Tíminn - 10.12.1968, Qupperneq 9
/
Flugfélagið vann
Alf.—Reykjavík. — Flugfélag,
. fslands sigraffi glæsilega í firma |
keppninni í innanhússknattspyrnu;
sem fram fór á sunnudaginn. Það
kom í sjálfu sér engum á óvart, |
að Flugfélagið myndi sigra, því|
a5 lið þess hefur innan sinna vé-
banda marga snjalla knattspymu-
menn, þ.á.m. Örn Steinsen og Grét
ar Sigurðsson. f úrslitaleiknum
’ sigraði Flugfélagið a-lið fram-
reiðslumanna 8:5.
Úrslit í einstökum leikjum urðu
eins og hér segir: I
Pr.sm. Edda — Kr. Ó. Skagfj. 7:3
Framr.menn a — Biæjarl. 9:0
Flugf. — Framr.menn b 10:1
Flugf. — Prentsm. Edda 6:2
Framr.menn a — Loftlei'ðir 4:2
Úrslitaleikur:
Flugf. — Framr.menn a 8:5
Knattspyrnuhetjurnar, taliS frá vinstri: Rúnar Gunnarsson, Andrés Ingólfsson, Karl Möller, Ólafur Gaukur,
Ragnar Bjarnason, Guðmundur Steingrímsson, Helgi Kristjánsson, Gret+ir Björnsson og Hrafn Pálsson.
\
Jafngóðar hljómsveitir
Tvær vinsælar
Mótið heppnaðist mjög vel og
var framkvæmdaraðilanum til | j^u jjQS g.itt skina á knattspyrnu-
mesta soma. Flugfelagsmenn, sv;ginu s j_ sunnudag. Voru það
^engu að launum veglegan bikar, j hljómsveitir þeirra Ólafs Gauks
sem afhentui var a dansleik 1 í 0g Ragnars Bjarnasonar, sem léku
Sigtuni a sunnudagskvoldið. I •
innanihússknattspyrnu i
húsinu á Seltjarnarnesi.
Hljómsveitimar reyndust jafn
hljómsveitir jgóðar, þvi að leiiknum lauk með
jafntefli, 4:4. Fyrdrliðar liðanria:
Ólafur Gaukur og Ragnar Bjarna
son, vöktu sérstaka athygli fyrir
nákvæmar spyrnur, en að öllum
öðrum ólöstuðum var þó Rúnar
Gunnarsson bezti maður vallarins
ílþrótta-
og skoraði öll mörkin fyrir Ólaf
Gauk. „Það er svo undarlegt með
unga menn . . . . “
Áhorfendur skemmtu sér kon
unglega, enda buðu þeir félagar
upp á margt nýstárlegt í knatt-
spyrnu.
HI3 sigursæla Ii3 Flugfélagsins. Fremri röð frá vinstri: G^rétar Sigurðs-
son og Örn Steinsen. Aftari röð: Gunnar Pétursson, þjálfari, Bragi
Bjarnason, Gísli Jónsson, Björn Lúðvíksson og Sigvaldi Ragnarsson, for-J
maður knattspyrnudeildar Flugfélagsins.
Hafsteinn Björnsson miðiil
NÆTURVAKA
Hafsteinn Björnsson hefur um áratuga skeiS verið lands-
kunnur sem mikilhœfur og eftirsóttur miSill. NÆTURVAKA
er fyrsta bók hans og hefur aS geyma sjö smásögur;
sveitasögur, sögur um íslenzkt fólk og íslenzka staShœtti.
Hafsteinn gerþekkir þaS fólk, sem hann lýsir og myndir
þœr, sem hann dregur hér upp eru sannar og gleymast
ekki.
Hópur aðdáenda Hafsteins Björnssonar miSils er stór. ÞaS
er því öruggara aS draga ekki til síSasta dags aS ná sér
í eintak af bók hans, Nœturvöku, þaS kann aS reynast of
seint síSar. VerS kr. 344,00
w SKli GG5JÁ
ÞKHkHJ 1>AGTJR 10. desember 1968.
ÍÞRÓTTIR TÍMINN
Gleiivíma og
á sömu mmútunni
Haukar misstu annað stigið á móti Fram fyrir eigin klaufaskap.
Æ
og Fram í 1. deild í handknattleik
lauk á „dramatískan" hátt. Leik-
ar stóðu 15:14 Haukum í vil, þeg-
ar flauta tímavarðar gaf til kynna
að leik væri lokið. Mikil fagnaðar
læti brutust út á áhorfendapöll-
unum. Og Haukarnir stigu stríðs-
dans á vellinum. En þeim sást
; yfir smáatriði, sem varð aðalat-
I piði á svipstundu. Tveimur
! sekúndum fyrir^ leikslok hafði
Valur Benediktsson dæmt skref á
Hauka-Ieikmann rétt við miðju
■ vallarins. Samkvæmt leikslögum
, á að framkvæma slíkt kast, þó að
leiktími sé runninn út. Hinn gam
alreyndi leikmaður Fram, Guðjón
Jónsson, var fljótur að átta sig
á hlutmium. Tók knöttinn upp og
skaut frá miðju á mannlaust mark
Haukanna og staðan var 15:15.
