Tíminn - 03.12.1968, Page 2
2
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 3. dcsember 1963.
Max von Sydow í Stund úlfsins.
ULFSINS
KVIK-
MYNDIR
TðMI
Tími úlfsins á frummálinu
Vargtimmen.
Leikátjóri: Ingmar Bergman
handrit er einnig eftir hann
byggt á dagbók listmálarans
Johans Borg sem hvarf spor
laust fyrir nokkrum árum af
eyju í Frísneskaeyjaklasanum
og munnlegri frásögn eigin-
konu hans Ölmu.
Tónlist:Lars Johan Werle,
Kvikmyndari: Sven Nykvist
sænsk frá 1968 sýningar-
sítaður: Bæjarbíó, HafnarfirSi.
„Stundum skilur maður
hvorki upp né niður“ í þess-
um orðum sem lögð eru í
munn Ölmu Borg (Liv Ull-
man) endar þessi nýjasta
mynd Bergmans.
Á meðan titill myndarinnar
og upptalning leikara og
þeirra sem unnið hafa að
myndinni er sýnt, heyrist
rödd Bergmans og hamars-
högg eins og verið væri að út
búa leiksvið. Síðan
byrjar frásögn Ölmu af til-
drögum að veru þeirra á eynni
og dvöl þeirra þar.
Kyrrðin og einveran hafa
ekki þau áhrif á Johan (Max
von Sydov) sem þau vonuð-
ust eftir, hann er hræddur,
þjáist af ofskynjunum, svefn-
leysi og myrkfælni og getur
þessvegna ekki einbeitt sér að
list sinni sem skyldi. Hann
rissar upp djöflana sem
ási’kja hann, köngulóarmaður-
inn, gömul kona með hatt,
þegar hún tekur hann ofan
fylgir andlitið með, fuglamað
urinn sem líkist Papageno í
Töfraflautumii, Johan álítur
hann kynviltan, viðurstyggileg
kerlingarherfa sem leitast við
að bíta hann og drekka úr
honum blóðið. Heill herskari
af illum öndum og fordæðum.
Stuttu seinna birtist gamla
konan Ölmu og segir henni nð
lesa dagbók Johans, hann er
í skóginum að mála. Þar er
nákvæm lýsing á sálarkvöl
hans og hugarhrellingum for-
boðin ást hans til Veronicu
Vogler (Ingrid Thulin) sem
endaði með skelfingu á mik-
inn þátt í núverandi liugar
stríði hans. Skyndilega birtist
hún honum með merki for-
dæðunnar á brjósti sinu og
segir Johan hafa merkt sig.
Skuggaleg höll er á eynni,
þar dveljast greifahjón ásamt
gestum sínum, þau bjóða
Borghjónunum til kvöldverð-
ar. Við borðið upphefst inn-
antómt skvaldur um list og
Johan fpurður í háðstón
„Hvað álítið þér hr. lista-
maður?“ Hann kvelst undir
holu augnaráði þessa skilnings
sljóa illviljaða fólks og segir
þessi furðulegu orð eftir að
greifinn hefur sýnt smáþátt
í brúðuleikhúsi úr Töfraflaut-
unni „spegillinn er brotinn,
hvað sjáum við í brotunum? “
Þau ganga heimleiðisi gegn
um rökkvaðan skóginn og
Alma getur ekki leynt afbrýð
issemi sinni vegna Veronicu
en greifafrúin er nýbúin að
að sýna henni málverk eftir
Johan af henni.
Nótt eftir nótt vakir Alma
með manni sínum og erfiðasta
stundin er fyrir dögun, þá
deyja flestir, fæðast flestir,
martröðin hryllilegust, svefn-
inn dýpstur og þeir svefnlausli
þjáðastir. Áður fyrr trúði
fólk því að menn breyttust f
varúlfa sem reikuðu um mörk
ina unz þeir drápu einhvem
og mettuðu sig á blóði.
Þegar Johan er úti að veiða
um daginn kemur drengur til
hans og snuðrar kringum hann
Johanni er greinilega ami að
nærveru hans og svo fer að
hann ræðst að honum og eftir
nokkur átök drepur hann
drenginn og hendir líkinu í
sjóinn. Hvort þetta er raun-
verulegt eða ekki fáum við
ekki að vita.
