Vísir - 06.06.1977, Page 4

Vísir - 06.06.1977, Page 4
Young var nýlega i Suður-Afriku til viðræðna við stjórnvöld þar: „Suður- Afrika þarfnast min”, sagði hann i viðtalinu. ,,Þeir þurfa alla sæmilega réttláta svertingja sem þeir komast yfir”. YOUNG VILL AÐ AMIN HVERFI Andrew Young, sendi- herra Bandarikjanna hjá Sameinuðu þjóðun- um, hefur sagt i viðtali við Flayboy að hann óskaði þess að Idi Amin hyrfi af yíirborði jarð- arinnar. Hann likti Amin við Hitler. „Dauði virðist vera stjórnar- stefna i Uganda”, sagði sendi- herrann. ,,Það eru teknir fyrir vissir ættílokkar, alveg eins og Hitler tók gyðingana. Min grund- vallarskoðun er sú að það meg frelsa alla menn. En ég vildi ekki láta bjarga Hitier og ég vil ekki láta frelsa Idi Amin. Ég vildi að hann hyrfiað yfirborði jarðarinn- ar ' Andrew Young hefur vakið nokkra atbygli undanfarna mánuði fyrir hreinskilnislegar yfirlýsingar sinar. Ymsar þjóðir hafa orðið til þess að mótmæla umsögnum hans um kynþátta- misrétti, en Carter forseti er sagður neita eð skipta sér af þvi hvað hann segir. Young er fyrsti blökkumaðurinn sem er sendi- herra Bandarikjanna hjá Sþ. Amin kemur ekki á samveldisfund — fyrrum ráðherra hans segist hafa séð sundurskotið lík Luwums, erkibiskups Svo virðist sem Idi Amin, forseti Uganda, sé hættur við að sitja bresku sam- veldisráðstef nuna sem hefst í London í þessari viku. Er það mikill léttir fyrir bresku stjórnina sem hefur verið að velta því fyrir sér hvernig hún gæti losnað við að fá hann í heimsókn. Mikill þrýstingur hefur verið á bresku stjórnina til að fá hana til að hreinlega banna Amin að koma til landsins. Menn hafa á honum illan bifur vegna fjölda- moröanna sem framin hafa verið i landinu siðan hann tók þar völdin. Það nýjasta er að fyrrum heil- brigðismálaráðherra Uganda, sem nú er landflótta, hefur lýst þvi yfir að hann hafi séð sundur- skotin lik Jananis Luwum, erki- biskups og tveggja ráðherra, sem dóu meö honum. Þessir þrir mena voiu hand- teknir samkvæmt skipun Amins og þvi var svo haldið fram að þeir hefðu farist i bilslysi. Fáir trúðu þvi, en ekkert var hægt að sanna. Bretland lagði málið fyrir mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna, en „vinir” Amins meðal rikja þriðja heimsins hafa komið i veg fyrir að málinu væri fylgt eftir. Heilbrigðisráðherrann, Henry Kyemba, skýrði einnig frá þvi að hermenn Amins hefðu myrt Doru Bloch, bresk—israelsku konuna sem var á sjúkrahúsi i Kampala, þegar israelskar vikingasveitir gerðu árás á Entebba flugvöll og frelsuðu gisla sem þar voru i haldi. „Það voru rússar" — segir forseti Seychelle eyja sem hefur verið steypt af stóli James Mancham, for- seti Seychelle eyja, ætlar að sitja bresku sam- veldisráðstefnuna, sem fulltrúi lands síns þrátt fyrir að honum var steypt af stóli í átakalausri bylt- ingu rétt eftir að hann fór úr landi. Á fundi með fréttamönnum kenndi Mancham rússum um byltinguna. Það er sósialistinn Albert René, forsætisráöherra, sem hefur tekið völdin i sinar hendur. Mancham, sem sagður er nokkur glaumgosi, býr nú á Savoy hótelinu i London, þar sem gisting kostar 144 sterlings- pund fyrir nóttina. Hann sagði fréttamönnum aö ásakanir á hendur sér um aö reyna að koma á einræðisstjórn, væru ósannar. Byltingarmennirnir sögðu einnig að hann ferðaðist of mik- ið og hefði varla sést á eyjunum siðan þær fengu sjálfstæði á sið- asta ári. Mancham sagði að hann væri einnig utanrikisráð- herra og þvi væri nauðsynlegt að fara viða. ELDFLAUGA- ÁRÁSÁBORG í RODESÍU — flaugarnar komu frá Zambíu Hálfrar klukku- stundar eldflaugaárás var i gærkvöldi gerð á ródesisku borgina Kariba. Borgin er nálægt landamærunum að Zambiu og stjórn Ródesiu segir að enginn vafi leiki á að eldflaug- unum hafi verið skotið þaðan. Árásiri er talin hefnd fyrir innrás róses- iskra hersveita i Mozambique, i siðustu viku. Herflokkar sem sendir voru á staðinn fundu eina eldflaug sem ekki hafði sprungið. Þeir eru nú að reyna að komast að þvi hvört hún sé úr vopnabúri skæruliða eða fastahers Zambiu. Fyrir nokkru lýsti Ian Smith, forsætisráðherra Ródesiu, þvi yfir að hann myndi ekki liða frekari árásir skæruliða frá Zambiu. Hann bað David Owen, utanrikisráðherra Bretlands, að koma þeim skilaboðum til Kaunda, forseta Zambiu, að ef árásum yrði haldiö áfram, gæti komið til þess að ródesiskar her- sveitir gerðu snögga innrás til að útrýma skæruliðunum. Kaunda svaraði með þvi að kalla allt sitt herlið til vopna og lýsa þvi yfir að striðaástand rikti milli landanna. Menn biða þess nú að sjá til hvaða aðgerða ródesiustjórn gripur vegna þessarar árásar frá Zambiu. Enginn féll i árásinni og aðeins einn maður meiddist litillega, en nokkurt tjón varö á byggingum. Mólúkkarnir þrauka enn AAólúkkarnir í Hollandi hafa sleppt tveimur kvennanna sem þeir héldu í gíslíngu í hraðlestinni. Andreas van Agt utan- rikisráðherra hef ur þó varað við of mikilli bjartsýni af þessum sökum. Hann sagði að mólúkkarnir virtust staðráðnir í að fá f ram kröfur sínar. Það eru nú liðnar næstum tvær vikur siðan suður—mólúkkarnir lögðu til atlögu og lögðu undir sig hraðlestina og barnaskóla. Eftir að veiki kom upp meðal barnanna slepptu þeir þeim úr haldi, en hóta áfram að lifláta þá gisla sem eftir eru ef 21 mólúkka sem þeir til- taka verði ekki sleppt úr fangelsi og leyft að fara með þeim úr landi. Bandarikin leggja nú hart að Suður-Afrlku að veita negrum sinum jafnrétti. Bæði Andrew Young og Mondale varaforseti hafa lagt til atlögu við Vorster, forsætisráðherra Auður-Afriku.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.