Vísir - 03.04.1978, Blaðsíða 2
Iprpuír
r
Jafnt í fyrsta
leik meistarana
Islandsmeistarar Akraness
niáttu sætta sig við annað stigið
gegn bikarmeisturum Vals i
Staðan i 1. deild tslandsmótsins
i handknattleik eftir leikina i gær-
kvöldi er þessi:
Valur-IR 18:17
Vikingur-Haukar 23:19
Vikingur 11 7 3 1 251:214 17
Haukar 12 6 4 2 236
Vflúnrur 11 7 3 1 204:202 17
Haukar 12 6 4 2 247:218 16
Valur 11 6 2 3 221:204 14
FH 11 5 2 4 228:232 12
1R 11 3 3 5 214:213 9
Fram 11 3 3 5 228:259 9
KR 10 2 2 6 205:216 6
Ármann 11 2 1 8 203:242 5
fyrsta leiknum i Meistarakepppni
KSÍ i knattspyrnu, sem háður var
á Akranesi á laugardaginn.
Leikurinn sem fram fór á mal-
arvellinum á Skipaskaga var
skemmtilegur og á köflum vel
leikinn. Þótti hann lofa góðu fyrir
sumarið — a.m.k. voru hinir út-
lendu þjálfarar liðanna sæmilega
ánægðir með hann og sina menn.
Þaðvoru Skagamenn sem urðu
fyrri til að skora i leiknum. Arni
Sveinssonfékk knöttinn fyrir utan
vitateig og sendi hann með
þrumuskoti i hornið. óverjandi
fyrir Ölaf Magnússon, markvörð
Vals sem nú hefur tekið stöðu
Sigurðar Dagssonar.
1 siðari hálfleik voru Valsmenn
öllu friskari. Atli Eðvaldsson
skoraði jöfnunarmarkið þegar
um 15 mi'n. voru eftir af leiknum.
Hann fékk sendingu frá Hálfdáni
örlygssyni sem þarna lék sinn
TVEIR NAUMIR
SIGRAR YFIR
FÆREYINGUM!
lslenska landsliðið i blaki kom
heim I gærkvöldi með tvo sæta
sigra yfir Færeyjum. Mættust
þjóðirnar þarna I 7. og 8. lands-
leik sfnum I blaki og enn
hefur frændum okkar I Færeyj-
um ekki tekist að sigra.
t fyrri leiknum var keppnin
hörð og skemmtileg. Þar voru
leiknar þrjár hrinur og sigruðu
lslendingarnir I þeim öllum —
15:11, 15:12 og 15:13.
f siðari Ieiknum,sem fram fór
daginn eftir I hinu glæsilega
iþróttahúsi I Þórshöfn, voru
heimamenn staðráðnir I að
sigra. Þeir fóru lika vel af stað
— sigruðu i fyrstu hrinunni 15:4
— en eftir þaö náðu tslending-
arnir sér á strik og sigruðu i
bæstu þrem hrinum og þar með
i leiknum 3:1.
Indriði Arnórsson vakti mesta
athygli íslensku leikmannanna I
báðum leikjunum, en einnig
þótti Guðmundur E. Pálsson
standa sig vel i siðari leiknum.
Annars léku flestir ísiensku
leikmannanna vel, og samspil
þeirra var gott... —klp —
Nýkomin styrktarblöð og
augablöð í eftirtaldar
bifreiðar:
Hœkkið bílinn upp svo að hann taki ekki
niðri ó snjóhryggjum og holóttum vegum
Bedford 5 og 7 tonna augablöð aftan.
Datsun diesel 70-77 augablöð aftan.
Mercedes Benz 1413, augablöð og krókblöð.
Mercedes Benz 322 og 1113, augablöð.
Scania Vabis L55 og L56, augablöð og krókblöð
aftan.
Scania Vabis L76, augablöð og krókblöð.
2” 2 1/4” og 2 1/2” styrktarblöð i fólksbila.
Mikið úrval af miðfjaðraboltum og fjaðra-
klemmum.
Smiðum einnig fjaðraklemmur eftir máli.
Sendum i póstkröfu hvert á land sem er.
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2, sími 82944.
fyrsta leik með Val, eftir að hafa
gengið úr KR- og Atli átti auðvelt
með að renna knettinúm I netið
fram hjá Jóni Þorbjörnssyni,
markverði Skagamanna.
