Vísir - 15.08.1977, Blaðsíða 1
Allt um íþrótto-
viðburði helg-
arinnar í dag
Enn er Bjðrgvin bestur!
„Já.hann er bestur”!! — heyrð-
ist frá mörgum áhorfendum i
senn, er Björgvin l>orsteinsson
G.A. sló 2. högg sitt á lokaholunni
i landsmótinu i goifi sem iauk i
Graf arholtinu á laugardaginn.
Björgvin sýndi þá og sannaði að
hann er bestur, taugaspenna
virðist vera nokkuð sem hann
ekki þekkir, pilturinn, og hann
innsiglaði sigur sinn með þvi að
leika siðustu holuna á 4 höggum
— eða pari.
En barátta var það, og Ragn-
ar ólafsson G.R. sá til þess að
Björgvinþurfti að taka á öllu sinu
til að hala inn sigurinn. Það var
ekkert vafamál; þarna fóru tveir
bestu golfleikarar okkar, báðir
tveir frambærilegir á hvaða mót
sem er i heiminum meðal áhuga-
manna.
Fyrir siðasta daginn hafði
Björgvin eitt högg i forskot á
Ragnar, en strax eftir tvær holur
hafði Ragnar jafnað, og báðir
voru á 235höggum alls þær 56 hol-
ur sem að baki voru.
Eftír þriðju holuna var enn
jafnt, 239:239, og eftir 4. holu
sömuleiðis, nú var skorið 245:245.
En 5. holan varð Ragnari dýr-
keypt. Hann varð tvivegis að taka
vitiog lék alls á 8 höggum, á með-
an Björgvin notaði 5 högg. —
250:253 Björgvin i vil.
Eftir 6. holu var forskot Björg-
vins orðið 4 högg, og á næstu holu
vann hann enn eitt. Voru menn nú
farnir að hallast að þviaðBjörg-
vin myndi vinna yfirirburðasigur,
og sumir voru farnir að bolla-
leggja það að Ragnar yrði jafnvel
að sjá af 2. sætinu. — En staða
efstu manna eftir 63 holur af 72
var þessi:
Björgvin borsteins. 267
Ragnar Ólafsson 272
Óttar Ingvason 276
AtliArason 278
Sveinn Sigurbergs. 278
Björgvin virtist þvi hafa öll
trompin á hendi, en svo var þó
ekki.
Ragnar i gang
A lO.holunnivannRagnareittá
Björgvin, og á 11. holu tvö högg!
— bá púttaði Rgnar stórglæsilega
og fór á tveimur höggum. —
Björgvin á fjórum, (par 3).
A næstu holu vann Ragnar eitt
högg og á þarnæstu holu tvö. svo
að skyndilega var hann kominn i
efsta sætiö, átti eitt högg á Björg-
vin.
En Björgvin er harður. Hann
lék 14. holuna stórglæsilega i einu
undir pari — 3 höggum. Ragnar á
fjórum og því var jafnt. Báðir
léku siðan 15. holuna á 6 höggum
og staðan var 296:296 og þrjár
holur eftir.
„Púttið góða”
Upphafsskot Ragnars á 16. holu
var m jög gott, hann var rétt um 5
metra frá holu, en Björgvin hafn-
aði hinsvegar i kafgrasi 30 metr-
um frá. Björgvin sló næst og setti
boltann inn á flötina — 3-4 m
frá holu. — Ragnar púttaði og
hafnaði rétt við' hoíubarm, en
Björgvin gerði sér litið fyrir og
púttaði niður. Stórglæsilegt oútt.
enda fögnuður fjölmargra áhorf-
enda mikill.
Úrslit ráðast
NU voru tvær holur eftir, og
Björgvin sló fyrstur. Mjög gott
upphafshögg, og boltinn lá á flöt-
inni, 5 metra frá holu.
„betta var mikil pressa”, sagði
Ragnar Ólafsson eftir keppnina,
endá fór svo að upphafshögg hans
geigaði og Björgvin vann eitt
högg á holunni, högg sem reynd-
HRÓLFUR NÁÐI í
„DRAUMAHÖGGIÐ
BB
Fór holu í höggi í Grafarholtinu ó landsmótinu
Hola i höggi! — Avallt fer
einhver sérstök tilfinning um
golfleikara þegar þeir hcyra
þessa setningu.
Við tókum lauslega saman
hversu mörg högg hefðu verið
notuð samtals i landsmótinu i
golfisem lauk um helgina, óg
reiknast okkur til að þau muni
vera mjög nálægt 80.000 — já,
áttaiu þúsund — talsins.
Og eitt af þessum höggum
rataði stystu ieið, nefnilega
beint i holuna!
Sá heppni, sem fór holu i
höggi, var Hrólfur Hjaltason
GR, sem lék i 2. flokki, og
„draumahöggið” fékk hann á
16. holu á þriðja kepnisdegi.
Og að sjálfsögðu „skartar”
Hrólfurnú meðgullúrá hendi,
þviað SveinnBjörnsson ogCo.
heiðra þá sem þessum áfanga
ná með þvi að gefa þeim gull-
úr að launum. Og úrinu veitti
Hrólfur væntanlega viðtöku i
lokahófi landsmótsias að Hót-
el Sögu á laugardagskvöldið.
..Æfum tœknina
heima í stofu"
— Björgvin Þorsteinsson og Ragnar Olafsson verða
fulltrúar íslands í heimsmeistarakeppninni í golfi
„betta verður stórkostleg ferð,
og þaö er hægt að leggja ýmislegt
á sig til að verða i góðu „formi”
þegar hún verður farin”, sagði
Björgvin borsteinsson eftir að
það hafði verið tilkynnt að hann
og Ragnar Ólafsson hefðu verið
tilnefndir af Golfsambandi is-
lands til aö verða fulltrúar is-
lands I heimsmeistarakeppninni í
golfi sem fram fer i Maniha á
Filippseyjum I desember.