Greifinn kemur og býður
þeim aftur til hallarinnar í
tilefni af komu Veronicu
Vogler, hann leggur byssu á
borðið fyrir framan Johan og
fer. Johan skýtur þremur
skotum að konu sinni „ég er
enn með ör á handleggnum
eftir það“ segir hún, síðan fer
hún í felur meðan aeðið er að
renna af honum.
Þegar Johan kemur til hall-
arinnar verða ofsjónir hans að
veruleika, gamla konan tekur
andlitið af sér og úr sér augun
og Iætur þau í íómt glas.
Köngulóarmaðurinn gengur eft
ir veggnum og Ioftinu, fugla
maðurinn kemur og málar
Johan eins og hóru og dúfurn
ar fljúga í mannauðum göng
unum og krákurnar garga. í
kertalýstum sal liggur Vero-
nica á líkbörum, hann fer
höndum um líkama hennar og
hún rís hlæjandi upp, í sinni
nöktu fegurð, þá heyrir hann
spottandi hlátur, ást hans hef
ur gert hann að athlægi.
Alma fcr að leita hanSi og
sér ljóslifandi djöflana tæta
Johan í sig í skóginum. Mynd
in endar á efasemdum hennar,
hvort ást hennar hafi ekki
verið nógu sterk til að vernda
heittelskaðan eiginmann gegn
ófögnuði þessum og hvort ást
hcnnar á honum hafi gert það
að verkum að hún sá djöflana
þessa nótt, því að fólk dregur
dám hvort af öðru eftir langa
sambúð.
Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem Bergman lætur persónur
sínar sjá sýnir, í Sjunde in-
siglet sér riddarinn dauðann og
teflir skák við hann um lífið
einnig Jof því hann er lista-
maður og heilög guðsmóðir
birtist honum með barnið.
Isak Borg í Smultronstallet
sér bernskuheimili sitt og
fjölskyldu eins og hún var
f;*ir aldarhelmingi. I Junefru
kallen heyrir Ingeri hófatök
hestanna er draugar ríða. Og
Karin í Sásom i en spegel
trúir því að Guð birtist henni
og heyrir raddir bak við vegg
fóður í geymluherbergi. Og
dyrnar opnast og Guð er
könguló sem þrengir sér yfir
hana. f Djavulens öga gengur
skrattinn ljósum logum á prest
setrinu og þegar prestinum
tekst að fanga hann skrifar
hann dagbók um djöful í skáp.
f dag bók fóður síns sér Karin
í Sásom i en spegel að, hann
fylgist með sjúkdómi hennar,
geðveikinni af miklum áhuga.
Og einangrun persóna til að
draga skýrar fram í dagsljós
ið sálarlíf þeirra notar Berg
man í Sásom í en spegel,
Tystnaden og Persona.
Það eru margar spurningar
sem sækja á hugann t.d. vegna
hvers Alma reynir ekki að fá
mann sinn til að fara til lækn
is þar sem hann á greinilega
við mikla hugarkvöl að stríða.
Og það liggur við að maður
sé honum sammála að eina
lausnin frá þessum písíum sé
að hverfa.
Liv Ullman hentar betur í
þetta hlutverk en sem leik-
konan Elisabeth Vogler í
Framhald á bls. 11.
Trygginga-
skrifstofa
í Bankastræti
Til að bæta þjónustuna við viðskiptamenn í mið- og vesturbæ var opnuð umboðs-
skrifstofa í Samvinnubanka Islands, Bankastræti 7, sem annast um hvers konar
nýjar tryggingar, nema bifreiðatryggingar. Það er sérlega hentugt fyrir viðskipta-
menn á þessu svæði að snúa sér til hennar með hækkanir og breytingar á trygg-
ingum sínum svo og iðgjaldagreiðslur.
VIÐ VILJUM HVETJA VIÐSKIPTAMENN TIL AÐ NOTA SÉR ÞESSA ÞJÓNUSTU.
SAMVI r\>iUTimiG INGAR
IÁFTHVGGINGAFÉLAGIÐ ANDVAKA
BANKASTRÆTI 7, SlMAR 20700 OG 38500