Vísir - 02.04.1977, Síða 1
DAGSKRÁ
ÚTVARPS og SJÓNVARPS J
Nýr flokkur barnaleikrita
hefur göngu sína í dag
í fyrsta sinn sem norrœn samvinna er höfð um barnaefni í útvarpi
„Rauða höllin” heitir
nýtt islenskt barnaleik-
rit eftir Odd Björnsson,
sem flutt verður i út-
varpinuseinni partinn i
dag. Með þessu leikriti
hefst flutningur á flokki
fimm norrænna barna-
leikrita og er hér um að
ræða tilraun stöðvanna
um samvinnu á þessu
sviði. Verða leikritin á
dagskrá fimm næstu
laugardaga klukkan
17.30.
Dagur i lifi
tiu ára barns
Gunnvör Braga Sigurðardótt-
ir, dagskrárfulltrúi barna og
unglingaefnis útvarpsins, sagði
tildrögþessa málsveraþau aö á
þingi barna og unglingadeild-
anna sem haldið var i Finnlandi
árið 1975 urðu miklar umræður
um gerð leikrits fyrir börn og
unglinga og hugsanlega sam-
vinnu þar um. Að þeim umræð
um loknum var ákveöið aö hver
stöð réði sér rithöfund til aö
skrifa leikrit sem tæki 30 min i
flutningi. Efni var Dagur i lifi
tiu ára barns. Frekari ákvarð-
anatöku var frestaö aö sinni, en
i mars 1976 var þessari fyrstu
norrænu samvinnu útvarps-
stöðvanna um leikrit fyrir börn
settur rammi um gerð og fram-
kvæmd. Hugtakið einmana barn
var valið til meðferðar. Til
nánari afmörkunar á hugtakinu
var ákveöiö aö benda væntan-
legum rithöfundum á eftirfar-
andi efni til úrvinnslu:
1. Fatlað barn (t.d. skertheym)
2. Fyrsta ástin.
3. Einmana innan hópsins.
4. Einmana meðal fullorðinna
5. Viljieða þrá til/eftir einsemd.
Höfundum voru ekki settar
skorður um hvert form þeir
veldu verkefni sinu eða hvernig
þeir höguðu vinnu sinni að öðru
lyti. Skilafrestur á handritum
var i september 1976 og að lok-
um var ákveðiö aö flutningi
verkanna yrði lokið fyrir þing
barna og unglingadeildanna, en
það verður haldið i Kaup-
mannahöfn nú i vor.
Sorg og gleði
,,Sú spurning vaknaöi á
þinginu i Finnlandi fyrir tveim
árum, hvort okkur bæri að taka
til umfjöllunar i hinum ýmsu
barna og unglingatimum efni
sem væru sérstaklega viðkvæm
og sár, eða láta þau eiga sig.
Niðurstaðan af þeim umræðum
varö sú, aö ekki væri einungis
Gunnvör Braga Sigurðardóttir
dagskrárfulltriii.
rétt, heldur bæri deildunum
skylda að ætla tima, til að taka
til meðferðar og reyna að sýna
myndir úr lifsveruleika barna,
en hann hlýtur óhjákvæmilega
aö vera bæði sorg og gleði og allt
þar á milli.
Börn meira
einmana
Okkur kann aö viröast að
ýmis atvik í lifi barna séu ekki
tilefni stórra tilfinningasveiflna
— en börnunum geta þau hin
sömu atvik virst ekkert minna
en stóri dómur. Það sem er okk-
ur mannfólkinu hvað frekast
sameiginlegt er vottur af ein-
manaleika, og börn eru meira
einmana en fullorðnir og eiga
þar að auki óhægara um vik
með að rjúfa einsemd sina og
kemur þar einkum tvennt til.
Þau hafa ekki sömu þjálfun i aö
tjá sig — að gera hugsunum sin-
um áþreifanlegan búning — og
svo aftur nokkur tregöa
umhverfis þeirra um að veita
þeim athygli og hlustun. Það má
segjaaögerð leikrita fyrirbörn
hafi frá upphafi þróast eftir
nokkurn veginn sömu reglum og
sögugerö fyrir þau. Þ.e.a.s.
fyrst ævintýrið og svo skemmti
og spennin leikrit.
