Vísir - 18.09.1977, Síða 2

Vísir - 18.09.1977, Síða 2
2 Sunnudagur 18. september 1977. VISIR Texti: Anna Heiður Oddsdóttir Myndir: Jens Alexandersson Ertu Rœtt við Rut Reginalds, sem hefur sungið inn ó f jórar hljómplötur Hún er lág í loftinu, grönn og græneygð og heitir Rut Reginalds. Hún kom í heiminn fyrir aðeins tólf árum, en samt hefur hún þegar sungið inn á fjórar hljóm- plötur og er um þessar mundir að syngja inn á þá fimmtu. Líklega hafa flestir íslendingar einhvern- tíma heyrt hennar getið, að minnsta kosti þeir sem eru af yngri kynslóðinni. Margar sögur hafa gengið af henni, til dæmis hélt einhver því fram á prenti fyrir skemmstu, að hún hefði rekið upptökustjórann sinn vegna þess að henni hefði ekki f undist hann nógu góð- ur. Okkur lék forvitni á að kynnast henni dálítið, ræða við hana um sönginn og lífið almennt og spyrja hana nánar út i þetta með upptökustjórann. Með það í huga réðumst við einn góðan veðurdag til inngöngu í Hljóð- ritun í Hafnarfirði þar sem verið var að gera prufu- upptöku með söngnum hennar. ,,Rekið upptökustjórann minn”? hváði hún hissa þegar við dembdum þessu f raman í hana eftir að hún hafði tekið sér hlé frá söngnum til þess að rabba við okkur. ,,Ertu alveg? Ég mundi aldrei þora að gera svoleiðis. Hver hef ur verið að Ijúga þessu upp á mig?" ,, Jæja þá, þú hef ur sem sé ekki rekið upptökustjórann þinn. Segðu okkur þá heldur eitthvað f rá plötunni, sem þú ert að syngja inn á núna." ,,Þettaáaðverða jólaplata og ég syng allavega tvö lög inn á hana, kannski þrjú. Vilhjálmur Vilhjálmsson er líka með lög á piötunni og svo einhverjir f leiri, sem ég man ekki lengur hvað heita. Lögin, sem ég syng, eru,, Jólasveinninn kemur í kvöld" og ,, Ég sá mömmu kyssa jólasvein." Mér finnst ofsalega gaman að þessu. Áður hef ég sungið inn á f jórar plötur, tvær um ,,Róbert bangsa", ,,Simmsalabimm" og núna síðast ,,Rut Reginalds", og er ekkert orðin leið enn. Ég hugsa að ég væri alveg til í að vera með á fleiri plöt- um, ef ég yrði beðin um það." rMamma sagði bara nei, nei, nei" „Hvernig atvikaðist það, að þú byrjaðir að syngja?” „Ég var með Mallý vinkonu minni á skemmtikvöldi i Keflavik, og hljómsveitin Júdas var að spila. Svo bað ég um að fá að syngja með þeim og söng „Ég sá mömmu kyssa jólasvein.” Nokkrum mánuðum seinna hringdi Magnús Kjartansson heim til min og spurði, hvort ég vildi syngja inn á plötu. Ég sagðist ekkert vita það en mig langaði til þess. Svo lét ég mömmu fá tólið og hún neitaði svolitið og sagði bara „nei, nei, nei”, en ég sat inni i eldhúsi og betlaði „jú, jú, jú”. A endanum fékk ég það.” „Þetta hefur stundum verið erfitt þvi að það er vont að fá tima til að fara i stúdióið. Ég hef oft þurft að fá fri i skólanum og skólastjórinn var orðinn svolitið pirraður. En það lagaðist aftur og nú er ég að hugsa um að fá ekkert fri, heldur bara biða þangað til ég hef tima. Svo er ég ekkert of dugleg i skólanum. Ég ætla ^að reyna að fara i auka- tima i lestri i vetur, þvi ég er frekar ódugleg aö lesa. Mér gengur lika oft illa að læra ljóð, þó ég sé fljót að læra lögin, sem ég á að syngja. Það finnst mér skrýtið. Liklega hef ég ekki nógu mikinn áhuga á ljóðunum. Ég veit að ég get lært ef ég vil”. Ekkert lítið sem ég fæ aðborða hjá þeim" „Ég held ég hafi verið eitt- hvað einn og hálfan mánuð að syngja inn á Rut Reginalds plöt- una” sagði Rut, þegar við spurðum hana, hvað upptökurn- ar tækju langan tima og hvernig þetta gengi fyrir sig. „Þá vorum við i þessu annan hvern dag, frá klukkan niu á morgnana og langt fram eftir degi. Aður en ég kem i stúdióið er ég búin að læra