Tíminn - 06.09.1968, Page 14
>
14___________________ ____________________________TIMINN FÖSTUDAGUR 6. september 1968.
SURPRISE STRANDAR
Setið yfir kaffi í Sigluvík i gærmorgun. Kristján sklpstjóri situr fyrir miðju borðsins, og yzt til
hægri er Ágúst bóndi að gefa togararnum auga út um gluggann. Með skipstjóranum við borðið
eru vélstjórar og stýrimenn.
Yngstu skipbrotsmennirnir á leið til Reykjavikur
Framhald aí bls. 16
strandinu, en það mun koma
í Ijós við sjópróf, sem fram
munu fara á næstu dögum.
Hins vegar er Ijóst hvernig
strandið bar að. Skipið er á
siglingu austur með landinu,
lendir á rifi og kemst yfjr það,
síðan strandar það á Rangár-
sandi beint undan bænum
SigLuvík í Vestur-Landeyjum.
Sneri togarinn fyrst bakborðs
siðunini til lands, en snerist
síðan á strandstaðnum, og
stefndi beint upp í fjöru.
Er skipið strandaði var
reynt að ná því út, með því að
setja allar vélar á fullt aftur
á bak, en án árangurs.
Haft var samband við loft-
skeytastöðina í Vestmhnnaeyj-
um og tilkynmt hvernig kom
ið væri, og mun klukkan þá
hafa vantað tuttugu mínútur
í sex .Ekki vissu skipverjar
með fullri vissu hvar þeir
voru, en töldu sig þó vera
strandaða á Krosssandi rétt
vestan við Markarfljótsósana,
eða á sömu slóðum og pólski
togarinn Wislock strandaði
fyrir þrem árum síðan.
Björgunarsveitir héldu fyrst
í áttina til hins uppgefna stað
ar, en brátt kom í ljós að stað
arákvörðun var röng, þegar
skipverjar skutu upp neyðar-
blysum til að láta vita af sér.
Ágúst Jónsson bóndi á Siglu-
vík sagði fréttamanni Timans
að hann hefði fyrst fengið til-
kynningu um að togarinn
væri strandaður allmiklu aust
ar en bær hans er, en „þegar
ég leit út um stofugluggann hjá
mér, sá ég hvar skipið lá í
fjörunni beint neðan undan bæn
um“. Þeir virðast sækja til mín,
sagði Ágúst, því aðeins vestar
en Surprise strandaði, fór
Frosti upp í sandinn fyrir tólf
árum. Ágúst var fyrstur manna
á vettvang, og sagði hann að
búið hefði verið að skjóta línu
í íand af skipinu þegar hann
kom í fjöruna. Skömmu síðar
komu björgunarsveitarmenn úr
Landeyjum og af Hvolsvelli, og
var 23 skipverjanna bjargað á
hálftíma í land, og vöknaði ekki
einn einasti svo mikið sem í
fæturna. Þeir voru dregnir í
land í björgunarstól, og voru
algjörlega óhraktir. Fimm
þeim síðustu var bjargað stuttu
á eftir, en þá voru yfirmennirn
ir sem voru að ganga frá því
sem hægt var að ganga frá, áð
ur en farið var frá borði. Klukk
an mun hafa verið um hálfníu
þegar allir voru komnir í land,
og var þá skipið um 10—15
metra frá landi.
Skipbrotsmennirnir 23, sem
fyrst var bjargað, fóru allir í
stóran hópferðabíl upp á Hvols
völl, þar sem þeir fengu heitt
kaffi og meðlæti í Hvoli, en
síðan var ekið rakleiðis til
Reykjavíkur.
Er fréttamaður Tímans hitti
þá í Landeyjunum voru þeir
hressir og kátir flestir hverjir,
og auðvitað fegnir því að vera
með fast land undir fótum eft
ir strandið. Þéir voru reglu
lega togaralegir, skeggjaðir og
í hlýjum peysum.1 Sá sem
lengst er búinn að vera til
sjós, hefur stigið ölduna í 43
ár, en annars voru þeir á öllum
aldri niður í 17—18 ára.
