Tíminn - 10.12.1968, Qupperneq 3
MUÐJUDAGÍJR 10. desember 1968.
TIMINN
Jólabingó
Hið árlega jólabingó
Framsóknarfélags Reykja-
víkur verður haldið að
Hótel Sögu n.k. sunnudag
kl. 8,30. Fjöldinn allur af
stórglæsilegum vinningum.
Allt dregið út. Aðgöngu-
miða má panta á skrifstofu
Framsóknarfélaganna i
síma 24480. Nánar verður
sagt frá bingóinu á morg-
un.
80 manna hljóm-
s veit / Háskólabtó
Hl jómsveitin, sem leika mun I Háskólabíól.
Desember veröi „frímánuður"
FB-Reykjavík, laugardag.
1. desember er síðasti gjald-
dagi opinberra gjalda á ári
hverju, eins og kunnugt er. Þá
verða menn oft að greiða háar
fjárupphæðir, þótt svo sé reyndar
með flesta, að þeir séu sízt af-
lögufærir jólamánuðinn. Hafa
margir látið þau orð falla, að hag
kvæmt væri fyrir gjaldendur, að
desember væri frímánuður, í stað
janúar, en þá eru gjöld ekki tek-
in af launum manna.
Við snerum okkur til gjald
heimtunnar, og spurðumst fyrir
um það, hvort nokkuð hefði kom
ið til tals hjá stofnuninni, að
breyta þessu fyrirkomulagi. Var
okkur tjáð, að um það hefði ekki
verið rætt. Aleðan tollstjóri og
með inn-
heimtu gjalda að gera, og' gjald
heimtan hafði ekki verið sett á
laggirnar, voru engin gjöld inn-
heimt í desember Nú eru gjald
•&• Fundir voru í báðum deild-
um Alþingis í gær og urðu m. a.
nokkrar umræður um frumvarp , _ .
ríkisstjórnarinnar um að fela land _.x „
búnaðarráðherra einum að skipta
gengishagnaði landbúnaðarins,
sem nemur um 150' milljónum.
Taldi Eysteinn Jónsson að nauð
synlegt væri að kveða á um það
í frumvarpinu, hvernig verja
skyldi gengishagnaðinum. Bændur
ættu hann og ætti hann fyrst og
fremst að ganga til þess að
tryggja þeim fullt grundvallar-
verð fyrir afurðir sínar. Óskaði
Eysteinn eftir að landbúnaðarráð
herra gæfi um þetta yfirlýsingu,
en hann var ófáanlegur til þess
þrátt fyrir ítrekaða áskorun. Nán
ar verður sagt frá þingstörfum m.
a. framsöguræðu Kristjáns Thorla
cius fyrir frumvarpi um verð-
lagsuppbætur á tryggingabætur
svo og nýjum þingmálum í blað
inu á morgun.
dagarnir ákveðnir frá 1. febr. til
1. júlí og svo frá 1. ágúst til 1.
des.
EKH-Reykjavík, mánudag.
Væntanleg er tll landsins 80
manna hljómsveit, skipuð foriugj
um í amcríska og kanadíska flug-
hernum, og efnir hún til hljóm-
Ieika í Háskólabíói á fimmtudag
kl. 21.00. Aðgangur er ókeypis
og öllum lieimill.
Hljómsveitin sem hér um ræð-
ir nefnist „Norad Cavalcade of
Music“ og eru í henni hljómlist
armenn úr herjum Bandaríkj-
anna og Kanada, aðallega flug'
herjum. NORAD stendur fyrir —
Sameiginlegar loftvarnir Norður-
Ameriku. — Stjómandi hljóm-
sveitarinnar er Lt. Col. Vic Mol-
zer úr bandaríska flughernum.
NORAD Cavalcade of Music
byrjaði starfsemi sína í apríl 1959
og hefur síðan farið vítt og breitt
um meginland Norður-Ameríku
og Latnesku-Ameríku.
Ingibjörg Jónasdóttir sýnir á Mokka:
Fjörugróður frá Eyrarhakka
EKH-Reykjavík, mánudag.
Mikið hefur verið um málverka
sýningar í Reykjavík síðustu vik-
ur og mánuði, og hefur sumum
þótt nóg um. Á kaffihúsinu Mokka
var í gær opnuð annars konar sýn
ing á nær fimmtíu myndum gerð-
um úr fjörugróðri. Kaffiþyrstir
vegfarendur, sem litu inn á
Mokka meðan veri'ð var að setja
Lögreglumenn slösuðust
OÓ-Reykjavík, mánudag.
Tveir lögreglumenn slösuðust er
bíll sem þeir voru í lenti í hörð
um árekstri. Ökumaður hins bíls
ins slasaðist einnig.'Voru mennirn
ir allir fluttir á slysavarðstofuna
og er annar lögregluþjónninn mest
slasaður og var ekk; búið að full
rannsaka meiðsli hans í kvöld.
