Vísir - 03.04.1978, Síða 1

Vísir - 03.04.1978, Síða 1
Allt um íþrótta- viðburðihelg- arinnar í dag Skúli með silfur frá Bírmingham „Við getum ekki annað en verið i sjöunda himni með árangurinn hérna”, sagði ólafur Sigurgeirs- son, lyftingainaður, er við rædd- um við hann i gærdag, þar sem hann var staddur í Birmingham i Englandi. Þar var Ólafur ásamt lyftinga- mönnunum Skúla Óskarssyni og Fríðrik Jósefssyni, og tóku .þeir þar þátt i Evrópumótinu i kraft- lyftingum. Skúli gerði það gott á mótinu og sannaði enn einu sinni að hann er i hópi þeirra fremstu i heimin- um i þessari grein. Raunar var það ekki nema sjálfur heims- meistarinn Fiore frá Bretlandi, sem vann Skúla. Skúli setti þrivegis Norður- landamet i hnébeygju á mótinu. Fyrst er hann lyfti 265 kg, siðan 275 og loks 280 kg. Siðan lyftí han 130 kg i bekkpressu, en i þeirri grein há honum ávallt meiðsli i baki og hefði hann að öðrum kosti sennilega tryggt sér Evrópu- meistaratitilinn. ! réttstöðu iyfti hann svo 290 kg sem er Islands- met, og siöan reyndi kappinn við nýtt heimsmet, 312,5 kg. ,,Og það vatnaði vel undir það hjá hon- um”, sagði Ólafur Sigurgeirsson. Hefði Skúli náð þessari þyngd upp, hefði hann sigrað Bretann. KR sigur í Eyjum 2. deildarlið KR i knattspyrnu hélt til Vestmannaeyja um helg- ina og lék þar einn æfingaleik við t. deildarlið tBV. Ollum á óvænt sneru KR-íng- arnir heim sem sigurvegarar. unnu góðan 3:1 sigur. Sverrír Herbertsson skoraði 2 mörk fyrir KR-inga og Sigurður Indriðason það þriðja, en fyrir ÍBV skoraði fyrrum KR-ingurinn örn Óskarsson sem leikur nú aft- ur með ÍBV. Gó. Olafur keppti i 90 kg. flokki og hafnaði þar i 5. sæti. Hann lyfti 255 kg i hnébeygju, 185 i bekk- pressu og 255 kg i réttstöðulyftu, samanlagt 695 kg. en Bretinn Toal sem sigraði lyfti samtals 802 kg og var i sérflokki. Friðrik Jósefsson keppti i 100 kg flokki og þar voru að sjálf- sögðu heljarátök. Hann byrjaði á þvi að setja íslandsmet i hné- beygju, lyftí 300 kg, og lyfti einnig 310, en það var dæmt af á óskilj- anlegan hátt. Siðan lyfti hann 200 kg i bekkpressu sem einnig er Islandsmet og i réttstöðulyftu fór hann upp með 290 kg. Samt. eru þetta 790 kg og það nægði i 4. sætið, auk þess sem það er að sjálfsögðu nýtt íslandsmet. Það er þvi óhætt að segja að kraftlyft- ingamennirnir hafa gert góða ferð til Birmingham. gk- vera valinn í landsliðið! Júdósamband tsiands hefur valið og tiikynnt landsliðið sem keppir á Norðurlandamótinu I júdó sem fram fer í Finnlandi um næstu helgi. i liðinu eru eftirtaldir menn: Rúnar Guðjónsson JFR Þórarinn ólafsson, JFR Ómar Sigurðsson, Arm. Halldór Guðbjörnsson, JFR Garðar Skaptason, Árm. Kári Jakobsson. JFR Jónas Jónasson, Árm. Gisi Þorsteinsson,- Armr Bjarni Friðriksson, Árm. i liðinu eru fimm nýiíðar, þeir Rúnar, Þórarinn, Ómar, Jónas og Bjarni. Þar eru einnig tveir Norðurlandameistarar frá í fyrra, þeir Halldór og Gisli og munu þeir verja titia sina á þessu mótí. Þetta er eitt fjölmennasta lið sem Júdósambandið hefur sent utan til keppni, og hefur fjár til fararinnar verið aflað á ýmsan hátt. Þó munu keppendur sjálfir þurfa að greiða stærsta hlutann —150 tii 200 þúsund krónur hver meö vinnutapj — en það er gjald sem iþróttamenn okkar úr