Vísir - 15.08.1977, Blaðsíða 2

Vísir - 15.08.1977, Blaðsíða 2
14 c Mánudagur 15. ágúst 1977 VISIR VISIR Mánudagur 15. ágúst 1977 15 Z) „Hefur verið erfitt áður'7 — segir Björgvin Þorsteinsson nýbakaður íslandsmeistari i golfi „Þetta hefur verið crfitt áöur, en það var svo saniiarlega strembið núna", sagði Björg- vin Þorsteinsson, nýbakaður islandsmeistari igolfi, þegar við hittum hann að máli á heim- ili hans á laugardagskvöldið, stuttri stundu cftir að hann haíði varið islandsmeistaratitil siiin og lilotið titilinn i fimmta skiptio i rbð, sá íyrsti sem þao gerir. „Miðað við hvernig vio Ragnar lékum, þá er ég ánægour með ao hafa sigrað. Þetta leit |io ekki allt of vel út á timabili, en púttiö mitt á 16. holu var „sterkt". Ef til vill hefur það ráðið úrslitum. Nei, ég er ekki ánægður með spilanieniiskuna, og það eru púttin sem ég er ekki sáttur við. Ilefði ég t.d. púttað jafnvel og Hagnar, þá hefði ég verið 20 höggum betri en ég var. Kii þetta er ekkert nýtt, þetta hefur háð mér undan l'arin ár". — Nú hefur þú sigrað á Landsmótinu i 5 ár í röð, hversu lengi hyggst þú halda því áfram? „Er ekki sagt að golflcikari sé á toppnúm :!5ára? Kf svo cr, á ég langt í land og get auk þess huggað mig við það að ég næ toppnum fyrr en helstu keppinautar uiinir i dag', sagði Björgvin og liló mikið. Lengur töfðum við Björgvin ekki, hann var að búa sig á „golfhátiðina" á llótcl Sögu, þar sem hanii veitti viðtöku islandsmeistarabik- ariium fimmta arið i röð. Sannarlega mesti golfsnilliiigur sem við höfuin cignast. gk-. Gerd Muller skoraði 4 Gerd Muller er svo sannarlega ekki dauður úr öllum æðum. Eftir aðcins tvo leiki f þýsku r.vrstu deildinni, er hann markahæstur með 6 inörk! Hann skuraði fjögur núna á laugar- daginn þegar Bayern Munchen vann St. Pauli 4-2 og tók forystu í deildinni. Borussia Mönchengladbach sigraði einnig, og lið Kevins Keegans, Hanburg SV, sigraði Herta Berlin með 3-0. — GA BBikarnir komu öllum 6 óvart — þeir sýndu oft stórgóðan leik og sigruðu máttlausa Framara 4:1 á Laugardalsvellinum Blikarnir úr Kópavogi unnu góðan sigur gegn Kram, 1:4 i 1. deild íslandsmótsins i knatt- spyrnu á Laugardals- vellinum i gærkvöldi. Komu þessi úrslii nokkuð á óvart, þvi að Kram hefur verifi i sókn að undanförnu og leikur eins og kunnugt er gegn Val i úrslitum bikarkeppninnar. úrslit leiksins voru sam4 i fullu samræmi við gang hans og hcfði munurinn allt eins getað orðið enn meiri, Framarar voru meira i sókn i fyrri hálfleik sem var frekar daufur, enda litið um marktæki- færi, nema á siðustu minútunum. Þá tókst Kristni Jörundssyni að ná forystunni fyrir Fram eftir að hann hafði fengið góða sendingu frá Pétri Ormslev og skorað öfugglega af stuttu færi. Þetta var á 41. minútu, en á siðustu minútunni munaði litlu að Bjarni Bjarnasyni tækist að jafna metin fyrir Breiðablik, en hann skaut framhjá fyrir opnu marki. Siðari hálfleikinn hófu Blikarn- ir með mikilli sókn, strax á 2. minútu varð Arni að vanda sig mjög til að verja frá Ólafi Frið- rikssyni, en Ólafur gerði engin mistök þrem minutum sfðar. Þá skoraði hann fallegt mark með föstu skoti i bláhornið niðri, rétt utan við vitateig, eftir að hafa leikið á tvo varnarmenn. Fimm minútum siðar náði svo Sigurjón Randversson