Vísir - 15.08.1978, Blaðsíða 12
12
Þriöjudagur 15. ágúst 1978 VISIR
Visisliöiö viö komuna til Akureyrar kl. 11.45 á sunnudagsmorgni.
VISISUDID KOM
SA
TAPADI
Jafnvel tapið skyggði
ekki á gleðina i ferð-
ina inni til Ólafsfjarðar
á sunnudaginn
Knattspyrnulið blaðburðarsveitar Vísis fór í keppnis-
ferðalag til ólafsf jarðar á sunnudaginn og reyndi með
sér við knattspyrnulið yngri flokkanna í bænum/ en
<nattspyrnufélagið á ólafsfirði heitir Leiftur. Leikar
Fóru svo að heimamenn fóru með sigur af hólmi í afar
jöfnum og spennandi leik, skoruðu sex mörk gegn f jór-
jm mörkum Vísisdrengja. Leiftursmenn voru vel að
sigrinum komnir/ þótt Vísisstrákunum hafi sigurinn þótt
heisttii stór. Aiimargir fyigdust með viðureigninni sem myndir Gunnar Salvarsson og Davið Guðmundsson
fram fór i blíðskaparveðri og voru flestir áhorfendur á
jandi heimamanna og studdu ákaft við bakið á þeim
með hvatningarorðum/ en áhangendur Vísisliðsins létu
lika köllin hljóma um víðan völl og hvöttu sína menn.
hann allan veg og vanda af
keppni liðanna og heimsókn Visis,/
til ólafsfjarðar.
óli blaðasali heiðursgestur
Visisliöiö hefur æft af kappi i
sumar undir styrkri handleiðslu
Gylfa Kristjánssonar iþrótta-
fréttaritara Visis, sem kallar sig
„yfirvenjara” aö færeyskum sið.
Auk Gylfa hefur Auöunn Gests-
son, einn ötulasti blaðberi VIsis,
haft hönd i bagga með þjálfun
liösins og var hann liösstjóri I
ferðinni norður.
Heiðursgestur liösins var eng-
inn annar en Ólafur Sverrir Þor-
valdsson eða Óli blaðasali, eins og
hann er titt nefndur. Stjórnaöi
hann liöinu utan vallar og gætti
þess að óþarfa strákapör væru
ekki unnin.
Milli 20 og 25 Visisdrengir hafa
tekiö þátt i æfingum liösins I sum-
ar, en þær fara fram á KFUM-
vellinum við Sunnuveg. Nitján
drengir voru valdir til fararinnar
en alls tóku þátt i ferðinni 25, þvi
auk keppnismanna fengu Davfö
Guömundsson framkvæmdastjóri
VIsis, Ólafur Ragnarsson rit-
stjóri, og Gsal blaöamaður að
fljóta með.
í fyrsta sinn í flugvél
Lagt var af stað með einni
Fokker-flugvél Flugfélags
lslands klukkan ellefu á sunnu-
dagsmorguninn og lent á Akur-
eyrarflugvelli þremur stundar-
fjórðunaum siðar. A meðan á
flugferöinni stóð kom upp sá
kvittur aö liösstjóri Visisliðsins,
Auðunn Gestsson, hafði ekki fyrr
stigið fæti sinum upp i farartæki
sem flugvél nefnist og er hann var
inntur eftir sannleiksgildi þessa
orðróms kvað hann þaö rétt vera.
En Auðunn var ekkert smeykur,
sagði að það væri „ægilega gam-
an” en af þessu tilefni var auðvit-
aö nauðsynlegt að fá mynd af
honum við flugvélina á Akur-
eyrarvelli og stillti óli blaöasali
sig upp viö hlið hans.
A Akureyri beið okkar rúta og
þar var einnig kominn Jóhann
Helgason umboðsmaöur Visis á
Ólafsfiröi og formaöur knatt-
spyrnufélagsins Leifturs. Hafði
Norðlenskt blíðviðri
Eyjafjörður skartaði sinu feg-
ursta á sunnudaginn. Veörið var
eins og það gerist best, um
tuttugu stiga hiti, sól og næstum
logn — og ferðin til Ólafsfjarðar
var þvi öllum til ánægju.
Leikurinn hófst klukkan þrjú og
kusu Visismenn aö leika undan
golunni (vindhraði hafði aukist
örlitið er liöa tók á daginn) i fyrrí
hálfleik. Var leikurinn mjög jafn
en Visismenn komust fljótt i
tveggja marka forystu 3:1 en i
siðari hálfleik sneru heimamenn
dæminu við og hrúguöu inn mörk-
um, og sigruðu sem fyrr segir
með sex mörkum gegn fjórum.
I veislu
Að loknum kappleiknum bauð
knattspyrnufélagið til veislu að
heimili Jóhanns og konu hans og
var þar ljúfiega teygað kakó,
kaffi og gos með ýmsu dýrðarinn-
ar meölæti sem of langt mál yrði
að telja upp i litilli blaöagrein.
Eftir fyrsta flugið — Auöunn Gestsson fyrir utan fyrstu flugvélina, sem
hann flýgur f.og Óli blaöasali er meö honum á myndinni.