Vísir - 08.01.1979, Side 3
---—■—■—-—”——----
Stenmark í allt
öðrum gœðaflokki
Mánudagur 8. janúar 1979
VÍSIR
VtSIR
Mánudagur 8. janúar 1979
J9!enn einn nýr MAZDA,
rúmgóður, sparneytínn
og umfram allt-ódýr
Fyrir þá sem þurfa station bíl þá
höfum viö lausnina... MAZDA 323
5-dyra station. Þessi bíll leysir af hólmi
818 station bílinn, sem hefur notiö mikilla vinsælda. 323 station er aö
öllu leyti rúmbetri bíll og aflmeiri. Plássiö er meira aö segja nóg til aö
hægt er aö sofa í honum.
Athugið aö MAZDA 323 eyddi aöeins 5.47 lítrum pr. 100 km. í
sparaksturskeppni BÍKR 1977...
BÍLABORG HF.
SMIDSHÖFDA 23 símar. 812 64 og 81299
' ■
Umsjón:
Gylfi Ifristjánsson — Kjartan L. Páisson
Þeir vðldu Floso
í úrvalsliðið!
Ssland í 4. sœti á NM unglinga í körfuknattleik
tslenska unglingalandsliöiö I
körfuknattleik hafnaöi í 4. sæti á
Noröurlandamóti unglinga sem
lauk í Lathi I Finnlandi í gær.
island sigraöi liö Noregs en
tapaði öörum leikjum sinum.
Finnar uröu Noröurlanda-
meistarar, sigruöu Dani I úrslit-
um 99:63.
„Það var grátlegt fyrir okkur
að tapa fyrir Svium, við vorum
með unninn leik” sagði Jón Otti
Ölafsson er við ræddum við hann i
Köflóttur
leikur hjá
landsliðinu
Hann var hálf-köflóttur fyrri
leikur fslenska landsliösins i
handknattleik gegn 'Pólverjum á
laugardaginn. Lengst af gekk allt
á afturfótunum hjá liöinu, en á
milli sáust kaflar sem hvaöa
landsliö sem er gat veriö stolt af.
Einn af þessum góðu köflum
kom fyrst i leiknum. Þá skoraöi
islenska liöiö fyrstu 3 mörkin og
fékk ekki á sig mark i liölega 11
minútur. Pólverjunum tókst ekki
aö jafna fyrr en hálfleikurinn var
rétt hálfnaður — og þá var staðan
5:5.
Eftir það fór aö syrta I álinn hjá
Islenska liðinu og einn af þessum
lélegu köflum, sem jafnan fylgja
þvi, kom I ljós. Pólverjarnir kom-
ust I 8:5 og siðan i 13:8 en I hálf-
leik voru þeir 7 mörkum yfir —
16:9.
Þeir komust svo i 17:9, en þá
kom aftur góöur kafli hjá landan-
um og hann komst I 12:17. Hann
minnkaði svo bilið i 3 mörk eða
16:19 en náði ekki aö brúa það
betur og lokatölurnar uröu 20:25
Pólverjum I vil.
Leikur islenska liðsins i siðari
hálfleik var mun betri en i þeim
fyrri, en áberandi var hvað mikið
var um mistök — og það oft á tið-
um hrein byrjendamistök. Menn
voru að missa knöttinn úr hönd-
um sér — stóðu með hann eins og
glópar of lengi eða þá köstuöu
honum útaf i stað þess að senda á
næsta mann...
Pólverjarnir kunnu sýnilega á
leikaðferðir islenska liðsins, og
stöðvuðu þær oftast I fæöingu, en
afturá móti gekk okkar mönnum
ekki eins vel að stöðva leikaðferð-
ir Pólverjanna. Að visu tókst að
halda stórskyttunni Klempel i
skefjum, en hann skoraði ekki
nema 4 mörk i leiknum — öll úr
vitaköstum. Pólverjarnir höfðu
þá afsökun á slælegri frammi-
stöðu hans, að hann væri aö koma
úr keppnisbanni, sem hann hefði
fengiö fyrir að brjóta settar regl-
ur. Hann væri þvi enn ekki kom-
inn i almennilega æfingu.
