Vísir - 25.09.1978, Blaðsíða 1
VÍSI
Allt um íþrótta-
viðburði helg-
IVl Vil Sl anuaagur * lai kúl sepiemDer j is l í V( iyngt irð o i i if 1 $lá KtUn na og lum!
- s kúli setti Norðurlandamet í hnébeygju, en mistök starfsmanna komu í veg fyrir að hann hlyti gullið
„Það áttu sér stað mikil mistök
þegar Skúli Óskarsson átti að
lyfta i bekkpressunni”, sagði
Ólafur Sigurgeirsson, fararstjóri
islensku lyftingamannanna á
Norðurlandamótinu i kraftlyft-
ingum, sem fram fór i Finnlandi
um helgina.
„Skúli byrjaði á þvi að setja
Norðurlandamet i hnébeygju,
lyfti282,5kg. Siðan ætlaði hann að
reyna við 125 kg i bekkpressu,
þyngd sem hann hefði örugglega
átt að ráða við. Ég tilkynnti
starfsmönnum við keppnina þá
þyngd, en svo skyndUega voru
komin 130 kg á stöngina. Þá
þyngd varð Skiili aö reyna við
hvort sem okkur likaði betur eða
verr, þvi að það má aldrei lækka
þyngdina, semá stöngina er kom-
in. — En þetta reyndist of mikið
fyrir Skúla, og hann var þar með
úr keppninni”, sagði ólafur
Sigurgeirsson.
Þetta var mikil áfall fyrir lyft-
ingamennina islensku. Eftir
keppnina fékkSkúli aö lyfta (utan
keppni) i réttstööulyftu, og fór þá
létt meö 300 kg. Hefði hann lyft
125 i bekkpressunni eins og ætlun-
in var, hefði hann þvi oröiö örugg-
ur Norðurlandameisari.
Helgi Jónsson, sem keppti i 100
kg flokki, sá til þess að islensku
keppendurnir komu ekki heim án
verðlauna. Hann lyfti 250 kg i
hnébeygju, I70kg i bekkpressu og
250 i réttstöðuleyftu, eða samtals
670 kgsem nægöu til 3. verðlauna.
Óskar Sigurpálsson keppti i 110
kg flokki og setti Islandsmet i
hnébeygju, er hann lyfti 315 kg.
Hann lyfti i allt 775 kg sem er góö-
ur árangur, en það nægði samt
ekki til verðlauna.
Þá er ógetið um einn islenska
keppandann, en það er Sverrir
Honn skildi
bara eftir
bréfsnepil!
Hjaltason. Hann keppti i 82.5 kg
flokki og varö 6., lyfti 600 kg sam-
tals.
Finnar urðu mjög sigursælir á
mótinu og hlutu 7 gullverðlaun,
Svfar3. A þingi Noröurlandasam-
taka lyftingamanna, sem haldið
var um helgina, var ákveöið að
næsta Norðurlandamót i kraft-
lyftingum færi fram á Islandi á
næsta ári.
gk-.
Fjórir bandarisku körfuknattleiksmannanna, sem leika hér á landi I vetur. Frá vinstri: Stewart John-
son (Armanni), Paul Stewart (1R), John Hudson (>KR) og John Johnson (Fram). Vfsismynd Einar
Þeir bandarísku í
aðalhlutverkunum
— KR og Fram unnu bóða sína leiki í Reykjavíkurmótinu
í körfuknattleik um helgina
,,Við vitum ekkert. Þaö eina
sem við höfum i höndunum er
litill bréfmiði, sem Hockenos
skildi eftir i ibúðinni. Við erum al-
veg undrandi á þessu”.
Þetta voru þau svör, sem Visir
fékk hjá körfuknattleiksmönnum
Þorbjörn
í lands-
liðshópinn
Landsliðseinvaldurinn i
handknattleik, Jóhann Ingi
Gunnarsson, hefur valið enn
einn nýjan leikmann i lands-
liðshópinn, sem þessa dag-
ana æfir fyrir landsleikina
viðFæreyjar,sem fram fer i
Færeyjum um næstu helgi.
Það er Akureyringurinn
Þorbjörn Jensson, sem leikið
hefur íneð Val s.l. tvo vetur.
Þorbjörn er með reyndari
mönnum i hinum unga
landsUðshópi, þvi að hann
hefur þegar nokkra lands-
leiki að baki.
Jóhann Ingi ákvað að velja
hann eftir leiki Vals I
Reykja vikurmótinu um
helgina, en einhverjir, sem
hann var búinn aö velja, eru
meiddir um þessar mundir.
Jóhann Ingi mun tilkynna
liðið sem fer til Færeyja, á
morgun.
