Tíminn - 03.12.1968, Qupperneq 6

Tíminn - 03.12.1968, Qupperneq 6
6 TIMINN ÞRIÐJUDAGUR 3. descmbcr 1968. Atvinnuleysí verði útrýmt Tillögur ASÍ-þings um aðkallandi aðgerðir til eflingar dtvinnulífinu f vaxandi mæli hefur verið gengið á snið við innlend fyrirtæki um að vinna ýmis verk, sem þjóð hagslega hagkvæmt hefði verið að fela þeim, t.d. í skipasmíði. EJ-Reykjavík, föstudag. — í á- lyktun 31. þings Alþýðusambands íslands um atvinnumál, sem áð- ur hefur verið minnzt á hér í blaðinu, er þróunin í atvinnumál- um ítarlega lýst og yfirvofandi atvinnuleysi, verði ekki á móti spyrnt. Þingið gerði síðan tillög- ur um aðkallandi aðgerðir til efl- ingar atvinnulífinu og útrýming- ar atvinnuleysi í landinu í 15 lið- um, svohljóðandi: ,1. SMpaðar verði atvinnumála nefndir í öllum kjördæmum lands ins a.m.k. tveir nefndarmanna verði tilnefndir af A. S. í. og verka lýðsfélögum í kjördæmunum. Nefndirnar hafi það verkefni að atíhuga atvinnuástand og horfur í viðkomandi landshluta og gera til lögur um aðgerðir og úrbætur gegn atvinnuleysi og til atvinnu- aukningar, jafnframt því að sjá um framkvæmdir í sambandi við bráðabirgðaráðstafanir. Stjórnvöld tryggi fjármagn til þeirra aðgerða og framkvæmda er nefndirnar telja nauðsynlegar. At vinnumálanefndirnar starfi í sam- ráði við atvinnuraálastofnun. 2. Ríkisstjórnin hiutast til um það, að aukin verði til muna rekstrarlán — frá því sem nú er — til þeirrar atvinnustarfsemi, sem mikla þýðingu hefur fyrir framleiðslustarf þjóðarinnar. Verði með þeim hætti kappkost- að að örva atvinnulífið og koma í veg fyrir tíðar stöðvanir sem orðið hafa í framleiðslustarfinu, vegna skorts á rekstrarfé. Ríkisstjórnin geri ráðstafanir til þess að Atvinnuj öfnunarsj óð- ur noti heimild sína til lántöku innanlands eða erlendis, svo sjóð- urinn geti betur en nú er, greitt fyrir atvinnufyrirtækjum og sveit arfélögum, með lánum úr sjóðn- um til að leysa aðsteðjandi fjár- hagsvandamál, svo að atvinnufyr- irtæM haldi áfram fullum rekstri og að þær framkvæmdir er nú standa yfir stöðvist ekki. 3. Gerðar verði ráðstafanir til að hafin verði endurnýjun togara flotans, í formi skuttogara og byggð ekki færri en 4 til 5 skip árlega á næstu árum. Upplýsinga verði aflað um gerð togara bún- að þeirra og veiðitæM frá þeim þjóðum, sem nýjustu reynslu'hafa um nýbyggingu togara og þær upplýsingar hagnýttar eftir því, sem það samrýmist íslenzkum að- stæðum. Ennfremur verði byggðir ár- lega ekki fterri en 15—20 fisM- bátar sem vel henta til þorsk- veiða við landið á öllum tímum árs. Ráðstafanir verði gerðar til að föst lán, til langs tíma þ.e. 15 til 20 ára — verði ekki lægri en, sem svarar til 90% byggingar kostnaði hinna nýju skipa með hagstæðum vaxtakjörum. 4. Ráðstafanir verði gerðar til áð auka fjölbreytni í framleiðslu sjávarafurða. Niðursuðuiðnað- urinn verði efldur og aukinn, með nauðsynlegri aðstoð þess op- inbera fyrst og fremst til að aíla markaða erlendis og til að koma á fót öflugri sölustofnun fyrir framleiðsluna. 