Vísir - 19.10.1978, Qupperneq 3
vism Fimmtudagur 19. október 1978
r
Hœtt við útflutning á sauðfé til Arabaríkja:
„Almenningsólitið
hefur kœft málið
##
— segir Sveinn Tryggva-
son, formaður Markaðs-
nefndar landbúnaðarins
i_l'
,,íslendingar halda
að þeir búi yfir betri
móral en aðrar þjóðir
og gera sig að dómur-
um yfir siðum annarra.
Ég held að andstaða al-
mennings hafi kæft
þetta mál. Ég hygg að
það verði ekkert
framhald á þessu máli,
ætli maður nenni að
standa i þessu þrasi”
Þannig fórust Sveini
Tryggvasyni, formanni
markaðsnefndar land-
búnaðarins#orð við Visi
i morgun er hann var
spurður um útflutning
á 4 sauðum sem ætlaðir
voru til slátrunar við
trúarathafnir i einu
Arabarikjanna.
Sveinn sagöi þaö hafa gerst
i þessu máli aö beiöni heföi
komið frá fulltrila eins
Arabari'kis um þessi kaup. Fjór-
ir hrútar heföu verið geltir en
þeir væru ennþá hér á beit og
ekki vitað hvað við þá yröi gert.
„Ég hélt að hlutverk
markaðsnefndar væri að kanna ■
alla möguleika til sölu á fram-
leiðslu landbúnaðarins og við _
vitum aö fé er flutt frá öörum
löndum til Arabalanda. Viö höf-
um hins vegar ekki sótt um nein
útflutningsleyfi ennþá og mun-
um ekki beita okkur sérstaklega
fyrir þvi þar sem alda almenn-
ingsálitsins virðist vera risin |
gegn þvi.”
—KS B
Þaö glumdu vlöa hamarshöggin þegar Vlsir leit inn þar sem veriö
var aö undirbúa húsgagnasýningu. Sýningin sem veröur opnuö á
föstudaginn er haldin I sömu húsakynnum og Auto ’78. Neöri hæöin á
AG húsinu viö Artúnshöföa veröur notuö undir sýningarbása 30
innlendra aöiia.
Nú eru liöin rétt liölega tvö ár slöan sams konar sýning var slöast
haldin, en þetta er fjóröa húsgagnasýningin.
Þaöer meistarafélag húsgagnaframleiöenda sem standa aö sýn-
ingunni. MYND:GVA
Einokunaraðstaða
Flugleiða og Eimskips
verði rannsökuð
Tillagatilþingsályktunar um að
Alþingi kjósi rannsóknarnefnd
til að gera athugun á rekstri,
fjárfestingum og farmgjalda-
ákvörðunum Flugleiða og
Eimskipafélagsins var lögð
fram á Alþingi I fyrradag.
Flutningsm aöur er Ólafur
Ragnar Grimsson
Gert er ráð fyrir að rannsókn-
in verði gerð með sérstöku tilliti
til einokunaraðstöðu eða
markaðsdrottnunar þessara
fyrirtækja á sviði flutninga og
samgangna milli Islands og
annarra landa, og milli
einstakra landshluta.
—GBG