Morgunblaðið - 04.01.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.01.2001, Blaðsíða 4
FÓLK  KRISTINN Lárusson var á gaml- ársdag útnefndur íþróttamaður Vals árið 2000. Kristinn var fyrirliði meist- araflokks Vals í knattspyrnu sem vann sér sæti í efstu deild á ný eftir árs fjarveru þaðan.  SILJA Úlfarsdóttir var útnefnd íþróttamaður FH á gamlársdag. Silja áttu góðu gengi að fagna á árinu á hlaupabrautinni og var í sigursælu liði FH-inga sem vann sigur í 1. deild og í bikarkeppninni.  BRYNJAR Björn Gunnarsson seg- ist hafa skorað sigurmark Stoke gegn Bristol City í ensku 2. deildinni síð- asta laugardag. en markið var skráð á Bjarna Guðjónsson. Bjarni átti send- ingu inn að markinu og boltinn sigldi alla leið í netmöskvana, en samkvæmt The Sentinel kveðst Brynjar hafa náð að skalla og breyta stefnu boltans.  ZLATKO Feric frá Króatíu hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara þýska handknattleiksliðsins Nettel- stedt, sem Róbert Julian Duranona leikur með. Framkvæmdastjóri fé- lagsins, Milomir Mijatovic, er tekinn við en hann var áður þjálfari hjá Mind- en, Flensburg og Bad Schwartau.  FERIC hafði verið hjá Nettelstedt í 15 ár, lengi sem leikmaður, síðan að- stoðarþjálfari og loks sem aðalþjálfari frá því í desember 1997.  JOHN Toshack er tekinn við stjórn spænska knattspyrnufélagsins Real Sociedad í þriðja skipti. Hann hefur undanfarnar vikur lyft St. Etienne af mesta fallsvæði frönsku 1. deildarinn- ar en tekur nú við Real Sociedad í enn verri stöðu því félagið situr á botni spænsku deildarinnar.  NIGEL Worthington, fyrrum landsliðsmaður Norður-Írlands, hef- ur verið ráðinn knattspyrnustjóri enska 1. deildarliðsins Norwich. Worthington hefur stýrt liðinu með góðum árangri undanfarnar vikur eftir að Bryan Hamilton sagði starfi sínu lausu.  ARSENE Wenger, knattspyrnu- stjóri Arsenal, hefur hug á að fá franska miðvörðinn Martin Djetou frá Mónakó. Hann er 26 ára og er rætt um að kaupverð yrði um átta millj. punda.  CHRIS Coleman fyrirliði enska 1. deildarliðsins Fulham leikur ekki meira með sínum mönnum á þessari leiktíð. Coleman lenti í umferðarslysi á Jaguar-bifreið sinni í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að hann fót- brotnaði á báðum fótum.  ROBBIE Fowler framherji Liv- erpool komst í fréttirnar í fyrrinótt. Ekki fyrir afrek sín á knattspyrnu- vellinum heldur var ráðist á hann fyr- ir utan næturklúbb í Liverpool. Þetta var minniháttar líkamsárás og var 39 ára gamall maður handtekinn fyrir verknaðinn.  DAVE Jones var í gær ráðinn knattspyrnustjóri hjá enska 1. deild- arliðinu Wolves. Jones hrökklaðist frá starfi stjóra hjá Southampton fyr- ir ári síðan þegar hann var ákærður fyrir kynferðislega misnotkun á börn- um á árum áður en hann var sýkn- aður af ákærum fyrir skömmu. Jones tekur við starfi Colins Lee sem látinn var taka poka sinn frá félaginu fyrir jólin vegna slaks árangurs liðsins.  LOU Macari hefur verið útnefndur knattspyrnustjóri desembermánaðar í ensku 1. deildinni í knattspyrnu. Undir hans stjórn vann Huddersfield fimm leiki í desember og gerði tvö jafntefli. Jocky Scott knattspyrnu- stjóri Notts County varð fyrir valinu sem stjóri mánaðarins í 2. deildinni.  ÍTALSKA meistaraliðið Lazio hyggst festa kaup á tékkneska lands- liðsmanninum Karel Poborsky frá portúgalska liðinu Benfica. Sagt er frá því að Poborsky muni skrifa undir þriggja ára samning í lok vikunnar. Lazio hefur einnig hug á að fá mið- vallarleikmanninn Stefano Fiore frá Udinese. Costantini tók þá ákvörðun eftirHM í Egyptalandi 1999, að byggja upp nýtt landslið fyrir heims- meistarakeppnina í Frakklandi. Hann ákvað að byggja lið sitt upp að mestu leyti á leikmönnum, sem léku með frönskum liðum. Í landsliðs- hópnum hans sem leikur hér á landi eru tólf leikmenn, sem leika í heima- landi sínu, tveir koma frá Magde- burg í Þýskalandi og tveir frá Spáni. Þeir Christian Gaudin markvörð- ur og örvhenta skyttan Joel Abati, leika undir stjórn Alfreðs Gíslasonar og við hlið Ólafs Stefánssonar með Magdeburg. Abati spilar sömu stöðu og