Vísir - 03.04.1978, Blaðsíða 4
c
Enska knattspyrnan:
Iprpttir
— Everton skaust í efsta sœtið í 1. deildinni
í fjórar klukkustundir, eða þangað til Forest hafði unnið
öruggan sigur gegn Chelsea
Mánudagur 3. aprQ 1978 y |^j §4.
~í
Eftir leiki helgarinnar i ensku
knattspvrnunni virðist sem það
sé orðið öruggt að Nottingham
Forest hreppi efsta sætið I 1.
deildinni. Liðið sigrar enn, og
þótt Everton, sem fylgir Forest
eins og skugginn vinni einnig
stanslaust, þá er forskot Forest
orðið svo gott að ógjörningur
verður að koma í veg fyrir þaö
að leikmenn leiðsins standi uppi
sem sigurvegarar i vor.
Everton skaust þó upp að hlið
Forest á stigatöflunni, en það
var „mjög snöggt bað”. Forest
lék nefnilega fjórum klukku-
stundum siðar, og með sigri þá
gegn Chelsea tók Forest forust-
una aftur. Og ekki nóg með það,
liðið á þrjá íeiki til góða á
Everton. En litum nú á úrslitin
i 1. og 2. deild um helgina.
1. deild:
Arsenal-Man. Utd. 3:1
Aston Villa-Liverpool 0:3
BristolC.-Newcastle 3:1
Everton-Derby 2:1
Leicester-WBA 0:1
Man. City-Ipswich 2:1
Norwich-Leeds 3:0
Notth. Forest-Chelsea 3:1
QPR-Middlesbrough 1:0
West Ham-Coventry 2:1
Wolves-Birmingham 0:1
2. deild:
Bolton-Orient 2:0
Brighton-NottsC. 2:1
Burnley-Tottenham 2:1
C. Palace-Oldham 0:0
Hull-Luton 1:1
Mansfield-Chariton 0:3
Millwall-Bristol R. 1:3
Sheff, Utd.-Blackpool 0:0
Southampton-Blackburn 5:0
Stoke-Cardiff 2:0
- Sunderland-Fulham 2:2
Leikur Everton og Derby var
leikinn á laugardagsmorguninn
vegna mikilla veðreiða sem
fram fóru i Liverpool siðar um
daginn. En leikmenn Everton
létu það ekki á sig fá þótt þeir
þyrítu snemma á fætur, þeir
mættu ákveðnir tii leiks, og
Martin Dobson skoraði fljótlega
fyrir Everton. Bob Latehford lét
ekki sitt eftir liggja, og hans 28.
mark á keppnístimabilinu
tryggði sigurinn þótt Charlie
George skoraði fyrir Derby.
Everton var þvi eftir þennan
leik komið með 50 stig, eins og
Forest, en sú dýrð stóð ekkí
lengi.
Leikmenn Chelsea tóku þó
forustuna i leiknum gegn
Forest. Mickey Droy átti þá
skalla aö markinu sem Chilton
varði. Hann hélt þó ekki boltan-
um sem barst út til Tommy
Langley er skoraði örugglega.
Og það leit lengi vel út fyrir að
þetta yrði úrslitamark leíksins,
og Forest myndi tapa sinum
fyrsta leik á heimavelli i vetur.
En svo fór þó ekkí. Kenny Burns
jafnaði á 70 mínútu, og þeir
Martin O’Neill og John Roberts-
son bættu tveímur mörkum við.
,/Nallarnir"harðir
Leikmenn Arsenal leika
snilidarknattspyrnu þessa
dagana, og nú var það
Manehester United sem mátti
halda frá Highbury með ósigur
á bakinu. Malcolm MacDonald
skoraði fyrsta mark leiksins en
Joe Jordan jafnaði fyrir United.
Sú dýrð stóð þó ekki lengi, þvi
Liam Brady og MacDonald
bættu tveimur mörkum við fyrir
Arsenal sem er nú i þriðja sæti.
Mancester City heldur enn 4.
sætinu eftir sigur gegn Ipswich.
Roger Palmer skoraði fyrsta
markið fyrir City. Paul Mariner
jafnaði fyrir Ipswich, en Mick
Channon skoraði sigurmark
City.
Það virðist greinilegt að það
verða Leicester og Newcastle
sem falla i 2. deild. Bæði liðin
töpuðu um heigina, og virðast
dæmd til að falla.
I 2. deild tapaði Tottenham
fyrir Burnley, en Bolton og
Southampton unnu góða sigra
og stefna ákveðið á 1. deild. En
litum þá á stöðuna i 1. og 2.
deild.