Fréttamenn Tímáns hittu skip
stjóra, stýrimennina og tvo vél
stjóra, þar sem þeir sátu yfir
kaffibollum hjá Ágústi bónda
og húsfreyjunni í Sigluvík.
Leiðabókin lá á stofulborðinu,
nýleg og algj'örlega óskemmd,
og hún mun að sjlálfsögðu
þjóna mikilsverðu hlutverki
(við sjóprófin. Ágiúst bóndi
sagði, um leið og hann horfði
á skipið út um stofugluggann,
að skipsmenn vildu víst ekk
ert gefa upp um strandið, og
það voru orð að sönnu þvl
Krisbján Andrésson skipstjóri,
sagði fréttamanni, að hann
gæti ekkert sagt um' strandið
að svo stöddu, það myndi allt
koma gleggst og bezt fram hvað
gerzt hafði við sjóprófin.
Fyrst var von á varðskipinu
Ægi að strandstaðnum um kl.
elleifu, síðan klukkan tólf, en
um hálf eitt kom það út úr
þokunni fyrir utan strandstað-
inn. Komu yfirmennirnir af
Surpri^e skömmu síðar á
strarfðstaðinn, og ræddust þeir
þá við í taistöðvarnar, Krjstj-
án skipstjóri og skipherrann á
Ægi.
Á meðan þeir ræddust við
virtist svo sem sjógangurinn yk-
ist og byrjaði skipið að leggj-
ast á stjórnborða í ölduna, jafn
framt sem það snerist. Snerist
það á stuttum tíma til hálfs í
fjörunni, og við það minnkuðu
vonir manna um björgun skips
ins að miklum mun. Fyrir há-
degið töldu bændur í Land
eyjunum sem voru á strand
staðnum, að auðvelt hefði ver
ið að draga skipið á flot, en
þá stóð það svo til kjölrétt >1
snéri stefnið beint upp í fjör
una. Skömmu fyrir hádegið
fór stýrimaiur af togaranum
um borð, og var þá enginn
leki kominn að skipinu.
Varðskipsmenn höfðu í
hyggju, að láta svera nælon-
trossu fljóta í land t strand
staðnum, en menn töldu óhugs-
andi að hana myndi bera upp
í fjöru, heldur reka vestur
með vegna vindsins.
Nýkominn úr klössun
Surprise var nýkominn úr
mánaðarklössun, sagði Kristján
skipstjóri, og togarinn veltist
því um velmálaður í flæðar-
málinu. Kristján sagðist vera
búinn að vera 13 ár um borð
í Surprise, og þar af mestan
tímann skipstjóri. Það var því
von að hann horfði löngunar-
augum á skipið sitt á strand-
staðnum, -og vildi reyna að
gera allt sem hægt væri til að
bjarga því. Ágúst í Sigluvík
sagði að togarinn hlyti að nást
út. „Þetta náðu þeir honum
Frosta út hér um árið, eftir
21 dag, og hann varð aflahæst-
ur í Höfnum á næstu vertíð".
Eftir því sem leið á daginn
hallaðist togarinn meira og
meira undan öldunni, sem stöð
ugt braut á honum. Þeir Land
eyjabúar sögðu að þetta væri
nú ekki mikið brim. og það hefði
verið heppni að skipið strand-
aði einmitt á þessum stað, en
ekki austar eða vestar þar
sem væri verra sjólag. Þetta
væri eitt af svokölluðum „hlið
um“ á ströndinni þar sem stund
aðir voru útróðrar í gamla daga.
Um miðjan dag í dag var svo
hafizt handa við að fá jarð-
ýtur til að halda við togarann
á strandstaðnum. Hann var all
an daginn laus að aftan og fram
an, en sat á miðjum belgnum,
og rambaði aftur og fram eft
ir því sem sjóirnir brotnuðu á
honum. Þar sem Surprise fór
í veiðiferð á laugardagskvöld
ið var hann með mikla olíu, ís
og vatn um borð, sem gerði það
að verkum að hann sat betur.
