Tíminn - 29.11.1968, Blaðsíða 6

Tíminn - 29.11.1968, Blaðsíða 6
FÖSTUDAGUR 29. nóvember 1968. TÍMIN N Hér fara á eftir stuttir kaflar úr ræðu þeirri, er Ásgeir Bjarna son flutti, þegar hann mælti fyrir frumvarpi um að lausaskuldum bænda verði breytt í föst lán. Það er kunnugra manna mál, að viss hluti bænda eigi í miklum fjárhagserfiðleikum og það svo, að ekki verði hjá því komizt að greiða götu þeirra með því að breyta lausaskuldum í föst lán og með skuldaskilum hjá öðrum. Samhliða þessu verður heldur ekki fajá því komizt að greiða úr skulda erfiðleikum hjá fyrirtækjum bænda. Hefur snúizt við Þegar lögum um ræktunarsjóð íslands og byggingarsjóð var breytt í núgildandi lög um stofn lánadeild landbúnaðarins, fór fram samkv. sérstökum 1. breyt ing á lausaskuldum bænda i föst lán. Það verður því að ætla, að lausaskuldir bænda hafi ekki verið ýkja miklar um það leyti, sem stofnlánadeild iandbúnaðarins hóf göngu sína. Skýrslur sýna það, að aðeins þriðji hluti skulda bænda hafi þá verið lausaskuldir, en 2/3 hlutar veðbundin lán. Nú er þessu öfugt farið, þar sem lausaskuldirnar eru 2/3 og veðbundnar skuldir um 1/3 af heildarskuldum bænda. Landbún aðarráðherra taldi í sambandi við stofnlánadeildina, að það mundi ekki þurfa framvegis að safnast lausaskuldir, því að svo vel hefði viðreisnarstjórnin, séð fyrir lána þörf landbúnaðarins. í sama streng tók núv. fjármrh., sem fann upp sérskattinn á bændur, stofnlána deildarskattinn. Síðan hefur viðreisnarstjórnin ráðið lögum og lofum í landinu um margra ára skeið. En hvernig stend ur þá á því, að lausaskuldir hafa safnazt í jafn ríkulegum mæli og dæmin sýna? Lengst af á þessum tíma hefur verið góðæri. Getur það verið, að stefnan hafi verið vitlaust mörkuð í upphafi, að þar hafi verið breytt um til hins verra frá því, sem áður var? Röng stefna Tekin var upp röng stefna í landbúnaði nákvæmlega eins og með aðra atvinnuvegi. Á þessum árum hefur skapazt öryggisleysi í stað öryggis, og jafnt og þétt graf izt undan atvinnulífi þjóðarinnar og það, sem við blasir, eru við tækari vanskil og greiðsluþrot, en áður hafa þekkzt í sögu þjóðar innar. Fjórar gengisfellingar, sem hafa hækkað erlendan gjaldeyri um 441%, segja til sín. Erlendar lán tökur, sem átt hafa sér stað að undanförnu og nema í senn á 15. milljarð kr., segja sína sögu. Út þenslan og stjórnleysið í fjármál um þjóðarinnar koma ekki síður við bændastéttina en aðra. Hækk un vaxta af stofnlánum núverandi stjórnar var í upphafi 60—70% frá því sem áður gilti og stytting lánstíma. Þetta hvort tveggja seg ir sína sögu, svo að ekki sé talað um stofnlánadeildarskattinn, sem e-r alíslenzkt fyrirbæri og enginn landbúnaðarráðherra í víðri veröld hefði gert talsmaður fyrir, nema Ingólfur Jónsson. Þetta þrennt, hækkun vaxta, stytting lánstíma og sérskatturinn er stór þáttur í því að til lausa skulda hefur komið í stórum stíl hjá bændum samhliða því, sem mati á framkvæmdum hefur verið haldið niðri, til þess að draga úr lánsfjárupphæðum. Þá er það vitað mál, að á þessum tíma hefur byggingakostnaður margfaldazt og varla er hægt að koma upp einni íbúð fyrir minna en 1 millj. kr. en lán út á þessar íbúðir hefur verið um það bil % hluti af heild arkostnaði íbúðarinnar. Sama máli gegnir með vélvæðinguna. Þar eru lánin um það bil Vs hluti af því, sem aflvélar kosta og ekki neitt til tækjakaupa í sambandi við vélarnar. Allar vélar og tæki hafa hækk að stórkostlega á einu ári. Lítil Loftpressur - gröfur Tökum að okkur múrbrot og sprengingar og einnig gröfur til leigu. Vélaleiga Símonar Símonarsonar, sími 33544. SANDVIK SNJÓNAGLAR Á hjólbörðum negldum með SANDVIK snjónöglum getið þér ekið með öryggi á hál- um vegum. SANDVIK pípusnjónaglar fyrir