Þeir áttu samt nóg af öðrum
mönnum til að skora mörkin, en I
liði þeirra báru þeir af I þessum
leik Garpiel, sem geröi 7 mörk,
Katuzinski (nr. 13) sem gefur
Klempel ekkert eftir hvað skot-
hörku eða stökkkraft snertir og
Kosma (nr. 11) sem var potturinn
og pannan i öllu spili.
1 islenska liðinu báru þeir af
Þorbjörn Guðmundsson, Bjarni
Guðmundsson og Ólafur Jónsson,
en aftur á móti var Ólafur H.
Jónsson ekki svipur hjá sjón,
enda með flensu rétt fyrir leikinn.
Axel Axelsson var ekki með
vegna meiðsla í baki og vantaði
liðiö þvi tilfinnanlega stórskyttu i
hans stað.
Alls var 11 mönnum visað útaf I
leiknum — 6 Pólverjum og 5
Islendingum — af hinum dönsku
dómurum leiksins, sem ekki voru
samkvæmir sjálfum sér, hvorki 1
brottvisunum né mörgum öðrum
dómum.
—klp—
gær, en Jón Otti dæmdi á motinu,
m.a. úrslitaleikinn.
„Við vorum með unninn leik i
höndunum, vorum yfir 11 stig
þegar 5 minútur voru til leiks-
loka.A siðustu sekúndum leiksins
þegar við vorum eittstig yfir mis-
tókst stórgott tækifæri að innsigla
sigurinn. Þá brást körfuskot
undir körfunni aðeins 5 sekúndur
voru til leiksloka. Sviarnir náðu
boltanum og fengu vitaskot sem
þeir jöfnuðu úr, 66:66.
Sviar sigruðu siðan i fram-
lengingu 11:6, en það var grátlegt
að horfa á þetta” sagði Jón Otti.
Island lék mjög góðan leik i gær
igegn Noregi og vann öruggan
sigur 85:76. Hinsvegar átti liðið
enga möguleika gegn Dönum og
Finnum, en Danirnir komu mjög
á óvart með þvi að taka 2. sætið i
mótinu. Þéir unnu Island 86:58
og Finnar sigruöu okkur 99:57.
Flosi Sigurðsson, hinn hávaxni
miðherji liðsins — sonur Sigurðar
Helgasonar fyrrum leikmanns
Vals, var kjörinn i úrvalsliö eftir
keppnina, en það skipuðu auk
hans þrir Finnar og einn danskur
leikmaður. Flosistóðsig mjög vel
á mótinu og skoraði alls 85 stig I
leikjunum fjórum.
gk —.
„Lélegir
leikir"
Þótt þjálfari islenska landsliðs-
ins, Jóhann Ingi Gunnarsson,
hefði ekki haft tima aflögu —
aldrei þessu vant — fyrir fslensku
blaðamennina eftir landsleikinn I
gærkvöldi, hafði hinn pólski
kollegi hans það.
Alit hans á landsleikjunum
tveim var þaö, að sá slöari hafi
verið mun betri — en annars hafi
báðir leikirnir verið handknatt-
leikslega séð mjög lélegir. Það
hafi verið allt of mikiö um slæm
mistök bæði i vörn og sókn á báða
bóga.
,,En þessir leikir voru góð æfing
fyrir Baltic Cup. Leikmenn
beggja liöa og þjálfarar þeirra
geta ýmislegt af þeim lært fyrir
þá keppni”, sagði hann.
Um einstaka leikmenn i is-
lenska liöinu vildi hann litið
segja, en hældi þó Jóni P. Jóns-
syni fyrir framlag sitt I siöari
leiknum og gat einnig Bjarna
Guðmundssonar, sem honum
fannst vera fljótur og skemmti-
legur leikmaður.
—klp—
2. deildin i handknattleik:
TVEIR ÓSIGRAR
HJÁ ÞÓRSURUM
Sigmar Þröstur, markvörður
Þórs úr Eyjum, hefur staðið sig
frábærlega vel I markinu I vetur,
en um helgina mátti hann þó rölta
56 sinnum eftir boltanum I mark-
iö.
Vfsismynd Einar.