—klp—
og forráðamönnum körfuknatt-
leiksdeildar Vals um helgina, við
þeirri spurningu, hvers vegna
bandariski þjálfarinn og leikmað-
urinn Rick Hockenos væri farinn
heim.
Það liggur nú fyrir, að Hocken-
os talaði ekki við einn einasta
mann, hann bara pakkaði niður
sinu dóti og yfirgaf Island i kyrr-
þey ásamt eiginkonu sinni, eftir
að hafa dvalið hér á landi um 10
daga.
Ekki var annað vitað enað allt
væri i hinu besta lagi, æfingar
voru hafnar af fullum krafti og
Hockenos virtistverastaðráðinn i
þvi að halda áfram uppbyggingu
sinni hjá Val. Það var svo á föstu-
dagskvöld að farið var að undrast
um hann vegna þess að hann
hafði ekki mætt á æfingu, og þá
komu menn að ibúð hans auðri,
utan þess að bréfmiði hafði verið
skilinn þar eftir. A honum stóð að
hann væri farinn, og að ástæðan
væri sú að kona sin hefði ekki
fengið vinnu eins og talað hefði
verið um!
Það hafði hinsvegar verið
gengið i það að útvega henni at-
vinnu, en frá þvi máli hafði ekki
endanlega verið gengiö. Enda
hallast mennað þvi, að Hockenos
noti þessa ástæðu að yfirskini, en
ástæðan sé einhver önnur.
Valsmenn eru nú að leita fyrir
sér meö annan bandariskan
leikmann, og eru likur á að úr þvi
máli rætist innan skamms.
Þess má geta aö Hockenos fór
ekki tómhentur heim. Valur haföi
greitt honum tveggja mánaöa
kaup fyrirfram.
gk-.
Eftir tvær fyrstu umferðirnar I
meistaraflokki karla á Reykja-
vikurmótinu i körfuknattleik,
sem hófst um helgina, eru tvö fé-
lög efst með 4 stig. Það eru ts-
landsmeistarar KR og Fram,
sem leikur i t. deild í vetur, en
Framarar komu mjög á óvart um
helgina.
Þeir unnu Armann á laugar-
daginn með 91:83, og var það
mest' vegna frábærs leiks John
Johnson bakvarðar þeirra, sem
skoraði 55 stig i leiknum. Var
hann aðeins 3 stigum frá stiga-
meti Dirk Dunbar frá i fyrra.
Stighæstur Armenninga var Ste-
wart Johnson með 38 stig en hann
virtist þó ekki beita sér af fullum
krafti.
Framarar léku siðan við Vals-
menn i gær, og unnu þá með
81:71. Aftur var John Johnson,
bakvörður Fram stighæstur
þeirra með 37 stig, en Torfi
Magnússon var stighæstur Vals-
manna með 25 stig.
Valsmenn komu hinsvegar á
óvart gegn IS og þá sigruðu þeir
þótt „Hockenoslausir” væru.
Úrslitið urðu 59:57 og var Krist-
ján Agústsson stighæstur Vals-
manna með 21 stig, Dirk Dunbar
hjá IS með 25 stig.
IS tapaði einnig fyrir IR um
helgina eftir jafnan leik framan
af. Úrslitin urðu 100:88 fyrir 1R,
og var þjálfari þeirra IR-inga,
Paul Stewart stigahæstur meö 46
stig. Hjá IS var Dunbar hæstur
með 37 stig.
KR-ingar léku tvivegis. Þeir
unnu IR á laugardag með 71:65
eftir baráttuleik. Stighæstir voru
John Hudson (Hjálmur) með 27
stig og Paul Stewart hjá IR með
24. — I gær léku KR-ingarnir
hinsvegar gegn Armanni og unnu
90:82. Var þá oft gaman að fylgj-
ast með baráttu blökkumannanna
Hudsons hjá KR og Johnsons hjá
Armanni. Hudson skoraði 30 stig,
Johnson 23, og voru þeir hæstir i
liöum sinum.
Næstu leikir mótsins veröa
leiknir um næstu helgi.
gk--
„Supercup"
leikinn í
desember!
Evrópumeistarar deildarmeist-
ara i knattspyrnu, Liverpool og
Evrópumeistarar bikarhafa,
Anderlecht, hafa komið sér
saman um leikdaga I „Super-
cup”, en það er árleg keppni á
milli sigurvegaranna I þessum
tveim Evrópumótum.
Leikið verður heima og heim-
an. Anderlecht á fyrsta leik
heima þann 4. desember, en siö-
ari leikurinn fer fram i Liverpool
þann 19. sama mánaöar.
—klp—