Vísir


Vísir - 01.11.1978, Qupperneq 1

Vísir - 01.11.1978, Qupperneq 1
Mikið gengisfall krónunnar MARKID HEFUR HÆKKAD UM 15% siðan gengis- fellingin var gerð i september Frá siðustu gengisfellingu, 6. september sl., hefur gengi islensku krónunnar farið stöðugt niður á viö gagnvart nærri ölium gjaldmiðlum. Meira að segja dollar, sem við þó eigum að fylgja, hefur hækkað I verði á þessum tveim mánuðum. Mest hefur hækkunin oröið á belgfska frankanum, eða 15,4%, en v-þýska markiö er ekki langt á eftir. 6. september var markið skráð á 154,69 kr. en I gær var það skráð á 177,62 kr., sem þýðir 14,8% hækkun. Breska pundið var skráð á 594,60 6. september, en I gær var verðiö orðiö 644 krónur. Pundið hefur þvi hækkað um 8,3 % siöustu tvo mánuðina. tsienska krónan hefur að mestu fylgt doliar þennan tima, en þó hefur hann hækkað um 0,78% sfðan 6. september. Eina myntin sem hefur iækkað I verðigagnvart islensku krónunni er kanadadollar, en hann hefur lækkað úr 265,95 kr. i 264,85. -Sj. Þeir mót- mœla með þögitÍRtni Sjá bls. 11 Lifandi bœr eða drauga- borg Sjá bls. 11 Líf og list Sjá bls. 16 IBókin langþráða, f járlagaf rumvarp fyrir árið 1979, kom fyrir augu þings og I þjóðar i gær. Ekki var laust við að nokk- urrar spennu gætti í þingsöium, eftir að | sú frétt barst, að von væri á fjárlaga- _ frumvarpinu, sem sumir kölluðu „Tóm- | as Árnason metsölubók". IÞegar þingmenn fengu bókina í hendur lék þeim að sjálfsögðu hugur á því að Ikannaefni frumvarpsins_Hér f lelta þeir bókinni í hliðarherbergi, Geir Gunnars- I son þingmaður Alþýðubandalags, Páll “ Pétursson þingmaður Framsóknar- | flokks, Ágúst Einarsson þingmaður Al- _ þýðuflokks og Albert Guðmundsson I þingmaður Sjálfstæðisflokks. Vísir fœr einkarétt á bókinni um Jackie Fyrsti kafíinn birtur i nœsta Helgarblaði Visis Vísir hefur fengið einkarétt á Islandi á birtingu bókarinnar „Jackie Oh", sem ný- lega kom út I Bandaríkjunum og vakið hefur mikið umtal og umræður undanfarið bæði vestan hafs og austan. Bókin er ævisaga Jaequeline Kennedy Onassis rituð af Kitty Kelly, blaðamanni við bandariska stórblaðið Washington Post. Höf- undurinn hefur byggt bókina á upplýsingum frá rúmlega. þrjú hundruð manns. sem þekkt hafa Jackie og haft samvinnu við hana á ýmsum timum ævi hennar. Bókin umdeilda um Jackie Kennedv Bókin um Jackie er rúmlega þrjú hundruð siður að stærð og skiptist i 22 kafla. Visir mun birta efni allra kaflanna næstu vikur nokkuð stvtt og með textanum fylgja margar myndir, sem ekki hafa áður komið fvrir almenn- ingssjónir. Efni bókarinnar. sem vakið hefur mikla athygli viða um lönd undanfarið verður birt i Visi á mánu- dögum, fimmtudögum og laugardögum. ein opna i senn og verður fvrsti kaflinn I blaðinu á laugar- daginn kemur. Visir spyr 2 - Svarthöfði 2 — Að utan 6 - Erlendar fréttir 7 - Fólk 8 - Myndasöqur 8 - Lesendabréf 9 - Leiðari 10 íþróttir 12,13 — Dagbók 15 — Stjörnuspó 15 — Lif og list 16,17 — Kvikmyndir 17 — Útvarp og sjénvorp 18,19 — Sandkorn 23

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.