Tíminn - 08.10.1969, Blaðsíða 1
SAMVINNVRANKINN
Akrattesl
Crundarfirðl .
Patrfksftrðl v
Sauðárkróht
Húsavtk
Kópaskert
Stöðvarfirdl
KcVavtk
HafnmrfMH
Raykfavik
SAMVtNNVBANKOnt.
Bílar fastir
á Þíngmanna-
heiði á annan
sólarhring t
SB-Reykjavík, þriðjudag.
Nokkrir bílar hafa lent í erf
iðleikum á Þingmannaheiði síð
asta sólarhring og munu að
minnsta kosti fjórir þeirra vera
þar fastir enn. í morgun fór
veghefill frá Patreksfirði á stúf
ana og hugðist hjálpa til, en
festist líka. Tveir bílar voru að
leggja af stað frá Eyri til að '
ná fólkinu til byggða, svo það
þurfi ekki að dveljast aðra nótt
í bílunum í vitlausu veðri.
Að því er sr. Stefán Eggerts
son á Þingeyri sagði blaðinu í
dag, þá var það flutningabíll
frá Sanitas, sem fyrslur festist.
Lenti hann í snjó og fór útaf
veginum. Var þetta í gær síð
degis. Skömmu seinna komu
þarna að tveir vöruflutningaþíl
ar Gunnars & Ebenezers á .ísa
firði og komust þeir ekki fram
hjá þe’im fy.rsta. Um svipað
leyti bar þar að jeppa, er var
á leið til Hólmavíkur frá
Dýrafirði. 'Veður verznaði og
skafrenningur var mikill og
sátu allir bílarnir þarna fastir
í nótt. Eitthvað er af farþea ,
um með, þ. á. m. kvenfólk. og
er ekki við því að búast, að
nætunústin hafi verið þeim
sérlega notaleg.
Snemma í morgun fór veghef
ill frá Patreksfirði til liðs við
bílana, en ekki var hægt að að-
hafast mikið, sökum veðurs og
var allt við það sama seinni
partinn í dag. Hefillinn reyndi
að snúa við, en varð að fara
upp á heiðina aftur eftir
skamma stund. Veðrið er enn
slæmt, norðaustan stormur og
skaírenningur.
Stefán sagði, að bílarnir
væru að verða olíulitlir og folk
vnu lifizt ekki á. að vera þarna
aðra nótt, svo að nú í kvöld
væri meiningin að fara á tveim
bílum frá E.vri í Gufudalssveit
Framhald á bls. 14.
EJ—Reykjavík, þriðjudag.
Tollgæzlan á Keflavíkurflugvelli
hefur undanfarið framkvæmt mjög
nákvæma og ákveðna leit að eitur
lyf jum meðal þeirra, sem til Kefla
víkurflugvallar koma. Þótt þessi
könnun á því, hvort um er að
ræða verulegt smygl á eiturlyfj
um hingað til lands, sé mjög
skammt á veg komin, telja heim
ildir, sem málinu eru vel kunnar
að Ijóst sé, að um verulegt vanda
mál sé að ræða.
Blaðið hafði í dag samband við
Ólaf Jónsson, tollgæzlustjóra og
sagði hann það rétt, að nú færi
fram könnun á því, hvort um
verulegt eiturlyfjasmygl væri hér
að ræða eða ekki. Væri hún ný-
lega hafin, og framkvæmd af toll
gæzlumönnum á Keflavfkurflug-
velli. Um niðurstöðu könnunarinn
ar væri ekki hægt að segja fyrr
en Mn hefði staðið lengri tíma.
Tollgæzlumenn á Keflavíkurfiag
velii leita nú mjög nákvæmlega á
fólki, sem þeir telja hugsanlegt að
smygli eiturlyfjum til landsins.
Leiðir þetta oft til þess, að ýmsum
er haldið eftir á flugvellinum nokk
uð lengur en venjulega, meðan
ítarleg leit fer fram. Hefur þetta
m. a. leitt til þess, að sögur um
að einn eða annar hafi verið tek
inn fyrir eiturlyfjasmygl komast
á kreik.
Þannig barst blaðinu t d. í dag
vélritað bréf, undirritað „lögreglu
þjónn“, þar sem fullyrt var, að
nafngreind persóna hefði verið tek
in fyrir eiturlyfjasmygl og játað
það á sig við yfirheyrslu. Hafi
hún jafnframt játað, að hún hafi
smyglað eiturlyfjunum hingað til
lands fyrir aðra nafngreinda per
sónu, þekkta meðal almennings.
Samkvaemt upplýsingum frá
Keflaivíkúrflugvelli, mun þessi
persóna ekki hafa verið tekin með
eiturlyf, þótt hún hafi verið ein
af mörgum, sem ítarleg leit hefur
verið gerð á.