jeppa, vörubíla og lang- ferðabíla taka öðrum snjó- nöglum fram. Gúmmlvinnusfofan h/f Sklphoiti 35 — Sími 31055 — Reykjavík. heimilisdrátttarvél, sem kostaði fyrir ári 109 þús. 594 kr. kostar nú 188 þús. 762 kr. eða hækkar um 72%. Bændur borga tvær krónur af hverjum þrem Stofnlánadeild landbúnaðarins hefur fró öndverðu reynzt allt önn ur en hún var í upphafi túlkuð, eins og stjórnarstefnan öll, enda einn anginn af viðreisninni. Því að hefði hiún verið rétt uppbyggð væru lausaskuldir landbúnaðarins minni en þær nú eru. Tekjur stofnlánadeildar á árinu 1967 eru 94 milljónir 263 þús. 746 kr. Af þeim tekjum koma frá bændum 62.8 millj. kr. á móti 31.4 millj. annars staðar að, sem aðallega er frá ríkinu. Lántökugjöldin, sem eru 1. 3. millj. eru borguð af bændum og einnig vextir til stofn lánadeildarjfnnar, sem eru 42 millj. 945 þús. 798 kr. Aftur á móti geri ég ráð fyrir, að 565 þús. rúml., sem er stóreignaskattur komi annars staðar að. 1% álag á landbúnaðarvörur þ. e. 17 millj. 101 þús. 46 kr. kemur frá bænd um og að sjálfsögðu kemur hluti af 0,75% álaginu líka á neyzluvör- ur bænda eins og annarra neyt- enda í landinu, þannig að það er ekki ofsögum sagt, að bændur borga 2 kr. af hverjum 3, sem stofnlánadeildin hefur í tekjur og það er alveg öfugt við það, sem áður var. Stofnlánadeildin er upp byggð af tekjum frá bændum í staðinn fyrir að áður fyrr var rækt unarsjóður og byggingarsjóður byggðir upp með tekjum annars staðar að. Erlendar skuldir stofnlánadeild arinnar 31. desember 1967 voru 234 millj. 646 þús. 922. kr. En hvað hafa þessar skuldir hækkað nú? Ef ekki hefur verið borgað af þessum skuldum á árinu hækka þessar erlendu skuldir í 362 milljónir, og hækka því um 127 millj. kr. við þessa síð ustu gengisbreytingu. Þarna er viðreisninni og stjórn arstefnunni kannski hvað gleggst lýst. Hún grefur uindan atvinnuveg unum, grefur undan stofnlánasjóð um, eyðir eignum með hverju ári sem líður. En hvernig er það með veðdeild Búnaðarbankans? Stofn lánadeildin átti að vera þess megn ug að kaupa 10 milljónir króna bankavaxtarbréfa árlega af veð deild, en útkoman í öll þessi ár er hins vegar sú, að stofnlánadeild in hefur ekki getað keypt banka 'vaXtabréf veðdeildarinnar nema aðeins 5 millj. kr. á öllu þessu tímabili. Hins vegar bíða nú á 2. hundrað bændur eftir lánum úr veðdeildinni og mun heildarláns upphæð nema allt að 20 millj. kr. og miðast þetta við hámarks lán 200 þús., sem orðinn er býsna lítiil peningur, þegar keyptar eru jarðir fyrir 1 og allt upp í 3 millj. kr., eins og átt hefur sér stað á undanförnum árum. Hér vantar því tvennt, hærri lánsupphæðir til hvers og eins og meira fjármagn og að tryggja fjármagn veðdeild arinnar í framtíðinni. Það hefur ekki tekizt, enda þótt það væri talið öruggt fyrir nokkrum árum síðan, að stofnlánadeiljlin leysti þann vanda. Hér á Alþingi liggur fyrir frv. um veðdeildina frá okkur Fram sóknarmönnum og mundi það, ef að lögum verður, bjarga miklu í þessum efnum. I Hlutur bóndans Árið 1958 vor framlög ríkisins i vegna fjárfestingar í landbúnaði | um 19% og stofnlán í sama skyni ! 25,5% þannig að annað fjármagn, eigin vinna og önnur lán nam 56,5% 1958. Hins vegar hefur þró unin orðið sú allt til ársins 1964 og ég býst við, að það hafi snúizt á sömu sveif síðan, þó að ég hafi ekki séð endanlegar tölur um það, að þá voru 18% fram lög frá rfki og 18% stofnlán eða 36% samtals, en 64% eigin vinna Og önnur lán, sem komu frá bænd um. Hlutur bóndans er þvíi 64% í stað 56% áður. | Á þessum verðbólgutímum nem- ur þetta háum upphæðum hjá um bótamönnum. Opinber framlög miðað við heildarkostnað fram- kvæmdanna hafa farið minnkandi. Sama máli gegnir um stofnlánin sem líka eru óhagstæðari en áður