Hálfdán sem átti góðan leik I
rauð/hvita búningnum, átti skot i
stöng f leiknum og Grimur
Sæmundsson skoraði glæsilegt
mark fyrir Val- það fyrsta i
áraraðir - en dómarinn dæmdi
það af vegna rangstöðu.
Skagamenn, sem léku án Jóns
Alfreðssonar, sem er á loðnuveið-
um og Matthíasar Hallgrimsson-
ar sem bíður eftir að fá keppnis-
leyfi, áttu einnig góð tækifæri, en
þau nýttust ekki frekar en hjá
Valsmönnum. -klp-
„Litli bróðir"
sigraði
samt
Tveir leikir voru leiknir i Litlu-
bikarkeppninni um helgina.
Breiöablik vann ÍBK 1:0 og i
Hafnarfirði unnu Haukar FH-
inga með 3:1.
Leikurinn i Hafnarfirði var
sögulegur, en mikil harka var þar
og margir bókaðir. Það var
Janus Guðlaugsson sem kom FH
yfir strax i upphafi leiksins og
siðan var ekki skorað fyrr en i
siðari hálfleik að Lárus Jónsson
jafnaði. Þá hljóp mikil harka i
leikinn, og ekki batnaði ástandið
er Guðjóns Sveinsson bætti öðru
marki við fyrir Haukana. Siðasta
orðið átti svo Lárus er hann skor-
aði 3:1 fyrir Hauka.
Leikurinn i Keflavik þótti afar
slakur, en eina markið skoraði
Valdimar Valdimarsson fyrir
Breiðablik. gk-.
Axel með
9 mörk!
Axel Axelsson var i miklu stuði,
er Dankersen lék gegn
Nettlesstedi 1. deild handboltans i
V-Þýskalandi um helgina, Hann
skoraöi 9 mörk, og Dankersen
sigraði með 21:20. Ólafur Jónsson
skoraði 4 mörk. — Göppingen,
liöið hans Gunnars Einarssonar
gerði jafntefli gegn Hofweiger
14:14. en Hannover, liöið hans
Einars Magnússonar tapaði illa.
fyrir Gross wallstad 8:15. —
Grosswallstad hefur nú tekið for-
ustuna I mótinu, Gummersbach
er I 2. sæti og siðan koma
Huttenberg og Dankersen.
gk-.
íáí
VERÐLAUNAGRIPIR
OG FÉLAGSMERKI
Framleiði alls konar verðlaunagripi og
félagsmerki. Hefi ávallf fyrirliggjandi ýmsar
slœrðir verðlaunabikara og verðlauna-
peninga einnig slytfur fyrir flestar
greinar íþrólla.
Leltid upplýsinga.
Magnús E. Baldvinsson
taugavegi • - Reykjavik - Simi 2280<
m_____
Mánudagur 3. april 1978 visœ
vism
Mánudagur 3. april 1978
Umsjón:
Gylfi Kristjánsson
Islandsmeistararnir i hinum ýmsu flokkum I landsflokkaglimunni taliö frá vinstri: Hjörtur Þráinsson, HSÞ, Ólafur H. ólafsson KR, Auöunn Gunnarsson
UÍA, Þóroddur Helgason UtA, Guðmundur Freyr Haidldórsson Armanni og Ingi Þ. Yngvason HSÞ. Ljósmynd EK..
IpFSmr
Víkingar stefna á
meistaratitilinn
— Þeir unnu Hauka með 23:19 í skemmtilegum leik í
gœrkvöldi í 1. deild — Valur marði 18:17 sigur gegn ÍR
„Þetta var harður og spennandi
leikur tveggja góðra liða, tveggja
efstu liðanna i mótinu, og sigur-
inn var aldrei i höfn fyrr en á sið-
ustu sekúndunum” sagði Björg-
vin Björgvinssson, fyrirliði Vik-
ings I handboolta eftir að liö hans
hafðisigrað Hauka i I. deildinni i
handboltanum i gærkvöldi. „Við
unnum þennan leik fyrst og
fremst á þvi að varnarleikur okk-
ar var betri en þeirra”, bætti
Björgvin við.
