Vísir - 29.07.1977, Blaðsíða 12
12
VISIR Föstudagur 29. júli 1977.
13
VINNINGAR HALFSMANAÐARLÍGA
SVllAX f PÓST
Sendu seðilinn til VÍSIS Siðumúla 14, Reykjavik
strax i dag. Hálfsmánaðarlega verður dregið úr
nöfnum þeirra sem tekið hafa þátt i kosningunni
og er vinningurinn hverju sinni 15 þúsund króna
úttekt á sportvörum hjá SPORTVALI, Hlemm-
torgi, Reykjavík.
Aukavinningurinn er dreginn er út i lok kosning-
arinnar úr atkvæðaseðlum þeirra, sem greiddu
vinsælasta liðinu atkvæði sitt er 50 þúsund króna
úttekt á sportvörum i Sportvali, Hlemmtorgi,
Reykjavík.
,Valsmenn
þeir eru I
mínir menn'
Leikir í kvöld
Tveir leikir veröa i 8-liða úrslitum Bikar-
keppni KSt i kvöld og hefjast þeir báðir kl. 20.
Framarar og KK-ingar reyna með sér á
Laugardalsvellinum —gamla vellinum —og
I Eyjum spreyta heimamenn sig gegn Kefl-
víkingum.
Miöað viö leiki þessara liöa aö undanförnu
veröurað reikna ineö aö Fram og IBV sigri,
en bikarkeppni er ávallt dálitiö sérstök aö þvf
leyti að þar gerast oft óvamtir hlutir, og þaö
gæti allt eins oröiö upp á teningnum I kvöld.
— Segir Óttar Felix Hauksson í tilefni
kosningar á vinsœlasta
knattspyrnuliðinu
Iter munaöi svo sannarlega litlu. Helgi Helgason ætlaði aö gefa boltann til Diöriks ólafssonar, en Guömundur Þor-
björnsson komst inn á milli og haföi næstum skoraö. Diörik náöi aö bjarga meö úthlaupi. Ljósm. Einar
„Eins og staöan var oröin á timabili
i leiknum þá get ég ekki annaö en vcriö
mjög ánægöur meö úrslit hans,” sagöi
Ingi Björn Albertsson, fyrirliöi og
stjarna Vals I bikarleiknum gegn Vfk-
ingi i gærkvöldi. Ingi skoraöi bæöi
mörk tiös sfns, sem sigraöi 2:1, svo aö
liann haföi svo sannariega ástæöu til
þess aö gleöjast eftir leikinn.
„Siðara mark mitt var eitt
skemmtilegasta mark sem ég hef
skorað á ferli minum, ekki aö markiö
væri glæsilegt, en boltinn var svo lengi
á leiöinni inn, og markiö var Ifka úr-
slitamark leiksins. Nú vona ég bara aö
viö fáum ekki Fllinga i undanúrslitun-
um, en ég vil mæta þeim i úrslitaleik;
það yrði skemmtilegt”.
Já, Valsmenn eru komnir i undanúr-
slitin i bikarkeppninni, og ekki liklegt
að þeir verði stöðvaðir þar. Liöið leik-
ur skemmtilegustu og árangursrik-
ustu knattspyrnu islenskra liða i dag,
enda sýnir árangur þess i sumar það
best. Liðið hefur forustuna i 1. deild-
inni, og er sigurstranglegt i bikarnum.
Mörkin létu heldur betur standa á
sér i gærkvöldi, og reyndar má segja
að i fyrri hálfleiknum hafi hvorugt lið-
ið átt afgerandi marktækifæri. Vals-
menn voru þó ivið meira með boltann
og virtustu sterkari, en þeim tókst ekki
að finna göt i vörn Vikings.
Það voru þó Vikingar sem áttu
fyrsta verulega góða marktækifærið i
leiknum strax á 6. minútu siðari hálf-
leiksins. Þá átti Hannes Lárusson skot
af nokkuð löngu færi. Boltinn fór i
varnarmann Vals og breytti við það
stefnunni'þannig að boltinn fór i stöng-
ina vinstra megin og út á völlinn, en
Sigurður Dagsson sem var búinn aö
skutla sér, lá i hægri markhorninu!
Þar sluppu Valsmenn svo sannarlega
með skrekkinn!
Þegar á leikinn leið hertu Valsmenn
tök sin á honum og tækifærin fóru að
koma. Guðmundur Þorbjörnsson átti
þrumuskot af stuttu færi sem Diðrik
náði að slá yfir og um miðjan siöari
hálfleikinn stóð Ingi Björn aleinn fyrir
framan mitt markið með boltann eftir
skemmtilega útfærða sókn, en skaut
framhjá. En á 79. minútu gerði Ingi
Björn engin mistök og þá færði hann
Val forustuna.
Þá fékk hann stórgóöa sendingu frá
Guðmundi Þorbjörnssyni og komst
einn innfyrir með boltann og skoraöi af
öryggi i vinstra hornið niðri.
Héldu nú flestir að Valur væri með
unninn leik, en áhorfendur fóru að
tygja sig til heimferöar. En þegar
þrjár minútur voru eftir af venjuleg-
um leiktima jafnaði Vikingur. Þá gaf
Eirikur Þorsteinsson mjög góða send-
ingu þvert yfir völlinn á Gunnar örn
sem var kominn þar fram kantínn út
af vitateigshorninu. Gunnar hitti bolt-
ann vel, og i markinu hafnaði hann án
þess að Sigurður Dagsson kæmi vörn-
um við. 1:1 og menn bjuggu sig nú
undir framlengingu.