Ólafur og leysir hann yfirleitt af í nokkrar mínútur í hverjum leik. Jackson Richardson, besti leik- maður HM á Íslandi 1995, kemur frá Portland á Spáni og Patrick Cazal kemur frá Bidazoa. Sjö leikmenn koma frá Montpell- ier sem er með fullt hús stiga í frönsku 1. deildinni og er komið í átta liða úrslit meistaradeildar Evr- ópu. Það eru markverðirnir Bruno Martini og Thierry Omeyer, og þeir Jérome Fernandez, Didier Dinart, Grégory Anquetil, Andrej Golic og Laurent Puigsegur. Frá Chambery, sem einnig hefur unnið alla leiki sína í frönsku deildinni, koma Guillaume Gille, Bertrand Gille og Daniel Narc- isse, og hinir í hópnum eru Olivier Girault frá Paris SG og Stéphane Plantin frá Toulouse. Jackson Richardson er langreynd- asti leikmaður Frakka með 315 landsleiki að baki en fyrir utan hann hafa aðeins markverðirnir Gaudin og Martini leikið yfir 100 landsleiki. Íslenska landsliðið lék síðast gegn Frökkum í Frakklandi fyrir ári – fyrir EM í Króatíu. Frakkar unnu í Bordeaux, 24:20, og jafntefli var í Pau, 20:20. Frakkar urðu í fjórða sæti á EM, töpuðu fyrir Spánverjum í leik um bronsið, 24:23. Frakkar léku um fimmta sætið við Þjóðverja á ÓL í Sydney og töpuðu, 25:22. Frakkar með heimamenn DANIEL Costantini, landsliðs- þjálfari Frakka, hefur valið sextán manna hóp fyrir æfinga- leikina þrjá gegn Íslendingum hér á landi um næstu helgi og alþjóðlegt mót í Svíþjóð í vik- unni á eftir. Jackson Richardson, einn leikreyndasti leikmaður Frakka, sækir að marki Íslands í landsleik í Bordeaux fyrir ári. Róbert Sighvatsson er til varnar. Úrslitakeppni HM hefst í Frakk-landi 23. janúar og er þriðja stórmótið í íþróttinni á aðeins 13 mánuðum. Á sama tíma í fyrra fór fram úrslitakeppni Evrópumótsins í Króatíu og síðan komu Ólympíu- leikarnir í Sydney í haust. Stór hluti af fremstu handknattleiks- mönnum heims leikur í Þýskalandi og þar er deildakeppnin umfangs- meiri í vetur en nokkru sinni fyrr því liðin eru 20 talsins og leika því 38 umferðir. Þegar hafa margir af þeim bestu helst úr lestinni og verða ekki með á HM í Frakklandi. Þjóðverjar, Sví- ar, Frakkar og Spánverjar hafa meðal annarra mátt sjá á bak sterk- um leikmönnum fyrir keppnina. „HM missir marks þegar bestu leikmennina vantar. Handboltinn er á góðri leið með að verða eins og íshokkíið þar sem í raun er um B- mót að ræða. Leikmennirnir hætta ekki við þátttöku af áhugaleysi, þeir hafa ekki orku til að vera með. Þeir eru þreyttir, líkamlega og and- lega. Sænska liðið er ekki það eina sem er með háan meðalaldur og það er kominn tími til að Alþjóða hand- knattleikssambandið fari að hugsa sinn gang,“ sagði Johansson við Aftonbladet. Bengt Johansson vill breytingar. „Heimsmeistarakeppnina og Evr- ópukeppnina á að halda fjórða hvert ár, eins og Ólympíuleikana. Þá yrði frí frá stórmótum eitt ár af hverjum fjórum. Leikmennirnir þurfa að vera tilbúnir til að gefa sig alla í stóru mótin. Annars missa þau marks. Eins og málin standa nú er fólk farið að rugla saman mótunum, það veit varla hvort það er Evrópu- keppni eða heimsmeistaramót sem er næst á dagskránni,“ sagði Jo- hansson. Þess má geta að nokkrir af sterk- ustu leikmönnum Svía undanfarin ár, gáfu ekki kost á sér í HM í Frakklandi vegna álags. Leikmenn eins og Staffan „Faxi“ Olsson hjá Kiel og Pierre Thorsson, sem leikur með Bad Schwartau, verða ekki í sviðsljósinu með Svíum á HM. Bengt hefur áhyggjur af þróun handboltans Morgunblaðið/Gísli Þorsteinsson Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari Íslands og Bengt Johansson landsliðsþjálfari Svía. Bengt kemur til Íslands um helgina til að fylgdist með landsliði Íslands í leikjum gegn Frakklandi. BENGT Johansson, þjálfari sænska landsliðsins í hand- knattleik, hefur áhyggjur af þró- un íþróttarinnar og telur að stórmótin séu leikin alltof þétt. Bestu handknattleiksmenn heims hafa ekki lengur úthald til að taka þátt í þeim öllum, að mati þessa virtasta handknatt- leiksþjálfara heims sem hefur verið með lið sitt í fremstu röð í rúman áratug.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.