var. En þetta stuðlar allt að auk inni lausaskuldasöfnun samhliða því, sem verðlag búvara hefur ekki skilað bændu-m þeim tekjum, sem verðgrundvöllur gerir ráð fyrir, að bændur fái. Árið 1967 skilaði verðlagsgrund völlurinn bændum í meðalárstekj ur ekki nema 93 435 kr. eða 105 þús. kr. minna en grundvöllurinn gerði ráð fyrir það sama ár. Þess ar tölur eru samkv. úrtaki Hag- stofu íslands fyrir s. 1. ár og er meðalbú samkv. því úrtaki 317 ær gildi og lætur það mjög nærri því, að það hafi verið eins og meðalbústærðin, sem verðlagið var miðað við Verðlagsúrskurður inn haustið 1967 á eftir að verða bændum dýr eins og öllum, er til þekktu var ljóst þegar í upphafi og mun hann eiga sinn þátt í skuldaaukningu bændastétttarinn- ar, sem talin er verá að meðaltali 60—70 þús kr. frá árinu áður eða úr kr. 266 þús í 320-330 þús kr. samkvæmt því úrtaki, sem ég gat um hér áðan. Kaupið og verð- grundvöllurinn í verðlagsgrundvelli fyrir sama ár eru skuldir aðeins taldar vera 132 100 kr. eða 193.000,- kr. lægri en þær raunverulega eru samkv. úrtaki Hagstofunnar. Það er því fjarri öllu lagi að halda því fram að bændur fái alla vexti inn í verð lagið og það skipti þá engu máli, hverjir vextirnir eru, eins og landbúnaðarráðherra hélt mjög margar og hjartnæmar ræður um fyrir nokkrum árum síðan, að vext irnir skiptu bændur engu máli, því að þeir færu inn í verðlagið og þeir yrðu af öðrum greiddir. Það er óhætt að fullyrða, að það eru alltaf um það bil 20 þús. skuldavextir af meðalbúi, sem aldrei komi inn í verðlagið auk þess, sem það eru ekki reiknaðir vextir af öllu því kapitali sem bónd inn á í jörð, vélum og bústofni. Hér hefur því breikkað verulega bilið frá því, sem áður var að því hvað vextagreiðslur snertir samkv. verðlagsgrundvelli land búnaðarafurða. Árferði, sérstaklega nú 3 síðustu árin, hefur valdið bændum í viss um landshlutum miklum erfiðleik um og hefur orsakað hækkun á lausaskuldum. Það er erfitt hjá umbótabændum, þótt ekki séu harðindi, hvað þá hinum, þegar um er að ræða heykaup og kaup á fóðurbæti í stórum stíl eins og átt hefur sér stað í vissum lands hlutum nú um skeið. Frv. þetta fjallar eingöngu um það að breyta lausaskuldum bænda og fyrirtækjum þeirra í föst lán með hagkvæmum kjör um. Hitt er jafnljóst, að þeir bænd ur munu vera til, sem ekki verð ur bjargað með þessu frv., ef að lögum verður, því að þeir eru í það miklum fjárhagserfiðleikum að þeim gagnar ekki neitt nema skuldaskil. Það er eins með þá og mörg útgerðarfyrirtæki að þar verður að grynna á skuldum til þess að rekstrarhæfur grundvöll ur skapist. Þarf að söðla um Á vegum harðærisnefndar, fer nú, fram víðtæk athugun á efna hag bænda. Fyrst mun þessi atihug un hafa átt að ná einungis til þeirra bænda í þeim landshlutum, sem verst eru settir. Nú er ákveð ið, að þessi athugun nái til allra bænda í landinu. Ég vona að út úr þessari athugun komi mjög glöggt yfirlit yfir skuldamál land búnaðarins, svo að miklu auðveld ara en ella sé að taka þessi mál raunhæfum tökum. Verðlagsúrskurðurinn haustið 1967 var bændum afar óhagstæður enda komið í ljós, að af 198 þús. kr. sem bændur áttu að fá í laun það ár, fengu þeir aðeins 93 þús. og nú sem fyrr lang tekjulægsta stétt þjóðarinnar. Heildarskuldir bænda eru hátt á 2. milljarð kr. og þá ótaldar skuldir fyrirtækja þeirra, sem eru mjög háar. Síð ustu efnahagsaðgerðir boða ekki góða hluti. Þar blasir við mikil hækkun á öllum rekstrarvörum landbúnaðarins, gengisbreytingin í fyrra var mjög óhagstæð bænd- um. Svo mun og verða um þessa gífurlegu gengisbreytingu, erlendu lántökum og skattahækkunum, eins og gert hefur verið í tíð við- reisnarinnar. Hér þarf að söðla

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.