Þórsarar úr Vestmannaeyjum
sem hafa vakið mikla athygli I
leikjum sfnum i 2. deild tslands-
mótsins I handknattleik f vetur,
töpuðu loksins um helgina er þeir
léku tvo leiki i Reykjavik. Þetta
voru fyrstu ósigrar liðsins, sem
var eitt ósigraö I 2. deild, og setur
þetta mikla spennu I keppnina.
Á laugardag töpuðu Þórsararn-
ir fyrir Þrótti 29:19, og I gær fyrir
Armanni 27:17. Komu þessir
ósigrar aðaliega til vegna þess að :
Hannes Leifsson var tekinn úr
umferð og það braut niður
sóknarleik liðsins. Þá var varnar-
leikurinn ekki upp á það allra
besta, enda fær liöiö á sig 56 mörk
I tveimur leikjum.
Þá fór fram einn leikur i 1. deild
kvenna, og urðu þau óvæntu úrslit
að Breiöablik sigraði KR 12:10
eftir að hafa haft yfir I hálfleik
6:2.
Valur sigraði 1R I bikarkeppni
kvenna 24:10.
Þetta heitir aðskora körfu meö miklum tilþrifum. Njarðvíkingurinn Ted Bee sýnir á myndunum hér aðofan hvernig troöaá boltanum f körfu andstæöingsins.
Myndin þarfnast varla skýringa, en litlu bakverðir ÍR, þeir Kristinn Jörundsson og Kolbeinn Kristinsson eru f hlutverkum áhorfenda, og standa enn og
stara er Ted Bee hefur lokið sýningunni. Vfsismynd Friðþjófur
UMFN „gekk hreinlega
frá" þreyttum ÍR-ingum
Islandsmeistarar KR þurftu ekki
neinn stórleik til að vinna sigur gegn ,
1S f Úrvalsdeildinni I körfuknattleik I
gær. KR-ingar léku miðlungsleik, en
þeir unnu samt 22 stiga sigur, 88:66. |
Stúdentarnir eiga greinilega erfitt
um þessar mundir. Dirk Dunbar
meiddur og á förum frá liðinu og óvist
hvort þeir fá annan bandariskan leik-
mann til að taka stöðu hans. Það er
mikiðmálfyrirliðið, þvi fallbarátta er
framundan fari sem horfir. Þá eru
sumir eldri manna liðsins greinilega
búnir með sitt fegursta sem körfu-
knattleiksmenn og ekki að sjá að þeir
Lónlausir stúdentar
í mikilli fallhœttu
í „Ég get ómögulega tekið undir þaö
að viö verðum ekki með I baráttunni
um íslandsmeistaratitilinn”, sagöi
bandarfski leikmaðurinn Ted Bee sem
leikur méð UMFN i Úrvalsdeildinni I
körfuknattleik. Við ræddum viö Bee
eftir að lið hans hafði unnið 104:77 sig-
ur gegn 1R f „Ljónagryfjunni” I Njarð-
vikum um helgina.
„Þetta var góður leikur hjá okkur”,
bætti Bee viö: „Við lékum nú sem ein
sterk liðsheild og liðið hefur ekki leikið
jafnvel saman sem slik heild fyrr i vet-
ur. Þá hjálpaöi það til að IR-ingarnir
voru greinilega þreyttir eftir leikinn
við KR,” bætti Ted Bee viö.
ÍR-ingar sein unnu sigur gegn KR i
fyrriviku vorualgjörlega yfirspilaðir i
Njarðvik, er iiða tók á leikinn. Fram
að þvf haföi hann verið i járnum og um
miðjan fyrri hálfleik var IR t.d. yfir
nokkrum sinnum. En undir bk hálf-
leiksins kom góöur kafli h já UMFN og
staðan breyttist úr 40:38 i 56:40 og
þannig var staðan i hálfleik.
Þessi munur hélst nær óbreyttur
fram eftir siðari hálfleiknum, enundir
lokin breikkaði bilið enn og á lokakafl-
C STAÐAW )
Staöan I Úrvalsdeildinni i körfu-
knattleik er nú þessi:
UMFN-IR
KR-ÍS
KR
UMFN
Valur
1R
ts
Þór
11 8
11 7
9 6 3
10 5 5
9 2 7
10 2 8
Næsti leikur er á fimmtudag en þá
leika IS og Valur.
