Vísir - 17.07.1978, Page 1
Allt um íþrótta-
viðburði helg-
arinnar í dag
Sentimetrastríð í flestum
greinum á íslandsmótinu
„Ég er að mörgu leyti ánægður
með þetta mót” sagði örn Eiðs-
son formaður Frjálsiþróttasam-
bands tslands, er við náðum tali
af honum eftir tslandsmótið i
frjálsum fþróttum, sem lauk á
Laugardalsvellinum i gær.
„Það er að visu ekki mikið um
met — nema þá telpna og meyja-
met i þessu móti” bætti hann við.
Þau urðu
íslands-
meistarar
Þessi urðu tslandsmeistarar I
„En það var skemmtileg keppni i
mörgum greinum, sérstaklega i
sumum hlaupunum, og árangur-
inn var ágætur.
Þess ber að geta að það vantar
margt af okkar besta frjáls-
iþrótta fólki í þetta mót. Stór hóp-
ur er erlendis viö nám og æfingar
—-og þótt aö ánægjulegt hafi veriö
að sjá allan þennan fjölda hér á
mótinu, setja stjörnurnar alltaf
ákveðinn svip á svona mót”.
Það sem vakti athygli áhorf-
enda, sem voru með mesta móti 1
frjálsiþróttakeppni hér á landi,
var hinn miklifjöldiutan af landi
sem tók þátt i mótinu, og hvað
það stóð sig vel.
Austfirðingar —eða UÍA — fjöl-
menntu t.d. á mótið og stóðu sig
með miklum sóma, svo og hópar
úr Þingeyrarsýslu og Borgarfirði.
Þá var KA meö góðan hóp á mót-
inu, þar á meðal var Sigriður
Kjartansdóttir sem stóð sig mjög
vel i hlaupunum, en hún á nú bæði
stúlkna- og meyjametin I styttri
hlaupum.... er þar mikiö efni á’
ferðinni.
Sú stúlka sem einna mest kom á
óvart á mótinu var án efa Berg-
þóra Benónýsdóttir frá HSÞ. Hún
gerði sér litið fyrir og sigraði i 100
metra hlaupi, 100 metra grinda-
hlaupi, og tók svo langstökkið i
lok mótsins.
Hreinn Halldórsson náði ekki
að brjóta 20 metra múrinn i kúlu-
varpinu að þessu sinni — kastaöi
19,89 metra. Öskar Jakobsson 1R
varð þar annar meö 18.03 metra.
en hann sigraöi i spjótkastinu,
kringlukastinu og i sleggjukasti,
en þar kastaöi hann aðeins 49,36
metra. Var hann eini keppandinn
i þeirri grein.
Langstökk karla var heldur
slakt en það vannst á 6,37 metra
stökki. Eru ekki mörg ár siðan að
breiddin þar var svo mikil, aö sjö
metrarnir nægðu ekki til að
komast á verðlaunapall i tslands-
mótinu. Hlaupinvoruaftur á móti
spennandi — eins og t.d einvigi
Eliasar Sveinssonar KRog Stefáns
Hallgrimssonar UIA i 110 m
grind, sem afgreitt var á linunni
— með sigri Eliasar — en Stefán
mátti einnig bita i þaö súra epli
að tapa „á sjónarmun” i 800
metra hlaupinu.
t mörgum hlaupunum var það
hörð keppni að mannleg augu
gátu ekki ráðið hver rööin var, og
þegar þannig er komið i mark er
gaman að vera á frjálsiþrótta-
móti.... -klp-
einstökum greinum á tslands-
mótinu I frjálsum iþróttum um
helgina:
Karlar:
KUluvarp: Hreinn Halldórsson
KR, 19,89 m.
Kringlukast: Óskar Jakobsson,1
tR 55,88 m !
Spjótkast: Óskar Jakobsson, tR
73,66 m
Sleggjukast: Óskar Jakobsson tR
49,36 m
Langstökk: Sigurður Hjörleifsson
HSH 6,37 m
Hástökk: Stefán Friðleifsson UÍA
1,98 m
Þristökk: Sigurður Hjörleifsson
HSH 13,78 m
Stangarstökk: Guðmundur Jó-
hannesson HSH, 4,10 m
110 m grindahl: Elias Sveinsson,
KR 15,5 sek
400 m grindahl.: Stefán Hall-
grimsson UtA 53,3 sek.
100 in hlaup: Sigurður Sigurðsson
Armanni 10,7 sek.
200 m hlaup: Sigurður Sigurðsson
Ármanni 22,1 sek.
400 m hlaup : Stefán Hallgrimsson
UÍA 49,5 sek.
800 m hlaup: Steindór Tryggva-
1 wnVn^hlaun'^Hafsteinn óskars- Bergþdra Benónýsdóttir — á miðri mynd — lét sig ekki muna um það aö sigra I þrem greinum á islandsmótinu i frjálsum Iþróttum um helgina.
son íR 4-04 8 min Hér er h“n á fullri ferft 1 100 metra grindahlaupi, þar sem hún varð sigurvegari.... Ljósmynd EK.