forystunni fyrir Blikana eftir skemmtilegan undirbúning Vignis Baldurssonar og Þórs Hreiðarssonar — Þór gaf stungubolta á Sigurjón sem sneri af sér varnarmann og skoraði með föstu skoti. Eftir þessa góðu byrjum Blik- og á 32. minutu jókst munurinn enn, þá átti Ólafur Friðriksson hörkuskot á markið — boltinn fór i höfuð Kristins Atlasonar sem ætlaði að bægja hættunni frá og þaðan i tignarlegum boga i hornið fjær. Á sfðustu minútunni bætti svo Jón Orri Guðmundsson fjórða markinu við fyrir Blikana — skallaði inn eftir fyrirgjöf. Eina verulega hættulega mark- tækifæri Framara i siðari hálfleik fékk Sumarliði Guðbjartsson en hann skallaði beint i fangið á Ólafi Hákonarsyni markverði UBK, af nokkurra metra færi. Lið Breiðabliks lék þennan leik ágætlega, sérstaklega siðari hálf- leikinn og var sigurinn fyllilega verðskuldaður. Besti maður liðs- ins var Þór Hreiðarsson, en i heild áttu allir i liðinu góðan dag. Hjá Fram voru ekki margir sem skáru sig úr og liðið náði sér aldrei á strik i leiknum. Leikinn dæmdi Arnar Einars- son og skilaði hann þvi hlutverki prýðilega. _bb Enn bœtost nýir við Þrir heimsþekktir frjáls- iþróttamenn hafa nú bæst i hóp þeirra ellefu seiri þegar hafa til- kynnt að þeir muni taka þátt i Reykjavikurleikunum annað- kvöld og á miðvikudagskvöldið. Það er Bandarikjamaðurinn Lerry Jessee sem keppa mun i stangarstökki — hann á best 5.54 metra, — og hefur stokkið 5.50 metra i sumar, Mike Solomon frá Trinidad-Tobaco sem er 400 metra hlaupari — hefur hlaupið á 45.0 sekúndum og komst meðal annars i undanúrslit i Montreal. Kimm af erlendu keppendunum sem taka þátt I Reykjavíkurleikunum komu til landsins i gær og héldu þegar á æfingu á Laugardalsvöllinn. Þeir eru frá vinstri Josyi Komoto frá Kenya, Mike Solomon frá Trinidad, Larry Jessee Bandarikj unum og Charlie Wells einnig frá Bandarikjunum. Þeir voru mjög ánægðir með Laugardalsvöllinn, en fannst veðráttan I kaldara lagi. Ljósmynd Einar Hann mun einnig keppa i 100 metra hlaupi þar sem hann á best 10.4 sekúndur og i 800 metra hlaupi sem hann hefur hlaupið á 1:45.0 minútum. Þriðji maðurínn er svo Josyi Kimoto frá Kenya sem er einn af bestu 10 km hlaup- urum heims og hefur hlaupið þá vegalengd á 28 minútum. Hann mun keppa i 1500 metra hlaupinu sem hann hefur hlaupið á 3:40.0 minútum og 3000 metra hlaupinu sem hann hefur hlaupið á 7:37.0 minútum. Auk þessara þriggja hafa ellefu aðrir erlendir iþróttamenn boðað komu sina hingað og er þar fyrst að nefna kúluvarparana heimsfrægu, TerryAlbritton frá Bandarikjunum sem um tima átti heimsmetið — 21.85 metra, Al Feuerback Bandarikjunum sem átti heimsmetið á undan Albritton 21.82 metra, Reijo Stáhlberg frá Finnlandi sem hefur varpað 21.26 metra og i Evrópukeppninni i Helsinki um helgina varpaði hann 20.90 metra og siðan er það Bret- inn Geoff Capes sem hefur varpað 21.55 metra; hann keppti einnig i Helsinki þar sem hann varpaði 20.15 metra. Þá má nefna bandariska spretthlauparann Charlie Wells sem hefur hlaupið 100 metrana á 10.0 sekúndum, Jerry Kingsted frá Bandarikjunum sem keppir i stangarstökki — hefur stokkið 5.20 metra, Norðmennina Arnfin Rosendahl og Erik Mathisen sem keppa munu i 1500 metra hlaup- inu og er þeirra besti árangur um 3:41.0 