5. Fiskiðnaðarfyrirtækjum verði veitt hagkvæm lán til hæfi- lega langs túna til að koma í fram kvæmd nauðsynlegum umbótum á rekstri fyrirtækjanna m.a. verði lögð áherzla á umbætur við geymslu og meðferð hráefnisins. I því sambandi verði settar regl- ur um að allur sumarveiddur fisk ur og jafnvel vandgeymdur fisk ur á öðrum tíma s.s. ýsa verði lagður og geymdur í kössum, þannig að vörugæði og verðmæti framleiðslunnar aukist. 6. Að hafin verði af stjórnar- völdunum nauðsynlegur undirbún ingur að útfærsíu fiskveiðiland- helginnar í samræmi við lög um vísindalega vemdun fiskistofna á landgrunni víð fsland, og útfærsl- an komi til framkvæmda svo fljótt, sem kostur er. Jafnframt verði unnið að því, að skipuleggja fiskveiðar lands- manna, með það fyrir augum að fiskveiðarnar geti orðið stundað- ar á svo hagkvæman hátt sem kostur er fyrir þjóðarheildina og um leið sporna við ofveiði eða rányrkju á fiskimiðunum.a 7. Stöðugt verði haldið úti sMpum til að leita að nýjum fiski miðum á þeim hafsvæðum sem íslenzku fiskiskipin geta sótt á til veiða. Þar á meðal veröi haldið áfram leit að nýjum rækju- og humarmiðum. 8. Gerðar verði sérstakar ráð- stafanir af hálfu hins opinbera til að létta innlenda iðnaðinum áð standast hina hörðu samkeppni við hömlulausan innflutning er- lends iðnaðarvarnings og koma í veg fyrir frekari samdrátt í iðn- aði. Um þriðjungur launafólks hefur atvinnu við iðnaðarstörf. Efling og vernd íslenzks iðnaðar er því áhrifamikið ráð til atvinnu öryggis. í þessum tilgangi verði gerðar eftirfarandi ráðstafanir. A takmarkaður verði eða bannáð- ur innflutningur á þeim iðnaðar- vörum og smíði, sem íslenzkur iðnaður hefur sýnt, að hann er samkeppnisfær um verð og vöru- gæði. B auMð verði rekstrarfé iðnaðar- ins, m.a. með þv£ að iðnaðurinn fái sömu kjör um endurkaup fram leiðsluvíxla í Seðlabankanum eins og aðrir framleiðsluatvinnuvegir. C felldir verði niður, eða stór- lækkaðir tollar af innfluttu hrá- efni og vélum til iðnaðarins. D ríki, bæjarfélög og aðrar opin- berar stofnanir kaupi fyrst og fremst innlenda iðnaðarfram- leiðslu tii notkunar á sínum veg- um. Jafnframt verði kappsamlega unnið að því að auka fjölbreytni í iðnaðarstarfssminni, sérstáMega framleiðslu úr innlendum hráefn- um svo sem sMnnavöru, ullarvöru o.fl. E Þar sem nú er að rísa upp ný grein iðnaðar í landinu — ál- iðnaður — sé skipulega að því unnið að koma á fót arðbærum hliðariðnaði í eigu landsmanna er framleiði úr hráefni frekar unn- ar iðnaðarvörur með útflutning fyrir augum. 9. SMpasmíðastöðvum verði tryggð nauðsynleg lán til nýsmíði skipa, svo þeim verði fært að bjóða útgerðarmönnum jafn i hag- stæð greiðslukjör, eins og erlend- ar sMpasmíðastöðvar bjóða. Jafn framt verði gerð framkvæmdaá- ætlun fyrir næstu ár, varðandi smíði fiskiskipa í innlendum skipasmíðastöðvum. Séð verði um að allar viðgerðir og viðhald ís- lenzkra sMpa verði framkvæmt £ landinu hamli ekki sérstakar á- stæður. 