í kvöld klukkan tíu er Trm
inn hafði samband við menn
á strandstaðnum, sögðu þeir
að skipsmenn nokkrir væru
um borð í togaranum, en beðið
yrði birtingar með frekari
björgunaraðgerðir.
Varðskipsmenn höfðu maélt
dýpið fyrir utan togarann í dag
er þeir fóru uppundþ hann
á gúmmíbátum, og settu þeir
Út dufl. /
í kvöld mátti næstum ganga
þurrum fótum út i skipið í
háfjörunni. og var veðii’ i
verða skaplegra.
í Þ R Ó T T I R
Framhald af bls. 13
Reynir Jónsson, innherji 25
ára. Lék fyrst með meistaraflokki
1964 og hefur leikið 88 leiki. 4
landsleiki. Hæð 174, þyngd 70
kg. Atvinna: smjörlíkisgerðarmað
ur.
Hermann Gunnarsson, miðfram
herji 21 árs. Lék fyrst með meist-
araflokki 1963 og hefur leikið 10
leiki. 8. A landsleikir, 1 B lands-
leikir, 3 landsleikir 23 ára og
yngri. Hæð 177. Þyngd 76 kg. At-
vinna: blaðamaður.
Bergsveinn Alfonsson, innherji
22 ára. Lék fyrst með meistara-
flokki 1963 og hefur leikið 103
leiki. 1 landsleik 23 ára og yngri.
Hæð 180, þyngd 77 kg. Atviana:
trésmiður.
Gunnsteinn Skúlason, útherji
21. árs. Lék fyrst í meistaraflokki
1964 og hefur, leikið 35 leiki. 2
unglingaslandsleikir. Hæð 174,
þyngd 71 kg.
Sigurður Ólafsson, bakvörð-
ur 17 ára. Lék fyrst með meist-
araflokki 1968 og hefur leikið 9
leiki. 1 unglingalandsleik. Hæð
173, þyngd 80 kg. Verzlunarskóla-
nemi.
Smári Jónsson útherji 20 ára
Lék fyrst með meistaraflokki
1968 og hefur leikið 2 leiki. Hæð
178, þyngd 65 kg. Atvinna. verzl-
unarm.
Ingvar Elísson, innherji 27 ára.
Lék fýrst með meistaraflokki
Vals 1964 og hefur leikið 76 leiki.
4 A landsleikir, 2 B landsleikir.
Hæð 186, þyngd 75 kg. Atvinna:
rafvirki.
Finnbogi Kristjánsson, vara-
n'r-k'-ö ðir 21 árs Hæð 184,
’.ina: skrifstofu-
Okkar innilegustu hjartans þakkir til allra þeirra, sem veittu
okkur ómetanlega hjálp og vinsemd við fráfall og jarðarför,
Jóns M. Bjarnasonar,
Álfshólsvegl 95.
Einnig flytjum við alúðarþakkir læknum, hjúkrunarliði og öðrum,
sem velttu honum hjálp i hans erfiðu veikindum. Guð blessi ykkur
öll.
. Fjölskyldan.
Jarðarför mannsins mfns
GuSjóns Einarssonar,
Berjanesi f Landeyjum,
fer fram frá Akureyjarkirkju, iaugardaginn 7. sept kl. 2. e. h
Guðríður Jónsdóttir
Magnús Sigurðsson,
Arnórsholtl,
lézt á Akranesspítala mánudaglnn 2 sept. Jarðarför hans fer fram
frá Lundarkirkju, laugardaginn 7. sept kl. 2 siðd,
Aðstandendur
Útför
Margrétar Júlíönu Sigmundsdóttur
frá Skógum,
verður gerð frá Staðarfellskirkju laugardaginn 7. þ. m. kl. 14,
Farið verður frá Umferðarmiðstöðinni sama dag kl 7 árd. ■
Börn hinnar látnu.
/