minútur. Auk þess verða hér þrir sovéskir keppendur, Alexandre Homtaschik sem keppa mun i 400 metra og 110 metra grinda- hlaupi og 400 metra hlaupi, Ivan Labatsch sem keppir i langstökki, á 7.82 metra, og Larisa Klemen- tienko sem keppir i hástökki, og á hún best 1.85 metra. —BB West Ham tapaði WestJHam tapaði á laugardag Urslitaleik i keppni nokkurra fé- lagsliða sem fram fer á Mallorka. Það tapaði eftir vitaspyrnukeppni fyrir spánska liðinu Real Betis. Hetja West Ham var Mervin Day i markinu sem bjargaði þeini frá stp'ru tapi. —GA lleiðarleg tilraun eða hvað? Ingi Björn Albertsson sendir boltann Imark FH, en þaö var þódæmt af, þvi Ingi Björn notaði hendurnar eins og sést á myndinni. Ljósmynd Einar. f ó Olaf Mfan gc._____ og hann skoraði! En það dugði ekki til. Valur og FH gerðu jafntefli 1-1 í Kaplakrika í gœrkvöldi Það er stundum talað um að heimavöllur sé mikils virði fyrir knattspyrnulið. Þetta sannaðist áþreifanlega i Kaplakrikavelli i Hafnarfirði i leik Vals og FH i gærkvöldi. Það varnefnilega hinn ágæti grasvöllur Haf nf irðinganna sem lagðiupp fyrsta mark þeirra. Liðnar voru um 20 minútur af siðari hálfleik þegarmarkið kom. Sigurður Dagson hafði varið skot frá FH-ingum, og var að búa sig undir að sparka knettinum frá C STAÐAN J Staðani islandsmótinui 1. deiid eftir leikina um helgina er nií þessi: Þdr — KR 2:3 ÍB — ÍBK 3:2 Fram —UBK 1:4 FH— Valur 1:1 Valur 16 11 3 2 32:12 25 Akranes 15 10 2 3 27:12 22 Vikingur 15 6 6 3 18:16 18 Keflavik 16 7 4 5 25:22 18 ÍBV 16 8 3 5 23:17 17 Breiðabl. 16 7 3 6 24:22 17 FH 16 4 5 7 19:26J3 Fram 16 .4 4 8 20:31 12 KR 16 3 2 11 21:31 8 Þór 16 2 2 12 19:39 6 Markhæstu i menn eru nú þessir: Sigurlás ÞorlefissontBV 12 PéturPéturssoníA 10 lugi Björn Albert ss. Val 10 Sumarliði Guðbjartss. Fram 8 marki. A leið sinni frá markinu og út i vitateiginn sló hann knett- inum nokkrum sinnum niður, en þá vildi ekki betur til en svo að hann lenti á ójöfnu á vellinum, sjcaust frá Sigurði og beint fyrir fæturna á Ólafi Danivalssyni. Hann varekki lengi að átta sig og þakkaði fyrir með þvi að labba með boltann innfyrir marklinuna i Valsmarkinu. 1-0 fyrir FH. Fram^að þessu hafði leikurinn verið með afbrigðum lélegur og leiðinlegur á að horfa, en við markið hresstust Valsmenn nokkuð og fóru að sækja meira. 1 fyrri hálfleik var nokkuð jafnt á komið með liðunum i leikleysinu, og hvorugt komst nálægt þvi að skora. En þótt Valsmenn sæktu meira á siðustu 20 minútum leiksins virtust þeir ekki liklegir til að jafna. Framlinumenn liðsins, sem hafa verið i banastuði i sið- ustu leikjum, virtust ekki finna sig. Þeir komust þó nokkrum sinnum i þokkaleg færi en ttíkst ekki að nýta pau. Það sama má segja um FH-ingana. Þeir náðu af og tilhættulegum skyndisóknum, þar sem Ólafur Danivalsson lék jafnan aðalhutverkið. Eftir þvi sem nær dró leikslok- um dró að sama skapi niður i Valsmönnum og þeir virtust sum- ir hverjir vera bunir að saetta sig við tapið. En Magnús Bergs var ekki á þvi. Hann barðist eins og ljón allan leikinn og á siðustu minútu hans uppskar hann ár- angur erfiðis sins. Hann var staddur nálægt vi'tateigshorninu hjá FH, þegar boltinn hrökk til hans. Magnús var ekkert að tvi- nóna heldur þrumaði boltanum i gagnstœtthorn FH