Vísir - 10.01.1979, Side 5
5
VlSIR
Miðvikudagur 10. janúar 1979
Styrkur til háskólanáms í Sviþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til há-
skólanáms I Sviþjóð háskólaárið 1979-80. Styrkurinn
miðast við átta mánaða námsdvöl og nemur styrkfjárhæð
s.kr. 1.960 á mánuði. Til greina kemur að skipta styrknum
ef henta þykir.
Umsóknum um styrk þennan skal komið til menntamála-
ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik fyrir 15. febrúar
n.k. og fylgi staðfest afrit prófskirteina ásamt meðmæl-
um. — Sérstök umsóknareyðublöð fást I ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
4. janúar 1979.
Vetrarnámskeiðin
(15. janúar — 6. apríl)
ÁAikið er um nýjungar hjá Mími í vetur. Sam-
talsflokkar hjá Englendingum. Síðdegistímar
'— kvöldtímar. Franska og spánska. Létt
námsefni í þýzku. (slenzka fyrir útlendinga.
Nýr byrjendaf lokkur barna í ensku.
MIMIR—simi I0004og 11109 (kl. 1-7e.h.).
„Út í óvissuna"
frumsýnd í BBC
— allt í óvissu með sýningu myndarinnar hér
Á föstudaginn var frumsýndur
fyrsti hluti sjónvarpsmyndarinn-
ar „Running blind” i breska
sjónvarpinu BBC.
„tJt ióvissuna”, einsog myndin
heitir á islensku, var tekin upp
hér á landi. Nokkrir Islendingar
leika i myndinni, m.a. Ragn-
heiðurSteindórsdóttir,sem leikur
annað aðalhlutverkið.
Þórður Einarsson, sendiráðu-
nautur i islenska sendiráðinu i
London, sagði að dómar um
myndina væru frekar jákvæðir i
dagblöðunum. Þar sem myndin
er i þrem hlutum, er gagnrýnin
ekki ýtarleg heldur mjög almenns
eðiis.
I dómum er ekkert getið um
frammistöðu einstakra leikara en
sérstaklega minnst á umhverfið,
sem myndin er tekin i. Þykir
landslag allt mjög nýstárlegt,
sagði Þórður Einarsson.
Sýningar hér ekki
ákveðnar.
„Það hefur ekkert verið ákveð-
ið, hvenær myndin verður sýnd I
islenska sjónvarpinu. Það hefur
ekki einu sinni verið ákveðið,
hvortmyndin verður sýnd hér”,
sagði Tage Ammendrup, dag-
skrárfulltrúi hjá sjónvarpinu.
□□DDDDDDDaaDaDOODDaaaDanDaDaonDDDDDDDDDDDaDDD
□
□
□
□
□
□
□
□
□
D
□
a
□
□
D
□
o
c
D
c
o
D
oDaaDaaaoaDDaaaaaDaDDDoaoDDDaooaaaaaaaaaaaaaD
Auglýsing
Veistu að árgjald flestra styrktarfélaga er
sama og verö 1-3 sígarettupakka?
Ævifélagsgjald er almennt tifaltárgjald.
Ekki allir hafa tímann eða sérþekkinguna til
að aðstoöa og llkna.
Við höf um samt öll slíkar upphæöir til að létta
störf fólks er það getur.
D
O
D
D
D
D
□
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
D
„Það var engin samvinna höfð
við islenska sjónvarpið við gerð
þessarar myndar, nema hvað við
veittum Bretunum sjálfsagöa
fyrirgreiðslu.”
Það var Skotlandsdeild BBC
sem gerði myndina, en mynda-
tökum lauk hér á landi þann 18.
júlí i sumar.
—ATA
Hinn „kátbroslegi framhaldsleikur"
skólameistarans:
Fœr hann lœknabú-
staðinn til íbúðar?
Það situr allt við hið sama I
húsnæðismálum skólameistar-
ans á ísafirði, en þó er hugsan-
legt að úr rætist, eftir þvi sem
Jón Baldvin Hannibalsson,
skólameistari, sagði i gær.
„Það hafa engin formleg svör
borist frá ráðuneytinu ennþá
um endi á þessum kátbroslega
framhaldsleik,” sagði Jón. „En
þó var orðuð við mig sú hug-
mynd, að ég fengi læknabústað-
inn á ísafirði.”
Þessa hugmynd, sem Jón seg-
ir að hafi verið orðuð við sig,
hefur Visir enn ekki getað feng-
ið staðfesta. Hér mun vera um
að ræða tilfærslur á milli ráðu-
neyta. Vegagerð rikisins hefur
verið að byggja embættisbústað
fyrir umdæmisverkfræðing
sinn, en hann hefur hingað til
búið I fjölbýlishúsi. Mjög tið
læknaskipti munu vera á ísa-
firði og hefur þaö þvi komið til
tals að læknar þeir, sem til
starfa komi á staðinn verði
sendir í fjölbýlishúsið, en heil-
brigðisráðuneytið afhendi
menntamálaráðuneytinu
læknabústaöinn, sem siðan
gerir hann að skólameistara-
bústað.
Að sögn Jóns Baldvins-
sonar er verið að vinna að þessu
máli núná og virðist þvi hugsan-
legt að hann hætti við að hætta
sem skólameistari á Isafirði.
—SS-