Tíminn - 06.09.1968, Síða 5
KÖSTUDAGIíR 6. september 1968. TIMINN
■ -
•:
i x 'iÚ
W.WWAW
: !
■ ■
ill
'
líiill
' ■' ........ :
. / ■
|:pi|
.
.
■ :■
"*■' s V
■
Þessi unga kona sem er í
' fíióttamarinábuSum virðist vera
mfög ánægð mitt í allsleysinu.
★
Hubert líumphrey, varafor-
seti, hefur haft nóg að gera
síðan hann var útnefndur fram
hjóðandi demókrataflofeksins í
næstu forsetafeosningum. S. 1.
föstudag tok hann þátt í mik-
itli kröfugöngu verkamanna í
New York ogkom síðaí um dag-
inn fram í nokkurskonar mara-
þon-sj ónvarpsþætti hjá Jerry
Lewis, gamanleikaranum fræga,
sem tekin var upp á stóru hóteli
þar í boEg. Hér sést hann
skemmta sér vel af gríni Lewis
— en gamarileikarinn hefur lýst
ýfir stuðningi við forsetaefnið
í kosningunum.
Ást-æðan er sú, að hún er að
búa sig undir há.degj^veæðinriv.
sem hún heldur f hendinni, og
telur sig án efa heppnari en
margir landar hennar sem hafa
látizt úr hungri.
★
Lawrence Spivak, sem hefur
umsjón með bandaríska sjón-
varpsþættinum Meet The
Press lauk fyrir nokkru sjón
varpsútsendingu með Hubert
Humphrey, varaforseta, sem
þykir fremur skrafhreyfinn,
með þessum orðum: Já, herra
varaforseti. Þá held ég að tími
okkar sé útrunninn. Við höfum
varla tíma til fleiri spurninga
og alls ekki fyrir fleiri svör.
★
Lucille Ball, sem flestir sjón
varp'sunnendur hér á landi
kannast við úr sjónvarpsþátt-
unum Lucy Show, er enn mjög
vinsæl eða eins og Ameríkan-
arnir „still goirig strong“
handan Atlantshafsins. Lucy
Sibow befur niú verið við lýði
í meira en áratug og fyrir
nokkru fékk Lucy þriðju
Emmiyverðlaunin fyrir þættina
sína. Emmy-verðlaunin sam-
svara Oscarskvikmyndaverð-
laununum ein þau eru aðeins
veitt fyrir ledk í .sjónvarpskvik
myndum. Lucy hefur tólf sinn
um verið nefnd í sambandi við
þessi verðiaun og nú þegar
hún tók við verðlaunum úr
hendi Franks Sinatra, var því
sjónvarpað um öll Bandaríkin.
★
Sex bandarískar komrr, þar
á meðal sænskættaða leikkon-
an Viveca Lindfors, hafa sett
á stofn skrifistofu í New York
þar sem þær hjálpa ungum
Bandaríkjamönnum til þess að
komast undan herskyldu með
því að höfða til samvizku sinn
ar. Skrifstofan sér meðal ann-
ars um það til hvaða landa
væntanlegir hermenn geti flutt
til þess að losna við herskyldú.
Auk þess ætla konurnar sex að
sjá um lyfjaöflun bæði fyrir
Norður- og Suður-Vietnam.
★
Karlmenn hafa sem kunnugt
er lengi verið sannfærðir um
það að þeir séu hið fallega
kyn. Og til þess að undirstrika
það hefur tízkuteiknarinn
Stanley Hagler í New York
hafið sölu á skartgripum fyrir
karlmenn. Ekki aðeins skyrtu
hnappa og bindisnálar, heldur
einnig stór hálsmen úr göfug-
um málmum og steinum. Þeir
karlmenn í New York, sem nú
vilja fylgajst með tízkunni
ganga því með stór ■ hálsmen
framan á sér og verður þess
án efa ekki langt að bíða að
þeir komi með tilheyrandi
eyrnartokka.
Það hefur vald'ið mikilli
deilu og miklum blaðaskrifum
hver ætti að taka við völdum
á Spáni eftir daga Francos og
hafa margir verið nefndir í því
sambandi og þá helzt þeir
frændur Juan Carlos og Hugo
prins. Juan Carlos hefur fram
að þessu þótt heldur líklegri,
en hann er sem kunnugt er
giftur Soffíu prinsessu af Grikk
Inadi. Hugo prins er hims veg-
ar giftur Irenu prinsessu af
Hollandi og vakti brúðkaup
þeirra heimsathygli á sínum
tíma, þar sem Irena blátt
áfram stakk af til þess að
giftast honum. Nú þykir full-
víst að Juan Carlos hreppi
hnossið og verði kóngur á
Spáni eftir daga Francos ein-
ræðisherra. Enn hefur ekkert
heyrzt um málið frá Franco.
★
Það er ekki svo ýk'ja langt
síðan að við lá byltingu í
Saudi-Arabíu og orsök þeirrar
þyltingu var stúlkuandlit. Þeg-
ar ungt stúlkuandlit án slörs
birtist á sjónvarpsskerminum
þar í landi, hótuðu prestar
Mekku að steypa þessu synd-
uga sam.félagi, hervörður var
se,ttur um sjónvarpshyggimguua
til þess að vernda hana og
vopnuð lögregla var kölluð í
sjónvarpssal til þess að koma
í veg fyrir róstur.