marksins, svo að söng i netinu. Glæsilegt mark, sem bjargaði öðru stiginu fyrir Val. Hjá Val voru Dýri og Magnús Bergs hressastir, en framlínu- mennirnir gjörsamlega heillum horfnir. Janus og Gunnar Bjarnason miðverðirnir hjá FH, voru bestu menn liðs sins, ákaflega traustir. Þá kom Logi Ólafsson á óvart og Olafur Danivalsson átti góða spretti. —GA EYJAMENN VORU BETRI f ROKINU Sterkur austan strekkingur setti afgerandi svip á leik Vest- niannacyiiiga og Keflvikinga sem lór fram i Kyjum i gær. Leiknum lauk með sigri heimamanna, sem skoruðu þrjú mörk, en gcstirnir ekki ncma tvö. Fyrsta markið kom á 14. minútu. Þá sendi Gústaf góða stungusendingu til Sigurlásar sem hristi vörn Keflvikinga af sér og skoraði með góðu skoti. Keflvikingar jöfnuðu svo um fimm minútum siðar. Kári Gunnlaugsson komst einn inn- fyrir, en Olafur Sigurvinsson gerði sér litið fyrir og hljóp hann uppi, en fékk dæmda á sig vita- spyrnu þegar hann reyndi að krækja frá honum boltanum. Nokkuð strangur dómur, en Ólaf- Öruggur sigur A-Þjóðverja í Helsinki „Austur-Þjóðverjar voru hinir öruggu sigurvegarar i Evrópu- bikarkeppni landsliða i frjálsum - iþróttum i Helsinki um helgina — og sigruðu þeir bæði i karla- og kvennakeppninni. i karlakeppn- inni hlutu þeir 123 stig, þar urðu Vestur-Þjóðverjar i öðru sæti með UOstig og Sovétmenn þriðju með »9 stig. i kvennakeppninni hlutu Austur-Þjóðverjar 114 stig, Sovétmenn 93 og Bretar 67 stig. Tvö heimsmet voru sett i Helsinki Karin Rossley frá Aiistur-Þýskalandi i 400 metra hún hljóp ' giindahlaupi sem h 55.63 sekúndum — og Axkermann, einnig Austur-Þýskalandi, i stökk 1.97 metra. Rosie frá hástökki, — BB ur Júliusson skoraði úr vitinu. Vestmannaeyingar náðu svo forystunni á nýjan leik á 30 minútu hálfleiksins. Einar Frið- þjófsson tók aukaspyrnu úti við hliðarlinu, á móts viö vita- leigslinuna hjá ÍBK. Hann sendi iastan jarðboita fyrir markið. Þar var Sveinn Sveinsson á rétt- um stað og skoraði viðstöðulaust. Flestir bjuggust við að i siðari hálfleik myndi dæmið snúast al- veg viö, og að Keflvikingar myndu halda uppi stórsókn, eins, og Eyjamenn höfðu gert i þeim fyrri. Og i fyrstu leit út fyrir að svoyrði, þá komst Einar Ólafsson inn að endamörkum við vitateig- inn og skaut þrumuskoti i hliöar- netið innanvert i mark IBV og jafnaði leikinn Suma grunaði Einar um að hafaætlað að gefa fyrir, en inn fór boltinn. . Vestmannaeyingar virtust að- eins vakn- til lifsins við markið og sóttu nit alveg til jafns við IBK. Sigurmarkið kom pegar um tuttugu og fimm m.inútur voru oftir aí leiktimanum. Þá braust Tomas Pálsson, besti maður 1BV, upp kantinn, lék á hvern varnarmanninn á fætur öörum, og suma oftar en eínu sinni, sendi siðan boltann vel fyrir markið á Karl Sveinsson, og hann þurfti ekki að hafa mikið fyrir þvi að senda hann i netið. 