Vísir - 08.01.1979, Qupperneq 1
visi
Mánudagur 8. janúar 1979
* 1,1
Allt um íþrótta
viðburðihelg-
arinnar í dag
Bjarni og Jón í
aðalhlutverkum
— Þegar Island gerði jafntefli við Pólland
i síðari landsleiknum í handknattleik
Þaö ætlaöi allt um koll aö keyra
I Laugardalshöllinni, er Bjarni
Guömundsson jafnaöi fyrir
Isiandi I landsleiknum viö
Polland f gærkvöldi. Bjarni
skaustfram, er leiktiminn var aö
renna út og eftir aö hafa fengiö
boltann skoraöi hann af öryggi.
Þá var ein sekúnda til leiksloka
og Pólverjarnir gátu ekki einu
sinni hafiö leikinn aftur.
En maðurinn á bak viö sigurinn
var Jón Pétur Jónsson. Hvað eftir
annað tók hann af skarið i siðari
hálfleiknum og skoraði gullfalleg
mörk.Þettaframtakhansvarð til
þess að Island vann upp forskot
það sem Pólverjarnir höföu náð,
og Bjarni rak siðan endahnútinn á
i leikslok.
En komu „taktisk” mistök Jó-
hanns Inga Gunnarssonar lands-
liðsþjálfara i veg fyrir islenskan
sigur i gærkvöldi?
Jóhann Ingi lét ekki taka stór-
skyttuna Klempel úr umferð fyrr
en hann hafði skorað 11 mörk. Þá
var staðan 17:12 og 12 minútur
búnar af siðari hálfleik. Eftir
þetta skoraöi Klempel aðeins eitt
mark, og munurinn á liöunum tók
strax að minnka.
Mikið jafnræði var með liðun-
um i upphafi, og þó að ísland
leiddi oftast meö einu eða tveim-
ur mörkum þá jafnaði Pólland.
En þegar Island leiddi 8:7 tók
Klempel til sinna ráða, hann
skoraði fjögur mörk i röð og Pól-
land leiddi i hálfleik 12:10.
ÍSLCND-
INGAR
GRÓFIR"
„Það var miklu skemmtilegra
aö dæma siöari leikinn en þann
fyrri — en annars var mjög erfitt
að dæma þá báöa, þvl aö þeir
voru leiknir mjög fast, eöa nánast
gróft,” sögöu dönsku dómararnir,
Leif Nielsen og Knut Juhl, eftir
landsleikinn i gærkvöldi.
„Islenska liðiö var mun betra i
siöari leiknum, og þaö verður
gaman aö sjá þaö á móti þvi
danska i Baltic Cup á þriöjudags-
kvöldið. Þaö getur orðiö
skemmtilegur leikur, ef dómar-
arnir ná að halda honum i skefj-
um.
Að okkar áliti leikur islenska
liðiö allt of fast. Þaö notar
hendurnar of mikið við að hrinda,
en það er nokkuð sem farið er að
taka strangt á. Strangar reglur
voru settar I sambandi við brot i
siðustu HM-keppni, og eftir þeim
veröur dæmt i Baltic Cup og i B-
mótinu á Spáni.
Ef tslendingarnir venja sig ekki
af þessum brotum, geta dómar-
arnir oröið þeim erfiöir þar — svo
og ef piltarnir venja sig ekki af
þvi að vera sífellt að dæma sjálfir
og aö mótmæla dómum. Það gera
þvi miður of margir þeirra — og
það er enn eitt sem farið er aö
’taka strangt á úti um allan heim.
Viö visuöum 11 mönnum útaf i
fyrri leiknum og 10 i þeim siöari
og þaö var i það minnsta — ef
strangt er tekið á málunum.
Annars voru þetta mjög erfiðir
leikir að dæma — það var mikill
hraði i þeim, harkan fram úr hófi
og mistökin á báða bóga hreint
ótrúlega morg.” — klp -
Mesti munurinn i siðari hálfleik
varð 17:12 en þá var Klempel
tekinn i gæslu af Bjarna
Guðmundssyni og munurinn
minnkaði strax. Það hafði ekki
svo lítiö aö segja aö nú fór Jón
Pétur Jónsson I gang svo um
munaði. Hann skoraði t.d. þrjú
mörk i röð og breytti stöðunni úr
20:17 I 20:20.
