Vísir - 18.09.1977, Síða 14

Vísir - 18.09.1977, Síða 14
14 Sunnudagur 18. september 1977. VISIR KUIKPIYNDA SP3ALL eftir Erlend Sv/eifissoi^ HOLLYWOOD 77 Paul Schrader er ungur og á uppleiö, meö nýstárlegan hugsunarhátt. Hann er orðinn f rægur f yrir handrit sitt aö Taxi Driver, einnig Obsession og Yakuza. Tekjur hans eru gíf urlegar. Schrader er nú aö undirbúa kvik- mynd sjálfur upp úr eigin handriti, þar sem blökku- maðurinn og gamanleikarinn Richard Pryor leikur aðalhlutverkiö. Skrifstofa Schraders er í glæsilegum skýjakljúf, en inni hjá honum er allt á rúi og stúi og ægir öllu saman, pappirum og æfingahjóli. Schrader var ekki fús til samstarfs viö blaöamenn. Hvaö eftir annað lét hann einkaritara sinn hringja og breyta tím- anum fyrir viðtalið og minna á að hann mætti ekki missa nema hálftima. Hann var óstyrkur meöan á viötalinu stóð og á sífelldum þeytingi milli herbergja, en þaö kom svo í Ijós aö hann haföi sagt margt vitur- legt inn á bandið. AAunurinn á Schrader og Lehman, sem sagt var frá fyrir nokkru í Kvikmyndaspjalli, er fyrst og f remst sá aö Schrader er sér meðvitaður um kvikmyndatæknina. Lehman vinnur etv. á svipaðan hátt, án þess að gera sér grein fyrir aöferðinni, en Schrader getur greint kerfisbundiö frá sinni aðferó. handrit og umskrifaði fjögur svo ég hef verið iðinn. En ég skrifa ekki mikið á næstunni. Ég get hugsað mér að skrifa eitt handrit á ári. Þegar ég er byrj- aður á handriti hætti ég ekki fyrr en þvi er lokið. Það tekur hálfan mánuð að vinna fyrsta uppkast. Handrit þarf að gefa hugmynd um rytma, — rytma myndarinnar. Gagnstætt öðrum listgreinum er kvikmyndin háð timatakmörkunum. Það er ekki hægt að leggja kvikmynd frá sér og byrja siðan aftur á henni eins og á bók. Fyrsta takmarkið er að koma atburðum myndarinn- ar fyrir á ca 100 minútum. Handritshöfundur þarf að vera eins og spretthlaupari. Þegar hann sprettur úr spori þarf hann að vera öruggur á tækni sinni hring eftir hring, ekki dragast aftur úr, spara kraftana fyrir endasprettinn, koma i mark á tilsettum tima, alveg örmagna. Maður á að gefa allt.Ég lit ekki á handritsgerð eins og hin hefð- bundnu ritstörf. Ég er ekki rit- höfundur. Ég er handritshöf- undur. Það sem ég er að gera stendur miklu nær munnlegri frá sagnarhefð en bókmenntum. Orðin eru ekki mitt merkjamál, málfræði og setningafræði skipta mig engu. Hjóðkmúsik, atburðir, tengsl eru það sem ég á að setja saman. Það er mitt merkjamál. Min orð eiga að verða kvikmynd, þau eiga ekki að hafna á pappir. Þrjú stig Starf handritshöfundar er einkum i þvi fólgið að móta söguþráð, finna myndlikingar og skapa persónur sem koma róti á söguna. Það eru þrjústig i handritsgerð. Fyrst og fremst verður maður að hafa eitthvað að segja, — þema. Það þarf ekki að vera sérlega áþreifanlegt, en það verður að ná tökum á áhorfendum. Þemað i Taxi Driver var einmanaleikinn. Þá er að finna myndlikingu fyrir þemað og i Taxi Driver varð það billinn.fullkomið tákn einsemd ar i stórborg. Næst er að hugsa upp söguþráð, en það er eigin- lega það auðveldasta. Það er þegar búið að mynda allar gerð- ir af sögum, en listin er að reyna að láta söguna passa við þemað og myndlikinguna. Vandi margra handritshöfunda er sá, að þeir byrja á söguþræðinum, þeir byrja á öfugum enda. Það er erfiðara að koma þema og myndlikingu inn i tilbúinn sögu- þráð. Söguþráðurinn Handrit þarf ekki að vera orð- rétt. Þvert á móti. Ég segi sög una eins og ég hugsaði mér hana, fyrst á nokkrum minút- um, en svo hleður hún utan á sig. Þegar hún er farin að taka um 40 min. og geti ég haldið athygli fólks svo lengi, og þá á ég við að ná alveg tökum á þvi, þegar það einblinir á mig og myndi elta mig ef ég færi út^þá getur hún orðið að kvikmynd. Maður þarf ekki að vera hrædd- ur við að nota gamlar lummur. Raymond Chandler sagði að ef maður missti athygli fólks i kvikmynd væri gott ráð að láta mann með skammbyssu skjóta upp kollinum. Engum dettur i hug að velta þvi fyrir sér hvers vegna hann hafi komið, — en allir verða þvi fegnir að hann gerði það. Toppkarlarnir Starf þitt ræðst að hluta af sölusjónarmiðum, er þaft ekki? Ég sel tilvist mina. Allir topp- karlar i Hollywood eru hræddir. Þeir eru i eftirsóknarverðu starfi og ef þeim mistekst eru þeir búnir að vera. Þeir vita að það er útilokað að tryggja vinsældir kvikmynda fyrirfram, formúlan fyrir vinsældum er alltaf að breytast ef hún hefur þá einhverntima verið til. Þeir vita ekki hvað borgar sig og verða þess vegna að vinna útfrá eðlisávisun og reynslu. Maður verður að telja þeim trú um að maður viti hvað selst og verður O t RÐIN r ME ERU iRKJAI E VI KK r iAI 1 ■•## — viðtal við Paul Schrader, sem m. handritið að Taxi Driver a. skrifaði Eitthvaö óljóst Hvers vegna fórstu aft skrifa kvikmyndahandrit? Ástæðurnar eru margar. Ég er barn mins tima og kvik- myndin er miðill þess tima. Ég er metnaðargjarn og óþolin- móður. Skáldsögur eru svo timafrekar. Ég vil finna við- brögð fólksins strax. Þess- vegna öfunda ég tvær stéttir, grinista og rökksöngvara. Þeir fá viðbrögð áhorfenda á broti úr sekúndu Ég kynntist ekki kvik myndum fyrr en ég var orðinn fullorðinn. Foreldrar minir leyfðu mér ekki að fara i bió þegar ég var krakki. Ég var al- inn upp á ströngu og guðhræddu heimili. Seinna varð ég gagn- rýnandi og uppgötvaði kvik- myndir i þvi ljósi. Ég reyndi að sjá myndirnar með augum barnsins, augum sem leitast ekki við að greina myndina lið fyrir lið, en sækjast eftir eðli- legri upplifun. Að greina mynd- ir liö fyrir lið er eins og að kryfja lik, maður gerir sér grein fyrir þvi hvað búið hafi i þessum likama, hvers vegna hann lifði og hvers vegna hann dó. En þegar maður semur handrit er unnið með frumstætt lifandi afl, eitthvað óljóst, sem ekki er hægt að sundurgreina. Spretthlaup Hvernig vinnurðu? 1 fyrra samdi ég eitt nýtt Paul Schrader ásamt handritum og æfingarhjóli

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.