,,Að sjálfsögðu eru vandkvæði á
þvi að vera i góðri þjálfun á þess-
um árstima, það sjá allir,
en við munum örugglega
gera hvað við getum til að svo
megi verða. bað er hægt að slá
boltann úti nær allan ársins hring
ef vel viðrar, en ýmis tækniatriði
eins og pútt o.þ.h. verðum við
sennilega að æfa heima i stofu!
En þetta er stórkostlegt tæki-
færi, og það er vel þess virði aö
leggja mikið á sig til að komast til
Manila”. gk—.
ist ráða úrslitum i þessu „einvigi
golfsögunnar” á Islandi, þvi að
báðir iéku 18. holuna á pari (4
höggum).
Já, Björgvin er bestur, en
Ragnar er næstbestur, á þvi er
enginn efi. beir félagar eru tveir
bestu golfleikarar sem við höfum
átt, og áhorfendur að einvigi
þeirra voru ekki sviknir. beir
Björgvin og Ragnar færðust si-
fellt i aukana eftirþvisem spenn-
an jókst, og þá léku þeir „stjörnu-
golf”.
Heildarskor Björgvins var 306,
Ragnars 307 og þriðji maður var
Sigurður Thorarenssen GK. sem
lék á 314 höggum. Siðan komu
þeir jafnir, Sveinn Sigurbergsson
G.K., — sérlega efnilegur og
skemmtilegur golfari — og
„gamla”kempan Óttar Ingvason
G.R. á 318 höggum, og Ottar kom
skemmtilega á óvart, æíingar-
laus, en i fremstu röð.
A 323höggum og i 6.-7. sæti voru
Jóhann Benidiktsson G.S. og Jó-
hann Ó. Guðmundsson N.K. —
borbjörn Kjærbo G. S. og Jón
Haukur Guðlaugsson N.K. i 8.-9.
sætiá 324höggum. og i lO.-ll.sæti
Atli Arason N.K. og Július M.
Júliusson G.K. á 325 höggum.
Úrslit i öörum flokkum:
1. I I. karla :
1. HelgiHólm GS 334
2. Gylfi Kristins. GS 339
3. HalldórKristjáns. GR 344
2. fl. karla:
1. Karl Jóhannss. GR 365
2. Sæmundur Knútss. GK 371
3. Georg V. Hannah GS 371
Sæmundur vann i bráðabana um
2. verðlaunin.
3. II. karla:
1. Guðm. Hafliðas. GR 340
2. Július Ingas. GJ 349
3. Ólafur borvaldsson. GOS 352
Meistarafl. kvrnna:
l.Jóhanna Ingólfsd. GR 343
2. Kristin Pálsdóttir GK 351
3. Jakobina Guðlaugsd. GV 351
Kristin vann i bráðaban a um 2.
verðlaunin. g£í
1. f 1. kvenna:
1. Agústa Dúa Jónsd. GR 395
2. Hanna Gabrielsd. GR 406
5. Guðrún Eiriksd. GR 411
Sveilakeppni:
bar urðu tvær sveitir efstar og
jafnar, sveitir GR og GK. Sam-
kvæmt alþjóðareglum sem
viðhafðar eru þegar svona kemur
upp eru þrir efstu menn látnir
ráða sem sveit, og þá sigraði’GK.
Sveit Keilis hlýtur þvi sigurinn.
og að auki ferð á Evrópukeppni
golfklúbba sem fer fram næsta
vor. gk—
Björgvin borsteinsson, nýbakaður tslandsmeistari í golfi, gefur Ragnari ólafssyni rembingskoss þegar
þeim var tilkynnt um aö Golfsamband lslands hefði valið þá til ferðarinnar til Manilla.
Ljósmynd Einar.
i . ———————I
Hver veit nema ég
vinni hann nœst"
r f
— segir Ragnar Olafsson sem enn einu sinni tapaði i Islandsmóti
fyrir Björgvin Þorsteinssyni
„bað er erfitt aö sætta sig við
þessi ævintýri á 5. og 6. hol-
unni”, sagði Ragnar Ólafsson
eftir aö meistaramótinu I golfi
lauk á laugardaginn. bar hafn-
aöiRagnari 2. sæti, einu höggi á
eflir Björgvin borsteinssyni.
„fcg lenti i miklum vandræð-
unt á 5. holunni, og það kostaði
mig 4 aukahögg. betta var
mikiö áfall en mér tókst að rifa
mig upp aftur og komast i gang.
En Björgvin er sterkur, hann
virðust alltaf geta bætt viö sig
þcgar mest á reynir.
bað munaði teimur höggum á
okkur i fyrra, einu höggi núna,
og liver veit nema ég vinni hann
i bráðabana næsta ár”, sagði
Ragnar, og greinilegt var að þar
talaði iþróttainaður sem kunni
aö taka ósigri.
Gott dæmi um það hversu
mikill iþróttamaöur Ragnar er
varer hann dæmdi viti á sjállan
sigfyrir að hreyfa boltann i kaf-
grasi er hann var aö munda
kylfuna. bar sá enginn aö bolt-
inn hreyfðisl nema Ragnar. en
liann gerði viövart og tók á sig
eitt vitishögg. bað reyndist
þungt á metunum er yfir lauk,
en brosandi varð Ragnar
fyrstur til að óska Björgvin til
hamingju með sigurinn. „Svona
eiga sýslumenn að vera”!
gk—•