—Það var sannkölluð úrslita-
stemmning i Laugardalshöll-
inni igærkvöldi, áhorfendur fleiri
en þeir hafa verið áður i vetur og
hvöttu sina menn mjög.
Bæði liðin sýndu snilldartakta i
leiknum af og til, og þau skiptust
á um að skora allt þar til staðan
var 3:3 Þá komu fjögur mörk f röö
frá Vlkingi, en Haukar, sem
aldrei gefast upp, svöruðu meö
öðrum fjórum þannig að jafnt var
7:7. Aftur komust Vikingar þrjú
mörk yfir, en Haukar unnu þann
mun upp. Staöan i hálfleik þó
14:12 fyrir Viking.
Þegar nokkrar minútur voru
liðnar af siðari hálfleik og staðan
var 15:13 fyrir Viking varði
Kristján Sigmundsson, mark-
vörður Víkings, vitaskot frá
Andrési Kristjánssyni, og Viking-
ar brunuðu upp og skoruðu. Stað-
an var þvi 16:13 i staðinn fyrir
15:14 og þarna urðu nokkur
þáttaskil i leiknum. Vikingar
náðu að halda þessu forskoti sfnu
og juku svo við það á lokaminút-
unum. Lokatölur 23:19 fyrir Vik-
inga sem standa nú á þröskuldi
Islandsmeistaratignar.
Astæða er til að hrósa Viking-
um mjög fyrir þennan leik, þeir
léku stórgóðan handbolta lengst
af og vörninhjá þeim i siðari hálf-
leik var með þvi allra besta sem
maður hefur lengi séð hjá
islensku liði. Bestu menn liðsins
voru Arni Indriðason, sem var
stórgóður, Páll Björgvinsson og
Björgvin Björgvinsson.
Haukarnir börðust vel I þessum
leik, en þeir voru ekki með heppn-
ina með sér. Þannig áttu þeir t.d.
fjölda stangarskota, og Vikingar
fengu auk þess nokkur ódýr
mörk. Sennilega hafa Haukar enn
einu sinni misst af Islandsmeist-
aratitli, en þó er ekki öll nótt úti
enn. Bestu menn Hauka i þessum'
leik voru Elias Jónasson og Ólaf-
ur Jóhannsson.
Mörk Vikings: Björgvin 5, Arni,
Þorbergur og Viggó 4 hver,
Skarphéöinn og Páll 2 hvor,
Siguröur og Jón 1 hvor.
Mörk Hauka:Andrés 8 (7), Elias
3, Ingimar, Stefán og Árni 2 hver,
Ólafur og Þorgeir 1 hvor.
Valur—ÍR 18:17.
Eftir að hafa horft á góðan leik
Vikings og Hauka komu svo Vals-
menn og IR-ingar og sýndu áhorf-
endum eitthvað sem var greini-
lega allt önnur iþrótt. Er
skemmst frá þvi að segja að ieik-
ur liðanna var svo slakur að maö-
ur hefur varla geð til að skrifa um
hann.
Hann var þó hnifjafn og spenn-
andi allan timann, og liðin skipt-
ustá um forustuna, staðan i hálf-
leik 7:7.
Þegar ein og hálf mín. var til
leiksloka var jafnt 17:17, en
Þorbjörn Jensson skoraði sigur-
mark Valsmanna er 59 sek. voru
til leiksloka. IR-ingar voru með
boltann allt framundir leikslok,
en tókst ekki aö finna glufu i vörn
Vals.
Mörk Vals: Jón Pétur 5, Steindór
4, Þorbjörn G. 3, Jón K. og Stefán
2 hvor, Þorbjörn J. og Bjarni 1
hvor.
Mörk 1R: Bjarni 5, Brynjólfur og
Vilhjálmur 3 hvor, Arsæll og
Jóhann Ingi 2 hvor, Guðmundur
og Asgeir 1 hvor. gk-.
Strákarnir settu
mestan svip á
Landsflokkaglímuna
Stór hópur ungra glimumanna setti
mikinn svip á Landsflokkaglimuna, sem
háð var I iþróttahúsi Kennaraháskólans i
gær. Það voru piltar úr Reykjavik, Þing-
eyjarsýslu og af Austfjörðum, sem
þarna mættu og sýndu og sönnuðu að enn
þurfum viö ekki aö örvænta hvaö viöhald
þjóöariþróttar okkar snertir.