104:77
88:66
3 1008:868 16
4 1083:1015 14
946:780 12
865:848 10
748:826 4
789:932 4
anum skoraði UMFN 25 stig gegn 7 og
vann þvi stórsigur 104:77.
Njarðvikurliðið var sterkt i þessum
leik og fylgi fleiri slikir i kjölfariö,
verður liðið ibaráttunni um Islands-
meistaratitilinn. Þeirra besti maður
var Ted Bee, sem lék aldrei betur en
þegar UMFN var aðná tökum á leikn-
um, og dreif þá aðra meö sér. Geir
Þorsteinsson átti einn besta sóknar-
leik.sem maðurhefúr séð til hans. Þá
áttu þeir góða kafla Stefán Bjarkason
og Július Valgeirsson, sem lék sinn
besta leik með liðinu.
Annað var upp á teningnum hjá
þreyttuliði IR-ingasem var yfirspilaö,
er leið á leikinn. Það var helst að þeir
Kristinn Jörundsson og Stefán Krist-
jánsson risu þar upp Ur. En Paul Stew-
art var óvenjuslakur. Hann lék lika
undir mikillipressu.þvi' að áhorfendur
púuðu og æptu á hann næstum i hvert
skipti sem hann kom við boltann.
Stighæstir voru Ted Bee með 29,
Geir Þorsteinsson með 23 og Stefán
Bjarkason meö 14, en hjá IR Paul
Stewart 27, Kristinn Jörundsson 17 og
Stefán Kristjánsson 15. gk-.
eigi eftir að ná sér á strik aftur.
1S hefur aftur á móti fengið i sinar
raðir KR-inginn Glsla Gislason og var
hann besti maður liðsins að þessu sinni
þótt ekki léki hann neinn stórleik.
Annar KR-ingur, Carsten Kristinsson,
er og genginn yfir i lið 1S og kemur
sjálfsagt með að styrkja það.
Það var Jón Sigurðsson öðrum
fremur sem dreif KR-liðið áfram til
sigurs i þessum leik. Eftir jafnan fyrri
hálfleik, sem KR sigraöi með 42:36,
kom góður kafli hjá Jóni I upphafi sið-
ari hálfleiksins og hann var þá oft
mjög góður. KR sigldi lika framúr
hægtog bitandi og 22 skildu,er upp var
staðið.
En betur má ef duga skal KR-ingum
til að verja íslandsmeistaratitil sinn,
og sannast sagna hefur liðið dalað
mjög yfir hátiðirnar. Jón Sigurðsson
var besti maður liðsins, en þeir John
Hudson og Einar Bollason áttu sæmi-
lega kafla.
Stighæstir KR-inga voru Jón
Sigurðsson með 30 stig, Hudson meö
19 og Einar Bollason með 12. Hjá IS
var Gisli Gislason með 14 stig, Ingi
Stefánsson með 13 og þeir Bjarni
Gunnar og Jón Héðinsson með 11 stig
hvor.
gk-
Dunbar hefur þurft heilmikinn útbún-
að á fótinn til að geta leikiö körfu-
knattleik. Nú dugir það ekki lengur og
ferill hans I körfuknattleiknum er á
enda.
Vísismynd Einar
Dunbar er gð
hœtta hjá ÍS
„Jú þaðer rétt, ég er á f örum héðan,
á sennilega ekki eftir að leika nema
einn leik með IS”, sagöi bandaríski
leikmaðurinn Dirk Dunbar, sem hefur
leikið með 1S f Úrvalsdeiidinni i körfu-
knattleik, er við ræddum viö hann I
gær.
Meiðsli Dunbars á hné tóku sig upp,
er hann var i jólafrii I Bandarikjunum
og læknar hans hafa sagt honum að
láta kifrfuknattleik eiga sig héðan I
frá. Bendir því allt til þess að ferill
Dunbars sé á enda runninn, þótt hann
sé ekki nema 24 ára að aldri.