Þá kom pólskt mark en Þor-
björn Guðmundsson jafnaöi 21:21
og 4 minútur til leiksloka. Pól-
land komst yfir aftur 22:21 og
eftir að Þorbjörn Guðmundsson
hafði átt stangarskot, bættu þeir
við 23. marki sinu. tJtlitið var þvi
svart, þegar Klempel tók vitaskot
rétt fyrir leikslok, en Ólafur
Benediktsson varði. Islenska liöiö
brunaði upp, og Jón Pétur minnk-
aði muninn I 22:23 þegar 30
sekúndur voru til leiksloka.
ísland lék maður gegn manni og
þeir pólsku glopruðu boltanum.
Bjarni Guðmundsson skaust þá
fram völlinn, og jafnaöi rétt i
þann mund að leikurinn var flaut-
aður af.
Það er hægt að vera ánægöur
með þessiúrslit, Pólverjar teljast
vera 6. besta handknattleiksþjóð
heims eftir siðustu HM-keppni.
Og þetta gerði Island án þess að
hafa þá með Ólaf H. Jónsson og
Axel Axelsson, sem báðir eru
meiddir.
Þeir Jón P. og Bjarni voru
menn leiksins I gærkvöldi, þótt
fleiri lékju auðvitaö góðan leik.
Það gerðu þeir Þorbjörn
Guðmundsson og Ólafur Jónsson
Vfkingur,og sömuleiðis Arni Ind-
riðason. Markvarslan var glopp-
ótt, en ólafur Benediktsson varöi
vel á mikilvægum augnablikum
undir lok leiksins.
Mörk Islands skoruöu Jón'
Pétur 7 — úr 8 tilraunum — Ólafur
Einarsson 5 (2), Þorbjörn
Guðmundsson 4 (1), Bjarni
Guðmundsson 3, Páll Björgvins-
son 2, Arni Indriöason og ólafur
Jónsson 1 mark hvor.
Dómarar voru danskir, Nielsen
og Juhl, og vöktu þeir athygli
fyrir hvað þeir leyfðu litið og voru
ósparir að senda menn útaf. gk-
Islenski
Kempel
fjallhress
„Ég er að sjálfsögðu fjallhress
með þetta, það er ekki á hverjum
degi sem maður nær sér svona á
strik I stórleik i handboltanum”,
sagði stjarna Islenska liðsins, Jón
P. Jónsson, eftir landsleikinn viö
Pólland i gærkvöldi.
„Þessi úrslit eru að sjálfsögðu
mikil upplyfting fyrir handknatt-
leikinn hér hjá okkur, og ef liöinu
tekst vel upp i Baltic Cup gerum
við þaö áreiöanlega gott I B-
keppninni á Spáni” bætti hann
við.
„Nú erum við komnir með góð-
an 16 manna kjarna — að minu
matibetri kjarna en fyrir siðustu
heimsmeistarakeppni — og ef rétt
er haldið á spilunum, eigum við
að geta náö langt. Þjálfarinn er
nú til staðar en ekki i öðru landi
eins og sá sem þjálfaði liöið fyrir
HM-keppnina og þaö hefur sitt að
segja”, sagði hinn islenski
Klempel, Jón P. Jónsson, aö lok-
um... —klp
Ólafur Einarsson lék báða landsleikina um helgina. Hann tók þóaðeins þátt i sóknarleiknum, þykir ekki
nægilega sterkur sem varnarmaður. Vfsismynd Einar
„Islendingar eru
alltaf vitlausir'
— sagði Kurt Wadberg, sem sá um að dœma Víking úr
Evrópukeppninni í handknattleik
Um fátt hefur verið meira
rætt á meöal Iþróttaunnenda og
annarra nú um helgina en dóm
IHF — Alþjóöa handknattleiks-
sambandsins—yfirVIkingi, þar
sem liðiö var dæmt f háar
fjársektir og vikið úr
Evrópukeppni bikarmeistara
fyrir óspektir eftir sigur Vikings
yfir Ystad I Sviþjóð á dögunum.