10. Tekið verði, lán, innanlands eða erlendis, að upphæð 200 til 250 milljónjr króna, fyrir Bygg- ingarsjóð rikisins, svo hægt verði áð leysa hina miklu lánaþörf fyr- ir byggingu fbúðarhúsa og með þv£, að smfði íbúðarhúsnæðis geti haldið áfram með eðlilegum hætti. 11. Hafin' verði tfmanlega i vet ur ftarleg athugun á því hvemig verði haganlegast komið við flutn ingum á sild frá fjarlægum mið- um til fullverkunar i salt og fryst ingu þegar sfldin veiðist langt frá landinu. Verði þessi athugun gerð í ljósi þeirrar reynslu sem fékkst með flutningi sfldarinnar á s-L sumri. Kostað verði kapps um, að ekki verði endurteMn framvegis sú raunarsaga, að hag- stæðum sölusámningum saltsfldar verði ekM fullnægt nema, um það bil til hálfs, eins og horfur eru að verði á þessu ári. 12. Tunnuverksmiðjur ríkis- ins verði reknar með ftfllum af- köstum a.m.k. 5 til 6 mánuði að vetrinum og komið verði upp nauðsynlegum tunnugeymslu- ■ húsum við verksmiðjumar. 13. Auknar verði fjárveitingar til hafnarframkvæmda, svo hafn- irnar sem miMa þýðingu hafa fyr- ir fiskvedðamar og era margar enn opnar fyrir úthafsöldu, verði sem fyrst ömggt lægi fyrir báta og sMp viðkomandi staða og fyr ir tafalitilli afgreiðslu flutmnga- sMpa. 14. Skipulega verði unnið að markaðsleit og sölu erlendis á framleiðsluvörum landsmanna, undir ströngu eftiriáti og forystu ríMsins. Ráðstafanir verði gerðar til þess, að sölumálin verði í hönd um hinna hæfustu aðila, sem vðl er á og ekM dreift á fleiri hend- ur en hagkvæmt getur talizt, til að tryggja svo vel, sem kostur er hagkvæmustu þjónustu í þessu efni fyrir atvinnuvegina og þjóð- arhéildina. 15. Lögð verði áherzla á, að framtíð flugfélaganna, sem hafa á annað þúsund launþega í þjón- ustu sinni, verði tryggð með já- kvæðum aðgerðum hins opinbera, ef þörf krefur. Vitað er, að innri og ytri aðstæður geta teflt fram- tíð þessara mikilvægu þjónustu- greinar — fluginu — í hættu í nánustu framtíð. Er því nauðsyn- legt að þegar sé hugað að þess- um málum í samráði við forráða- menn flugsins, eigendur og starfs menn, og ráðstafanir gerðar í tíma, er geti forðað hnignun í flugmálum landsmanna. Rfldsvaldið verður þegar í stað að hefjiast handa um aðgerðir og framkvæmdir, alls staðar sem þess er þörf til að fyrirbyggja at- vinnuleysi og skort. Haldbezta ráðstöfunin til þess er að tryggja að öll atvinnutæki þjóðfélagsins verði fullnýtt með hagsmuni þjóð arheildarinnar fyrir augum. Frumþörf hvers vinnufærs manns er fullnægjandi atvinna er nægi til tekjuöflunar til mann- sæmandi lífs — frumskylda sér- hverra stjóýnvalda er að tryggja þessi sjálfsögðu mannréttindi. Yfirlýsingar og fyrirheit stjórn valda um úrbætur í atvinnumál- um — án athaína — sætta verka- lýðssamtöMn sig ekki við og krefj . ast tafarlaust raunhæfra aðgerða | gegn atvinnuleysinu". ÁLAFOSS 1 GÓLFTEPPI Lykkja F/os y;„ . . "• . ÁLAF0SS WILTON-VÉFNAÐUR UR iSLENZKRI ULL

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.