Félagsleg verk
Fyrirnokkrum árum fara svo
aö koma fram leikrit af félags-
legum toga, ekki bara fyrir full-
oröna, heldureinnig fyrirbörn.
Slík leikrit fyrir börn og ungl-
inga hafa hins vegar tekið mikl-
um breytingum frá þvi fyrsta.
Kemur þar tilaukin kunnátta og
meiri ábyrgö í vali og framsetn-
ingu efnis. Þessi flokkur leik-
rita, sem nú stendur fyrir dyr-
um aö flytja, flokkast raunveru-
lega undir það að teljast félags-
leg, þ.e. þeim er ætlaö að sýna
myndir úr veruleika barna”.
— GA
Þær Svanhildur óskarsdóttir, fyrir aftan, og Jó-
hanna Kristin Jónsdóttir leika aðalhlutverkin i
leikriti Odds Björnssonar sem flutt verður i dag.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson.
r
Laugardagur
2. april
16.30 Iþróttir Umsjónarmað-
ur Bjarni Felixson.
18.35 Christensens-fjölskyld-
an (L) Danskur mynda-
flokkur. 2. þáttur Jóhann
verður iika að vinna Jóhann
byrjar nú i skóla, en hann
þarf að vinna i verksmiöju
eftir skólatlma, þvi að faðir
hans er drykkfelldur og
heldur eftir af kaupi sinu
fyrir vínföngum. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir.
Sögumaður Ingi Karl Jó-
hannesson. (Nordvision —
Danska sjónvarpiö)
19.00 tpróttir (L að hl.)
Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Læknir á ferð og flugi
(L) Gamlir kunningjar
bregða á leik i nýjum,
breskum gamanmynda-
flokki i 13 þáttum. Þýðandi
Stefán Jökulsson.
20.55 Or einu i annað Um-
sjónarmenn Berglind As-
geirsdóttir og Björn Vignir
Sigurpálsson. Stjórn upp-
töku Tage Ammendrup.
21.55 Slys (Accident) Bresk
biómynd frá árinu 1967.
Handrit Harold Pinter.
Leikstjóri Joseph Losey.
Aöalhlutverk Dirk Bogarde,
Stanley Baker og
Jacqueline Sassard. Myndin
gerist i háskólabænum Ox-
ford og hefst með þvi, að
ungur maður biður bana i
bilslysi fyrir utan heimili
kennara sins, en unnusta
hans kemst lifs af. Þýöandi
Kristmann Eiðsson.
23.40 Dagskrárlok
Sunnudagur
3. april
18.00 Stundin okkar 1 Stund-
inni okkar i dag verður sýnd
siðasta myndin um Amölku
skógardis og lýst fuglum
sem „fljúga” i vatni, en þaö
eru mörgæsir. Siðan er
mynd um Davlö og hundinn
hans Goliat, Blóðbankinn,
saga eftir Einar Loga Ein-
arsson, og loks kynnir Vign-
ir Sveinsson fjóra unga
popphljómlistarmenn. Um-
sjón Hermann Ragnar
Stefánsson og Sigriður Mar-
grét Guðmundsdóttir.
Stjórn upptöku Kristin Páls-
dóttir.
19.00 Enska knattspyrnan
Kynnir Bjarni Felixson.
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Kvikmyndaþáttur.
Fjallaö er litillega um kvik-
myndagerð sagt frá is-
lenskri textun biómynda, og
minnst á nokkrar páska-
myndir kvikmyndahús-
anna. Umsjónarmenn Er-
lendur Sveinsson og Sigurð-
ur Sverrir Pálsson.
21.25 Húsbændur og hjú (L)
Breskur myndaflokkur.
Biikur á loftiÞýðandi Krist-
mann Eiösson.
22.15 Frá Listahátifi 1976
Bandariski óperusöngvar-
inn William Walker syngur
vinsæl lög úr ameriskum
söngleikjum. Við hljóðfæriö
Joan Dornemann. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
22.35 Að kvöldi dags Arni
Sigurjónsson guöfræöingur
flytur hugvekju.