Morgunblaðið - 04.01.2001, Síða 1

Morgunblaðið - 04.01.2001, Síða 1
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A RÚMLEGA 400 MILLJÓNIR Í ERLENDA LEIKMENN Á 11 ÁRUM /B2 2001  FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR BLAÐ B ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu, sem leikur í Árþúsundabikarmótinu í Indlandi, gæti þurft að fara til Kalkútta ef það kæmist áfram úr sín- um riðli. Ísland leikur í B-riðli með Úrúgvæ, Indlandi og Indónesíu, þjóðum sem Ísland hefur aldrei leikið gegn. Tvö efstu liðin úr riðlinum komast áfram. Ef Ísland lendir í fyrsta sæti yrði leikið áfram í Cochin – gegn liðinu sem hafnar í öðru sæti í A- riðli – Júgóslavía, Bosnía, Írak og Bangladesh – þjóðum sem Ísland hefur ekki leikið gegn á knattspyrnuvellinum. Ef Ísland hafnar í öðru sæti væri það hlut- skipti landsliðsins að halda til Kalkútta og leika gegn þeirri þjóð sem verður í fyrsta sæti í D- riðli – Chile, Japan, Úsbekistan og Bahrain. Ís- land hefur ekki leikið landsleik gegn Úsbek- istan. Landsliðið gæti farið til Kalkútta GRÆNLENDINGAR komust óvænt í heimsmeistarakeppnina í handknattleik, sem hefst í Frakklandi 23. janúar, þegar Kúbumenn drógu lið sitt til baka úr keppninni. Í herbúðum Græn- lendinga, sem hafa aðeins leikið 27 landsleiki, er íslenskur liðs- stjóri. Það er Guðmundur Þor- steinsson, sem hefur verið bú- settur í Grænlandi undanfarin ár ásamt eiginkonu sinni Bene- diktu Þorsteinsson. Guðmundur hefur þjálfað þar lið ásamt því að starfa fyrir grænlenska handknattleikssambandið. Guð- mundur og Benedikta eru flutt til Íslands í bili en það breytir því ekki að hann verður með grænlenska landsliðinu á HM og í gær hélt hann utan vegna und- irbúnings liðsins fyrir mótið. Grænlendingar mæta Króatíu, Þýskalandi, Spáni, Suður-Kóreu og Bandaríkjunum í C-riðli á HM. Morgunblaðið/Kristinn Guðmundur Þorsteinsson, liðsstjóri karlalandsliðs Grænlendinga, leikur á HM ásamt eiginkonu sinni Benediktu Þorsteinsson. Íslendingur liðsstjóri Grænlendinga á HM ■ Mætum.../B3 Þessi ákvæði standa eitthvað ístórstjörnum landsliðsins enda ljóst að samningurinn felur í sér skert frelsi leikmanna til að semja sjálfir við ýmsa styrktaraðila. Framherjarnir Tore Andre Flo og Ole Gunnar Solskjær eru skærustu stjörnur landsliðsins en ráðgjafar þeirra og umboðsmenn hafa sett spurningamerki við tvö lögfræðileg atriði samningsins. Í fyrsta lagi: hvaða réttindum hafa leikmennirnir afsalað sér við undirritun samnings- ins? Í öðru lagi: hvaða fyrirtæki eru það sem leikmaðurinn getur samið persónulega við þar sem NFF hefur þegar samið við 12 stórfyrirtæki í Noregi sem leggja til tæplega 4 millj- arða króna til sambandsins á næstu 4 árum. Leikmennirnir skella skuldinni á knattspyrnusambandið Í samningnum á milli leikmanna og NFF getur sambandið ráðið hvaða fyrirtæki fái afnot af ímynd þeirra til markaðssetningar á sinni vöru en leikmennirnir vilja fá að ráða meiru í þeim efnum og sætta sig ekki við þá skilmála sem eru í samningn- um. Ole Gunnar Solskjær hefur lítið viljað tjá sig um málið í fjölmiðlum en segir að peningar séu ekki vanda- málið og hann ásamt fleirum leik- mönnum liðsins gefi enn kost á sér í landsliðið og vandamálið sé hægt að leysa. Solskjær segir að málið sé meira tengt skertu frelsi leikmanna til að semja sjálfir við styrktaraðila og ráðstöfunarrétti NFF á ímynd stjörnuleikmanna liðsins. Henning Berg sem hefur verið fyrirliði norska landsliðsins til margra ára varar forráðamenn NFF við því að ganga svo langt að útiloka þá leikmenn sem ekki skrifi undir samkomulagið. Berg setur einnig stórt spurningarmerki við þá ákvörðun NFF að bjóða Tore Andre Flo og Ole Gunnar Solskjær sér- samninga, með helmingi styttri samningstíma og öðrum formerkjum en þeir samningar sem öðrum leik- mönnum er ætlað að skrifa undir. Talsmaður Postbanken sem er einn af stærstu styrktaraðilum NFF, Jacob Lund, segir að þeir leikmenn sem ekki samþykki þá samninga sem nú er boðið upp séu uppteknari af sjálfum sér og hafi gleymt því að að landsliðið hafi verið „sýningar- gluggi“ fyrir þá á sínum tíma. Lund segir einnig að nú sé kominn tími til að leikmennirnir leggi sitt af mörk- um með því að gefa NFF tækifæri til að auka tekjur sínar með því að selja m.a. ljósmyndir og eiginhandarárit- anir leikmanna landsliðsins. Landsliðsþjálfarinn er bjart- sýnn á lausn vandamálsins Talið er að NFF vilji með þessum samningum tryggja að ekki komi upp mál í líkingu við það sem upp kom fyrir tveimur árum á milli norska skíðasambandsins, NSF, og skíðastjörnunnar Lasse Kjus. Einn stærsti styrktaraðili NSF var þá framleiðandi skíða- og útivistarfatn- aðar en fyrirtæki í eigu Lasse Kjus tók þá að framleiða samskonar fatn- að og var þar með í beinni samkeppni við einn af styrktaraðilum skíðasam- bandsins. Þjálfari norska landsliðsins, Nils Johan Semb, hefur að sjálfsögðu miklar áhyggjur af gangi mála en lið- ið á leika í undankeppni HM þann 24. mars gegn Póllandi á heimavelli, en Semb er bjartsýnn á að málið verði leyst á farsælan hátt. Henning Berg sagði við norska fjölmiðla að það væri einstakt að landsliðsþjálfarinn gæti aðeins valið þá leikmenn sem knattspyrnusambandið hefði lagt blessun sína yfir og ef það yrði nið- urstaðan að margir af bestu knatt- spyrnumönnum landsins yrðu útilok- aðir frá landsliðinu væri mjög illa komið fyrir norskri knattspyrnu. Stjörnurnar vilja meira frelsi NORSKA knattspyrnusambandið, NFF, stendur frammi fyrir viða- miklu vandamáli sem tengist samningsgerð við leikmenn landsliðs- ins. Alls hafa tólf leikmenn neitað að ganga að þeim kröfum sem NFF setur upp í samningum en 22 leikmenn hafa nú þegar sam- þykkt samninginn. Kjarni deilunnar er sá að NFF fer fram á það að hver leikmaður geti aðeins samið persónulega við þrjá norska styrktaraðila og aðeins þá sem ekki eru í beinni samkeppni við styrktaraðila NFF. Að auki getur hver leikmaður samið við einn styrktaraðila þar sem allur ágóði af samkomulaginu á að renna til góðgerðarsamtaka. Vandamál hjá norska knattspyrnusambandinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.