Vísir - 24.09.1977, Side 3
12
Laugardagur 24. september 1977 VISIR
Karin Mannheimer, höfundur Skóladaga.
„Ég ákæri", segir Car-
in Mannheimer, höfundur
myndaf lokksins „Skóla-
dagar", um þetta verk
sitt. Henni er ekki litiö
niðri fyrir þvi hún tekur
sér þarna i munn orð
Emils Zola, úr snilldar-
legri varnargrein hans
fyrir hinn franska kaf-
tein Dreyfus, sem sak-
laus var sendur í fanga-
vist á Djöflaeyju.
Carin Mannheimer ber þung-
an hug til skólakerfisins, eins og
kemur raunar fram i þáttunum.
Henni er til dæmis ákaflega illa
við einkunnagjöf, þvi hún heldur
að það leiöi til samkeppni meðal
barnanna, sem aftur leiði til
þess að þau geti ekki orðið góðir
vinir.
Skólinn fer ekki beinlinis vel
út úr þessum viðskiptum og hún
var einusinni spurð að þvi hvort
hún héldi i raun og veru að
ástandiðværisvona slæmt. ,,Já,
ég er alveg sannfærð um það”,
svaraði hún.
Katarina
Camilla
„Blómin min bestu”, kallar
Höskuldur Skagfjörð kvæöa-
þátt sem hann flytur i útvarp-
inu kl. 20.25 i kvöld.
,,Ég valdi þetta nafn af þvi að
þetta eru allt virkilega róman-
tisk ljóö”, sagði Höskuldur við
Visi. „betta eru átta kvæði eftir
átta skáld tuttugustu aldarinn-
ar. Efnið er i stuttu máli um hið
fagra lif á jöröinni: blóm, kon-
ur, fugla, og ég bind þetla sam-
an meö sigildri tónlist.
Skáldin eru Hulda, Steinn
Steinarr, Þorsteinn Valdimars-
son, Davið frá Fagraskógi,
Tómas Guðmundsson, Jón frá
Ljárskógum, Kristján frá
Djúpalæk og Jóhann Jónsson,
Snæfellingur Jóhann lést ungur.
i Dresden, og hann skildi eftir
sig þessa einu bók, sem Tómas
gaf út.”
—ÓT.
Útvarp í kvöld
kl. 20.25:
segir höfundur Skóladaga
Carin á sjálf tvo unglinga á
skólaaldri, fjórtán og sautján
ára, þannig að hún telur sig tala
af nokkurri reynslu. Henni er
lika töluvert uppsigað við
kennarana: „Það eru öfgamenn
til hægri, öfgamenn til vinstri,
frjálslyndir, strangir, bliðir og
veiklundaðir”.
„beir stefna allir að eigin
marki og ætlast til þess aö börn-
in fylgi þeim eftir. En börnin
vita ekkert hverjum þeirra þau
eiga að fylgja. Þau ruglast i
riminu og tekst ekki að ná sam-
bandi við neinn þeirra.”
Og annað kvöld sjáum við
semsagt meira um álit Carin
Mannheimer á skólakerfinu.
— ÓT.
Stefan
Jan
t—————— 1 « — ........
Sjónvarp kl. 18.35:
Nýr danskur myndaflokkur
„Þú átt pabba Elisabet” heitir dönsk sjónvarpsmynd i þrem þátt-
um sem hefstkl. 18.35 i kvöld. Hún fjallar um átta ára gamla stúlku
sem flytur út á eyju nokkra með föður sinum, þegar foreldrar henn-
ar skilja. Móðirin verður hinsvegar eftir i borginni.
Þessi þáttur mun ætlaður börnum á öllum aldri.
Það er hörð lifsbarátta að vera
eskimói: maður fer ekki út I
næstu kjörbúð til að leita fanga.
Nú er
kominn
vetur
Það er kominn vetur hjá heim-
skautaeskimóunum ef þið opnið
fyrir sjónvarpið kl. 18.10 i kvöld.
Þetta er tveggja þátta fræðslu-
mynd og fyrri hlutinn, um sumar
hjá heimskautaeskimóum var
sýndur siðasta sunnudag.
Það eru Netsilikeeskimóarnir í
Norður-Kanada sem verið er i
heimsókn hjá. Þessi þáttur var á
dagskrá sjónvarpsins fyrir
nokkrum mánuðum.
—ÓT.
VISIR Laugardagur 24. september 1977
13
Sjónvarp kl. 20.30:
sendur í frí
IDave Allen verður á skerminum i kvöld kl.
20.30. Þvi miður er þetta siðasti þátturinn með
honumsem viðsjáum ibili, þviaðaf einhverjum
orsökum ætlar Sjónvarpið aö senda hann i fri.
Þetta fri verður vist einar sex vikur en þá
kemur þessi frábæri irski grinisti aftur i heim-
sókn. Þessir skemmtiþættir Dave Allen eru með
besta efni Sjónvarpsins þessa dagana. Vonandi
kemur eitthvað sæmilegt i staðinn.
Um Allen persónulega má uppiýsa að hann er
Í35ára gamall og fyrrverandi blaðamaður. Hann
er mjög stoltur af þjóðerni sinu: „Eg er inn-
hverfur úthverfingi”, segir hann. „Þú getur ekki
orðið irskari en það.”
Um hæfileika sina á sviöinu segir hann: „Það
er of mikiðaðbúast við að allir hafi gaman af öllu
sem ég segi eða geri. En ég reyni að hafa þetta
svo fjölbreytt að allir hafi gaman af einhverju”.
Állen hefur feröast viða um lönd, og segir:
„Menn nala misjafnan húmor, eftir löndum
Brandarar sem menn gráta af hlátri yfir i
Astraliu, skiljast kannske ekki einusinni T
Danmörku — og öfugt. Grinisti verður þvi að
vera ákaflega vel að sér um fólk. Hann verður
lika að hafa tilfinningu fyrir þvi. bað er hægt að
fá margar tegundir áhorfenda i einni og sömu
borginni. Húmoristinn verður þvi að heyra á
undirtektunum hvort hann er á réttri leið eða
ekki. Ef hann nær ekki i gegn veröur hann að
breyta til og reyna „einhvern annan húmor”.
—ÓT
AfimMi- sjáUrar náthmimiar
svikjaengan
Mjólk er alhliða fæða, sem við fáum
beint úr ríki náttúrunnar. I mjólkinni
eru næstum öll næringarefni, sem
líkaminn þarfnast, s.s. prótín, nauðsynlegt
til vaxtar og viðhalds líkamanum og kalk
til myndunar og viðhalds tanna og
beina. Mjólkin er auðug af A-, Bi- og B2-
vítamínum og inniheldur auk þess nokkuð af
D- vítamíni.
r
Ur mjólk og rjóma eru framleiddar
fjölbreyttar afurðir. Súrmjólk, skyr,
ýmir, jógúrt, rjómaís, smjör og margar
tegundir osta eru meðal þeirra.
Mjólk og mjólkurafurðir eru hollar og
bragðgóðar- kjarnafæða sem svíkur engan.
Mjólk og mjólkurafuiðir- orkulind okkar og heiJsugjaf i
Erling Blöndal Bengtsson
og Árni Kristjánsson
leika saman á selló og
píanó, i sjónvarpssal, kl.
21.30 á sunnudagskvöld.