Kunnátta eða keppnisreynsla margra
þeirra var að visu ekki upp á marga fiska,
En það sem upp á vantaði var fengið með
kappi og krafti, og skemmdi það siður en
svo fyrir áhorfendum, sem kunnu vel að
meta hina ungu menn.
A mótinu var keppt i þrem flokkum
unglinga og þrem flokkum fullorðinna.
Hjá þeim yngri var harðast barist i
drengjaflokki. Þar sigraði Ólafur H.
Ólafss. KR, hlaut 7 vinninga. Næstur kom
Gústaf Ómarsson UIA með 6,5 vinninga
og þriðji Geir Gunnlaugsson UV með 5,5
vinninga.
-1- sveinaflokki þurfti aukaglimu um
fyrsta sætið og tslandsmeistaratitilinn i
þeim flokki. Þar áttust við Hjörtur
Þráinsson HSÞ og Bryngeir Stefánsson
UIA og sigraði Hjörtur í þeirri viðureign.
1 þriðja sæti varð svo Hreinn Sigmarsson
UÍA.
í unglingaflokki varð sigurvegari Auð-
unn Gunnarsson UIA. Annar varð Helgi
Bjarnason KR og þriðji Asgeir
Viglundsson KR.
Hjá karlmönnunum voru átökin mest i
yfirþyngd.jafnvel glimubeltin urðu þar að
láta undan átökunum. Ingi Þ.
Yngvason, HSP varð þar sigurvegari.
Guðmundur Olafsson Armanni varð ann-
ar með 1 vinning og þriðji varð Ingvar
Engilbertsson UV með engan vinning.
1 léttasta flokknum -léttþyngd- sigraði
Þóroddur Helgason UIA sem hlaut 2
vinninga. Annar varð Jón Magnússon KR
og þriðji Halldór Konráðsson UV með
engan vinning, og kom það mjög á óvart.
Mesta keppnin var i milli þyngd enda
voru þar kappar miklir. Hjálmur
Sigurðsson UV féll strax i fyrstu glimu
gegn Ómari Úlfarssyni KR, sem nú
keppti aftur eftir langt hlé. Náði Hjálmur
sér ekki almennilega á strik eftir það og
hafnaði i 4. sæti með 1,5 vinning.
Ómar varö þriðji með 2 vinninga en i
öðru sæti kom hinn kattliðugi Þingeyingur
Eyþór Pétursson með 3 vinninga eða hálf-
um vinningi minna en sigurvegarinn
Guðmundur Freyr Halldórsson, Ármanni.
1 mótslok afhenti Helgi Seljan verðlaun-
in og sleit þessári 30. Landsflokkaglimu
Islands með nokkrum vel völdum orðum,
sem féllu i góðan jarðveg meðal áhorf-
enda og keppenda.
-klp-
Jafntefli
hjá
Standard
Talsverðar likur eru nú á þvi að Stand-
ard Liege hafi misst af meistaratitlinum i
Belgíu er liöið tapaði stigi gegn La Louvi-
ere I gær. Leikið var á velli La Louviere,
og lauk leiknum með jafntefli 1:1.
Forustuliðiö FC Brugge vann Winter-
slag i miklum baráttuleik 4:3 og jók þvi
forskot sitt og er það nú orðið ein 5 stig.
Anderlecht sigraði CS Brugge 1:0 og
náði við það Standard að stigum.
Hinsvegar gekk betur hjá Royal Union i
2. deildinni, en þar leika þeir sem kunnugt
er Marteinn Geirsson og Stefán Halldórs-
son. Þeir unnu Patro Eisten 1:0, en þrátt
fyrir það á Union sáralitla möguleika á
sæti i 1. deild aö ári.
gk--
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR 8.4
Sestu þá niður og slappaðu af með
fullt mjólkurglas í hendi.
Köld nýmjólk er ekki aðeins góð -
hún er líka þeirrar náttúru, að
veita okkur flest þau mikilvægu
næringarefni, sem nauðsynleg eru
vexti og viðgangi lífsins.
Drekhtu nijólk í dag - og njóttu
þess.
5 Mjólkoí*
nijólktmifiinMr
ovknlind okkar oi*
heilsui*jafi
jjr ft
1 \ V.'
/ Wt, wKi'
íffL •■ 'wA