Pétur Jóakimsson, hinn annars
snjalli markvörður Hauka, var
á þessu augnaiblilki að fagna sigri
með félögum sínum, langt frá
marki. Og þegar rann upp fyrir
‘Haukunum hvað hafði skeð,
breyttist sigurvíman í sorg. Og
, með tárin í augunum yfirgáfu þeir
! völlinn.
Þannig lauk þessum sögulega
leik með jafntefli. Haukarnir
; geta engum kennt um nema sjálf-
1 um sér, hvernig fór. Það var
þeirra eigin klaufaskapur að
fylgjast ekki betur með atburða-
itástnui. Eftir jafn góða frammi-
stöðu og þgir höfðu sýnt í leikn-
trm var þetta reiðarslag fyrir
þá. Að sjálfsögðu voru Framarar
hinir ánægðustu, en þó ek’ki nógu
ánægðir, því að þeir hafa nú tap-
að þremur stigum í mótinu og
hafa e.t.v. misst af lestinni, því
að nú þolir FH að tapa síðari
leiknum gegn Fram, en vinnur
mótið samt, svo framarlega sem
liðið vinnur aðra leiki.
Leikur Hauka og Fram var
yfirleitt jafn. í bálfleik hafði
Frarrt yfir 9:9 og náði 3ja marka
foryálu í síðari hálfleik 13:10.
Virtust Framarar heldur sterkari.
En svo fór, að Haukum tókst ekki
einungis að jafna, heldur að ná
forystu 14:13. Ingólfur jafnaði
14:14, en Stefán Jónsson skoraði
15:14. Gerði Fram nokkrar árang
urslausar tilraunir til að jafna
en tókst þó að lokum að koma
knettinum í netið, eins og áður
hefur verið lýst.
Það getur enginn neitað því,
að Hauka-liðið er mjög gott um
þessar mundir. Liðið lék að þessu
sinni án fyrirliða síns, Viðars
Símonarsonar, en það sýnir, hve
liðið er jafngott, að fjarvera hans
hafði lítil áhrif. Af einstökum
leikmönnum, sem sfcóðu sig sér-
staklega vel, má nefna Þórð Sig.,
Ólaf Ólafsson, Pétur L markinu,
og ekki sízt Sturlu Haraldsson,
sem er mjög vaxandi leikmaður.
Fram-liðið lék betur að þessu
sinni en oft áður. Ingólfur og
Arnar voru beztu menn liðsins,
ásamt Sigurbergi. En þó að liðið
hafi leikið betur en oft áður, er
enginn meistarabragur á því.
Valur Ben. og Óli P. Ólsen
dæmdu.
Barátta botnliðanna.
f fyrri leiknum léku Valur og
KR ------ botnliðin — og lauk
leiknum með sigri Vals, 17:12,
eftir frekar jafna baráttu lengst
af. Valsmenn beittu þeirri lei'k-
aðferð að setja mann til höfuðs
Hilmari Björnssyni og þar með
var KR-sókriin gerð óvirk. Staðan
í hálfleik var 6:6, en fljótlega í
síðari hálfleik náði Valur góðu
forskoti. Skoruðu KR-ingar ekki
mark á 15 mín. kafa. Bergur
Guðnason var langbezti maður
Vals að þessu sinni, en hjá KR
skaraði enginn fram úr.
Jón Friðsteinsson og Gestur
Sigurgeirsson dæmdu leikinn.
21:21
Akureyri og Keflavík léku í 2.
deild í handknattleik um helgina.
Lauk leiknum með jafntefli, 21:
21. Leikið var á AkureyrL
Valsmenn settu mann til höfuðs Hilmarl Björnssyni, KR. Hér sést Hilmar
„fela" sig bak við dómarann, Gest Sigurgeirsson, en gæzlumaðurinn
Bjarni Jónssen, bíður átekta.
Úrvalsliðiö í körfubolta valið
HV.-Reykjavík. — Landsliðs-
nefndin í körfuknattleik hefur
valið úrvalsliðið, sem leika á
gegn tékkneska liðinu Sparta
Pralia á sunnudaginn. Er liðið
þannig skipað:
Birgir Ö. Birgis, Ármanni
Einar Bollason, Þór
Gunnar Gunnarsson, KR
Guttormur Ólafsson, KR
Jón Sigurðsson, Ármanni
Kolbcinn Pálsson, KR
| Kristinn Stefánsson, KR
i Sigmar Karlsson, ÍR
Þórir Magnússon, KFR
Sigurður Helgason, KFR
Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR
Þess má geta, að lið landsliðs-
nefndar lék gegn úrvalsliði varn-
arliðsmanna í fyrrakvöld og sigr
aði 83:72. Vantaði þó géða menn
í liðið, m.a. Birgi Birgis, Einar
Bollason og Gunnar Gunnarsson.