hin- um minni greinum þurfa oftast aö greiöa, ef þeir eru vaidir tii keppni fyrir tslands hönd á eriendri grund.... —kip— Hún var ánægð hún Kristfn Magnúsdóttir eftir sigurinn i einliðaleiknum I gær. Keppnistfmabilið er orð- iðgott hj a henni, sigur I Reykja vfkurmótinu, Tropicanamótinu og nú i tslandsmótinu. Vísismynd Einar Kristín stöðvaði sigurgöngu Lovísu — sigraði hona í einliðaleik ó íslandsmótinu í badminton — Jóhann Kjartansson varð þrefaldur íslandsmeistari „Jú. ég átti jafnvel von á þviað vinna sigur í íslandsmótinu eftir að hafa unnið Reykjavikurmótið og Tropicanam ótiö”, sagði Kristin Magnúsdóttir, nýbakaður íslandsmeistari i badminton, þegar við ræddum víö hana eftir sigurinn i gær. ..Leikurinn gegn Lo visu i úrslitunum var erfiðasti leikurinn", bætti Kristín við, en þess má geta að Kristín, sem hefur iökað badminton i 6ár, leik- ur nú í fyrsta skipti í meistara- ilokki. Kristin vann Lovísu í úr- slitunum með 10:12 — 11:7 og 11:3. Jóhann Kjartansson stóð í ströngu á mótinu, en uppskeran var góð, þrfr meistaratitiar. Hann vann Sigfús Ægi Árnason i úrslitum einliðaleíksins með 15:11 og 15:3, en hafði i undanúr- slítum unnið Sígurð Koibeins- son með 15:5 — 15:17og 15:7. íslandsmeístarinn frá i fyrra, Sigurður Haraldsson, var híns- vegar m jög óvænt sleginn út i 2. umferð, og gerði það ungur Akumesingur, Viðir Bragason, sean vann með 15:5 — 10:15 og 15:12. Sigurður hlaut hinsvegar tslandsmeistaratitil i tvíliða- leiknum ásamt Jóhanni, en i úr- slitum þar unnu þeir „gömlu” mennina, Haraid Kornelíusson og Steinar Petersen með 15:8 10:15og 15:10. Kom frammistaða Steinars og Haraids skemmtilega á óvart, en þeir stunda badminton sér til ánægju þessa dagana, æfa ekki stift með keppní fyrir aug- um. Jóhann var svo enn á ferðinni i tvenndarleik , en þar sigraði hann ásamt Kristinu Kristjánsdóttur. Þau unnu Sigurð Haraldsson og Hönnu Láru Pálsdóttur i úrslitum 10:15, 15:2 og 15:12. 1 tviliðaleik unnu þær Lovisa Sígurðardóttir og Hanna Lára hínsvegar „Krístinurnar” Magnúsdóttur og Krístjánsdóttur með 11:15, 15:4 og 15:7. Og þá eru það blessaðír „öðl- íngarnir”. Þeir badmintonmenn kalla keppendur f „old bop” ekkí öldunga eíns og gert er i öðrum íþróttum, heldur eru þeir vist all- ir öðlingar og bera nafn sam- kvæmt því. En hvað um það, i eínliðaleik „öðlínganna” sigraðí „öðlingurínn” Jón Arnason örugglega. Hann tók gærdaginn snemma, var mættur i nudd fvrír allar aldir og fór siðan út á golf- völl, þarsem hann lékeinn hring til að hita sig upp fyrir úrslitavið- ureigninga við Garðar Alfonsson. Upphitunin virðist hafa tekist vel hjá Jóni, þvi að hann „afgreiddi” Garðar snyrtilega, vann hann 15:7 og 15:1. Og i tvenndarkeppni „öðling- anna” sigraði Jón einníg, en hann lék þar með Huldu Guðmunds- dóttur. Þau unnu hjónín Kjartan Magnússon og Snjólaugu Sveins- dóttur i úrslitum 15:9 og 18:16. gk-. Við mœtum Júgóslövum Það verða Júgósiavar, sem leika I sama riöli og isiendingar i lokakeppni Evrópukeppni ungl- ingalandsliða i knattspyrnu, sem fram fer i næsta mánuöi. Júgósiavar sigruðu Rúmena I siðari leik þjóðanna i undan- keppninni i gær 2:0. Þeir sigruöu einnig f fyrri leiknum 2:0. —klp—

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.