Vísir - 10.01.1979, Blaðsíða 8

Vísir - 10.01.1979, Blaðsíða 8
Sjónvarpsmyndaflokkur um Jackie og Onassis Nú hefur verið ákveð- ið að gera sjónvarps- myndaflokk um líf Jackie Kennedy og Onassis saman. Það er sjónvarpsstöðin CBS sem sér um gerð myndaf lokksins/ og verða sýningar á honum væntanlega hafnar (vor eða (sumar. Og enn einu sinni hefur Jackie gert tilraun til þess að stöðva gerð myndar um líf þeirra Onassis , en ekki tekist, að minnsta kosti ekki ennþá. Enn hefur ekki verið upplýst hverj- ir fara með aðalhlut- verkín í þessum mynda- flokki. LRAQUEL MARIE SOPHIA Persónugreiningar Sálfræðingar í Bandaríkjunum gera sér ýmislegt til dundurs. Tveir slíkir sem sérhæra sig I hegðunarmynstri fólks telja sig geta sagt um persónueinkenni karlmanna, eftir því af hvaða þekktum konum þeir eru hrifnastir. Þeir persónugreina menn eftir þvi hvort þeir eru t.d. hrifnir af Sophiu Loren eða Jackie Onass- is. Við skulum taka nokkur dæmi. Sophia Loren. Karlmenn sem eru hrifnir af henni vilja hafa heimilislífið rólegt og öruggt. Þeir ætla sér að komast áfr- am til æðstu metorða og tekst það oftast nær. Elizabet Taylor. Þeir sem eru hrifnir af henni, eru sjúklega metnaðargjarnir og hafa óbilandi sjálfs- traust. Jackie Onassis. Ef karl- menn eru hrifnir af henni, þá taka þeir sig mjög alvarlega. Samt sem áður eru þeir til- búnir til að taka mjög mikla áhættu til að komast til hárra met- orða. Marie Osmond. Þeim sem líst vel á Marie eru mjög ánægðir með það sem þeir hafa. Þeir taka mikið tillit til f jölskyldu sinnar og eru ekki metnaðargjarnir. Farrah Fawcett — Majors. Karlar sem eru hrifnir af henni bera mikTa virðingu fyrir konum og finnst sjálf- sagt að þær komist til hárra metorða. Þetta eru rólegir menn og gera miklar kröfur til sína og þeirra sem þeir umgangast. Raquel Welch. Þeim sem llst vel á Raquel eru mjög reglusamir menn, hver hlutur verður að vera á sínum stað. Þeir vilja láta taka eftir sér og taka sig mjög hátíð- lega. Konan er í þeirra augum ósjálfstæð og hennar staður er á heimilinu. LIZ JACKIE FARRAH Umsjón: Edda Andrésdóttir Miövikudagur 10. janúar 1979 Viö verftum aft láta enda ná saman, elskan. Haitu áfram aft hugsa, þér dettur eitthvert ráft l hug. f Ég er báin aft finna lausn. VIÐ GÆTUM LATIÐ ENDA NA SAMAN EF ÞÚ VÆRIR EKKISVONA UPPTEKIN VIÐ ■AÐ LATA ÞINN ENDA DREKKA i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.