Vísir - 18.09.1977, Blaðsíða 15

Vísir - 18.09.1977, Blaðsíða 15
VISIR Sunnudagur 18. september 1977. 15 Atriði úr kvikmyndinni Schrader skrifaði handrit að vera sannfærandi þó svo maður viti þa6 ekki. Takist að sannfæra þá, hugsa þeir sem svo: Fyrst þetta hefur áhrif á mig ætti það að hafa áhrif á aðra. Maður verður að selja söguþráðinn sinn. Sjálfstraust er nauðsynlegt, enginn kærir sig um smeðjulega auðmýkt. Ef illa tekst stendur maður upp, kveð- ur kurteislega og segir: Ég sé að við komumst ekki að sam- komulagi. beir virða það við mann, það verður þá hægt að koma aftur. Að halda rytmanum En hver er vinnuaðferð þin? Ég skipti sögunni niður og ákveð hversu margar siður hvert atriði megi taka. Það skiptir öllu að fara eftir þessari skiptingu. Ekki að reyna að skrifa bókmenntir, heldur segja sögu sem hefur áhrif. Segjum sem svo að ég sé kominn á bls. 84 i atriði þar sem stelpa býður strák inn til sin. Það verður sex siður hjá mér i stað tveggja sem Taxi Driver sem Paul að. ráðgerðar voru. Þá veit ég að ég er að gera skyssu ég hef tapað timaskyninu. Auðvitað gæti ég umritað allt og lagt meiri áherslu á þetta atriði, en það væru mistök. Það er mikilvægt að halda rytmanum frá byrjun. Ef frásögnin þróast rétt, ef hægt er að fá tvær persónur til að koma til sögunnar á réttum stað og réttum tíma skiptir ekki miklu máli hvað þær segja. Hins vegar þarf að koma þeim á staðinn minútu áður en áhorf- endur eiga von á þeim þangað, þá tekst að koma á óvart. Ef um er að ræða karl og konu sem lengi hafa verið aðskilin og áhorfendur eiga von á að þau hittist aftur i virðulegu um- hverfi, læt ég þau hittast i kjör- búð. Þau gætu siðan farið heim til hennar, og þá skiptir engu hvað þau segja nú, ef tengingin i myndinni hefur tekist. Hann getur t.d. sagt: „kaffið er gott hjá þér” eða ,,þú lagar betra kaffi núna”. Svona aðferð er miklu heppiiegri pn skörp fáguð tilsvör. Það er hægt að spilla öllu með þvi að láta annað þeirra koma með snilldartil- svar, sem fer alveg með stemn- inguna. Samtölin Samtölin skipta minnstu máli i kvikmynd. Handrit fara oft fjandans til ef það eru alltof mörg glæsileg tilsvör i þeim. Kvikmynd þarf að vera raun- sæileg i sér. bað er hægt að hafa þrjú til fjögur tilsvör i handriti, kannski tiu góð, en enginn ætti að taka eftir fleirum. Aðrir taka við Hvernig gengur að vinna með stjórnendum? Hver mynd hefur sina hlið á þvi máli. 1 TaxiDriver vann ég mjög náið með Scorsese og De Niro. Svo er ég að vinna að mynd núna þar sem ég hef aðeins hitt stjórnandann einu sinni i kokkteilboði. Leikarana hef ég aldrei hitt. Varstu viðstaddur upptökuna á Taxi Driver? Stundum, og þá af tilviljun. Við Scorsese og De Niro höföum farið svo nákvæmlega yfir allt, að ekkert átti að vera óljóst, mér fannst að nú gætu þeir tekið við. Ég held að De Niro hafi þekkt persónuleika Travis miklu betur en nokkurn tima ég. beir urðu lika að losna undan minu áhrifavaldi til þess að koma sinum hugmyndum að, þannig varð myndin betri. Ef menn geta ekki „improviserað” tekst mönnum ekki að gera góða mynd. Improvisasjón er nauð- synleg i flestum myndum. Kvik- myndasköpun er bundin andar- takinu, stað og stund. Umhverf- ið leggur alltaf eitthvað til. Ég vona i mesta lagi að farið verði eftir þeirri linu sem ég hef dreg- ið þegar myndatakan hefst. NÖFN Er ekki starf handritshöf- undarins erfiðisvinna, þó að þið græðið á henni? Menn láta ekki mig bjóða sér hvað sem er, bara af þvi að mér hefur gengið vei. Það er hægt að meta handrit nokkurn veginn með þvi að lesa þau yfir en stjórnandi er etv. fenginn að myndinni út á nafnið og lika vegna þess að hann vinnur sjaldnast illa. Ef handritshöf- undur vinnur ekki er ekki lengi verið að fá annan i staðinn. Það er ekki hægt að fjárfesta i hand- ritshöfundi, hann er ekki nafn, sem menn veðja á miljónum i framleiðslukostnaði. Philco býður þurrkara sem getur staðið ofan á þvottavélinni. Þannig nýtist gólf- rýmið til fullnustu og handhægt, út- dregið vinnuborð milli vélanna auð- veldar notkun þeirra. Já — alltsem til þarf eru einfaldar festingar og tvær flugur eru slegnar í einu höggi. Philco þurrkarinn tekur 5 kg af þurrum þvotti — sama magn og þvottavélin. Hann er auð- veldur í notkun — með fjögur sjálf- virk þurrkkerfi sem henta öllum teg- undum af þvotti og allt aðtveggja klst. tímarofa. Philco þvottavélin tekur inn heitt og kalt vatn, vindu- hraðinn er 850 snúningar á mínútu, sem þýðir mun styttri þurrktíma. Tvær stillingar eru fyrir vatnsmagn, ullarkerfið er viðurkennt og einfalt merkjamál er fyrir hvert þvottakerfi, svo að allt sé á hreinu! Er það furða þó að fleiri og fleiri velji Philco HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.