5000 m hlaup: Sigfús Jónsson tR
15:09,8 min.
4x100 m boðhl.:Sveit Armanns
43,4 sek.
4x400 m boðhl.:Sveit Ármanns
4:29,0 min.
Konur:
Kúluvarp: Dýrfinna Torfadóttir
KA 9,64, m.
Kringlukast: Kristjana Þor-
steinsd. Viði 35,16 m
Spjótkast: Maria Guðnadóttir
36,76 m
Langstökk: Bergþóra Benónýs-
dóttir HSÞ 5,03 m
Hástökk: Þórdis Gísladóttir ÍR
1,71 m.
100 m grindahl.: Bergþóra
Benónýsdóttir HSÞ 15,4 sek.
100 m hlaup: Bergþóra Benónýs-
dóttir, HSÞ 12,2 sek.
200 m hlaup: Sigriður Kjartans-
dóttir KA 25,9 sek.
400 m hlaup: Sigriður Kjartans-
dóttir KA 58,1 sek.
800 m hlaup: Guörún Sveinsdóttir
UÍA 2:20,3 min.
1500 m hlaup: Guðrún Arnadóttir
FH 4: 55,8 min.
4x100 m boðhlaup: Sveit HSÞ 51,0
sek.
4x400 m boöhlaup: Sveit UÍA
íslandsmótinu verður haldiö
áfram I kvöld og þá m.a. keppt i
3000 metra hindrunarhlaupi og
fimmtarþraut karla.
Mœttu i Kópavog til
að sjá Pétur leika
Eins og við höfum áður sagt
frá, hafa verið hér á knatt-
spyrnuleikjum bestu liðanna að
undanförnu „njósnarar” frá
ýmsum knattspyrnufélögum i
Belgiu og Vestur-Þýskalandi.
Tveir slikir voru t.d. á leik
Akraness og Breiðabliks i Kópa-
vogi á laugardaginn, en þar
voru þeir mættir til að horfa á
einn leikmann — Akurnesinginn
Pétur Pétursson.
Voru þetta tveir af forráða-
mönnum belgiska liðsins Bever-
en, sem er bikarmeistari Belgiu
og eitt af bestu liðunum þar i
landi. Menn frá Beveren höfðu
fylgst með Pétri i unglinga-
landsleiknum i Noregi á dögun-
um, en þessir tveir — sem eru
sérfræðingar liðsins i kaupum á
nýjum leikmönnum — komu nú
til að sjá hann betur.
Þeir fylgdust með hverri
hreyfingu hans I leiknum, og
teiknuðu, eöa færðu inn á sér-
stök blöð allt sem hann
gerði...hvert hann hljóp þegar
samherji var meö boltann, stað-
setti sig i fyrirgjöfum, og sam-
leik og annað eftir þvi.
Viö náðum i þá félaga eftir
leikinn á Hótel Loftleiöum, en
þar voru þeir að yfirfara öll
blöðin sem þeir höföu krotað á.
Voru þeir mjög ánægðir meö út-
komuna og sögðu að þessi piltur
gæti orðið mjög góður leikmað-
ur ef hann fengi rétta þjálfun,
kennslu og hefði við hlið sér
góða. leikmenn.
Aftur á móti voru þeir heldur
óhressir með móttökurnar sem
þeir fengu hjá Skagamönnum,
en þeim var meinað að ræða viö
Pétur eftir leikinn. Fengu þeir
aftur á móti að tala við þjálfara
hans, Georg Kirby, og fannst
þeim á honum að heyra að Pét-
ur hefði engan áhuga á ab fara
til Beveren — ekki einu sinni til
aö kanna aðstæður þar.
Vildu þeir fá að heyra piltinn
segja þetta sjálfan en til þess
fengu þeir ekki tækifæri. Þeir
skildu aftur á móti eftir handa
honum drög aö samningi, sem
hann hefur nú fengiö i hendurn-
ar, en þeir héldu aftur utan I
gærmorgun.
Þeir sögðu okkur að þeir
myndu ekki taka Pétur frá
Akranesi fyrr en eftir að
keppnistimabilinu hér væri lok-
ið — þaö er aö segja ef hann
vildi gera samning. Þeir sögð-
ust fara að þessu máli i öllu eins
og lögin segðu — Pétur heföi
sjálfur óskað eftir að komast 1
atvinnumennsku — og þeir
hefðu látið formann félags hans
vita að þeir kæmu á þennan leik.
Við spurðum þá hvort þeir
hefbu séð einhverja aöra leik-
menn i leiknum, sem þeim hefði
litist á, og sögðu þeir aö svo
heföi verið. Það heföi veriö einn
annar maður á vellinum, sem
væri mikib efni I atvinnumann.
Sá hefði aftur á móti ekki óskað
eftir þvi viö þá eða aðra að kom-
ast i atvinnumennsku, og þeir
væru þvi ekki aö ganga á hann
til aö bjóða slíkt.... —klp —