Handknattleikssamband
íslands er komiö i málið og er
byrjað að safna gögnum til að
hrekja þennan dóm, sem er
einsdæmi i Iþróttasögunni.
Maöurinn bak við dóminn er
Svíinn Kurt Wadberg, en hann
er þekktur meðal margra
islenskra handknattleiks-
forystumanna fyrir allt annaö
en velvild I garð alls þess er
snertir handknattleik á Islandi.
Það var hann sem kæröi Vik-
ingana fyrir ólætin i Ystad og
var slðan einn þriggja dómara,
sem dæmdu I málinu — en það
var gert með þvi að ræðast við i
sima! Það eitt hefur nægt HSl
til aö óska eftir frekari
rannsókn á málinu enda óvenju-
leg málsmeðferö.
Þetta er i fyrsta sinn sem vit-
aö er til þess að heilt lið sé dæmt
úr keppni vegna láta sem eiga
sér stað löngu eftir að leik er
lokið. Þó er vitað að ýmis hand-
knattleiksliö hafa gerst brotleg
— og þaö brotlegri en Viking-
arnir — i ýmsum feröum viða
um heim og eru Sviar þar ekki
barnanna bestir eins og við
þekkjum best til hér á Islandi.
Vikingarnir eru komnir með
lögfræðing i máliö, og ætla sér
ekkert aö gefa eftir. Þegar hef-
ur verið rætt við Kurt Wadberg i
sima, og var það simtal tekið
allt upp á segulband. Þar kemur
fram aö þaö er allt rétt, sem
Vikingarnir hafa sagt opinber-
lega um þetta mál, og hefur
Wadmark ekkert til aö hengja
hatt sinn á nema þessi læti sem
kostuðu tvö rúðubrot.
Wadberg var bent á i þessu
samtali aö framkoma leik-
manna Ystad hér á Hótel Esju
eftir fyrri leikinn hafi ekki verið
til fyrirmyndar. Menn hefðu þó
ekki séö ástæöu til aö kæra þá
fyrir Aganefnd IHF. Viö aö
heyra þetta fauk heyranlega i
Wadberg, sem er milljónamær-
ingur og óhemju ráðrlkur eins
og þeir best þekkja sem setið
hafa fundi með honum hjá IHF.
... Svaraöi hann þessu til meö
þvi að segja eitthvað á þá leið —
aö íslendingar hafi alltaf verið
vitleysingar — og þar með var
málið afgreitt af hans hálfu...
Við hér á Visi höfðum sam-
band viö fréttastjóra Skánska
dagblaösins i Malmö, Olson aö
nafni, og rannsakaöi hann ýms-
ar hliðar þessa umtalaða máls
fyrir okkur I gær. Bar frásögn
hans heim og saman viö það
sem Vikingarnir hafa sagt, og
engu þar við að bæta, sem skipt-
ir máli.
Hann sagöi að það hafi eitt-
hvað verið skrifaö um þessi
rúðubrot I blöð i nágrenni Ystad
á eftir. Hann haföi þó eftir
lögreglunni þar, aö þetta heföu
ekki verið nein ólæti heldur
söngur og gleðskapur, sem ekki
væri neitt nýtt á almannafæri i
Ystad frekar en öörum stöðum 1
Sviþjóð.
Olson hafði eftir leikmönnum
Ystad, sem hann heföi náð i, að
þeim þætti þetta þungur dómur,
en annars vildu þeir litiö um
máliö segja. Hann sagöist
persónulega halda, að á bakviö
kæruna lægju sárindi forráða-
manna Ystad yfir aö tapa fyrir
Islendingunum. Þeir hafi þó
ekki ætlast til að málið tæki
þessa stefnu, enda hefðu þeir
engan hagnaö af þessum dómi
sjálfir, og hann aðeins til þess
fallinn að varpa skugga á sam-
skipti Svia og Islendinga I
iþróttasviöinu um ófyrirsjáan-
lega framtiö... — klp—