Þessar heimildir tjáðu blaðinu,
að könnun þessi væri gerð til þess
Framhald á bls. 15.
Dennis Michael Rohan, sem játað hefur á sig íkveikjuna í Al Aqsa-bænahúsinu i Jerúsalem, sézt hér í réttar-
höidunm.
ROHAN
JATAR
NTB-Jerusalem, þriðjudag.
Ástralíumaðurinn Denis Mic-
liael Rohn. breytti í dag fram-
burði sínum fyrir rétti, en hann
er ákærður fyrir að hafa kveikt
í A1 Aqsa-bænaliúsinu í Jerú-
salem. í gær neitaði hann ákær-
unni, en i dag sagði hann skyndi
lega að hann væri sekur, en
hefði ekki veri* með sjálfum sér,
þegar hann framdi / verknaðinn,
hinn 21. ágúst í sumar.
Þegar réttarhöldin yfir Ástralíu
manninum hófust í gær, lýsti
hann sig saklausan af ákærunni.
í dag bað verjandi hans um orðið
og sagði m. a.. að þar sem allar
sannanir bentu til sektar skjól-
(UP).
stæðings síns, myndi hann undir-
rita játningu, setn snerti einungis
þau a.triði er að sjálfri íkveikj-
un.ni lytu. Hann vísaði hins vegar
á bug öllum þeim atriðum, þar
sem sagt er, að Rohan hafi kveikt
í bænahúsin.u að yfirlögðu ráði.
— Þegar Rohao kveikti í, var
hann andlega vanheill og það er
ekki hægt að gera hann ábyrgan
eða refsa honum fyrir gerðir sfn-
ar, sagði verjandinn ennfremur.
Framhald á bls. 14.
Eiturlyfjasmygl orðið
vandamál hér á landi?
Tollgæzlan á Keflavíkurflugvelll gerir mikla eiturlyfjaleit
Dauðaslys í fyrranótt er bifreið kastaðist 70 metra út fyrir Keflavíkurveg:
BRAUZT im TIL AD
EIALLA Á LÖGREGLU
Skuldum
11.800
milljðnir
♦il =ins árs eða lengri tíma
FB-Reykjavík, þriðjudag.
Skuldir íslendinga erlendis
til eins árs eða lengri tíma nema
nú 11.800 milljónum króna. að
þvi er Gylfi Þ. Gíslason ' við-
skiptamálaráðherra skýrði frá
f blaðamannafundi i dag, en
þar sagði hann frá nýafstöðn
um fundi Alþjóðabankans. þar
sem hann var auk þriggja ann
arra fulltrúa íslands. Af þessari
Framhald á bls. 15.
SB-Reykjavík þriðjudag.
Dauðaslys varð á Keflavík-
urveginum í nótt, er Volks-
wagen bitreið úr Reykjavík
fór út a» veginum skammt frá
afleggjaranum til Innri-Njarð-
víkur. Stúlka, sem sat í fram-
sætinu, beið bana. Hún hét
Kristin Sigurgeirsdóttir, var
22ja ára gömul og til heimil-
is að Rauðalæk 45. Tveir pilt-
ar voru i aftursætinu og
me’ddis* annar þeirra tals-
vert, svo og stúlka, sem ók
bílnum
Að sögn lögreglunnar á Kefla
víkurflugvelli, mun slysið hafa orf'
ið um klukkan 3.45 í nótt. Veðri?
var mjög slæmt, stólparok 02 rig-
ing og akstursskilyrðin eftir þ\h
Ungmennin f.jögur voru á leið til
Leflavíkur í nýlegri Volkswagen
biðreið. Stúlkan. sem ók. missti
vald á bifreiðinni um 300 met"um
frá afleggjaranum og lenti hún út
í hrauni. Þegar bifreiðin loks stað
næmdist. um 70 metra frá beim
stað. sem hún fór út af veginum
hafði hún oltið og endastungizt á
30 metra spott.a. að því er lögregl
an tjáði blaðinu Stúlkan sem
ók j2 annar pilturinn í aftursæt
inu skárust talsvert og voru flutt
á sjúkrahúsið í Keflavfk. Hinn
pilturinn meiddist lltið og til-
kynnti hann um slysið, en fyrst
varð hann að br.jótast inn í Fitia
nesti til að komast í síma.
Lögreglan taldi aS mjög hraður
akstur væri sennilega orsök ?iyss
ins. en- einnig léki grunur á. að
áfengi hafi verið haft um hönd
í bifreiðinni
Bifreiðin, sem var nýleg Volks
wagen-bifreið. er talin algjöríega
onýt.