Vísir - 19.10.1978, Page 9
VISIR Fimmtudagur 19. október 1978
9
morgun
ótvarpi
Kona á Egilsstöðum
hringdi:
„Ég var að lesa i einhverju
blaði að nú ætti að breyta
morgunútvarpinu. Nýr þáttur
með samtölum ætti að byrja
klukkan hálf átta á morgnana
og standa yfir i klukkutima.
Mér finnst ástæða til að
mótmæla þessu. Það er nóg búið
að skerða þann tima sem
morgunþulir hafa til að leika lög
Jón Múli
og spjalla við okkur hlustendur
inn á milli. Nú siðast er kominn
sérstakur tónlistarþáttur i
morgunsárið og ekki er á
bætandi.
Morgunþulirnir hafa átt
óskipta athygli hlustenda og það
er engu likara en að einhverrar
Róbert Trausti.
afbrýði gæti i þeirra garð hjá
öðrum útvarpsmönnum. Eða
hvers vegna á að gera þessar
breytingar?
Ég veit ekki betur en allflestir
séu ánægðir með morgun-
útvarpið og þvi ástæðulaust að
breyta þvi og það til hins verra
að minum dómi.”
Engar fréttir af leik
Þórs og Blikanna
H.S. hringdi:
„Égbeið spenntur eftir VIsi á
mánudag til aðsjá á iþróttasiðu
fréttir af leik Breiðabliks og
Þórsi handboltanum. Mikið var
búiðað fjalla um deilurnar sem
komu upp eftir að fyrri leikur
liðanna var kærður en þau voru
að keppa um sæti 2. deild I hand-
boltanum.
Svo þegar ég fékk blaðið i
hendur leitaði ég vandlega að
fréttum af þessum leik sem
fram fór á laugardaginn. Ekki
var minnst á hann einu oröi og
finnst mér þetta léleg frammi-
staða. Ég fylgist litið með
iþróttafréttum i sjónvarpi og
útvarpi og kannski hefur verið
sagt frá þessum leik þar um
helgina. En þar er sjálfsagt sagt
frá fleiru sem blöðin birta lika.
Okkur hér i Kópavogi finnst
fráleitt að segja ekki frá leikn-
um þótt við séum ekki ánægðir
með að Þór skyldi vinna.”
Stjórn á hallœrisplani
Skattgreiðandi
hringdi:
„Hvað er skynsamleg
skattheimta? Hvernig er hægt
að leggja viðbótarskatt á mann
sem vegna fötlunar I baki er
dottinn út af almennum vinnu-
markaði og fer þess vegna Ut i
smárekstur með talsveröum
skuldakvöðum sem er allsendis
óvist að hann geti greitt upp?
Er virkilega stefnan sú að
leggja eigi viðbótarskatt á
svona tekjuöflun sem ekki gaf af
sér nema sem nemur verka-
mannslaunum á siðasta ári?
Þetta varð ég að þola fyrir mina
sjálfsbjargarviðleitni.
Þarna á ég sennilega að borga
skatt af afskriftum á tækjum
sem ég keypti. Mig langar þvi
að spyrja hvort leigubilstjíar
borgi skatta af afskriftum á bil-
um sinum. Það eru þeirra at-
vinnutæki ekki siður en vélar
sem notaðar eru við léttan
iðnað, svo dæmi sé tekið. Þetta
er óstjórn á hallærisplani”
UMSJÓN: STEFÁN KRISTJÁNSSON SÍMI: 86611'
I ”
Allor buxur á einum stað
VerslanahSllinni Laugavegi 26
SKYNDIMYNMR
Vandaðar litmyndir
í öll skirteini.
barna&fjölsk/ldu-
Ijðsmyndir
AUSTURSTRÆTI 6
SiMI 12644
þrjár góðar
Electrolux
ZtöJ Mjög kraftmikil ryksuga (loftflæði 2.0 rúmm/min.)
Hún slekkur sjálfkrafa á sér, þegar pokinn er fullur.
Dregur snúruna inn i hjólið.
Vegur aðeins 7 kg. og er með6 m. langa snúru. Kr. 98.800.00
z.m* Kraftmikil ryksuga (loftflæði 1.9 rúmm/min.)
Hún sýnir hvenær pokinn er fullur.
Snúran dregst inn i hjólið.
Pokinn er sjálflokandi þ.e. rykið dreifist ekki þegar skipt er um poka. Veg-
ur 7 kg og er með 6 m langa snúru.
VERÐ Kr. 85.500.00
M102 Mjög ódýr og meðfærileg ryksuga en með góðan sogkraft
(loftflæði 1.65 rúmm/min.)
Vegur 5.7 kg og er með 7 m langa snúru.
Kr. 68.500.00
Vörumarkaðurinn hf.
^ÁRMuLA 1A — SlMI 86117