1. deild:
Notth.
Forest 33 22 8 3 62:21 52
Everton 36 22 6 8 66:38 50
Arsenal 36 18 10 8 53:29 46
Man.City 35 18 9 8 65:41 45
Liverpooi 33 17 8 9 48:29 42
Coventry 35 17 8 10 68:53 42
Leeds 36 17 8 11 57:44 42
WBA 35 14 12 9 50:45 40
Norwich 37 11 16 10 47:55 38
A. Villa 34 13 9 12 39:35 35
Derby 35 11 12 12 43:50 34
Birmingh. 36 14 6 16 48:54 34
Man.Utd. 37 12 10 15 56:59 34
BristolC. 37 11 11 15 47:47 33
Middlesb. 35 10 12 13 36:50 32
Ipswich 35 10 11 14 42:48 31
Chelsea 35 9 12 14 40:57 30
Wolves 36 9 10 17 42:56 28
WestHam 37 9 8 20 45:62 26
QPR 34 6 13 15 38:55 25
Leícester 37 4 12 21 19:57 20
Newcastle 34 6 7 21 38:63 19
2. deild:
Bolton 36 21 9 6 58:31 51
Tottenham 37 18 15 4 78:40 51
Southjton 36 20 9 7 61:34 49
Brighton 34 17 11 6 51:32 45
Blackburn 35 16 9 10 52:49 41
Oldham 35 12 13 10 45:46 37
Luton 37 14 9 14 51:44 37
Stoke 35 14 7 14 45:41 35
C.Palace 36 11 13 12 40:39 35
Blackpool 35 12 10 13 52:48 34
Fulham 35 12 10 13 44:43 34
Charlton 35 12 10 13 52:59 34
Sunderland 35 9 15 11 52:51 33
NottsC. 35 10 13 12 46:52 33
Bumley 36 12 9 15 45:54 33
Sheff. Utd. 36 13 7 16 55:66 33
Bristol R. 35 10 12 13 51:51 32
Örient 34 7 14 13 35:45 28
Cardiff 34 9 10 15 42:63 28
Hull 35 7 11 17 31:43 25
Millwai! 35 6 13 16 37:53 25
Mansfield 36 7 9 20 40:64 23
GK-
Ekkert lót er ó
sigrum Forest
Nottingham Forest leikmaðurinn Tony Woodcock hefur átt mjög góöa leiki upp á slðkastið. Hér sést
hann 1 harðri baráttu I leik gegn QPR á dögunum, er hann sækiraðmarki QPR.
Nýkomnir
tjakkar fyrir
fólks- og vörubHa [
fré 1-20 tonna
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ
Bflavörutwðin FjöórÍR h.f
Skeifan
simt
82944
Jóhannes skoraði
enn fyrir Celtic
Atti gott mark gegn Aberdeen á iaugardaginn
og er nú einn markhœsti maður liðsins
Celtic siglír hægt og rólega
upp eftir stigatöflunni i
„Premier-deíldínni" í Skot-
landi. Um fyrri helgi krækti
Celtic i bæði stigin gegn Rang-
ers, og nú um helgína náði
Celtic i annað stigið gegn hinu
toppliöinu í deildinni, Aberdeen.
Sá leikur fór fram á heima-
velli Celtic og iauk með jafnteflí
2:2. Það var Ronnie Clavin sem
kom Celtic á bragðið, en
Duncan Davidson jafnaðí fyrir
Aberdeen.
Jóhannes Eövaldsson kom
Celtic aftur yíir — en hann hefur
verið iðinn við að skora mörk
fyrír Celtic f vetur og er nú einn
markhæsti maður liðsins. En
Aberdeen tókst að jafna
skömmu siðar og hélt þar með
öðru stiginu.
Rangers mátti þakka fyrir
jafntefli gegn St. Mirren, en
þessi félög, sem Þórólfur Beck
lék með á sinum tíma við góöan
orðstir, mættust þá á heimavelii
Rangers. Frank McGarvey
skoraði fyrir ~St. Mirren en
Derek Johnstone jafnaði fyrir
Rangers.
Staðan hjá efstu liöunum er
nú þannig, að Aberdeen og
Rangers eru efst og jöfn með 44
stig, en Aberdeen er með
hagstæðari markatölu. i þriðja
sæti kemur svo Hibernian — 11
stigum á eftir — og stendur því
baráttan um meistaratitilinn á
milli Aberdeen og Rangers.
-klp-