Lögreglumennirnir voru í einka
bíl á leið á vakt um kl. 21. Óku
þeir vestur Reykjanesbraut. Á
móts við Þóroddsstaði ók bíll við
stöðulaust af Litluhlíð og í veg
fyrir bílinn, sem lögreglumennirn
ir voru í. Varð áreksturinn mjög
harður og er annar bíllinn talinn
ónýtun og hinn er mikið skemmd
ur. Slösuðust báðir lögregluþjón
arnir og ökumaður bílsins sem ók
í veg fyrir þá var einnig fluttur
á slysavarðstofuna til aðgerðar.
Glæsiiegur Bieimavistar-
skóli risinn að Flúðum
SG-Miðfelli.
Á miðju sumri 1964 var hafin
bygging nýs heimavistarbarnaskóla
að Flúðum í Ilrunamannahreppi.
Gamli skólinn, sem tekinn var í
notkun 1929 og þótti þá eitt veg-
legasta skólahús í sveit, ætlaður
fyrir 20 nemendur, var orðlnn allt
/of lítill og úr sér genginn.
Grunnflötur hins nýja skóla er
um 1800 ferm. og - heimavistar-
álma á tveim hæðum, en í henni
eru einnig kennaraíbúðir.
Um þessar mundir er stórum
áfanga við skólabygginguna lokið,
er tekin verður í notkun kennslu
álma skólans, en í henni eru sjö
kennslustofur, þar af tvær ætl-
aðar fyrir handavinnu, auk þess
skrifstofa skólastjóra, ski-ifstofa
kennai-a og snyrtiherbergi.
Undanfarin ár hefur kennsla
farið fram í félagsheimili sveitar
innar og nú síðast í bráðabyrgða
stofum í heimavistarhúsnæði skól
ans. Viðbrygðin til hins betra
verða því mikil, þótt allmiklu sé^
ennþá ólokið af skólahúsinu í sam| bygginguna. En á þessu árabili
bandi við heimavist og eldhús. i hefur byggingarvísitala hækka'ð
Kostna'ður við hið nýja skólaium 72%, eða síðan framkvæmdir
hús er nú rúm tuttugu og ein • við skólahúsið hófust. Mega því
milljón, en upphafleg kostnaðar-' hreppsbúar allvel'við una, hvað
áætlun var átján milljónir tæpar, þetta snertir.
Sveitarfélag Hrunamannahr. hef
og hefur kostnaðaráætlun því far
ið 49% fram úr áætlun, miðað
við það, sem ennþá er óunnið við
ur nú lagt nokkru meira til skóla
Framhald á bls. 10
sýninguna upp urðu svo hrifnir
að ellefu myndir seldust þá þeg-
ar, þrátt fyrir allan sönginn um
kreppuna og fjárhagsvandræðin.
Myndir þessar úr þurrkuðum
fjörugróðri hefur Ingibjörg Jón-
asdóttir gert, kona sem hefur
þrjá um sextugt, og er búsett á
Eyrabakka. Blaðamaður TÍMANS
hitti Ingibjörgu á Mokka og varð
fyrst til að spyrja, hvenær hún
Framhald á bls. 23.
Á tónleikum í Háskólabíó koma
fram auk hljómsveitarinnar í
heild tveir minni hópar úr henni,
annað 18 manna hljómsveit, sem
leikur músík eitthvað í líkingu
við hljómsveitarleik Glenn Mill-
ers og annarra amerískra hljóm-
sveita af því tagi og svo 6 mgnna
„dixieland" jass hljómsveit.
Aðalfundur Fram-
sóknarfélags
Reykjavíkur
Framsóknarfélag Reykjavíkur
heldur aðalfund sinn í Framsókn-
arhúsinu fimmtudaginn 12. des
ember kl. 8,30 síðdegis.
Stjórnin.
Framsóknarkonur
Félag Framsólknarkvenna í
Reykjavík heldur jólafund sinn
fimmtudaginn 12. des. kl. 8.30 s.
d. í samkomusal Hallveigarstaða.
Dagskrá: Frú Sólveig Eggerz Pét
ursdóttir listmálari sýnir og
kennir jólaskreytingar. Sr. Sigurð
ur Haukur Guðjónsson flytur
ávarp. Félagsmál. Mætið stund-
víslega því fundurinn hefst á sýni
kennslunni kl. 8.30. Félagskonum
er heimilt að taka með sér gesti.
Stjórnin.
Ingibjörg með eina mynda sinna.
(Tímamynd Gunnar)
•s s ................. n w " '• <••• ws • • ,• -w
. ■
Heimavistarskólinn
FlúSum,
(Tímamynd OÓ)