lögin, eins og ég get. Svo er ég látin syngja þau aftur og aftur i stúdióinu og það besta valið úr.” „Ég fæ samt hlé til að fara i mat og kaffi, og það er sko ekk- ert litið, sem ég fæ að borða hjá þeim. Einu sinni kom vinkona min með mér og ég spurði Vil- hjálm Vilhjálmsson, hvort hann vildi ekki splæsa á okkur mat. Þá gaf hann okkur fimm þúsund kall og sagði, að við mættum kaupa það sem viðvildum. Við fengum okkur hamborgara og franskar og komum heim útat- aðar i tómatsósu. Eiginlega lék- um við okkur að þvi til þess að sýna mömmum okkar, að við værum búnar að borða nóg og þyrftum engan kvöldmat.” „Ég hef unnið mest með Vil- hjálmi Vilhjálmssyni, Magnúsi Kjartanssyni og Jóni Ölafssyni i sambandi við þetta og held, að ég hafi verið heppin að lenda með þeim. Þeir eru ofsalega góðir og indælir og ég hef eigin-' lega aldrei rifist við þá, hvað þá, að ég hafi farið að frekjast við að reka einhvern eins og þú varst að tala um áðan. Samt varð ég reið og pirruð einu sinni. Vilhjálmur var alltaf að segja „þetta er ekki nógu gott og þetta ■ er ekki nógu gott” og þá sagði ég honum, að ég þyldi hann ekki, þegar hann væri svona. Svo sá ég auðvitað eftir öllu saman og grenjaði, þegar ég kom heim. Loksins ákvað ég að hringja i hann og biðja hann að fyrirgefa mér. —En þá var hann ekki heima. Ég veit samt að Vil- hjálmur er þannig að hann verður aldrei vondur út af // Reddar mér alveg að syngja" „Ertu að hugsa um að læra að syngja þegar þú verður eldri?” „Nei, ég vil ekki læra að syngja, þvi að þá fer ég að syngja öðruvisi en ég geri núna og verð bara pirruð og hætti. Einu sinni var ég oft að fikta á pianóið og gat alltaf fundið lögin sjálf með þvi að prófa mig áfram. Svo byrjaði ég að læra á pianó en þegar ég átti að fara að gera þessa nótu nákvæmlega svona og hina nótuna nákvæm- lega hinsegin, varð ég pirruð, — enda hætti ég að læra.” „Þó ég vilji ekki læra að syngja, langar mig til að verða söngvari eða leikari, ef ég missi þá ekki röddina alveg áður. Ég hef ofboðslegan áhuga á að syngja, það veit ég að minnsta kosti. Mér finnst það alveg redda mér. Þegar ég er að labba heim úr skólanum raula ég oft, og ég veit að ef ég gerði það ekki mundi ég ábyggilega vera að tala eitthvað leiðinlegt inni i mér i staðinn.” „Sé hvernig gólfið færist nær og nær" „Annars þýðir ekkert að vera „Samt varö ég reiö og pirruö einu sinni. Vilhjálmur var alltaf aö segja: „þetta er ekki nógu gott og þetta er ekki nógu gott” og þá sagöi ég honum aö ég þyldi hann ekki þegar hann væri svona” r VÍSIR utgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Davíö Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guð- mundur G. Pétursson. Umsjón með Helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blaðamenn: Anders Hansen, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón Óskar Hafsteinsson, Kjartan L. Palsson, Magnús Ólafsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Björn Blöndal, Gylf i Kristjánsson. Ljósmyndir: Einar Gunnar Einarsson, Jens Alexandersson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson ... Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Askriftargjald kr. 1500 á mánuði Auglýsingar: Siöumúla 8. Simar 82260, 86611. innanlands. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Verö i lausasölu kr. 80 eintakiö Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611 7 linur Prentun: Blaöaprent hf. Áskriftarsími Vísis er 86611 Hringið strax og tryggið ykkur eintak af Vísi til lesturs hvern dag vikunnar fyrir aðeins 1500 krónur ó mánuði

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.