Dunbar hefur vakið mikla athygli
fvrir knatttækni sina og hittnisem er
einstök, cn mciðsli hafa sífellt hrjáð
hann ogekki sjaldnar en fjórum sinn-
um hefur hann verið skorinn upp
vegna meiösla á fótum. Dunbar tjáði
okkur I gær að hann yrði að sætta sig
við þetta, en nú myndi hann halda
heim á leiö og fara að vinna við eitt-
hvað annað en körfuknattleik.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort ÍS má fá
annan erlendan leikmann I stað Dun-
bars, reglur um það eru heldur óijós-
ar. En fari svo að þeir megi það ekki,
biður liðsins erfitt hlutverk að halda
sæti sinu I Úrvalsdeildinni, þar sem
liöið er i mikilli fallbaráttu við Þór
frá Akureyri. — gk —
Marie-Therese Nadig frá Sviss og Annemari Moser þriöja meö
með 90 stig, Hanni Wenzel með 80 75 stig. gk —.
Einvaldurinn
fflott á því
— Vildi ekkert við blaðamenn rœða
Sænski skiðagarpurinn I.ngemar'
Stenmark vann mikið a frek I gær
er hann sigraði I stórsvigskeppni
heimsbikarmótsins sem fram fór
IFrakkiandi. Stenmarkvann sig-
ur, og sá sigur var stærri en nokk- -
urn tima áður i þessari keppni.
Þegar upp var staðið var Sten-
mark með saman lagðan Jima (
2.54.33 min. en næsti maður sem
var Peter Lusvher frá Sviss var
með 2.58.06 min. Þarna munaði
þvi 3.73 min. sem er geysilega
mikið. Mesti sigur áður var 3.21
min. en hann vann Edi Brugg-
mann frá Sviss árið 1972.
Hin kornunga skiðadrottning,
Christa Kinshoffer frá V-Þýska-
landi sigraði örugglega i keppni
kvenna sem fram fór i Frakk-
landieinnig. Hún fékk ekki mikla
keppni, en i öðru sæti varð Hanni
Wenzel frá Liechtenstein.
Þá var einnig keppt i bruni
karla, og þar urðu Kanadamenn
sigursælir. Ken Read sigraði, en
landi hans, Steve Podborski varð
annar. Read fékk timann 1.43.52
min, enPodborski 1.43.97 . Miklar
deilur uröu eftir keppnina út af
búningi Read, þeir itölsku kærðu
og sögðu búninginn ólöglegan, en
það var ekki tekið til greina.
Staðan i karlakeppninni er nú
þannig aðPeterLuscher frá Sviss
er efetur með 105 stig, Stenmark
er annar með lOOogKen Read i 3.
sæti með 65 stig.
1 kvennakeppninni er
LandsUðseinvaldurinn I hand-
knattleik. Jóhann Ingi Gunnars-
son, var ekki til viðtals við blaða-
menn eftir jafnteflisleik tslands
og Póllands I gærkvöldi — og er
hann þó skráður blaðafulltrúi HSl
með meiru!
Hurð var skellt á blaðamann
Morgunblaðsins, Þórarin
Kagnarsson fyrrverandi lands-
liðsmann úr FH I handknattleik,
og aðrir blaðamenn hættu sér
ekki nálægt dyrunum eftir það
fyrr en seint og síðar meir.
Það er ef til vill skiljanlegt að
„einvaldurinn” vildi ekki tala við
blaðamenn þessa dagana. Hann
lýsti því nefnilega yfir I sjón-
varpsviðtali á laugardaginn, að
blaðamenn hefðu ekkert vit á
iþróttum og skrifuöu um þær ,af
vankunnáttu — sérstaklega þó
um handknattleik. Maður með
hans menntun og getu i hand-
knattleik, talar aö sjálfsögðu ekki
við slikt fólk__
Þessi sárindi Jóhanns Inga i
garð blaöamanna eru skiljanleg á
vissan hátt. Hann hefúr verið
gagnrýndur af þeim — svo og
ýmsum öðrum — að undanförnu,
og það þolir hann sýnilega mjög
itla. Kemur það ýmsum spánskt
fyrir sjónir, þvl að enginn gagn-
rýndi eins hátt og mikið undir-
búning ogvallandsiiðsins fyrir og
eftir siðustu heim smeistara-
keppni og einmitt Jóhann Ingi
Gunnarsson, núverandi landsliðs-
einvaldur....
— Vann stœrsta sigur sem unnist hefur í stórsvigskeppni
í heimsbikarmóti