3-2. ÍBV lagöi nú kapp á að halda íorskotinu, og það tókst þótt stundum munaöi ekki miklu. Tómas var þeirra íriskastur, Sveinn var góöur i fyrri hálfleik og vórnin traust. Þorsteinn 15jarnason i markinu hjá IBK var langbestur i sinu liði. Þá var Gisli að vanda góður , en óþarilega grófur. Þorvarður Björnsson dæmdi leikinn heldur dapurlega og flest- ir hinna 470 áhorienda yfirgáfu leikvöllinn alveg handvissir um aðhann hel'ði gleymt spjöldunum heima. (iö, Vcstni.eyjum/GA. Varamaðurinn sendi Þórsara í 2. deild Cngur varamaður KR, Sverrir Ilerhcrtsson, skoraði sigurmark KR gcgn Þór i baráttu botnlið- anna I. dcild islandsmótsins i knatlspyruu scm l'ram fór á Akurcyri um helgina. Sigurmark KR sendi Þór i 2. deild, en spurn- ingin er hvort þetta mark reynist vera eitthvert strá sem KR-ingar ná taki á, og halda sér uppi i 1. deildinni. Leikur liðanna á Akureyri var ákaflega slakur, og greinilegt að þar fóru botnlið 1. deildar. KR-ingar náðu forustunni á 10. minútu með marki Vilhelms F'redrikssen, og á 23. mjnútu skoraöi KR aftur. Enn áttu sér stað mistök i vörn Þórs, og eftir „skógarferð" Ragnars Þorvalds- sonar markvarðar fékk Vilhelm boltann og renndi honum i markið 2:0. Rétt fyrir leikhlé minnkaði Árni Gunnarsson muninn i 2:1 þegar hann skoraði gott mark beint úr aukaspyrnu. Og svo jófnuðu þeir á 53. minútu. Sigþór Ómarsson fékk boltann á höfðuðið og nikkaði honum inn i mark KR, 2:2. rCn KR átti „leynivopn" og það var Sverrir Herbertsson. Honum var nú skipt inná fyrir Guðmund Jóhannesson og varla hafði Sverrir komist i færi við boltann áður en hann sendi hann i mark Þórs og sigur KR var i hóln, Þórsarar eru þvi á ný i 2. deild, en KR-ingar cygja enn smavon um að halda sæti sinu i 1. deild- inni. HR/gk_. Jofntefli hjá þeim stóru" á Wembley! og Celtic gerði jafntefli í skosku úrvalsdeildinni Liverpool og Manchester United skildu jöfn án þess að mark væri skorað i hinum árlega „Charty Shield" leik sem fram fer á Wembleyleikvanginum á Lundiínum á milli deildar- og bikarmeistara á laugardaginn.— Og var það hinum 82 þúsund áhorfendum sem sáu leikinn, mil.il vonbrigði að sjá ekkert mark skorað. Leikurinn þótti nokkuð vel leik- inn þótt mörkin vantaði — og augu manna beindust að sjálf- sögðu að Kenny Dalglish sem Liverpool keypti frá Celtic fyrir 440 þúsund sterlingspund til að taka við stöðu Kevin Keegan sem seldur var til SV Hamburg, Dal- glish átti ágætan leik og hann skapaði tvö hættuleg marktæki- færi þegar á fyrstu minútunum. Manchester United lek nú i fyrsta sinn undir stjórn Dave Sexton og litlu munaði að liði hans tækist að skora tvivegis i siðari hálfleik þegar David Mc- Creery átti skot i þverslá og siðan þegar Stuart Person átti hörkuskot sem Ray Clemence i markinu hjá Liverpool var að hafa sig allan við að verja. Leikmenn Liverpool áttu lika sin tækifæri og Terry McDermott átti skot i stöng eftir góðan undir- búning Dalglish. Siðari hluta leiksins lá mjög á United, en Liverpool slapp með skrekkinn þegar Emlyn Hughes felldi McCreery eftir skyndisókn og flestir bjuggust við vitaspyrnu — sem dómarinn dæmdi þó ekki. Þá hófst deildarkeppnin i skosku úrvalsdeildinni og kom þar einna mest á óvart að Rangers skyldi 4apa fyrir Aber- deen. Lið Jóhannesar Eðvalds- sonar — Celtic, lék gegn Dundee United á heimavelli og lauk leikn- um með jafntefli. Úrslit leikjanna i skosku úrvalsdeildinni urðu annars þessi: Aberdeen — Rangers Celtic—DundeeUtd. Hibernian — Motherwell PartickTh, —Ayr St'. Mirren — Clydebank 3:1 0:0 0.0 2:2 1:1 BB Super kaup — á super 8 filmuml 12% aisláttur ef keyptar eru fjórar í eirni Austurstræti 7, s: 10966.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.