En Feisal veit sannarlega
hvað hann er að gera. Hann
gerði sér grein fyrir því að
sjónvarp yrði að koma inm í
landið, jafnvel þótt kóraminn
barinaði allar tegundir af fólks
myndum. Kóngurinn fékk
þegna sina til þess að sætta
sijj við sjónvarpið með.því að
segja að andlit á sjónvarps's
skerminum væri ekki það samá
og mynd, og er sjónvarpið þar
í landi mjög vinsælt, en þar
eru ekki kvikm.ýndahús.
★
Fyrirtækið Booker Bros, sem
aðallega hefur helgað sig skip
um!, rommi og sykri, keypti
nýlega 51% af hlutabréfum
í fyrirtæki Agöthu Obristie,
glæpasöguhöfundarins fræga.
Ekki hefur verið látið uppi,
fyrir hvaða upphæð fyrirtæk-
ið keypti bréfin, en hún var
að minnsta kosti ekki lág. Fær
fyrirtækið því hluía af þei-m
tekjum sem allar bækur henn
ar, skrifaðar eftir 1955, afla.
t'-VIH—
Ósvífnar blekkingar
Morgunblaðið heldur enn í
gær uppi ósvífnum blekking-
um um afstöðu íslendinga á
Genfarráðstefnunum um land-
helgismálið, en tekst heldur en
ekki óhönduglega, eins og oft
vill fara, þegar samvizkan er
slæm.
Morgunblatóð hafði skrökv-
að því í forystugrein, í trausti
þess að málið væri farið að
fyrnast, að þeir hefðu barizt
fyrir því, „Á TVEIM GENFAR
RÁÐSTEFNUM“ að fá 12 míl-
urnar samþykktar sem alþjóða
lög þannig, að óheimilt væri
að færa landhelgina lengra út.
Tíminn andmælti þessu harð-
lega og benti á þá staðreynd,
að Alþingi hefði begar 1959,
FYRIR SÍÐARI GENFARRÁÐ
STEFNUNA, eirimitt sam-
þykkt einróma yfirlýsingu um
að takmarkið væri yfirráð
landgrunnsins alls en algert
lágmark nú væri 12 mílur.
Með þessa yfirlýsingu fóru full
trúar íslands á síðari Genfar-
ráðstefnuna og í samræmi við
hana greiddu þeir atkvæði á
móti 12 mílna bindandi al-
þjóðareglu um fiskveiðiland-
helgi í hvaða tillögumynd sem
hún birtist á þeirri ráðstefnu,
fyrst undanþága fiskveiði
strandríkja var ekki samþykkt.
Þetta játar Mbl.v einnig í gær
hreinlega og þar með að hafa
skröfevað því, að 12 mflna bind
andi alþjóðaregla hefði verið
stefna íslendinga „Á TVEIM-
UR GENFARRÁÐSTEFNUM“.
Eða dirfist Morgunblaðið að
drótta því að fulltrúum fslands
á Genfarráðstefnunni 1960, að
afstaða þeirra hafi verið ger-
samlega andstæð einróma yfir-
lýsingu Alþingis um landgrunn
ið allt sem markmið? Það er
tilgangslaust fyrir Morgunblað-
ið að vitna í afstöðu á fyrri
ráðstefnunni, þegar viðhorfið
var allt annað. Það er afstaðan
á síðari ráðstéfnunni, sem máli
skiptir, og því eru það hættu-
legar blekkingar, sem geta haft
hin verstu áhrif, ef málgagn
stærsta stjómmálaflokksins
skrökvar því hvað eftir annað,
að 12 mflna markið sem hind-,
andi alþjóðaregla hafi verið
„stefna okkar á tveimur Gen-
far-ráðstefnum“.
Hver á Vallastræit?
Hvorki símamálastjórnin né
Morgunblaðið hafa svarað
spurningum þem, sem beint
var til þeirra hér í þessum
dálkum fyrir rúmri viku, um.
það; hver ætti Vallasltrætið,'.
með hvaða kjörum Sjálfstæðis-
húsið hafi fengið það, þegar
það var lagt niður í þágu þess ■
og horni Austurstrætis lokað,.
og hve mikill hluti af þessari
fyrri sameign Reykvíkinga það'
sé nú af þeirri lóð hússins, sem
seld var á ca. 4 millj. kr.
Kaup símamálastjórnarinnar
á eign þessari og verð það,
sem fyrir hana var greitt, hafa
saett mikilli gagnrýni. Síma-
málastjórnin hefur að vísu svar
að en ekki á þann veg að
kippa fótum undan gagnrýn-
inni. Landsíminn er þjóðar-
stofnun háð fjárstjórn Alþing-
is í fjárlpgum. Kaupin hafa
verið gérð án samráðs við Al-
þingi. Þegar þjóðarstofnun
sætir svo mikilli gagnrýni fyrlr
stórfellda fjármálaráðstöfun,
ber henni að biðja Alþingi að
tilnefna rannsóknarnefnd í
Eramhald á bls. 15.