aö höfundi þess pistils nú fyrir helgina og sakaði hann um aö vera hallur undir ihaldiö. Þarf svo engann aö undra þaö. Þjóöviljinn hefur frá upphafi stutt gagnrýnislaust alla aukningu rikisvalds, og má sennilega kenna um gömlum áhrifum frá Stalinstimanum. Hitt vekur meiri furðu aö rit- stjóri Morgunblaðsins skyldi taka i sama streng og senda höf- undi Siödegisþanka þá óþvegnu kveöju, sem birtist i siðasta Reykjavikurbréfi, aö visu undir ööru yfirskyni og „innan svigá’ eins og sagt var. Sá maöur hlýt- ur að flytja óttalegan boöskap, sem veldur slikum sameiginleg- um viðbrögöum hjá hinum gömlu fjandvinum Þjóöviljan- um og Morgunblaöinu. LÝÐRÆÐIS SK0RTUR Þrátt fyrir þetta skal enn á þaö hætt aö bæta viö nokkrum hugleiöingum um rikisbákniö. Rætt hefur verið um afskipti rikisvaldsins af efnahagslifinu og þá óhagkvæmni sem af leiðir, þegar fyrirgreiöslupólitík og tækifærissjónarmiö ráöa ferö- inni. Hinu má heldur ekki gleyma aö mjög skortir á aö stjórnmálaleg samskipti rikis- valdsins og þegnanna lúti i raun þeim sjónarmiöum lýöræðis sem stjórnskipun okkar er byggö á. Kemur hér margt til, en þyngst vegur sú lægö, sem Alþingi viröist vera i um þessar mundir. Þegar sú fornhelga stofnun ris ekki undir ábyrgö sinni hriktir i grundvelli stjórnarstarfsins. Engin ástæöa er þó til aö örvænta. Ýmsar hugmyndir hafa komið fram, sem aukiö gætu Alþingi mátt og viröingu ef rétt er á haldiö. Þannig hafa t.d. ungir menn úr þremur stjórnmálaflokkum sett fram sameiginlegar tillögur um kosningatilhögun, sem ætlaö er aö auka mjög áhrif og valkosti kjósenda um kjör fulltrúa á lög- gjafarsamkunduna. Hefur hin nýja tilhögun veriö nefnd „Persónukjör meö valkostum”. Sú gagnrýni hefur heyrst, aö óskynsamlegt sé að gera lýð- ræöi i landinu öllu virkara, en þaö er i dag. Þá yröi Alþingi enn óábyrgara en þaö er nú, og sé ekki á bætandi. Aö sjálfsögöu eru þessi rök á misskilningi byggö. Sú reynsla er gömul og viðurkennd aö ábyrgö fylgir völdum og ábyrgöarleysi á- hrifaleysi. Engin ástæða er til að halda að þessi sannindi eigi siður viö um islenska kjósendur en annaö fólk. Ef til vill á vantrú valdhafa á kjósendum ein- hverja sök á þeim vandamálum sem stjórnkerfi okkar á nú viö að striöa. FL0KKSVALD OG FL0KKSBÖND Breytingar á kosningatilhög- un leysa auövitaö ekki allan vandann einar sér. Fleira kem- ur til, þar af sumt sem ekki verður leyst meö einfaldri laga- setningu. Þar þarf að koma til breytirig á viöhorfum. Svo er t.d. um flokksvaldið svonefnda og flokksböndin sem stjórn- málaflokkunum hefur tekist aö leggja á marga kjósendur. Sú flokkaskipun, sem viö bú- um viö, er gömul oröin og mótaöist viö allt aörar aöstæö- ur, en þær sem nú rikja á Is- landi. Þessi flokkaskipan er þvi um margt úrelt orðin. Flokks- bönd úreltrar flokkaskipunar eru augljóslega til trafala raun- hæfu stjórnmálalifi og raunar stórskaðleg eins og málum er háttað i dag. Þaö ætti þvi aö vera metnaöarmál hverjum frjálst hugsandi