En Ingi Björn var aldeilis ekki á þvi.
Rétt fyrir leikslok náði Valur
skemmtilegri sóknarlotu upp hægri
kantinn. Hörður Hilmarsson komst
þar upp með endalinunni og gaf fastan
bolta fyrir markið á Inga Björn sem
var réttur maður á réttum staö. Ingi
skaut, en Diðrik sem hafði hendur á
boltanum missti hann yfir sig og I net-
ið. Fögnuður Valsmanna var mikill,
enda mikilvægur sigur i höfn.
Valsliðið var mjög jafnt i þessum
leik, og i þvi liggur ekki sist styrkur
liðsins. Þeir sem skáru sig úr voru þó
ef til vill Bergsveinn Alfonsson sem
var alltaf að, sivinnandi. Þá var Albert
Guðmundsson drjúgur framan af, en i
heildina var liðið mjög jafnt.
Hjá Vikingi var Diðrik i markinu
langbestur og bjargaði oft glæsilega.
Aðrir leikmenn voru svipaðir að getu,
en i áberandi slakari gæðaflokki en
mótherjarnir.
gk—.
Valsmaðurinn óttar Felix Ilauksson var hinn hressasti I gær-
kvöldi eins og sjá má.
Ljósm. Einar
,,Það var nú þannig aö
móðurbróöir minn, Hörður
Felixson, lék meö KK fyrir um
þaö bil 20 árum og þaö vakti á-
liuga minn á knattspyrnu öðru
frentur” sagöi óttar Felix
Hauksson, fatainnflytjandi
þjálfari 5. flokks og poppari
meö meiru.er viö ræddum viö
hann á leik Vals og Vikings
Óttar scm cr mikill Valsmaö-
ur sagöist alltaf fara á völlinn
þegar hann gæti. Er hann var
spuröur um uppáhaldsleik-
mann sagöist hann ekki eiga
neinn sérstakan. ,,1 Valsliöinu
eru 8-9 injög góöir einstakling-
ar og þeir sem eiga toppleik
hverju sinni eru minir uppá-
haldslelkmenn”. Hverjir held-
ur þú aö sigri i 1. deild og
hvaöa liö fellur i 2. deild?
„Mér finnst ákaflega liklegt
aö Valur vinni deildina aö
þessu sinni. Þeir cru meö
besta liöið. Ég held að Þróttur
Keykjavik og KA komi upp og
aö Þróttur sigri I 2. deiidinni.
Annars veröur rööin i 1. deild
þessi: Valur, Akranes,
Víkingur, ÍBV, ÍBK, UBK,
FH, Fram, KR, Þór
Röð efstu liðanna i kosning-
unni um vinsælasta knatt-
spyrnuliðiö er nú þessi: (Röð-
in er i stafrófsröð).
Akranes
Breiöablik
Fram
FH
IBK
IBV
KR
Selfoss
Valur
Vikingur.
SK
LIDIl) MITT
Atkvœðaseðill í kosningu VÍSIS um vinsœlasta
knattspyrnuliðið sumarið '77
LIÐIÐ MITT ER:
NAFN
HEIMILI
BYGGÐARLAG
SYSLA SIMI
Valsmenn áfram!
IG líttækjum
onunoio
GRUNDIG littæki eru einhver vönduöustu
sjónvarpstæki, sem framleidd eru í heiminum.
Tæknibúnaður þeirra er allur hinn full-
komnasti, sem þekkist í dag. Sökum þessa
hefur verö þeirra alltaf veriö heldur hærra en
verð einfaldari tækja. Með nýjum samningum
viö GRUNDIG verksmiöjurnar hefur okkur
tekist aö stórlækka verö tækjanna.
Litsjónvörp frá GRUNDIG eru því nú í
beinni verösamkeppni við hin ódýrustu á
markaðinum.
SuperColor42IO
Hyndlampastærð 20"
Fyrraverð
kr. 297700
Nýttverð
kr. 259.600
Tökum Super Color 4210 sem dæmi, tækiö á
myndinni hér aö ofan. Þaö er með 20" mynd-
lampa, traust og skemmtilegt á allan hátt.
Verö þess lækkar um kr. 38.100.
Fyrir hóflegt verð bjóöast þér nú litsjónvarps-
tæki frá viöurkenndum v-þýskum verk-
smiðjum. Tæki meö mestu myndgæðum, sem
litsjónvörp geta náö.
ÞAÐ ER ÁSTÆÐA TIL AÐ TREYSTA
GRUNDIG
24klst
Super Color 8200 TS (26")
Fyrra verö kr. 525.300
Nýtt verö kr. 489.600
Super Color 2230 (20")
Fyrra verö kr. 332.100
Nýtt verö kr. 281.100
Super Color 4600 (22")
Fyrra verö kr. 411.100
Nýtt verö kr 368.400
Super Color 1630 (16")
Fyrra verö kr. 289.400
Nýtt verð kr. 269.500
Super Color 3200 (22")
Fyrra verö kr. 363.900
Nýtt verö kr. 325.300
Super Color 1620 (16")
Fyrra verö kr. 268.100
Nýtt verö kr. 249.100
Myndlampa-
ábyrgð í
GRUIIDI
Leiðandi fyrirtæki
á sviði sjónvarps
útvarps og hljómtækja
Þroslur Magnusson
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150.