borgara að rifa af sér slikar hömlur og kasta á haug. HIN NÝJA BLAÐAMINNSKA Flokksvaldiö og flökksböndin eiga ekki sist rætur aö rekja til þeirrar einokunar, sem mál- gögn stjórnmálaflokkanna hafa haft á allri upplýsingamiölun um stjórnmálaleg álitaefni. Þær breytingar, sem oröið hafa i is- lenskri blaðamennsku og dag- blaðaútgáfu undanfarin miss- eri, eru þess vegna mikið fagnaöarefni og eiga vafalaust eftir að vera islensku stjórn- málalifi mjög til góös. Þvi miður sést ekki enn bóla á þvi, að hin góðu áhrif frjálsrar blaðamennsku hafi náö til rikis- fjölmiðlanna, hljóövarps og sjónvarps, sem enn eru fjötraðir i það sérkennilega fyrirbrigöi, sem nefnt er hlutleysisreglur. Reglur þessar sýnast hafa þau áhrif aö tryggja að stjórnmála- umfjöllun þessara f jölmiöla fari eftir viöurkenndum farvegum, sem settir eru af stjórnmála- flokkunum og er þaö einkenni- legt hlutleysi. Stjórnmálaum- ræöa rikisfjölmiölanna er þvi einatt merkingarlaus tugga, slagorö og karp, sem samiö var sumpart fyrir áratugum siöan viö allt aðrar aöstæöur en þær sem menn glima nú viö i lifi sinu. Engin furöa er þótt ekkert efni rikisfjölmiðlanna komist i samjöfnuð við stjórnmála- umræöur hvaö óvinsældir snert- ir. Þrátt fyrir að flestir fagni hinni frjálsu blaöamennsku og vænti mikils af framtíö hennar., er alls ekki þar meö sagt aö málgögn stjórnmálaflokka, eöa annarra samtaka sem aö opin- berum málum starfa, þurfi aö leggjast fyrir róöa. Slfk mál- gögn hafa þvert á móti mjög mikilvægu hlutverki aö gegna. Þótt áróöur sé slæmur eingöngu er hann nauösynlegur i bland. Hér þarf einungis aö gæta þess, aö ekki fari milli mála fyrir lesendur um hvort er aö ræöa, málgagn eða hlutlausan frétta- miðil, svo engin hætta sé á mis- skilningi. AD FYRIRBYGGJA MISSKILNING Þannig er það t.d. hreinn ó- þarfi og ástæðulaust fyrir rit- stjóra Morgunblaösins, eins og stundum ber viö, aö afneita Sjálfstæðisflokknum og mót- mæla þvi aö blaöiö sé málgagn hans. Að sjálfsögðu eru skoöanir skiptar um ágæti Sjálfstæöis- flokksins, en fáir munu meta hann óverðugan þess aö dag- blað taki upp málstað hans. Þetta hefur og veriö hlutverk Morgunblaðsins um langt skeiö og munu fáir neita aö þvi hlut- verki hefur verið vel sinnt. A það hefur veriö bent aö Morgun- blaöiö sé eign hlutafélags, en ekki Sjálfstæöisflokksins. Þetta skiptir auðvitaö engu um þaö atriöi, sem hér er rætt. Eignar- aðildir eöa rekstrarform útgef- enda er ekki þaö sem venjuleg- ur lesandi leitar aö er hann flettir dagblaöi. Ahugi hans beinist að efni þess, fréttum og skoöunum, og eftir þvi dæmir hann blaðið. Það er óskandi aö afstaöa rit- stjóra Morgunblaösins til þess- ara mála skýrist á næstunni og þeir játist undir hlutverk sitt sem stjórnendur málgagns Sjálfstæöisflokksins. Annars er, eins og bent var á hér aö fram- an, hætta á misskilningi. ( Síðdegisþankar j € Finnur Torfi Stefánsson skrifar: j

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.